Morgunblaðið - 24.07.2010, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Eyrún Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kveðst ekki
geta svarað því hvort til greina komi að setja lög um vexti
gengislána en ríkisstjórnin fundaði með FME og Seðla-
banka í gær um gengislán og viðbrögð við dómum sem fall-
ið hafa í málum þeim tengdum.
„Ég get ekki svarað því á þessu stigi málsins, það væri
ekki rétt að gefa nein svör við slíku. Við verðum að bíða og
sjá hverju fram vindur,“ sagði Steingrímur að loknum
tæpra þriggja tíma fundi.
Fundurinn var upplýsingafundur fyrir ráðherra ríkis-
stjórnar en engar ákvarðanir voru teknar. Lítið fæst upp-
gefið um næstu skref ríkisstjórnarinnar í málum er varða
gengislán en dómurinn sem féll í gær í máli Lýsingar gegn
skuldara staðfesti í raun áður útgefin tilmæli FME og
Seðlabanka.
Sérfræðingar innan ráðuneyta treysta sér enn ekki
til þess að kveða upp úr um það hvort þessi dómur eða
þeir sem féllu í júní í Hæstarétti og dæmdu gengistrygg-
ingu lána ólöglega eigi við um bílalán eingöngu eða einnig
húsnæðislán. Að sögn Steingríms er málið risavaxið og
óhemjuflókið.
Lánasamningar fyrirtækja öðruvísi
Steingrímur segir að upplýsingafundir undanfarið
með FME og Seðlabanka hafi skilað ríkisstjórninni ít-
arlegum upplýsingum um það hvernig gengistryggð lán í
fjármálakerfinu skiptist niður á einstaklinga, fyrirtæki,
sveitarfélög, flokka fyrirtækja o.s.frv.
Ljóst sé að langstærstur hluti lána snúi að fyrirtækj-
um en í þeim málum sé ódæmt. „Það er ekki sjálfgefið að
sama niðurstaða yrði varðandi ólögmætið þegar um fyr-
irtæki er að ræða. Lánasamningarnir eru þar öðruvísi og
of snemmt að gefa sér einhverja niðurstöðu.“
Engar ákvarðanir teknar
Verðum að bíða og sjá hverju fram vindur, segir fjármálaráðherra
Fundað fram á kvöld
» Fundur ríkisstjórnarinnar
stóð frá kl. 16.30 til kl. 19 í
gær. Um var að ræða upplýs-
ingafund fyrir ráðherra.
» Tveir ráðherrar VG fóru
snemma vegna þingflokks-
fundar.
» Ekki er ljóst hver næstu
skref ríkisstjórnarinnar verða í
málinu eða hvort hún grípur til
aðgerða til að eyða óvissu um
vexti gengislána.
Straumur ferðalanga virðist liggja norður í land þessa
helgi. Í gærkvöldi var þung umferð úr Reykjavík og um
Borgarfjörð. Umferðin var hæg og víða mynduðust
bílaraðir, að sögn lögreglumanns í Borgarnesi. Spáð er
bjartviðri norðanlands um helgina og að þar verði hlýj-
ast í veðri. Vel ætti að viðra á gesti fjölmargra bæjar-
hátíða sem haldnar eru um helgina, ekki síst á Norður-
landi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-Líf, var á eftirlits-
og æfingarflugi um Suðurland síðdegis, meðal annars
yfir Landeyjahöfn og nágrenni. Lögreglumaður frá
Selfossi var með í för og var umferðarhraðinn mældur
á Hellisheiðinni. Mjög dregur úr hraða þegar þyrlan
sést á sveimi og þá er tilganginum náð. Lítil umferð var
í gegnum Selfoss í gærkvöldi, samkvæmt upplýsingum
lögreglumanns, umferðin var eins og á virkum degi.
Morgunblaðið/RAX
Ökumenn stíga léttar á bensíngjöfina þegar þyrlan sveimar yfir
Straumurinn liggur norður í land
Dómstólar í Lúxemborg samþykktu
fyrir helgi samkomulag milli þrota-
bús Landsbankans í Lúxemborg,
Landsbanka Íslands, Seðlabanka
Lúxemborgar og nokkurra stærstu
kröfuhafa bankans sem, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, á að
tryggja innistæðueigendum fullar
heimtur innan nokkurra mánaða.
Samkomulagið er afrakstur
margra mánaða samningaviðræðna
og á að tryggja að Landsbanki Ís-
lands geti hámarkað sínar heimtur
úr þrotabúinu, auk þess sem inni-
stæðueigendur fái greitt að fullu.
Samkvæmt sömu heimildum mun
hluti lánabókar fara í stýringu til
Glitnis í Lúxemborg.
Samkomulag náðist
um þrotabú Lands-
bankans í Lúx
„Sjálfum segir
mér svo hugur að
fylgi við ferlið og
umsóknina [að
Evrópusamband-
inu] sé heldur að
aukast á Alþingi
fremur en að
minnka,“ segir
Össur Skarphéð-
insson utanrík-
isráðherra í sam-
tali við fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is. Hann vísar gagnrýni Sjálf-
stæðisflokksins á bug og segir hann
vera að einangra sig í stjórnmálum
í dag. „Það eru bernskubrek nýrrar
forystu sem mun ábyggilega ein-
hvern tímann sjá ljósið og koma
fram með ábyrgari hætti.“ Hann
segir samninga verða leidda til
lykta, sama „þó nokkrir þingmenn
komi korteri fyrir þinglok fram
með tillögu um eitthvað annað.“
Telur stuðning við
ESB vera að aukast
Össur
Skarphéðinsson
MMeira á mbl.is
Grunur er um salmonellusmit í
kjúklingi frá Matfugli og er unnið
að innköllun vörunnar. Þetta er í
þriðja skipti á árinu sem Matfugl
þarf að innkalla kjúklinga vegna
gruns um salmonellusmit.
