Morgunblaðið - 24.07.2010, Blaðsíða 25
Minningar 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010
Henni hafði svo gaman af því að
bregða á leik. Hann var rammbyggð-
ur sjálfstæðismaður og gat verið eins
og orustuskip í þeim efnum. Þá gat
verið erfitt fyrir Guðrúnu hans að
hafa taum á stráknum, en hann blikk-
aði bara yfir öxlina á henni og hélt
sínu lipurlega striki. Einu sinni fyrir
alþingiskosningar fyrir margt löngu
var barist gegn vinstri stjórn. Þá var
farið í fundaherferð upp á fastalandið
í hópi ungra sjálfstæðismanna. Henni
mætti með fulla kassa af litlum hand-
sápum og dreifði þessu á bændur og
búalið undir kjörorðinu: „þvoið af
ykkur vinstri villuna“. Einhverjir
héldu að hann væri að gefa í skyn að
menn væru ekki nógu hreinir í sveit-
unum, en allir höfðu gaman af þessu
uppátæki Henna.
Fyrir nokkrum árum var mér
brugðið af bæ í Alþingi. Á mannamóti
skömmu síðar hitti ég Henna og Guð-
rúnu og Henni hafði engar vöflur á,
heldur tók með snörum handtökum af
mér forláta nýtt hálsbindi sem ég var
með og lét mig hafa í staðinn sitt bindi
sem var ekki alveg fyrir minn smekk.
Þessum gjörningi fylgdu þau orð
Henna að ég fengi ekki flotta bindið
aftur fyrr en ég væru kominn aftur
inn á Alþingi. Þetta gekk eftir, bæði
með þingið og bindið og Henni hafði
gaman af.
Henni var einn af þeim mönnum
sem alltaf var gott að hitta því það
fylgdi honum bæði hlýja og gáski, lit-
ríkur eins og Eyjarnar hans, maður
allra átta til árangurs. Hann sigldi
stundum taki vestanbrimsins, en
sunnanblærinn var fasið hans ómeng-
að.
Megi góður Guð vernda Guðrúnu
og fjölskylduna alla, vini og vonirnar.
Í himnaranninum bankar nú nýr
heimamaður með glæsilegan stíl.
Árni Johnsen.
Góður vinur okkar hjóna, Heið-
mundur eða Henni eins og hann var
alltaf kallaður, er nú horfinn á braut.
Þegar við Axel heitinn fluttum til
Eyja fyrir 50 árum, kynntumst við
vinum okkar Rúnu og Henna. Axel og
Henni voru saman í Akóges til fjölda
ára, þar sem margt var brallað. Henni
var alltaf hrókur alls fagnaðar, mikill
gleðimaður og góður gestgjafi.
Svo kær vinur okkar var hann á
sínum tíma að hann var guðfaðir tví-
buranna okkar.
Mörg voru ferðalögin sem við fór-
um með Akóges þar sem Henni lét til
sín taka. Ófáar voru skemmtanirnar
þar sem Henni sá um veisluföng og
skemmtiatriði.
Þau hjónin eiga sér bústað í Vað-
neslandi þar sem margir nutu gest-
risni þeirra.
Henni var menntaður bakari, kom
á fót heildsölu H. Sigurmundsson þar
sem öll fjölskyldan vann sem einn
samhentur hópur.
Heildsalan hefur sett sinn svip á
bæjarfélagið árum saman.
Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd
fjölskyldu minnar þakka Henna sam-
fylgdina og biðja Rúnu og fjölskyldu
þeirra Guðs blessunar.
Sigurbjörg Axelsdóttir.
Hann Henni hefur kvatt okkur á
besta aldri. Við kynntumst fyrst þeg-
ar ég var lítil strákur og hann var að
baka í Magnúsarbakaríi en þar var
leikvangur minn. Alltaf tók Henni vel
á móti mér og var til í að gera smá
sprell og gauka einhverju góðgæti að
stráknum. Síðar á lífsleiðinni lágu
leiðir okkar saman, en það var eftir að
Henni hafði rekið heildsölu og vildi
byrja að þjónusta skipaflotann í Eyj-
um með kost og annað sem flotinn
þurfti. Fyrirtæki hans H. Sigmunds-
son ehf. var rekið af miklum mynd-
arbrag af honum og fjölskyldu hans
þar sem allir unnu sem einn maður
við að þjónusta sem best og er einstök
þjónustulund þessari fjölskyldu í blóð
borin.
Henni gekk reyndar undir nafninu
Henni heildsali hjá okkur og kunni
hann bara ágætlega við það. Henni
lagði metnað sinn í að afgreiða alltaf
góða vöru um borð í skipin og það hef-
ur fjölskyldan lært af honum. Hér á
árum áður, þegar ég rak frystitogara,
þurftum við oft að landa í Reykjavík
þá var alltaf pantaður kostur frá
Henna heildsala í Eyjum, vegna þess
að hann vissi hvað sjómennirnir vildu
og lét sig ekki muna um að þjónusta
skipverjana þó hann þyrfti að fara yf-
ir hafið með kostinn til að koma hon-
um til skila.
Samheldni og jákvæðni hans og
fjölskyldu hans kom sér vel þegar
hann veiktist og var veikindunum tek-
ið sem hverju öðru verkefni sem
þurfti að takast á við. Hann mætti
alltaf til vinnu um leið og heilsan
leyfði og aldrei var kvartað, allt gekk
svo vel og þetta var allt að koma,
læknarnir voru svo frábærir og allt
svo gott í kringum hann.
