Morgunblaðið - 24.07.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.07.2010, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010 6 ar á borð við þann sem hér um ræðir fælu í sér lán. Tryggingin forsenda vaxta Héraðsómari tók aðalkröfur aðila ekki til greina en féllst á fjórðu vara- kröfu Lýsingar um að miðað skyldi við ógengistryggða vexti Seðlabank- ans. Sú niðurstaða var byggð á því að gengistrygging hefði verið forsenda vaxtaákvæðanna af hálfu lánveit- anda og hún hefði verið röng og brostið. Þessi forsenda hafði að mati dóm- ara svo mikið vægi að með því að hún brysti gætu vaxtaákvæði ekki verið bindandi. Einnig taldi dómari að báðum aðilum mætti vera vægi gengistryggingar sem forsendu vax- taákvæða ljóst. Að þessu virtu taldi dómari að Lýsing ætti rétt til þeirrar fjárhæðar úr hendi lánþega sem ætla mætti að aðilar hefðu sammælst um á réttum forsendum. Þóttu hvorki neytenda- sjónarmið né staða aðila við samn- ingsgerðina eiga að hagga þessu. Óumdeilt var í málinu að samn- ingskjör miðuð við óverðtryggt lán væru hagfelldust þeirra kjara sem hjá Lýsingu buðust. Þess vegna skyldi að mati dómara miða lána- kjörin nú við óverðtryggða vexti Seðlabanka. Var þetta rökstutt með vísan til grunnraka samningaréttar- ins um sanngirni og neytendasjón- armiða sem fram koma í 36. gr. c samningalaga. Aðilar gerðu ítrustu kröfur Í málinu krafðist skuldari þess að farið yrði eftir vaxtaákvæðum upp- haflegs samnings, vextir yrðu 4,34% eða breytilegir LIBOR-millibanka- vextir auk 2,9% álags. Byggði lán- þegi á því að dómar Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar íslensks lánsfjár fælu aðeins í sér að ákvæði um gengistryggingu skyldi niður falla en samningur skyldi að öðru leyti standa óhaggaður. Kvaðst lánþegi einnig hafa greitt það sem honum bæri að greiða. Taldi dómari að ekki hefði verið sýnt fram á það. Í aðalkröfu Lýsingar var þess krafist að lánsfjárhæðin yrði verð- tryggð og bæri að auki vexti sam- kvæmt gjaldskrá Lýsingar á hverj- um tíma. Var krafan byggð á því að ætlunin hefði frá upphafi verið að tengja lánsfjárhæðina ákveðinni vísi- tölu. Eðlilegt væri því að lögmæt verðtrygging kæmi í stað gengis- tryggingar. Féllst dómari ekki á þetta og studdi þá niðurstöðu með vísan til sjónarmiða neytendavernd- ar. Fyrir liggur að málinu verður áfrýjað til Hæstaréttar. Ekki er ljóst hvenær það verður tekið fyrir þar. Dómurinn fjórfaldar vextina  Gengistryggt bílalán ber lægstu óverðtryggðu vexti Seðlabanka  Féllst á fjórðu varakröfu Lýsingar  Lánþega hagfelldara en ef gengistrygging hefði staðið  Dómari féllst á að forsendur væru brostnar Morgunblaðið/Eggert Í sal 101 Jóhannes Árnason, lögmaður lánþega, og dómritari í héraðsdómi Reykjavíkur fyrir dómsuppkvaðningu. „Niðurstaða héraðsdóms er ekki fjarri því sem ég taldi líklegt í málinu þótt aldrei sé hægt að gefa sér slíkt fyrir fram,“ segir Gylfi Magnússon, efnahags- og við- skiptaráðherra, í samtali við Morgunblaðið. Mikilvægt sé þó að gera sér grein fyrir að Hæstiréttur eigi eftir að dæma í málinu. Heildrænt séð segir Gylfi niðurstöðu hérðaðsdóms nokkuð sanngjarna. Væri einungis litið til samningsvaxta bitnaði það á endanum á almenningi. „Niðurstaðan byggist á þeim vöxtum sem rætt er um í lögunum og er þar fyrir utan ekki ósanngjörn lending á milli ýtrustu krafna bæði lánveitenda og lántaka.