Morgunblaðið - 24.07.2010, Qupperneq 32
32 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010
Píanóleikarinn Davíð Þór Jóns-
son mun á morgun kl. 16 flytja
píanóverk á Gljúfrasteini, bæði
frumsamin og eftir helstu tón-
skáld síðustu alda, m.a. Bach,
Schumann og Chopin.
Davíð Þór útskrifaðist frá
Tónlistarskóla FÍH árið 2001
með láði og gaf út fyrstu sóló-
plötu sína, Rask, ári seinna.
Hann hefur verið iðinn sem
hljóðfæraleikari í fjölda hljóm-
sveita og auk þess verið útsetjari og upptöku-
maður. Þá hefur hann einnig unnið í leikhúsi og
með myndlistarmanninum Ragnari Kjartanssyni.
Stofutónleikar Gljúfrasteins verða haldnir alla
sunnudaga í sumar kl. 16. Aðgangseyrir kr. 1.000.
Tónlist
Davíð Þór á
Gljúfrasteini
Davíð Þór
Jónsson
Í dag verða haldnir tónleikar í
Skálholtskirkju með yfirskrift-
inni „H.I. In memoriam“ sem
er nafn á nýju verki eftir Óli-
ver Kentish. Verkið tileinkar
hann minningu Helgu Ingólfs-
dóttur, stofnanda Sumar-
tónleika í Skálholti, en hún lést
í fyrra. Tónleikarnir hefjast kl.
15 en á þeim mun fyrrverandi
kennari Helgu, Hedwig Bil-
gram orgelleikari og Guðrún
Óskarsdóttir semballeikari auk Mörtu Halldórs-
dóttur sópran flytja fyrrnefnt verk og tónlist eftir
Bach, Genzmer, Händel og Walther. Kl. 17 verða
svo tónleikar með Bachsveitinni í Skálholti, með
konsertum og kantötum Bachs.
Tónlist
Minningartónleikar
í Skálholtskirkju
Johann Sebastian
Bach
Á morgun verður boðið upp á
leiðsögn um ljósmyndasýningu
Minjasafnsins á Akureyri,
Fjársjóður – tuttugu ljósmynd-
arar frá Eyjafirði 1858-1965. Á
sýningunni gefur að líta yfirlit
um ljósmyndun á Eyjafjarðar-
svæðinu og afrakstur rann-
sókna Harðar Geirssonar,
safnvarðar Minjasafnsins, á
ljósmyndaarfi Íslendinga, að
því er fram kemur í tilkynn-
ingu. Hörður mun sjá um leiðsögn á morgun.
Í tilkynningu er m.a. spurt: „Hefur þú séð eina
fyrstu íslensku paparazzi-myndina? Hefur þú séð
mynd af fyrstu konunni sem kaus á Íslandi?“
Leiðsögnin hefst kl. 14.
Ljósmyndun
Fræðst um ljós-
myndaarfinn
Hörður Geirsson
safnvörður
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
JohannG In English er heiti nýrrar plötu sem
tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson sendi
nýverið frá sér. Á plötunni eru 28 lög eftir Jó-
hann sem hann valdi sérstaklega fyrir plötuna,
flutt af 30 íslenskum söngvurum á ensku og eru
þar engir aukvisar á ferð, m.a. Andrea Gylfa-
dóttir, Björgvin Halldórsson, Daníel Ágúst Har-
aldsson, Emiliana Torrini og Páll Óskar.
„Það sem ég uppgötvaði í fyrra var það að ef
þú ert fjarri í 20 ár eru kannski komnar tvær
kynslóðir sem vita ekkert hver þú ert (hlær) og
það sem ég er að gera með þessari plötu er að
segja hver ég er sem tónlistarmaður. Ég er að
taka saman það besta, reyndar kom út platan
Gullkorn Jóhanns G. Jóhannssonar árið 2003 og
þar tekin saman ýmis vinsæl lög eftir mig. Það
er nefnilega þannig með lagahöfunda að þeir eru
ekki kynntir mikið sjálfir, það eru flytjendurnir
sem skipta máli. Og ég hef samið fyrir svo breið-
an hóp af flytjendum,“ segir Jóhann. Honum
hafi fundist tími til kominn að taka saman þau
lög sem hann hefur gert á ensku.
