Morgunblaðið - 24.07.2010, Side 4

Morgunblaðið - 24.07.2010, Side 4
skala,“ sagði Sverrir Björn. Hann sagði að til- boð LN til LSS í fyrra upp á 0,8% hækkun hafi verið fellt og tilboðið nú hafi heldur ekki verið nóg. Sverrir telur að ekki þurfi að breyta upp- byggingu kjarasamnings LSS og LN því hann sé sniðinn að sérstöðu stéttarinnar. Hins vegar telur hann nauðsynlegt að hækka grunnlaunin því þau séu ekki eðlileg í ljósi þeirra krafna sem eru gerðar til nýliða um menntun: Þá taki það langan tíma að vinna sig upp í launum. Heildarlaun að meðaltali 470 þúsund Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga og starfs- maður LN, segir að kostnaðarmat launanefnd- ar sveitarfélaga á framlagðri kröfugerð LSS hljóði upp á tugi prósenta. Launanefndin hafi aftur á móti lagt fram tilboð til LSS upp á 1,4% kostnaðarauka. „Meðaldagvinnulaun slökkviliðs- og sjúkra- flutningamanna eru 252 þúsund og meðalheild- arlaunin eru 470 þúsund,“ sagði Inga Rún. Hún sagði upplýsingarnar fengnar úr launakerfum sveitarfélaganna. Dagvinnulaunin eru samsett út grunnröðun starfs og viðbótarlaunaflokkum m.a. fyrir menntun og starfsreynslu. Í heildarlaununum er búið bæta við vaktaálagi, yfirvinnu og öðru sem bætist við dagvinnulaunin samkvæmt kjarasamningi. Aukinn hiti í kjaradeilu slökkviliðsmanna  Talsvert ber á milli slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og sveitarfélaga Morgunblaðið/Júlíus Skilað Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á bakvakt skiluðu í gær boðtækjum sínum til slökkviliðs- stjóra. Þeir munu ekki sinna útköllum sem koma í boðtækin fyrr en kjaradeilan hefur verið leyst. 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010 Ekki er vitað til þess að verkfall Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna gagnvart sveitarfélögunum hafi valdið veru- legum vandræðum í gær. Flug Flug- félag Íslands til Akureyrar raskaðist þó og einhverjir sjúkraflutningar milli deilda og heilbrigðisstofnana á höfuðborgarsvæðinu frestuðust. „Þetta var óvenju rólegt og það skapaðist í engum tilvikum hætta fyrir fólk,“ segir Jón Viðar Matt- híasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Slökkviliðið sinnti 23 sjúkraflutningum meðan á verkfallinu stóð, kl. 8 til 16, en á venjulegum föstudegi eru oft 55 til 75 sjúkraflutningar. Beðið var um flutning þriggja sjúklinga sem hefðu strangt til tekið mátt bíða, sam- kvæmt skilgreiningu Neyðarlín- unnar, en ákveðið var að sinna þeim strax til þess að verkfallið bitnaði ekki á sjúklingum. „Menn voru mjög einbeittir í því að láta sjúklingana ávallt njóta vafans,“ segir Jón Viðar. Eftir klukkan fjögur var mikið að gera í sjúkraflutningum þannig að heilbrigðisstofnanir hafa greinilega beðið með að biðja um akstur. Slökkviliðsmenn fóru í nokkur út- köll á dælubílum. Jón Viðar segir að þau hafi öll verið þess eðlis að ekki mátti bíða með að sinna þeim og það var gert. Verkfallið hafði ekki heldur nein áhrif á dagleg störf slökkviðliðsins á Akureyri, að sögn Jóns Knutsen, varðstjóra hjá Slökkviliði Akureyr- ar. Farið var í öll útköll enda voru þau talin nauðsynleg. Ekki þurfti að fara í neitt sjúkra- flug til Reykjavíkur meðan á verk- fallinu stóð. Í gærmorgun þurfti sjúkraflugvél að snúa við á miðju Grænlandssundi vegna veðurs og lenda á Akureyri. Slökkviliðsmenn mönnuðu slökkvi- stöðina á vellinum til þess að hún gæti lent. Flugfélag Íslands gat ekki notað flugvöllinn á meðan verkfallið varði, vegna eigin starfsreglna. Það flýtti flugi til Akureyrar í gærmorgun, felldi niður eitt flug og seinkaði einu. Áætlunarflug Norlandair raskaðist ekki. helgi@mbl.is Rólegur dagur hjá slökkviliðum Morgunblaðið/Ernir Mótmæli Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn gengu í gær niður Laugaveg og að Ráðhúsi Reykjavíkur, til að vekja athygli á kjarabaráttu sinni.  Verkfall slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna olli ekki miklum vandræðum  Menn létu sjúklingana njóta vafans  Röskun á áætlunarflugi til Akureyrar Rannsókn lögreglunnar á Húsavík á rútuslysinu í Reykjadal miðar að því að kanna hvort hemlunarbúnaður hafi virkað. Kallaður hefur verið til bifvélavirki til að aðstoða lögregl- una við að rífa rútuna í sundur og kanna bremsurnar. Fulltrúi rann- sóknarnefndar umferðarslysa verð- ur einnig viðstaddur. Hreiðar Hreiðarsson lögreglu- varðstjóri segir að búið sé að yf- irheyra ökumann rútunnar og verið sé að vinna úr gögnum málsins. Hreiðar segir að ummerki á slys- stað og aðrar upplýsingar styðji framburð ökumannsins um að bremsubúnaðurinn hafi ekki virkað þegar á reyndi við beygjuna hjá Einarsstöðum. Það sé þekkt að vökvabremsur geti ofhitnað í löngum brekkum eins og bíllinn hafði farið niður Fljótsheiðina og hætt að virka. Því beinist rann- sóknin að því að safna gögnum um það. Tveir