Morgunblaðið - 24.07.2010, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010
AF RAUNVERU--
LEIKAÞÁTTUM
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Ég er búin að vera að hugsa um
raunveruleikaþætti upp á síðkastið,
eða allt frá því að upp komst um
framleiðendur raunveruleikaþátt-
anna The Hills. Eftir heilar sex serí-
ur kjaftaði aðalstjarnan, Stephanie
Pratt, frá vel varðveittu leynd-
armáli; Stór hluti söguþráðarins
var fyrirfram skrifaður. Uppi varð
fótur og fit við þessar fréttir, aðdá-
endur hreinlega brjáluðust og
MTV-sjónvarpsstöðin tók þá
ákvörðun að hætta framleiðslu.
Þrátt fyrir að hafa ekki séð einn
einasta þátt af The Hills komu þess-
ar fréttir mér ekki á óvart. Við-
brögðin við fréttinni fannst mér
samt áhugaverð, er fólk virkilega
ekki búið að átta sig á því að sárafá-
ir raunveruleikaþættir standa und-
ir nafni?
Ég man þá tíð er raunveru-
leikaþættir hreinlega réðu yfir
sjónvarpsdagskránni. Mig minnir
að æðið hafi byrjað með Survivor
og svo fylgdi American Idol fast á
eftir. Einhvern veginn hafði ég á til-
finningunni að þessi gerð þátta yrði
nú ekki langlíf, en boy ó boy, mér
skjátlaðist stórlega. Samkvæmt
IMDb eru seríur Survivor orðnar
tuttugu talsins og framleiðendur
með að minnsta kosti tvær aðrar í
bígerð. Seríur American Idol er þó
enn hægt að telja á fingrum beggja
handa, enda ekki „nema“ níu.
Sjálf tók ég þátt í Survivor-
æðinu … til að byrja með. Ég mætti
gallvösk í bíó í góðra vina hóp til
þess eins að horfa á lokaþátt af
Survivor 3. Þar sigraði hinn sæti
Ethan Zohn kollega sína í Afríku og
hlaut milljón dollara fyrir vikið.
Þetta var síðasta Survivor-serían
sem ég fylgdist með. Í dag finnst
mér ekkert meira óspennandi en
Survivor 20. Ég staldraði aðeins
lengur við American Idol, en býst
við að kveðja hann fyrir fullt og allt
eftir að snillingurinn Simon Cowell
yfirgefur svæðið.
Í dag er hægt að finna raun-
veruleikaþætti um næstum allt:
Fyrirsætur berjast með kjafti
og klóm í America’s Next Top Mod-
el, einhleypir finna ástina í Bache-
lor og Bachelorette, lúðar fá gullið
tækifæri til að hitta sætar stelpur í
Beauty and the Geek, rokkarar
rokka í Rockstar, hæfileikaríkir og
hæfileikalausir dansa dátt í So You
Think You Can Dance, allskonar
fólk mætir til leiks í X-Factor og
America’s Got Talent og stórbein-
óttir taka á honum stóra sínum í
The Biggest Loser. Þetta er ein-
ungis brotabrot af þeim hafsjó sem
fyrirfinnst af þessum raunveru-
leikaþáttum.
Með tilkomu þáttanna varð til
ný kynslóð stjarna. Þátttakend-
urnir verða nefnilega margir hverj-
ir frægir fyrir nákvæmlega ekki
neitt. Þessi gerð frægðar er þó
mjög skammvinn og berjast þátt-
takendurnir við að lengja frægðar-
tíma sinn á einn eða annan hátt, eft-
ir að þeir kveðja skjáinn. Þeir setja
til að mynda á markað eigin fata-
línu, eiga í ástarsambandi við enn
frægari manneskju, kæra þátta-
framleiðendur fyrir allt mögulegt,
já eða taka jafnvel þátt í öðrum
raunveruleikaþætti. Þeim er ekkert
heilagt.
Frægustu raunveruleikaþætt-
irnir eiga flestir uppruna sinn að
rekja til Bandaríkjanna eða Bret-
lands. Önnur lönd hafa svo apað eft-
ir. Til að mynda hafa Frakkar
framleitt níu seríur af Survivor og
Japanir fjórar. Þá hefur Idolið
breiðst út eins og eldur í sinu um
allan heim.
Nokkrir raunveruleikaþættir
hafa litið dagsins ljós í íslenskri út-
gáfu, þar má nefna Bachelorette,
Idol, X-Factor og Wipe Out. Mikið
er ég fegin að þetta æði hafi ekki
gripið okkur með kjafti og klóm líkt
og Kanann. Raunveruleikaþættir
verða nefnilega hálfpínlegir í litlu
samfélagi.
Raunveruleikaþættir halda enn velli
»Einhvern veginnhafði ég á tilfinning-
unni að þessi gerð þátta
yrði nú ekki langlíf, en
boy ó boy, mér skjátl-
aðist stórlega.
Hressleiki Idol-þáttastjórnendurnir íslensku Simmi og Jói fengu William
Hung, keppanda ameríska Idolsins, í heimsókn.
Karate Kid FORSÝNING kl. 1 (laugardag) / 8 (sunnudag) LEYFÐ Shrek 4 3D íslenskt tal kl. 1 (950 kr) - 3:30 - 5:45 LEYFÐ
Babies kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ Shrek 4 2D íslenskt tal kl. 1 (650 kr) - 3:30 LEYFÐ
Babies kl. 2 - 4 - 6 LÚXUS Shrek 4 3D enskt tal kl. 1 (aðeins laug. / 950 kr) -3:40 - 5:50 LEYFÐ
Predators kl. 8 - 10:20 (laug.) / 10:45 (sun.) B.i. 16 ára Knight and Day kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Predators kl. 8 - 10:20 (laug.) / 8 - 10:45 (sun.) LÚXUS Grown Ups kl. 1 (650 kr) - 5:45 - 8 - 10:20 LEYFÐ
Sími 462 3500
Karate Kid FORSÝNING kl. 8 (laugardag) / 3:30 - 8 (sunnudag) LEYFÐ
Predators kl. 6 - 10:30 B.i. 16 ára
Knight and Day kl. 4 (Aðeins laug. / 600 kr) - 8 - 10 B.i. 12 ára
Killers kl. 4 (600 kr) - 6 B.i. 12 ára
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
S.V., MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Forsýnd
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
Jackie Chan kennir ungum lærling
sitthvað um Kung fu í vinsælustu
fjölskyldumynd ársins!
Missið ekki af myndinni
sem sló í gegn í
Bandaríkjunum og fór
beint á toppinn.
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
Stórfín hugmynd sem
útfærð er á einfaldan og
áhrifaríkan máta
-Ó.H.T. Rás 2
Börnin í einlægni sinni og
sakleysi eru bæði yndisleg
og sprenghlægileg
-H.G., MBL
„The A-Team setur sér það einfalda markmið
að skemmta áhorfendum sínum með látum, og
henni tekst það með stæl. Ekta sumarbíó!”
-T.V. - Kvikmyndir.is
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti teng