Samkvæmt upplýsingum frá Mat-
fugli er kjúklingur hættulaus fari
neytendur eftir leiðbeiningum um
eldun kjúklinga og passi að blóð-
vökvi fari ekki í aðra vöru, en hafi
fólk ferska kjúklinga heima hjá sér
er það beðið um að skoða rekjan-
leikanúmerið, sem er að finna á um-
búðunum, og skila kjúklingnum.
Um er að ræða rekjanleikanúm-
erin 011-10-24-4-31.
Innköllun í þriðja
skipti á árinu
Ríkisendurskoðun vekur athygli á
því í skýrslu um athugun á fjár-
hagsstöðu sveitarfélagsins Álfta-
ness að 200 milljóna króna lántaka í
júní 2009 hafi ekki verið borin upp
og samþykkt í bæjarstjórn. Ekki
verði annað séð en að bæjarstjórn
og embættismenn hafi staðið form-
lega rétt að afgreiðslu og samþykkt
annarra mála. Kæra vegna þessarar
lántöku fyrrverandi bæjarstjóra hjá
Kaupþingi banka er til meðferðar í
ráðuneyti sveitarstjórnarmála.
Ríkisendurskoðun telur að
ákvarðanir sveitarstjórnar Álfta-
ness á árunum 2006 til 2009 valdi
þeim alvarlega fjárhagsvanda sem
sveitarfélagið á nú í. Afdrifaríkustu
ákvarðanirnar tengjast leigusamn-
ingi við Eignarhaldsfélagið Fast-
eign um uppbyggingu og leigu á
íþróttamannvirkjum í ársbyrjun
2007 en einnig eru tilgreindir samn-
ingar við Búmenn um leigu á mið-
stöð vegna þjónustu við aldraða og
við Ris um byggingu þjónustuhús-
næðis. Þá er vakin athygli á því að
tekin hafi verið mikil áhætta með
því að hafa stóran hluta lána sveit-
arfélagsins bundinn gengi erlendra
gjaldmiðla. Loks hafi ýmsar
ákvarðanir sveitarfélagsins orðið til
þess að hækka mjög rekstrarkostn-
að, meðal annars að taka unglinga-
deild grunnskólans heim til Álfta-
ness.
Reksturinn þaninn út
Fram kemur að sveitarfélagið
glímdi við fjárhagsvanda þegar í lok
árs 2006, eins og endurskoðendur
bentu á. „Í stað þess að bregðast
við vandanum með raunhæfum
hætti var rekstur sveitarfélagsins
stöðugt þaninn út,“ segir í skýrsl-
unni. Unnið hafi verið eftir fjár-
hagsáætlunum sem byggðust á því
að hægt væri að afla hundraða
milljóna króna árlega í viðbótar-
tekjur með sölu lóða og bygging-
arréttar. „Lausatök voru á rekstri
bæjarfélagsins og virðist lítið að-
hald hafa verið með kostnaði,“ segir
þar ennfremur.
Ríkisendurskoðun telur að draga
megi þann lærdóm af þessu máli að
fjármálareglur um sveitarstjórnar-
stigið þurfi að vera strangari og
setja þurfi skorður við því með
hvaða hætti sveitarfélög geti stofn-
að til skuldbindinga. Um leið þurfi
eftirlit með fjárhagsstöðu sveitarfé-
laga að vera virkt svo hægt sé að
bregðast tímanlega við ef ekki er
farið að reglum.
Snorri Finnlaugsson, forseti nú-
verandi bæjarstjórnar, vísar til nið-
urstöðu Ríkisendurskoðunar um
lántökuna á síðasta ári og telur ein-
sýnt að látið verði reyna á stöðu
sveitarfélagsins í því máli. Það verði
skoðað þegar ráðuneyti sveitar-
stjórnarmála hafi úrskurðað í kæru-
málinu.
helgi@mbl.is
Lausatök á rekstri bæjarins
Í vikunni var 73 kaupsamningum um
fasteignir þinglýst á höfuðborgar-
svæðinu, en jafnmörgum kaupsamn-
ingum hefur ekki verið þinglýst frá
því í fyrstu viku októbermánaðar
2008. Fasteignasali hjá Eignamiðlun
telur markaðinn senn kalla á ný-
byggingar.
„Þessar tölur eru alveg í takt við
það sem ég upplifi á markaðnum,“
segir Þorleifur St. Guðmundsson,
fasteignasali hjá Eignamiðlun, og
bætir við að meira hafi verið að gera
hjá honum þessi dægrin en undan-
farin misseri. „Ég held að við séum á
leið upp.“
Að meðaltali hefur 54 kaupsamn-
ingum verið þinglýst á viku undan-
farnar 12 vikur.
Fleiri óseldar íbúðir 1997
Þrátt fyrir að mikið sé af óseldu,
hálfkláruðu húsnæði á höfuðborgar-
svæðinu telur Þorsteinn að huga
þurfi að byggingu fleiri íbúða. „Það
voru mun fleiri íbúðir óseldar árið
1997 þegar markaðurinn tók kipp og
það tók innan við ár að hreinsa það
upp, þannig að ég held að það skapist
fljótlega á næsta ári þörf fyrir að
menn fari að byrja að byggja því það
tekur ákveðinn tíma að ljúka við
byggingu eftir að hún hefst.“
„Held að
við séum á
leið upp“
73 kaupsamningum
þinglýst í vikunni
Básar á Goðalandi
Gott tjaldsvæði og frábært gönguland
l i
tt tj l i fr rt l