Fréttablaðið - 06.12.2011, Blaðsíða 34
6. desember 2011 ÞRIÐJUDAGUR26
www.visir.is
Sími: 512 5000 |
Árat
með
Miðvikudagur 30. n
óvember 2011 | 18
. tölublað | 7. árgan
gur
Búið er að stofna
nýt
ehf.. Félagið var s
tof
efni var nafni gam
la
fur
m ár
um
um
va
a FA
Bald
. Fé
inu
Eigendur Olí
Erfitt að mæla ar
ð
j
Arion banki þarf
að losa
hlut sinn í Högum
fyrir
yrða sem Samkep
pnis-
(FME) settu eign
arhald
þýðir að sá 21 1-3, 1
1%, h
halda eftir í Hö gu
m í k
ur set t á ma kar ð n
æstk
þurfa að sel jast lí
ka. A
um að 20-30% hlu
tur í
bankans v, erði se
l dur
Arion ekki staðið
við g
fyrir fullnægjand
i rök
ingu viðbótar fres
ts m
viður lögum, dags
ektu
til að knýja á um
aðge
Þarf að selja H
me
fyrir Alþing beið
um áhrif þess að
0 il 20 prós
na
lsl
u
f
s
k
o
í
1 t
Meðal efnis í blaðinu:
Almannatengslamarkaðurinn á Íslandi kortlagður.
Viðtal við Kjartan Ólafsson,
framkvæmdastjóra Markó Partners.
MARKAÐURINN
KEMUR ÚT Á MORGUN.
ehf. FAD 1830 he
Íslands (Olís) u
ah fa átt í viðræð
Landsbankann,
ingu enda hefur
tækisins. Gaml
er í e igu Gísla
Benedikts sonar
reikningi frá ár
semi Fimmtán þingi
Vilja kan
höfuðstó
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
-
1
1-
25
44
HANDBOLTI „Ísland er besta hand-
boltaþjóð í heimi miðað við höfða-
tölu. Það er engin spurning. Miðað
við fjárhag og mannfjölda þá er
það enginn vafi. Það er hægt að
komast langt á hefð og vinnusemi.
Ég nota það sem ég þekki frá
Íslandi á mína leikmenn – það sem
snýr að vinnusemi og dugnaði. Það
er eitt af einkennum Íslendinga,“
sagði Þórir Hergeirsson, þjálfari
norska landsliðsins í handbolta.
Þórir er í afar sérstakri stöðu í
kvöld þegar hann mætir íslenska
liðinu en Þórir er fæddur á
Selfossi en hefur búið í
Noregi í áratugi. „Þetta
verður mjög sérstakt
og skemmtilegt. Ég
mun syngja báða þjóð-
söngvana fyrir leikinn.
Ég syng alltaf íslenska
þjóðsönginn.“
Stórstígar framfarir
Virðing er það fyrsta
sem Þórir nefnir þegar
hann er spurður um
viður eign Noregs og
Íslands á HM í kvöld.
„Ég segi það oft í
Noregi að maður þarf
ekkert mikið til þess að
vera góður í íþróttum.
Þú þarft vilja, reima á
þig skóna og finna vegg
til þess að kasta í. Íslend-
ingar eru snillingar í að
gera mikið úr því litla
sem þeir hafa. Íslenskur kvenna-
handbolti hefur tekið miklum
framförum undan farin ár. Leikur
þeirra er agaður og þær fara langt
á því. Liðið er líkamlega sterkt lið,
sem spilar fast og þolir mikið. Það
er hins vegar spurning um hvernig
liðinu tekst að gera það í fleiri leikj-
um á svona stórmóti. Það þarf að
venjast því og fá reynslu í að gera
slíkt. Í þessum tveimur leikjum
sem ég hef séð þá hafa þær mætt
ólíkum liðum og það var greini-
legt að Ísland hafði ekki reynslu
af því að leika gegn liði á borð við
Angóla. Mér finnst íslenska liðið
spennandi, það er góður agi í lið-
inu, góð liðsheild og góður mór-
all. Ísland er andstæðingur sem
við tökum alvarlega og berum
virðingu fyrir.“
Gert mikið úr litlu
Þórir segir að það sé í raun ótrú-
legt hve langt Ísland hafi náð í
alþjóðlegum handbolta miðað við
það fjármagn sem HSÍ hefur úr
að moða á hverjum tíma. „Það er
ekki hægt að líkja þessu saman.