Var ekki spiluð í Ríkisútvarpinu
„Á sínum tíma, þegar ég fór til Bretlands,
1973-4, gaf ég út mína fyrstu sólóplötu, Lang-
spil, en á henni voru m.a. lögin „Dońt Try to Fo-
ol Me“ og „I Need a Woman“ sem urðu vinsæl.
En það var bannað að spila plötuna á RÚV
vegna þess að allir textar voru á ensku,“ segir
Jóhann og hlær þegar hann rifjar þetta upp.
Tónlistin á þeirri plötu hafi staðist vel tímans
tönn og gæti allt eins hafa verið tekin upp í dag.
Í fyrra hafi hann svo gefið út sína fyrstu sóló-
plötu í 20 ár, Á langri leið, með íslenskum text-
um en sú plata hafi fengið litla kynningu og spil-
un í útvarpi. Platan hafi hins vegar fengið
prýðilega dóma og hann tilnefndur sem „Rödd
ársins“ á Íslensku tónlistarverðlaununum. En nú
er gefið út á ensku og Jóhann sér sjálfur um út-
gáfu og dreifingu. „Maður er alltaf að hugsa um
stærra markaðssvið sem höfundur, maður vill
alltaf komast lengra og ég tel að íslensk tónlist
sé tiltölulega ónýtt auðlind sem hafi ekki fengið
verðskuldaða athygli. Við höfum séð að það fólk
sem hefur haft hörkuna og dugnaðinn og heppn-
ina með sér, eins og Björk og fleiri, til að böggl-
ast áfram, það hefur náð alveg ótrúlegum ár-
angri.“
– Og þá skiptir auðvitað máli hver gefur út og
dreifir plötunum …
„Jú, auðvitað og það er ekki að gerast hér, ís-
lensku fyrirtækin, því miður, þessi stærri fyrir-
tæki, virðast vera mjög fjárhagslega tæp þannig
að þau taka ekki mikla áhættu. Með mína plötu í
fyrra var ekkert lagt í auglýs- ing-
ar og það tókst ekki almenni-
lega að fá spilun þannig að
sú plata hefur algjörlega
farið framhjá fólki.“
Stína og Sigrún
Jóhann er ekki aðeins
með þekkta söngvara á plöt-
unni, sumir eru að hasla sér
völl í tónlistinni og þ. á m. Stína
Ágúst, en brátt kemur út hér á
landi plata, Concrete World,
með Stínu þar sem hún
syngur valin lög eftir Jó-
hann, mörg af hans þekktari lögum. Jóhann seg-
ir plötuna afbragðsverk og hrósar Stínu mikið
fyrir söng sinn. Þá syngur Sigrún Vala líka á
plötunni en hana þekkir fólk úr síðustu Söngva-
keppni Sjónvarpsins en í henni flutti hún lagið
„Angels“.
Þeir sem hafa áhuga á því að kaupa plötuna af
Jóhanni geta pantað hana á www.johanng.is eða
með því að senda honum tölvupóst á netfangið
jog@heimsnet.is. Þar geta menn fengið aðgang
og hlustað á plötuna í heild, skoðað plötu-
umslagið og lesið lagatexta. Sama gildir um
verslanir sem vilja fá plötuna í sölu.
Plötukápa JohannG In English. Ljósmyndina tók Ragnheiður Arngrímsdóttir í sumar.
Jóhann G. á ensku
Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson sendir frá sér plötu með völdum lög-
um sem sungin eru á ensku Margir af bestu söngvurum þjóðarinnar syngja
Þjóðlistasafnið í London heldur sýn-
ingu á verkum ítalska listmálarans
Leonardo da Vinci veturinn 2011 og
2012. Að sögn Luke Sysons, sýn-
ingastjóra, á safnið krefjandi en
skemmtilegt verk fyrir höndum þar
sem talið er að einungis fjórtán verk
sé að finna eftir da Vinci í heiminum.
