Morgunblaðið - 24.07.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.07.2010, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 4. J Ú L Í 2 0 1 0  Stofnað 1913  171. tölublað  98. árgangur  TVÍBURAR MÆTAST Í BOLTANUM ÍSLENSKUR HERMAÐUR OG BORGARLOFTIÐ ÁLFASÖGUR Á ÁLFASLÓÐUM Í HAFNARFIRÐI SUNNUDAGSMOGGINN ÁLFAGANGA 10FH TEKUR Á MÓTI HAUKUM ÍÞRÓTTIR Fari mörg ágreiningsmál skuldara og lánveitenda um gengistryggð lán fyrir dómstóla gæti úrlausn þeirra orðið „heilmikill frumskógur“ og ójafnræði skapast meðal skuldara að mati fjármálaráðherra. „Sú staða gæti komið upp að fólk sem kom inn af götunni í nákvæm- lega sama tilgangi til að taka lán, annaðhvort til bílakaupa eða hús- næðiskaupa og var svipað sett gagn- vart sínum lánveitanda, fengi samt mismunandi niðurstöður út úr Gengislánin „frumskógur“  Fjármálaráðherra segir gengislánadóma geta skapað ójafnræði meðal skuldara  Engar ákvarðanir teknar á fundi ríkisstjórnar með FME og Seðlabanka í gær komst að þeirri niðurstöðu að geng- istryggt bílalán skuli bera lægstu óverðtryggðu vexti Seðlabanka en ekki samningsvexti eins og skuldar- inn gerði kröfu um. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra telur niðurstöðu dómsins vera „á margan hátt rökrétta“ en að ríkisstjórninni beri að skoða efna- hagsleg áhrif dómsins í heild. „Ég held að öllum þætti best ef þessi mál gætu bara fengið farsæla niðurstöðu án þess að um inngrip væri að ræða. En stjórnvöld verða auðvitað að taka ábyrgt á þessu og horfa á hvað í húfi er og gæta fyrst og fremst almannahagsmuna,“ segir Steingrímur. Alls eru 880 milljarðar króna af gengistryggðum lánum á bókum ís- lenskra banka. Af þeim lánum hvíla 110 milljarðar króna á einstaklingum í formi bíla- og húsnæðislána. dómi,“ sagði Steingrímur J. Sigfús- son fjármálaráðherra í samtali við Morgunblaðið að loknum fundi ríkis- stjórnar með Seðlabanka og FME í gær. Engar ákvarðanir voru teknar á fundinum. Steingrímur kveðst ekki telja rétt að svara því hvort til greina komi að setja lög um vexti gengis- lána en segir að ekki standi til að kalla saman Alþingi vegna dóms sem féll í máli Lýsingar gegn skuldara í gær. Héraðsdómur Reykjavíkur MGengislánin »2, 6 og 18 Margir sólardagar hafa einkennt höfuðborgar- svæðið að undanförnu, en í gær fengu gestir og gangandi að finna fyrir því að þessi landshluti er sem betur fer ekki laus við úrkomu. Veðurstofan hafði reyndar spáð suðlægri og breytilegri átt með rigningu sunnanlands og því voru sumir við- búnir hinu versta, hvort sem þeim líkaði það bet- ur eða verr, en hafa ber í huga að rigning í hófi er góð, jafnt fyrir menn sem gróður. Morgunblaðið/Ómar Við öllu búinn í úrkomusömu veðri Mikil fjölgun auglýsinga á stöðum bæjar- og sveitarstjóra er vísbending um að kjörnir fulltrúar ætli að láta meira á sér bera út á við við stjórnun sveitarfélaganna, en eftirláti rekstr- arfólki að sinna fjármálum og öðr- um hagnýtum hlutum í tengslum við starfið. Þetta er mat Halldórs Halldórssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga og fv. bæjar- stjóra á Ísafirði. Staða bæjar- og sveitarstjóra virðist eftirsóttasta starfið um þessar mund- ir, ef marka má fjölda umsækjenda. Alls hafa 477 umsóknir borist um þau störf sem auglýst hafa verið og allt á sjötta tug umsækjenda verið um hverja auglýsta stöðu. Þrátt fyrir mikinn fjölda umsækjenda virðist ekki alltaf duga til að auglýsa, t.d. var öllum umsækjendum um sveitar- stjórastarfið í Fjarðabyggð hafnað. »8 og 20 Ætla að láta meira á sér bera við stjórnun 477 Umsóknir um þrettán stöður bæjarstjóra unum vegna loftgæðamála í hverfinu en astmi hrjáir tvö af þremur barna hennar. Börnin, sem eru þriggja og fimm ára, þurfa bæði á pústi og stera- lyfjum að halda til að halda astman- um niðri eftir slæma mengunardaga. Leikskólar hverfisins innan við 200 metra frá stofnbrautum „Astminn er ofnæmissjúkdómur sem virkar þannig að þegar erting er frá umhverfinu bregst líkaminn við á ýktan hátt. Það er misjafnt eftir ein- staklingum hvernig, en í okkar tilfelli er það þannig að lungun í Karli Orra Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Fimm ára drengur í Hlíðunum kastar upp dagana eftir að svifryksgildi í borginni hafa mælst sérlega há. Upp- köstin orsakast af ofnæmisvið- brögðum í lungum en drengurinn er astmaveikur. Í ítarlegri umfjöllun um meng- unarmál í borginni í Sunnudagsmogg- anum í dag er meðal annars rætt við Steinunni Þórhallsdóttur, formann íbúasamtaka Hlíða, Holta og Norður- mýrar. Steinunn varð virk í samtök- fara að framleiða mikið slím,“ segir Steinunn. „Á morgnana eftir vonda meng- unardaga á hann til að kasta upp slíminu því það safnast fyrir þegar hann liggur út af. Þegar hann vaknar heyrir maður að hann fær hóstakast og svo þarf hann bara að hlaupa inn á klósett og gubba.“ Þetta gerðist þrisvar eða fjórum sinnum síðasta vetur en í hvert sinn varir ástandið í nokkra daga, þar sem drengurinn kastar upp bæði heima og í leikskólanum. Steinunn nefnir einnig að allir leik- skólar hverfisins séu innan við 200 metra frá stofnbrautum. Í einum þeirra, Stakkahlíð, sem er staðsettur í kverkinni við Kringlumýrarbraut og Miklubraut, sé börnum reglulega bannað að fara út vegna mengunar- innar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjölskyldan F.v. Steinn Kári, Breki Karlsson, Karl Orri, Bríet og Steinunn. Karl Orri og Bríet þurfa bæði á lyfjum að halda eftir slæma mengunardaga. Kastar upp vegna ertingar frá mengun  Slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins óskaði í gær eftir því að allir starfs- menn tækju við boðtækjum slökkviliðsins. Því hafnaði Lands- samband slökkvi- liðs- og sjúkra- flutningamanna og vísaði málinu til kjararáðs sem ákvað að boða til verkfalls. Við upphaf átta klukkustunda verkfalls slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamanna skiluðu þeir farsímum sem slökkviliðið notar til að kalla út aukamannskap þegar stærri atburð- ir verða. Jafnframt lýstu þeir því yfir að þeir myndu ekki taka við tækj- unum aftur fyrr en samningar næð- ust. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðs- stjóri segir að reynt verði að boða menn á annan hátt, með því að hringja í heimasíma og leita aðstoðar fjölmiðla, en það taki of langan tíma. »4 Neita að taka aftur við boðtækjunum Mótmæli Verk- fall hófst í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.