Morgunblaðið - 24.07.2010, Side 11
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Er einhver heima? Blaðamaður bankar upp á í veglegri álfablokk en líklega eru álfarnir úti í sólinni.
þá kasti þeir jafnvel álögum yfir dýr
og menn. Á móti þakka þeir hins
vegar afar vel fyrir sig séu þeir að-
stoðaðir eða gefnir hlutir sem þá
vantar.
Garðálfur í mjög vondu skapi
Hópurinn staðnæmist góða
stund í Hellisgerði, fallegum al-
menningsgarði Hafnfirðinga og þar
er örugglega gott að búa ef maður
er álfur. Nóg af steinum, gras og
tré, hvað gæti verið betra? Þó segir
sagan að ekki hafi allir íbúar álfa-
byggðarinnar í garðinum verið ýkja
ánægðir með búsetuna en ung
stúlka ku hafa heyrt kallað í sig úr
steini í garðinum. Hún fór þá og gaf
sig á tal við álfkarl sem þar bjó og
var í afar vondu skapi. Garðurinn er
nefnilega mjög vinsæll til útivistar
og leikja barna og fannst álfinum
aldrei vera nokkurt næði heima hjá
sér. Þá segir önnur saga að kona
sem var á gangi í garðinum hafi
heyrt barnsgrát og í sömu andrá að
einhver sussaði á barnið. Hún fór
beint heim og sagði þar þessi tíðindi
en slíkt segir Sigurbjörg einmitt
einstakt á Íslandi. Fólki finnist ekk-
ert mál að segja frá slíkri upplifun
en í mörgum öðrum löndum væri
litið á það spurnaraugum. Það er
nefnilega fjöldi Íslendinga sem trúir
á álfa og er ekkert að fela það.
Óþekkir umskiptingar
Í ferðinni sem tekur um einn
og hálfan tíma er komið við á ýms-
um stöðum og sagðar sögur sem
flestir Íslendingar kannast við eins
og söguna um 18 barna föður úr álf-
heimum. Einnig sögur af umskipt-
ingum sem Sigurbjörg segir vera
það eina raunverulega slæma við
álfana. Í æsku hafi móðir hennar oft
líkt sér við umskipting þegar hún
var að óþekktast og margir Íslend-
ingar kannast örugglega við að hafa
heyrt slík orð falla. Álfaleið-
söguferðir eru farnar tvisvar sinn-
um í viku en einnig er hægt að sér-
sníða ferðir fyrir hópa. Ferðirnar
eru líka vinsælar hjá ferðamönnum
og vinsælastar hjá þýskum ferða-
mönnum, sem vekur kátínu sam-
ferðafólksins. Nánari upplýsingar
um ferðirnar má nálgast á vefsíðu
leiðsögufyrirtækisins Horft í ham-
arinn, www.alfar.is.
Morgunblaðið/Ómar
Hellisgerði Almenningsgarður Hafnfirðinga heitir eftir þessum helli.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010
Costa del Sol
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu
sætunum í spennandi sumarleyfisferðir til eins
allra vinsælasta sólaráfangastaðar Íslendinga,
Costa del Sol. Fjölbreytt gisting í boði á
ótrúlegum kjörum.
Ath. mjög takmarkaður fjöldi íbúða og herbergja í
boði - verð getur hækkað án fyrirvara.
Verð kr. 124.900 -
Balmoral *** með fullu fæði
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í herbergi í
11 nætur með fullu fæði. Verð m.v. 2 í herbergi kr. 156.100.- á
mann með fullu fæði.
Verð kr. 139.900
Hotel Palmasol *** með "öllu inniföldu"
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í
fjölskylduherbergi með "öllu inniföldu" í 11 nætur. Verð mv. 2 í
herbergi kr. 169.900.-
Verð kr. 129.900
Aguamarina apartments ***
með fullu fæði og drykkjum með mat
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð
með fullu fæði og drykkjum með mat í 11 nætur. Verð mv. 2 í
studio kr. 169.900 með fullu fæði og drykkjum með mat.
Síðustu sætin 17. ágúst
í 11 nætur á einstöku tilboði
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur.
Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Frá kr. 124.900 með fullu fæði
Daglegt líf 11
„Þar sem ég á afmæli á morgun ætla
ég að halda upp á það í kvöld,“ segir
Nikólína Hildur Sveinsdóttir, nemandi
við Menntaskólann í Reykjavík. Hún
verður 19 ára sunnudaginn 25. júlí
og býður heim í veislu í tilefni
þess. Nikólína er í fríi frá
sumarvinnunni í dag en
hún er nýkomin heim frá
Svíþjóð þar sem hún
dvaldi í nokkrar vikur
ásamt vinkonum
sínum. „Ég ætla
bæði að baka og
taka til í dag. Þem-
að í afmælinu er
„Cupcakes&cocktails“
og ég þarf að undirbúa
það,“ segir Nikólína og
býst við að framleiða
nóg af muffins fyrir af-
mælisboðið en hún á von á
um tuttugu afmælisgestum í heim-
sókn. „Þetta eru vinkonur, bekkjar-
systur mínar og frænkur og við ætl-
um að gæða okkur á kræsingunum
og halda upp á afmælið,“ segir Nikó-
lína sem hlakkar til að skemmta sér
með vinkonunum. „Ég hef eigin-
lega alltaf haldið upp á afmælið
mitt og mér finnst það mjög
skemmtilegt,“ segir
Nikólína en sem betur
fer stendur hún ekki
ein í undirbún-
ingnum heldur
hafa vinkonur
hennar boðist til að
hjálpa afmælis-
barninu við undirbún-
inginn og gera allt
tilbúið fyrir kvöld-
ið. Eftir allan
bakstur og tiltekt
tekur svo gamanið
við.
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Undirbúningur fyrir afmælisboð
Afmælisbarn Nikólína Hildur Sveinsdóttir notar daginn í afmælishald.
Mæðgurnar Sveinhildur Vilhjálms-
dóttir og Tóta dóttir hennar halda
úti skemmtilegri Facebook-síðu
með hönnun sinni sem kallast Kasó
Bil. Sveinhildur var lengi textílkenn-
ari og prjónar aðallega úr mjög
grófu garni en Tóta er í hönn-
unarnámi.
Hjólaslöngur og gróft garn
„Í hönnun okkar erum við að-
allega með prjónles en ég prjóna
aðallega úr mjög grófu garni og
plötulopa sem gefur skemmtilega
áferð. Tóta hannar hins vegar skart-
gripi og hefur t.d. gert skemmti-
legar keðjur um hálsinn úr hjóla-
slöngum. En nú er hún líka byrjuð að
fikra sig áfram við að prjóna. Nafnið
Kasó Bil kom til af því að dóttir mín
kallaði kaffibolla kasóbil þegar hún
byrjaði að tala. Orðið hefur því per-
sónulega tengingu við okkur þó það
sé kannski ekki lýsandi fyrir það
sem við gerum. Við hönnum ekki
saman en njótum á skapandi hátt
að fara okkar eigin leiðir og styðjum
hvor við aðra,“ segir Sveinhildur.
Fyrir þá sem vilja skoða og prófa er
bent á að hafa samband við þær
mæðgur í gegnum Facebook-síðuna.
Mæðgur kynna saman hönnun sína
Flott Rauð prjónapeysa úr grófu garni,
tilvalin fyrir síðsumarkvöld.
Gróft garn og skartgripir