„Leonardo trúði því að það væri
betra að búa yfir fáum og stór-
fenglegum verkum en að hespa
mörgum af.“
Sýningin mun leggja áherslu á
þau ár er da Vinci var við hirðina í
Mílanó á árunum 1482 til 1499.
„Hann málaði Monu Lisu ekki á
þessu tímabili. Louvre myndi hvort
sem er aldrei lána hana,“ var haft
eftir Synson. Safnið hefur nú þegar
tryggt sér verkin „La Belle Fèrr-
oniere“ úr Louvre, „The Madonna
Litta“ úr the Hermitage og „Saint
Jerome“ úr Vatíkaninu.
Safnið áætlar að halda fleiri sýn-
ingar á árinu 2011. Verk flæmska
listamannsins Jan Gossaert verða til
sýnis frá 23. febrúar til 30. maí, en
liðin eru fjörutíu ár frá síðustu sýn-
ingu á verkum hans.
Frítt verður inn á sýningar safns-
ins á norskum og svissneskum
landslagsmyndum frá 19. öld, sem
og ítölskum ölturum.
Þá verður sýning í gangi til heið-
urs fyrsta framkvæmdastjóra safns-
ins, Sir Charles Eastlake.
Leonardo
da Vinci í
London
Sýning á verkum frá
árunum 1482-1499
La Belle Fèrroniere Olíumálverk
da Vincis frá árinu 1490.
Uppi varð fótur og fit
við þessar fréttir,
aðdáendur hreinlega brjál-
uðust 34
»
Mótettukór Hall-
grímskirkju held-
ur sumartónleika
í Hallgrímskirkju
á mánudaginn,
26. júlí, kl. 20.
Á tónleikunum
verða flutt trúar-
leg og þjóðleg
verk eftir íslensk
tónskáld og
textahöfunda, m.a. Báru Gríms-
dóttur, Gunnstein Ólafsson, Jón
Leifs, Hjálmar H. Ragnarsson,
Önnu S. Þorvaldsdóttur og Þorkel
Sigurbjörnsson.
Á fyrri hluta efnisskrárinnar eru
trúarleg verk en á sinni hlutanum
veraldlegar, íslenskar kórperlur.
Stjórnandi kórsins er Hörður Ás-
kelsson.
Trúarlegt og
veraldlegt hjá
Mótettukórnum
Hörður Áskelsson
Emilíana TorriniPáll Óskar Hjálmtýsson
30 íslenskir söngvarar flytja lög Jóhanns á
plötunni JohannG In English.
Söngvaranir eru: Andrea Gylfadóttir, Björg-
vin Halldórsson, Daníel Ágúst, Erna Hrönn, Ey-
þór Ingi, Eyjólfur Kristjánsson, Friðrik Ómar,
Ellen Kristjánsdóttir, Emilíana Torrini, Heiða
Ólafsdóttir, Hera Björk, Helgi Björnsson, Jó-
hann Helgason, Jóhann G. Jóhannsson, Jó-
hanna Guðrún, KK, Magni Ásgeirsson, Magnús
Þór, Margrét Eir, Páll Óskar, Páll Rósinkranz,
Regína Ósk, Selma Björnsdóttir, Sigga Bein-
teins, Sigrún Vala, Samúel J. Samúelsson,
Stefanía Svavarsdóttir, Stefán Hilmarsson,
Stína Ágúst og Svavar Knútur. Platan er tvö-
föld. Á fyrri disknum syngur Jóhann eigin
lög en á þeim seinni eru lögin flutt af öðr-
um. Lögin á seinni disknum eru „Don’t Try
To Fool Me“, „Dead Man’s Dance“, „Money
Can’t Buy You Love“, „Wisdom Of Love“,
„I’m Talkin About You“, „My Girl“, „Asking
For Love“, „Love Like This“, „I Miss You
Tonight“, „Dance All Night“, „Your
Love“, „I Can’t Take It No
More“, „Life is Like The
Wind“ og „IF“.
Þjóðþekktar raddir
og lagasmellir
SÖNGVARARNIR OG LÖGIN
Björgvin Halldórsson
myspace.com/jogjo
johanng.is