Morgunblaðið - 24.07.2010, Blaðsíða 33
Menning 33FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010
Pabbahelgi verður haldin á
Kaffibarnum í kvöld og er þetta
sú fjórða sem haldin er. For-
sprakkar kvöldsins eru tónlist-
armennirnir Benni B-Ruff og Gísli
Galdur sem báðir hafa getið sér
gott orð sem plötusnúðar und-
anfarin ár. Herlegheitin hefjast að
vanda kl. 23.
Pabbahelgi númer
fjögur á Kaffibarnum
Fólk
Teiknimyndinar Toy Story eða Leikfangasaga
hafa farið sigurför um heiminn, allt frá því að
fyrsta myndin í þríleiknum kom út fyrir rúmum
fimmtán árum.
Íslendingar hafa eins og aðrar þjóðir tekið ást-
fóstri við þá félaga Bósa Ljósár og Vidda á þess-
um árum og eru þeir orðnir tvær af vinsælustu
sögupersónum sem sést hafa á hvíta tjaldinu.
Fyrir um mánuði kom út þriðja og ef marka
má fréttir frá Pixar fyrirtækinu síðasta myndin
um ævintýri Bósa og Vidda. Hefur hún heldur
betur slegið í gegn um allan heim á meðal bíó-
gesta og gagnrýnenda. Myndin fékk fullt hús hjá
gagnrýnanda Morgunblaðsins Sæbirni Valdi-
marssyni sem hafði m.a. þetta um myndina að
segja. „Það hefur verið lögð óvenjuleg alúð við
alla hluti í Leikfangasögu 3, hún er ómenguð
snilld yst sem innst. Þar með talin raddsetningin
á bæði íslensku og ensku. Hún hefur svo sann-
arlega alla burði til að verða vinsælasta og besta
mynd sumarsins.“
Í tilkynningu frá Samfilm sem sér um dreif-
ingu myndarinnar segir að eftir aðeins fjórar
vikur í kvikmyndahúsum hérlendis sé Toy Story
3 orðin fjölsóttasta teiknimynd í kvikmyndasög-
unni hérlendis og hefur þar með slegið við
teiknimyndunum um Simpson-fjölskylduna,
Shrek, Ísaldarvini og fleirum. Samkvæmt Sam-
film hafa því helmingi fleiri Íslendingar séð nýju
myndina en sáu þá fyrstu og liðlega þriðjungur
fleiri en sáu mynd númer tvö.
matthiasarni@mbl.is
Bósi Ljósár, Viddi og félagar vinsælir hérlendis
Vinirnir Bósi og Viddi hafa aftur slegið í gegn.
Hljómsveitin For a Minor Ref-
lection sendi frá sér nýja breið-
skífu á dögum sem nefnist Höldum í
átt að óreiðu. Af því tilefni verða
haldnir útgáfutónleikar í kvöld í
Iðnó. Mun hljómsveitin fá til liðs við
sig ýmsa hljóðfæraleikara, m.a.
hluta þeirra sem tóku þátt í upp-
tökum á plötunni. Á tónleikunum
verða einnig frumsýnd ný vídeó-
verk sem hafa verið unnin fyrir
hljómsveitina af John Rixon og
nemendum hans og eitt eftir ítalska
leikstjórann Lorenzo Fonda. Miða-
verð á tónleikana er 1.500 krónur
og forsala miða fer fram í Smekk-
leysu.
Útgáfutónleikar For a
Minor Reflection
Á meðal áhugaverðra mynda
sem staðfestar hafa verið að verði
sýndar á hátíðinni má nefna heim-
ildarmyndirnar When The Dragon
Swallowed The Sun eftir Dirk
Simon og Which Way Home eftir
Rebecca Cammisa sem var til-
nefnd til Óskarsverðlauna sem
besta heimildarmyndin árið 2010,
auk þýsku gamanmyndarinnar So-
ul Kitchen.
Búið að staðfesta
36 myndir á RIFF
Sumargleði Kimi Records kem-
ur í bæinn í dag og staldrar við í
Havarí í Austurstræti. Með í för
eru hljómsveitirnar Fist Fokkers,
Miri og Snorri Helgason, sem
munu leika tónlist sína meðan
gestir geta gætt sér á ljúffengum
plokkfiski frá Tjöruhúsinu á Ísa-
firði. Það verða því tónleikar,
plokkfiskur og sumargleði í Ha-
varí dag á milli klukkan tvö og
fjögur.
