Morgunblaðið - 24.07.2010, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.07.2010, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010 Gróðursetning Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Illugi, sonur hennar, tóku þátt í átaki um ræktun eplatrjáa og gróðursettu fyrsta eplatréð á Klambratúni. Eggert Ef íslenska þjóð- arskútan á nokkurn tímann að geta þanið segl á ný er verð- mætasköpun í hag- kerfinu nauðsynleg. Þrátt fyrir að rík- isstjórnin hafi gert margt til að draga kjark og þor úr þjóð- inni finnast enn hug- myndaríkir, skapandi og duglegir Íslendingar sem reyna að skapa verðmæti með nýjum hugmyndum. Sjálfur fær undirrit- aður viðskiptaáætlanir sendar í viku hverri frá slíkum aðilum. Sam- hliða verðmætasköpun skapast at- vinna og skatttekjur ríkissjóðs aukast. Hver einasta króna sem ríkið notar verður til í einkageir- anum. Yfirvöld, hvort sem þau heita Seðlabanki Íslands eða rík- isstjórn, draga markvisst úr and- rými atvinnulífsins með geigvæn- legum fjármagnskostnaði og mikilli hugmyndaauðgi í íþyngjandi að- gerðum, sem felast meðal annars í vöxtum sem eru átta sinnum hærri en gengur og gerist í Evrópu. Að vissu leyti er það skiljanlegt að sameignarsinnar grípi tækifærið nú og skelli skuld efnahagshruns- ins á atvinnufrelsið. Markaðs- misnotkun, svik og önnur fjár- glæfrastarfsemi eru ekki einkenni frjálshyggju. Frelsi einstaklinga til orðs og æðis snýst um samkeppni, frjálsan markað og umfram allt fagleg og lögleg vinnubrögð. Á Ís- landi skaut rótum illgresi í lysti- garði frjáls atvinnulífs sem skip- aður var af um það bil 20-25 viðskiptaóvitum. Nú hefur illgres- inu verið eytt, enda grundvallaratriði í huga frjálshyggju- manna að láta ekki skattgreiðendur bera kostnaðinn af mis- heppnuðum viðskipta- ævintýrum einkaaðila. Evrópulöndin ákváðu öll að bjarga sínum bönkum með tilheyr- andi kostnaði skatt- greiðenda. Íslendingar eru að því leyti heppn- ir – bankarnir eru búnir að fara á hausinn og nýtt upphaf er næsta skref. Vaxtastefna Seðlabanka Íslands í samvinnu við Alþjóðgjaldeyrissjóð- inn hefur kostað íslenskan almenn- ing meira en tap Seðlabankans af veðlánaviðskiptum við hinu föllnu íslensku banka en það tap hefur nú verið endurreiknað úr 350 millj- örðum niður í 175 milljarða sem eru mjög góðar fréttir þó að ís- lenskir fjölmiðlar hafi lítið viljað fjalla um þau gleðilegu tíðindi. Nú eru 19 mánuðir liðnir frá hruni og 2.000 milljarðar af innlánum liggja meira og minna hreyfingarlausir í kerfinu. Á þessum tíma eru með- alstýrivextir um 14% á ársgrunni og raunstýrivextir um 5% frá hruni sem þýðir ekki aðeins um 350 millj- arða tilfærslu frá skuldugum heim- ilum og fyrirtækjum til fjármagns- eigenda, heldur hefur Seðlabankinn séð til þess að það sé á ofurvöxtum. Á sama tíma hefur ríkið gefið út um 250 milljarða í ríkisskuldabréf- um og 300 milljarða í víxlum frá hruni á allt of háum kjörum vegna vaxtastigs Seðlabankans. Tugmillj- arða kostnaður sem fellur á skatt- greiðendur að óþörfu. Hér er í raun verið að fæða jöklabréfaeig- endur sem eru fastir í fangelsi krónunnar með kampavíni og kaví- ar í öll mál. Einnig má geta þess að „akademísk afglöp“ viðskiptaráð- herra við endurreisn Landsbank- ans geta kostað skattgreiðendur 100-150 milljarða vegna gjaldeyrisl- ánanna sem hann kaus að setja ekki fyrirvara um, þegar hann og fjármálaráðherra tóku yfir lánasafn gamla Landsbankans inn í NBI. Velferðarstjórnin og Seðlabank- inn ákváðu að fara eina leið án þess að skoða til hlítar hvort möguleiki væri á að fara aðra. Þar má meðal annars nefna að láta Alþingi senda formlega beiðni til stórþingsins í Noregi og óska eftir lánalínu á 2,5-3% vöxtum til 7-10 ára. Und- irritaður er þess fullviss að Norð- menn hefðu veitt okkur slíka lánal- ínu hefði þess verið óskað formlega. Slík