Morgunblaðið - 24.07.2010, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010
6
ar á borð við þann sem hér um ræðir
fælu í sér lán.
Tryggingin forsenda vaxta
Héraðsómari tók aðalkröfur aðila
ekki til greina en féllst á fjórðu vara-
kröfu Lýsingar um að miðað skyldi
við ógengistryggða vexti Seðlabank-
ans. Sú niðurstaða var byggð á því að
gengistrygging hefði verið forsenda
vaxtaákvæðanna af hálfu lánveit-
anda og hún hefði verið röng og
brostið.
Þessi forsenda hafði að mati dóm-
ara svo mikið vægi að með því að hún
brysti gætu vaxtaákvæði ekki verið
bindandi. Einnig taldi dómari að
báðum aðilum mætti vera vægi
gengistryggingar sem forsendu vax-
taákvæða ljóst.
Að þessu virtu taldi dómari að
Lýsing ætti rétt til þeirrar fjárhæðar
úr hendi lánþega sem ætla mætti að
aðilar hefðu sammælst um á réttum
forsendum. Þóttu hvorki neytenda-
sjónarmið né staða aðila við samn-
ingsgerðina eiga að hagga þessu.
Óumdeilt var í málinu að samn-
ingskjör miðuð við óverðtryggt lán
væru hagfelldust þeirra kjara sem
hjá Lýsingu buðust. Þess vegna
skyldi að mati dómara miða lána-
kjörin nú við óverðtryggða vexti
Seðlabanka. Var þetta rökstutt með
vísan til grunnraka samningaréttar-
ins um sanngirni og neytendasjón-
armiða sem fram koma í 36. gr. c
samningalaga.
Aðilar gerðu ítrustu kröfur
Í málinu krafðist skuldari þess að
farið yrði eftir vaxtaákvæðum upp-
haflegs samnings, vextir yrðu 4,34%
eða breytilegir LIBOR-millibanka-
vextir auk 2,9% álags. Byggði lán-
þegi á því að dómar Hæstaréttar um
ólögmæti gengistryggingar íslensks
lánsfjár fælu aðeins í sér að ákvæði
um gengistryggingu skyldi niður
falla en samningur skyldi að öðru
leyti standa óhaggaður.
Kvaðst lánþegi einnig hafa greitt
það sem honum bæri að greiða. Taldi
dómari að ekki hefði verið sýnt fram
á það.
Í aðalkröfu Lýsingar var þess
krafist að lánsfjárhæðin yrði verð-
tryggð og bæri að auki vexti sam-
kvæmt gjaldskrá Lýsingar á hverj-
um tíma. Var krafan byggð á því að
ætlunin hefði frá upphafi verið að
tengja lánsfjárhæðina ákveðinni vísi-
tölu. Eðlilegt væri því að lögmæt
verðtrygging kæmi í stað gengis-
tryggingar. Féllst dómari ekki á
þetta og studdi þá niðurstöðu með
vísan til sjónarmiða neytendavernd-
ar.
Fyrir liggur að málinu verður
áfrýjað til Hæstaréttar. Ekki er ljóst
hvenær það verður tekið fyrir þar.
Dómurinn fjórfaldar vextina
Gengistryggt bílalán ber lægstu óverðtryggðu vexti Seðlabanka Féllst á fjórðu varakröfu Lýsingar
Lánþega hagfelldara en ef gengistrygging hefði staðið Dómari féllst á að forsendur væru brostnar
Morgunblaðið/Eggert
Í sal 101 Jóhannes Árnason, lögmaður lánþega, og dómritari í héraðsdómi Reykjavíkur fyrir dómsuppkvaðningu.
„Niðurstaða héraðsdóms er ekki fjarri því sem ég taldi
líklegt í málinu þótt aldrei sé hægt að gefa sér slíkt fyrir
fram,“ segir Gylfi Magnússon, efnahags- og við-
skiptaráðherra, í samtali við Morgunblaðið. Mikilvægt
sé þó að gera sér grein fyrir að Hæstiréttur eigi eftir að
dæma í málinu. Heildrænt séð segir Gylfi niðurstöðu
hérðaðsdóms nokkuð sanngjarna. Væri einungis litið til
samningsvaxta bitnaði það á endanum á almenningi.