Sumargleðin og
plokkfiskur í Havarí
Matthías Árni Ingimarsson
matthisaarni@mbl.is
„Við erum sjö sem rekum heimasíðuna Imagio-
.is og lítið fyrirtæki í kringum hana og það var
því sjálfgefið að við vildum taka þátt sem lið.
Svo vorum við búin að taka eftir þremur mjög
færum íslenskum ljósmyndurum sem hafa verið
að keppa á DPChallenge og buðum þeim að
vera með,“ segir Svava Bjarnadóttir sem ásamt
níu öðrum ljósmyndurum vann í byrjun júlí sig-
ur í stórri alþjóðlegri ljósmyndakeppni. Keppn-
in hófst hinn 3. apríl síðastliðinn og skiluðu
keppendur ljósmyndum vikulega á ljósmyndas-
íðunni DPChallenge.com sem er ein sú vinsæl-
asta sinnar tegundar. Fjörutíu og átta lið hófu
keppni, skipuð ljósmyndurum hvaðanæva úr
heiminum og var þeim í upphafi skipt niður í
riðla. Íslenska liðið byrjaði á að sigraði í sínum
riðli og fór svo í gegnum úrslitakeppnirnar og
stóð að lokum uppi sem sigurvegari. Liðið
keppti undir nafninu Imagio Iceland en liðið er
skipað þeim Bergljótu Snorradóttur, Boga
Leiknissyni, Braga J. Ingibergssyni, Ófeigi
Erni Ófeigssyni, Ragnheiði Arngrímsdóttur,
Svövu Bjarnadóttur, Þorsteini H. Ingibergs-
syni, Ragnheiði Hrönn Björnsdóttur, Skarp-
héðni Þráinssyni, og Örvari Atla Þorgeirssyni.
Fjölbreytt verkefni
– Hvernig fer svona keppni fram?
„Það er nefnilega mjög skemmtilegt. Þarna
eru okkur sett fyrir ákveðin verkefni til að
mynda. Það eru þrjú verkefni á viku og hver
liðsmaður varð að lágmarki að senda tvær
myndir á viku. Eitt verkefnið var t.d. að búa til
Absolut Vodka-auglýsingu. Aðra vikuna vorum
við að endurgera gamlar ljósmyndir. Svo voru
líka svarthvít verkefni, landslags, portrett og
fleira. Þannig að það reynir á svo margar hliðar
ljósmyndunar, hugmyndaflug og sköpun.“
Svava segir ljósmyndarana í Imagio-hópnum
hafa verið skemmtilega ólíka og það hafi hjálp-
að mikið. Andinn í hópnum hafi verið frábær
alla keppnina og þegar komið var í úrslitin hafi
ekkert annað komið til greina en að vinna.
Mikill heiður
Engin peningaverðlaun voru í keppninni, en
Svava segir það mikinn heiður að hafa unnið og
viðurkenningu fyrir liðsmenn hópsins og um
leið sé nafn Imagio orðið þekkt í þessum heimi.
Eins og segir hófst keppnin í byrjun apr-
ílmánaðar og lauk henni í byrjun júlí. Meðlimir
Imagio slá þó ekki slöku við og halda ótrauðir
áfram að taka þátt í öðrum einstaklings-
keppnum á vegum DPChallenge.
„Ég hálfsaknaði þess að þetta væri búið. Eins
og í gær var ég að senda mynd í keppni og
hugsaði með mér að ég gæti verið að keppa á
móti þeim sem ég var með í liði.“
– Ætlið þið að taka þátt í næstu keppni?
„Já, að sjálfsögðu. Það er reyndar svakaleg
vinna í kringum þetta. Okkur leið stundum eins
og við ynnum á tveimur vinnustöðum því
keppnin bættist ofan á okkar hefðbundnu störf.
Svo komu niðurstöðurnar alltaf klukkan fjögur
aðfaranótt mánudags og þá vöknuðum við
ósjálfrátt til að skoða úrslitin,“ segir Svava að
lokum.
Íslenskur sigur í alþjóð-
legri ljósmyndakeppni
Þolinmæði Myndin Drifting er úr keppni þar sem myndir voru teknar á
löngum lokahraða . Módelið er ljósmyndarinn Skarphéðinn Þráinsson.
Liðið Bragi, Ragnheiður A., Svava, Þorsteinn, Ragnheiður H., Bogi, Örvar
Atli, Skarphéðinn, Bergljót. Á myndina vantar Ófeig.
Endurgerð Svava endurgerði gamla mynd af ofurmódelinu Twiggy og fékk dóttur sína sem módel.