“ Gylfi hefur sagt að það yrði þungt högg á kerfið ef samningsvextir stæðu. Hann telur að fjármálakerfi landsins muni vart þola áfallið ef allt fer á versta veg frá sjónarhóli lánveitenda hvað varðar gengistryggð lán í íslenskum krónum. „Það er að vísu ekki út af bílalánunum eingöngu, þau vega nú ekki mjög þungt. Lán til fyrirtækja vega miklu þyngra, ef samningsvextir ættu að vera á öllum myntkörfulánum fyrirtækja yrði það mjög þungt högg á kerf- ið og ríkissjóð og þar með almenning.“ hjaltigeir@mbl.is Dómurinn er ekki ósanngjörn lending Kjartan Georg Gunnarsson, framkvæmdastjóri SP fjár- mögnunar, fagnar niðurstöðu héraðsdóms í máli Lýs- ingar gegn skuldara gengistryggðs bílaláns. „Niðurstaðan er í takt við það sem ég bjóst persónu- lega við,“ segir Kjartan. Það beri þó að hafa í huga að dómurinn sé í héraði og því eigi Hæstiréttur eftir að taka afstöðu í málinu. Hann segir vinnu vera í fullum gangi við endur- útreikninga á þeim lánum sem hægt sé að endurútreikna miðað við gefnar forsendur. Fleiri dóma þurfti þó áður en endurútreikningarnir verði kláraðir „Dómurinn breytir engu í okkar vinnu við endurútreikningana nema við fáum skýrari línur,“ segir Kjartan. Dómurinn gefur skýrari línur Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur ekki koma á óvart. „Við mátum það svo, þegar við vorum að gefa út þessi tilmæli, að það væri eðlilegt að reikna þetta á þessum grunni [að vextir Seðlabankans standi].“ Mikilvægt sé að tryggja fjármálastöðugleika hér á landi. Út frá því sjónarmiði er Gunnar sáttur. Málinu verður áfrýjað. Gunnar segir að ef dómur Hæstaréttar falli á annan veg, þ.e. að dómstóllinn stað- festi að samningsvextirnir skuli standa, þá sé sviðs- myndin önnur og dekkri. Þar til óvissunni hafi verið eytt muni FME og SÍ halda sig við þau tilmæli sem hafa verið gefin út um endurútreikning á gengistryggðum lánum. Tilmæli FME og Seðlabankans standa „Í fljótu bragði virðist dómurinn hafa fallist á rök Lýsingar um að vaxtaákvæði Seðlabankans, skv. lög- um um vexti og verðtryggingu, eigi að taka við, eftir að gengistryggingin er dæmd ólögmæt,“ segir Jó- hannes Árnason, lögmaður skuldara sem Lýsing höfðaði mál gegn vegna gengistryggðs bílaláns. Hann segir að niðurstöðunni verði áfrýjað. „Svo virðist að dómarinn komist að þeirri nið- urstöðu að samningsákvæðið sé það tengt geng- istryggingunni að það falli brott,“ segir hann enn- fremur. „Þetta kemur á óvart. Ég get ekki séð hvaða lög og réttarheimildir eiga að leiða til þessarar niðurstöðu. En við eigum eftir að fara betur yfir forsendurnar og sjá hvernig dómarinn komst að þessari nið- urstöðu.“ Niðurstaða héraðsdóms kom á óvart Úr dómi héraðsdóms » „[E]r það niðurstaða dóms- ins að við úrlausn málsins verði að [...] reikna vexti af umræddu láni til samræmis við þá vexti, sem Seðlabanki Ís- lands ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum af nýjum al- mennum óverðtryggðum út- lánum hjá lánastofnunum [...] Verður því fallist á fjórðu vara- kröfu stefnanda.“ » „Er óumdeilt að samnings- kjör miðað við verðtryggt lán eru stefnda óhagfelldari en þau kjör sem miðast við óverð- tryggt lán.