„Niðurstaðan byggist á þeim vöxtum sem rætt er um í
lögunum og er þar fyrir utan ekki ósanngjörn lending á
milli ýtrustu krafna bæði lánveitenda og lántaka.“
Gylfi hefur sagt að það yrði þungt högg á kerfið ef samningsvextir
stæðu. Hann telur að fjármálakerfi landsins muni vart þola áfallið ef allt
fer á versta veg frá sjónarhóli lánveitenda hvað varðar gengistryggð lán í
íslenskum krónum.
„Það er að vísu ekki út af bílalánunum eingöngu, þau vega nú ekki mjög
þungt. Lán til fyrirtækja vega miklu þyngra, ef samningsvextir ættu að
vera á öllum myntkörfulánum fyrirtækja yrði það mjög þungt högg á kerf-
ið og ríkissjóð og þar með almenning.“ hjaltigeir@mbl.is
Dómurinn er ekki ósanngjörn lending
Kjartan Georg Gunnarsson, framkvæmdastjóri SP fjár-
mögnunar, fagnar niðurstöðu héraðsdóms í máli Lýs-
ingar gegn skuldara gengistryggðs bílaláns.
„Niðurstaðan er í takt við það sem ég bjóst persónu-
lega við,“ segir Kjartan. Það beri þó að hafa í huga að
dómurinn sé í héraði og því eigi Hæstiréttur eftir að
taka afstöðu í málinu.
Hann segir vinnu vera í fullum gangi við endur-
útreikninga á þeim lánum sem hægt sé að endurútreikna
miðað við gefnar forsendur. Fleiri dóma þurfti þó áður
en endurútreikningarnir verði kláraðir „Dómurinn
breytir engu í okkar vinnu við endurútreikningana nema við fáum skýrari
línur,“ segir Kjartan.
Dómurinn gefur skýrari línur
Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur ekki koma á óvart.
„Við mátum það svo, þegar við vorum að gefa út þessi
tilmæli, að það væri eðlilegt að reikna þetta á þessum
grunni [að vextir Seðlabankans standi].“
Mikilvægt sé að tryggja fjármálastöðugleika hér á
landi. Út frá því sjónarmiði er Gunnar sáttur.
Málinu verður áfrýjað. Gunnar segir að ef dómur
Hæstaréttar falli á annan veg, þ.e. að dómstóllinn stað-
festi að samningsvextirnir skuli standa, þá sé sviðs-
myndin önnur og dekkri.
Þar til óvissunni hafi verið eytt muni FME og SÍ halda sig við þau tilmæli
sem hafa verið gefin út um endurútreikning á gengistryggðum lánum.
Tilmæli FME og Seðlabankans standa
„Í fljótu bragði virðist dómurinn hafa fallist á rök
Lýsingar um að vaxtaákvæði Seðlabankans, skv. lög-
um um vexti og verðtryggingu, eigi að taka við, eftir
að gengistryggingin er dæmd ólögmæt,“ segir Jó-
hannes Árnason, lögmaður skuldara sem Lýsing
höfðaði mál gegn vegna gengistryggðs bílaláns.
Hann segir að niðurstöðunni verði áfrýjað.
„Svo virðist að dómarinn komist að þeirri nið-
urstöðu að samningsákvæðið sé það tengt geng-
istryggingunni að það falli brott,“ segir hann enn-
fremur.
„Þetta kemur á óvart. Ég get ekki séð hvaða lög og réttarheimildir
eiga að leiða til þessarar niðurstöðu. En við eigum eftir að fara betur
yfir forsendurnar og sjá hvernig dómarinn komst að þessari nið-
urstöðu.“
Niðurstaða héraðsdóms kom á óvart
Úr dómi héraðsdóms
» „[E]r það niðurstaða dóms-
ins að við úrlausn málsins
verði að [...] reikna vexti af
umræddu láni til samræmis við
þá vexti, sem Seðlabanki Ís-
lands ákveður með hliðsjón af
lægstu vöxtum af nýjum al-
mennum óverðtryggðum út-
lánum hjá lánastofnunum [...]
Verður því fallist á fjórðu vara-
kröfu stefnanda.“
» „Er óumdeilt að samnings-
kjör miðað við verðtryggt lán
eru stefnda óhagfelldari en
þau kjör sem miðast við óverð-
tryggt lán.“
Haldið verður áfram innheimtu
vegna rekstrar-, tækja- og fjár-
mögnunarsamninga hjá Íslands-
banka sem fjármagnaðir voru í er-
lendum myntum. Þetta kemur fram í
tilkynningu sem bankinn hefur sent
þeim viðskiptavinum sínum sem eru
með slíka samninga við hann.