Við hjónin áttum þess kost að fagna
með honum 75 ára afmælinu á þessu
ári. Þann dag ljómaði okkar maður og
bar ekki utan á sér að hafa gengið í
gegnum erfiða meðferð. Þau hjónin
Rúna og Henni voru glæsileg þetta
kvöld eins og alltaf og nutum við þess
innilega að vera með þeim á þessum
degi.
Það var þung fregn sem Olli sonur
þeirra færði okkur að faðir hans hefði
fengið heilablæðingu sem leiddi hann
til dauða þann 13. júlí síðastliðinn.
Hugur okkar er hjá samheldnu
fjölskyldunni hans sem stórt skarð er
höggvið í en við vitum líka að þessi já-
kvæða fjölskylda á margar góðar
minningar til að ylja sér við þegar
söknuðurinn herjar á þau og minning
Henna heildsala mun lifa.
Lóa og Magnús Kristinsson.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
FRÍÐU HELGADÓTTUR,
Efstalandi 4,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Skjóls, fyrir alúð og góða umönnun á
liðnum árum.
Magnús Gunnar Pálsson, Þóra J. Hólm,
Bertha S. Pálsdóttir,
Sigurður Pálsson, Hanna M. Baldvinsdóttir,
Svavar Pálsson,
Helgi Pálsson, Pálína Reynisdóttir,
Málfríður Ágústa Pálsdóttir,
Páll Garðar Pálsson
og ömmubörn.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra fjölmörgu ættingja og
vina sem sýnt hafa okkur einstakan hlýhug og
stuðning vegna andláts okkar ástkæra,
ÓSKARS STEFÁNSSONAR,
Katrínarlind 5,
Reykjavík.
Einnig viljum við færa starfsfólki á bráðamóttöku
og gjörgæslu Landspítala í Fossvogi, sem og þeim
sem komu að tónlistarflutningi við útförina, kærar
þakkir.
Sérstakar þakkir fá Séra Sigrún Óskarsdóttir, samstarfsmenn Óskars
og yfirmenn hjá Elkem Ísland, fyrir ómetanlegan stuðning.
Guð geymi ykkur.
Ísabella Alexandra Óskarsdóttir,
Stefán Eiríksson,
Guðmunda Óskarsdóttir,
Nanna Maren Stefánsdóttir,
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
✝
Elskulegur sonur okkar, bróðir og barnabarn,
GUÐMUNDUR JÓHANNSSON,
Seljudal 24,
Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn
16. júlí.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn
28. júlí kl. 11.00.
Guðrún Guðmundsdóttir, Jóhann Dagur Egilsson,
Dagur Jóhannsson,
Þórdís Skarphéðinsdóttir, Egill Jóhannsson.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
VILBORG PÉTURSDÓTTIR,
Vippa,
Skjólbraut 9a,
Kópavogi,
lést mánudaginn 19. júlí.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn
27. júlí kl. 15.00.
Við þökkum fjölskyldu og vinum hlýhug og stuðning á þessum erfiðu
tímum.
Sérstakar þakkir til Karitas hjúkrunarþjónustu, starfsfólks líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi og allra þeirra sem önnuðust hana af alúð og
virðingu í veikindum hennar.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi, sími 543 1159.
Sigurður Kristinn Haraldsson,
Pétur Steinn Sigurðsson, Jóhanna Eysteinsdóttir,
Haraldur K. Sigurðsson, Jóhanna L. Aðalsteinsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN SVEINDÍS MARÍA
HALLDÓRSDÓTTIR,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 21. júlí.
Halldór G. Bjarnason, Prakob Prawan,
Kristinn Jón Arnarson, Ekaterina Ivanova,
Margét Marín Arnardóttir, Einar S. Karlsson
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og systir,
INGIBJÖRG KALDAL,
Selvogsgrunni 3,
Reykjavík,
er látin.
Hún verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
föstudaginn 30. júlí kl. 13.00.
Sigurður Kaldal, Rúna Magdalena Guðmundsdóttir,
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson,
Írena Líf Svavarsdóttir,
Ingibjörg Kaldal Sigurðardóttir,
Dagmar Kaldal.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN L. SIGURÐARDÓTTIR,
Hrafnistu í Reykjavík,
áður Kirkjubraut 5,
Akranesi,
lést fimmtudaginn 22. júlí.
Erna Arnórsdóttir, Þór Jóhannsson,
Aðalheiður Arnórsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓHANNES EMILSSON,
til heimilis að,
Lundargötu 15,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 26. júlí kl. 13.30.
Guðlaug Jóhannesdóttir,
Helgi J. Jóhannesson, Gerður Geirsdóttir,
María Jóhannesdóttir, Gylfi Sv. Gylfason,
Pétur S. Jóhannesson,
Kristbjörg H. Jóhannesdóttir,
Árni V. Jóhannesson, Nancy Georgsdóttir,
Gunnar Þ. Jóhannesson
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför,
GUÐRÚNAR SIGRÍÐAR
JÓHANNESDÓTTUR BLÖNDAL.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Holtsbúð Garðabæ fyrir góða umönnun.
Jóhannes Blöndal, Maj Britt Pálsdóttir,
Jósep Blöndal, Hedvig Krane,
Gunnar Blöndal, Margrét Magnúsdóttir,
Guðmundur Blöndal,
Guðrún Blöndal, Theódór Sigurðsson,
Lárus L. Blöndal, Soffía Ófeigsdóttir,
Anna Bryndís Blöndal,
Jón Ásgeir Blöndal,
Lárus St. Blöndal Jónasson, Íris Dröfn Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.