af farþegum rútunnar eru enn á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri og einn á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi. Sjúklingarnir á Akureyri bíða flutnings með sjúkra- flugi til Frakklands og Sviss, sam- kvæmt upplýsingum lækninga- forstjóra. Sautján voru í rútunni sem valt á miðvikudagskvöld og sex þeirra voru lagðir inn á spítala. helgi@mbl.is Rannsókn á rútu- slysinu beinist að bremsum bílsins Laugardalslaugin verður opin allan sólarhringinn yfir helgina. Mikil aðsókn var í laugina á fimmtudags- nótt og hafa vafalaust margir viljað busla eilítið eftir að börunum var lokað í miðborginni klukkan eitt. Ölvuðu fólki var ekki hleypt ofan í og reyndu þá einhverjir að klifra yfir girðingar til að komast í vatnið. Bjarni Kjartansson, rekstrarstjóri laugarinnar, segir þó að mikil vandræði hafi ekki skapast. „Við vorum með mjög vel mannað og sterkt lið hjá okkur. Það kom hol- skefla af fólki sem var búið að djamma dálítið og fannst dýrt að kaupa sig inn og vildi komast ofan í hina leiðina.“ Einhverjir íbúar í kring hafa kvartað yfir háværum skrækjum frá lauginni að næturþeli. Ölvuðu fólki var neitað um aðgang að Laugardalslaug Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á 72 kannabisplöntur sem fundust við húsleit í raðhúsi í Garðabæ á fimmtudag. Plönturnar voru ræktaðar í bílskúr hússins og voru á lokastigi ræktunar. Kona á fimmtugsaldri var handtekin vegna ræktunarinnar. Konan játaði sekt sína hjá lög- reglu og telst málið því upplýst. Konan hefur lítið sem ekkert komið við sögu lögreglu áður. Kona á fimmtugs- aldri með kannabis- ræktun í bílskúrnum Við nýráðningu raðast slökkviliðsmaður í til- tekinn grunnlaunaflokk. Ljúki hann sérhæfðu námi og þjálfun hækka launin. Afli hann sér t.d. grunnnáms í sjúkraflutningum hækkar hann um tvo launaflokka og þrjá ef hann lýkur framhaldsnámi í sjúkraflutningum (neyðar- flutningum). Leitar- og björgunarkafarar hækka um þrjá flokka og landflokksmenn, sem t.d. vinna í óbyggðum, um tvo. Slökkviliðsmenn á útkallssviði, aðrir en varðstjóri og aðalvarðstjóri, geta mest hækkað sig um sex launa- flokka með viðbótarmenntun og þjálfun. Bráðatæknar sem ljúka sérhæfðu námi raðast fjórum launa- flokkum hærra en þeir myndu ella raðast, svo dæmi séu tekin um launakerfi slökkvi- liðs- og sjúkraflutn- ingamanna. Viðbótarmenntun hækkar kaupið LAUNAKERFI LSS FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fóru í verkfall frá klukkan 8 til 16 í gær til að leggja áherslu á kröfur sínar. Í Reykjavík gengu þeir fylktu liði niður Laugaveginn að ráðhúsinu. Þar efndu þeir til fræðslu fyrir starfsfólk og kenndu því rétta notkun slökkvitækja. Einnig ræddu slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn við Dag B. Eggertsson, formann borgarráðs, og ýmsa embættismenn og starfsmenn borgarinnar. Um leið og boðaðar aðgerðir hófust skiluðu slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á frívakt boðtækjum til slökkviliðsstjóra. Þeir munu því ekki sinna neyðarútköllum sem berast í boð- tækin fyrr en deilan hefur verið leyst. Í máli fulltrúa slökkviliðsmanna við ráðhúsið kom fram að það sé ekki viðunandi ástand að engir séu á bakvakt. Kjaraviðræður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) við launanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga (LN) eru á forræði ríkissáttasemjara. Nýr fundur hafði ekki verið boðaður um miðjan dag í gær. Kjara- samningar LSS við LN hafa verið lausir frá 31. ágúst 2009. Krefjast hækkunar grunnlauna „Við förum fram á leiðréttingu á grunn- launum og sú krafa hljóðar upp á innan við tug prósenta í heildina,“ sagði Sverrir Björn Björnsson, formaður LSS. Hann sagði að þar sé bæði krafa um hækkun grunnlauna og aðrir þættir kjara slökkviliðs- og sjúkraflutninga- manna. Sverrir Björn mótmælir tölum sem Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga og starfs- maður LN, hefur nefnt um kröfur LSS og segir að þær séu fjarri veruleikanum. Vísar hann til upplýsinga LSS um meðallaun hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins því til stuðnings (sjá skýringarmynd). Sverrir telur að slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamenn líði fyrir það að kjarasamningur þeirra og umbun fyrir aukna menntun og reynslu sé frábrugðið því sem almennt gerist í samningum sveitarfélaga við starfsmenn sína. Ekki hafi verið tekið tillit til þessarar sér- stöðu t.d. í stöðugleikasáttmálanum. Hann bendir á að gerð sé krafa um að slökkviliðs- menn séu með a.m.k. iðnmenntun eða annað fjögurra ára framhaldsskóla- nám. Þá þurfi þeir að afla sér endur- menntunar og símenntunar utan vinnutíma meðan margar stéttir geri það í vinnutíma. „Grunnlaunin okkar eru lág og við verðum að lyfta þeim

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.