Fram kemur í tilkynningunni að
það sé mat Íslandsbanka að dómar
Hæstaréttar frá því í júní, um ólög-
mæti gengistryggingar, eigi aðeins
við um kaupleigusamninga en ekki
efni annarra leigusamninga sem sé í
„veigamiklum atriðum frábrugðið
kaupleigusamningum“. Því verði
„áfram miðað við umsamda mynt-
samsetningu við útreikninga fram-
tíðarleigureikninga á fjármögnunar-
leigusamningum“.
Yfirlýsing frá Lýsingu
Hliðstæð tilkynning hefur verið
send út af fjármögnunarfyrirtækinu
Lýsingu hf. vegna rekstrar-, einka-
og fjármögnunarleigusamninga. Er
þar vitnað í lögfræðiálit til stuðnings
því mati fyrirtækisins að dómar
Hæstaréttar eigi „að öllum líkindum
ekki“ við um umrædda samninga.
Nýir greiðsluseðlar
Fram kemur á heimasíðu Íslands-
banka að sendir verði út greiðslu-
seðlar vegna gjalddaga í júlí með
eindaga 28. júlí nk. Hjá Lýsingu er
eindaginn vegna greiðslu í júlí hins
vegar settur á 3. ágúst.
Bæði fyrirtæki leggja áherslu á að
þessar ákvarðanir skerði ekki rétt
leigutaka sem síðar kunni að skapast
vegna nýrra dóma Hæstaréttar.
hjorturjg@mbl.is
Segja dómana ekki eiga við
Þeir gildi ekki um aðra samninga en kaupleigusamninga
Efni annarra
samninga í „veiga-
miklum atriðum
frábrugðið kaup-
leigusamningum“.
Dæmt um endurútreikning gengistryggðra lána
FRÉTTASKÝRING
Skúli Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
Umsamdir vextir í kaupleigusamn-
ingi um bifreið sem kvað á um ólög-
mæta gengistryggingu lánsfjár fjór-
faldast sé miðað við meðalvexti á
lánstímanum. Þetta leiðir af niður-
stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í
máli Lýsingar hf. gegn skuldara sem
kveðinn var upp í gærmorgun. Hag
skuldara er þó mun betur borgið
samkvæmt þessari niðurstöðu en ef
gengistryggingin hefði fengið að
standa.
Gengislán skulu samkvæmt dómn-
um bera lægstu vexti sem Seðla-
banki Íslands ákveður á hverjum
tíma með hliðsjón af lægstu vöxtum
af nýjum almennum óverðtryggðum
útlánum. Á lánstíma þess láns sem
um ræddi í málinu voru óverðtryggð-
ir vextir bankans hæstir yfir 20%. Að
sögn Jóhannesar Árnasonar, lög-
manns lánþegans, voru þeir að með-
altali 18,2%. Nú eru lægstu óverð-
tryggðu vextir Seðlabanka Íslands
8,25%.
Niðurstaða héraðsdóms er í
nokkru samræmi við tilmæli Seðla-
banka og Fjármálaeftirlitsins. Þar
var til þess mælst að miðað yrði við
lægstu óverðtryggðu vexti á hverj-
um tíma eða verðtryggingu og verð-
tryggða vexti.
Er dómurinn fyrsti dómurinn sem
fellur í kjölfar þess að Hæstiréttur
Íslands kvað upp dóma þess efnis að
gengistrygging lánsfjár í íslenskum
krónum væri ólögmæt og að samn-
ingsákvæði um slíka tryggingu væru
ekki skuldbindandi. Hæstiréttur tók
af réttarfarsástæðum ekki afstöðu til
þess hvort vaxtaákvæðum skyldi
breytt. Sló Hæstiréttur því föstu í
dómum sínum að kaupleigusamning-
Til sölu listaverk
eftir Helga Gíslason
Uppl. í síma 823 1550
Þetta listaverk eftir
Helga Gíslason
myndhöggvara er til sölu.
Það er frá árinu 1985 og er
unnið úr kopar og stendur á
granítplötu. Verkið er 65 cm á
hæð og 46 cm á breidd
Verð tilboð