lánalína hefði komið í veg fyrir þau efnahagslegu mistök sem ríkisstjórn og Seðlabanki í samvinnu við AGS gera daglega um þessar mundir. Fullljóst er að hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum ríkir eindreginn vilji til að erlendir jöklabréfaeigendur fái sem hæsta ávöxtun á sitt fjármagn á meðan gjaldeyrishöftin eru við lýði. Með norskri lánalínu hefðu vextir að öll- um líkindum verið lækkaðir veru- lega og efnahagsáætlun unnin með norska seðlabankanum í samvinnu við þann íslenska. Vert er að benda á að þar á bæ þekkja menn tölu- vert betur til norrænna velferð- arríkja en Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn sem að mestu hefur starfað í Suður-Ameríku undanfarinn ára- tug. Með núverandi áætlun þjónar hin svokallaða velferðarstjórn, sem með réttu ætti að kallast auð- mannastjórn, þeim ríku og heppnu sem eiga sparifé með því að bjóða þeim upp á hæstu vexti sem þekkj- ast í Evrópu. Þeir sem greiða þennan gífurlega vaxtakostnað eru skuldug heimili landsins. Seðlabankastjóri Íslands hélt því fram um daginn að 8,5% stýrivextir hefðu ekki áhrif á fjárfestingar í sprotafyrirtækjum og öðrum at- vinnurekstri. Þessi staðhæfing er með öllu óskiljanleg. Sem dæmi má taka að ef einstaklingur á sparifé að fjárhæð 20 milljónir og getur annaðhvort keypt ríkisskuldabréf sem eru örugg eða fjárfest í sprotafyrirtæki eða öðrum rekstri er eðli málsins samkvæmt fjárfest- ing í sprotafyrirtækjum mun áhættusamari en í ríkisskuldabréf- um. Á meðan ríkisskuldabréf gefa af sér 6,5% fasta ársvexti eða 3,5% verðtryggða vexti er viðeigandi ávöxtunarkrafa sem gera ætti til fjárfestingar í sprotafyrirtækjum slík að fá þeirra geta staðið undir henni. Enda fylgja slíkum fjárfest- ingum hvorki ríkistrygging né öruggir vextir. Það er trú mín að ríkisstjórnin og Alþingi ætti að senda formlega beiðni um lánalínu til Stórþingsins í Noregi. 20 milljarðar norskra króna myndu duga. Þar munu 190 þingmenn úr átta norskum þing- flokkum taka ákvörðun um slíka lá- nalínu en ekki bara ríkisstjórn- arflokkarnir með ESB-skipstjórann Jens Stoltenberg í brúnni sem ekk- ert vill meira en fá Ísland inn í ESB. Með tilkomu slíkrar lánalínu væri hægt að hreinsa flugbrautina. Í kjölfarið væri hægt að taka ákvarðanir með hagsmuni Íslend- inga að leiðarljósi en ekki erlendra áhættufjárfesta eins og jöklabréfa- eigenda og kröfuhafa föllnu bank- anna. Í kjölfarið rynni samning- urinn við AGS út og þau lán sem sjóðurinn hefur veitt landinu yrðu greidd upp að fullu. Það er reyndar óskiljanlegt að vinstri grænir skuli ekki hafa farið fram á að senda Norðmönnum formlega lánal- ínubeiðni þar sem flokkurinn telur allt vænt sem vel er norrænt. Þrátt fyrir að við Íslendingar séum meðlimir í heiðursstúku ESB sem kallast EFTA virðast íslensk stjórnvöld endilega vilja eyða öllum tíma sínum, sem ætti að fara í end- urreisnina, í að sækja um aðild að stóra ESB-klúbbnum. Þjóðartekjur EFTA-meðlima eru tvöfaldar á við þjóðartekjur ESB-landanna. Dyravörður ESB-klúbbsins í Brussel hefur eflaust tjáð núver- andi ráðamönnum að þeir fái ekki að fara inn án andlitslyftingar að hætti AGS. Nú hefur hins vegar komið í ljós að við höfum losað okkur við mikið af okkar illgresi. ESB-klúbburinn mokaði áburði yfir sitt og það er byrjað að vaxa enn frekar. Ef ekki verður skipt um stjórnendateymi í þjóðarskútunni sem fyrst mun engin endurreisn geta átt sér stað í bráð og fjöl- skyldum sem flytja til Noregs fjölga úr einni á dag í þrjár til fjór- ar. Eftir Ragnar Þórisson » Á sama tíma hefur ríkið gefið út um 250 milljarða í ríkisskulda- bréfum og 300 milljarða í víxlum frá hruni á allt of háum kjörum vegna vaxtastigs Seðlabank- ans. Ragnar Þórisson Höfundur starfar á fjármálamarkaði. Kjarklaus endurreisn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.