“ Haldið verður áfram innheimtu vegna rekstrar-, tækja- og fjár- mögnunarsamninga hjá Íslands- banka sem fjármagnaðir voru í er- lendum myntum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem bankinn hefur sent þeim viðskiptavinum sínum sem eru með slíka samninga við hann. Fram kemur í tilkynningunni að það sé mat Íslandsbanka að dómar Hæstaréttar frá því í júní, um ólög- mæti gengistryggingar, eigi aðeins við um kaupleigusamninga en ekki efni annarra leigusamninga sem sé í „veigamiklum atriðum frábrugðið kaupleigusamningum“. Því verði „áfram miðað við umsamda mynt- samsetningu við útreikninga fram- tíðarleigureikninga á fjármögnunar- leigusamningum“. Yfirlýsing frá Lýsingu Hliðstæð tilkynning hefur verið send út af fjármögnunarfyrirtækinu Lýsingu hf. vegna rekstrar-, einka- og fjármögnunarleigusamninga. Er þar vitnað í lögfræðiálit til stuðnings því mati fyrirtækisins að dómar Hæstaréttar eigi „að öllum líkindum ekki“ við um umrædda samninga. Nýir greiðsluseðlar Fram kemur á heimasíðu Íslands- banka að sendir verði út greiðslu- seðlar vegna gjalddaga í júlí með eindaga 28. júlí nk. Hjá Lýsingu er eindaginn vegna greiðslu í júlí hins vegar settur á 3. ágúst. Bæði fyrirtæki leggja áherslu á að þessar ákvarðanir skerði ekki rétt leigutaka sem síðar kunni að skapast vegna nýrra dóma Hæstaréttar. hjorturjg@mbl.is Segja dómana ekki eiga við  Þeir gildi ekki um aðra samninga en kaupleigusamninga Efni annarra samninga í „veiga- miklum atriðum frábrugðið kaup- leigusamningum“. Dæmt um endurútreikning gengistryggðra lána FRÉTTASKÝRING Skúli Á. Sigurðsson skulias@mbl.is Umsamdir vextir í kaupleigusamn- ingi um bifreið sem kvað á um ólög- mæta gengistryggingu lánsfjár fjór- faldast sé miðað við meðalvexti á lánstímanum. Þetta leiðir af niður- stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Lýsingar hf. gegn skuldara sem kveðinn var upp í gærmorgun. Hag skuldara er þó mun betur borgið samkvæmt þessari niðurstöðu en ef gengistryggingin hefði fengið að standa. Gengislán skulu samkvæmt dómn- um bera lægstu vexti sem Seðla- banki Íslands ákveður á hverjum tíma með hliðsjón af lægstu vöxtum af nýjum almennum óverðtryggðum útlánum. Á lánstíma þess láns sem um ræddi í málinu voru óverðtryggð- ir vextir bankans hæstir yfir 20%. Að sögn Jóhannesar Árnasonar, lög- manns lánþegans, voru þeir að með- altali 18,2%. Nú eru lægstu óverð- tryggðu vextir Seðlabanka Íslands 8,25%. Niðurstaða héraðsdóms er í nokkru samræmi við tilmæli Seðla- banka og Fjármálaeftirlitsins. Þar var til þess mælst að miðað yrði við lægstu óverðtryggðu vexti á hverj- um tíma eða verðtryggingu og verð- tryggða vexti. Er dómurinn fyrsti dómurinn sem fellur í kjölfar þess að Hæstiréttur Íslands kvað upp dóma þess efnis að gengistrygging lánsfjár í íslenskum krónum væri ólögmæt og að samn- ingsákvæði um slíka tryggingu væru ekki skuldbindandi. Hæstiréttur tók af réttarfarsástæðum ekki afstöðu til þess hvort vaxtaákvæðum skyldi breytt. Sló Hæstiréttur því föstu í dómum sínum að kaupleigusamning- Til sölu listaverk eftir Helga Gíslason Uppl. í síma 823 1550 Þetta listaverk eftir Helga Gíslason myndhöggvara er til sölu. Það er frá árinu 1985 og er unnið úr kopar og stendur á granítplötu. Verkið er 65 cm á hæð og 46 cm á breidd Verð tilboð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.