Við erum með ársveltu hjá A-
landsliði kvenna sem nemur 160-
200 milljónum íslenskra króna og
okkur finnst það ekki nóg,“ sagði
Þórir en til samanburðar má
nefna að heildarársvelta
HSÍ er rétt rúmlega 100
milljónir kr.
Miklar væntingar
Markmið norska liðs-
ins eru einföld og háleit.
Og það er í raun ekki
Þórir sem setur þessi
markmið. Það gerir
norska handknattleiks-
sambandið.
„Á ársþingi norska
handknattleikssam-
bandsins er tekin
ákvörðun um slíkt,“
útskýrir Þórir. „Þar er
einfaldlega samþykkt að
stefna að því að kvenna-
landsliðið spili til verð-
launa á öllum stór-
mótum. Og þegar ég segi
já um að taka að mér
þetta starf þá eru þetta
viðmiðin. Maður verður bara að
lifa við þær væntingar sem gerðar
eru til okkar.“
Lið Noregs er talsvert breytt
frá síðustu árum en það setur sér
sín eigin markmið líka. „Í liðinu
sjálfu eru innri markmiðssetn-
ingar sem fara aldrei út fyrir
hópinn. Við erum með lið sem er
slípast saman, enda töluverðar
breytingar á leikmannahópnum.
Ég hef ekki haft langan tíma með
hópinn eins og hann er í dag. Nýir
leikmenn og aðrir sem hafa fengið
önnur hlutverk en áður. Það hefur
vantað stöðugleika hjá okkur en ef
allt gengur vel þá gætum við leikið
um verðlaun á þessu móti,“ sagði
Þórir Hergeirsson. seth@frettabladid.is
Mun syngja báða
þjóðsöngvana
Þórir Hergeirsson, þjálfari Evrópu- og Ólympíu-
meistaraliðs Noregs, segir Ísland bestu handboltaþjóð
í heimi. Ísland mætir Noregi á HM í Brasilíu í kvöld.
MIKLAR VÆNTINGAR Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson er þjálfari norska landsliðsins
sem hefur náð langt á undanförnum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Íslenskur
kvennahand-
bolti hefur
tekið miklum
framförum
undanfarin ár.
Leikur þeirra
er agaður og
þær fara langt
á því.
ÞÓRIR
HERGEIRSSON
LANDSLIÐS-
ÞJÁLFARI NOREGS
Leikir kvöldsins
E-riðill:
Chelsea - Valencia
Genk - Bayer Leverkusen
F-riðill:
Olympiacos - Arsenal
Dortmund - Marseille
G-riðill:
Porto - Zenit St. Petersburg
Apoel Nicosia - Shaktar Donetsk
H-riðill:
Barcelona - BATE Borisov
Viktoria Plzen - AC Milan
FÓTBOLTI Lokaumferðin í fjórum
riðlum Meistaradeildar Evrópu
fer fram í kvöld og er spenna
í þremur riðlum af fjórum.
Barcelona og AC Milan eru
komin upp úr H-riðli en spenna
er í hinum riðlunum. Arsenal og
Apoel eru einnig örugg áfram og
því eru fjórir farseðlar í 16 liða
úrsltin í boði í kvöld.
Stórleikur kvöldsins er viður-
eign Chelsea og Valencia, en liðin
eru jöfn að stigum og einu stigi á
eftir Leverkusen, sem stendur vel
að vígi í efsta sæti. Chelsea má
ekki misstíga sig gegn sjóðheitu
liði Valencia.
Meistaradeild Evrópu:
Allt undir hjá
Chelsea
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI ÍÞRÓTTIR
Meiri Vísir.