Fréttablaðið - 24.12.2011, Síða 8
24. desember 2011 LAUGARDAGUR8
stjóRnsýsLA Orkuveita Reykja
víkur (OR) hefur undirritað vilja
yfirlýsingu við félag sem hefur
hug á að festa kaup á Perlunni. OR
skuldbindur sig til að eiga ekki við
ræður við aðra á gildistíma yfirlýs
ingarinnar, en hún rennur út 31.
mars 2012.
Haraldur Flosi Tryggvason, for
maður stjórnar OR, segir að félagið
geri fyrirvara um uppbyggingu á
svæðinu. Í viljayfirlýsingunni er
að finna tímasetningar og helstu
þætti verkáætlunar félagsins.
Þróun viðskiptaáætlunar félags
ins á að vera lokið 6. janúar og
hönnun og kostnaðaráætlun 17.
febrúar. Þá á fjármögnun að vera
lokið 31. mars og kaupsamningur
undirritaður. Þann dag á skipulags
ferli að vera lokið.
Ekki er nánar greint í viljayfir
lýsingunni hvernig standa á að því
ferli, en til að hugmyndir félags
ins um hótel geti orðið að veruleika
þarf að breyta skipulagi svæðisins.
Dagur B. Eggertsson, for maður
borgarráðs, sagði í samtali við
Fréttablaðið á fimmtudag að íhuga
mætti hvort ekki þyrfti nýtt sölu
ferli ef selja ætti Perluna með lóð
undir hótel. Haraldur Flosi segir að
alveg megi færa rök fyrir því að
það væri rétta leiðin. Þá segir hann
að það sé borgarinnar að selja land
ið, verði það ofan á, OR skipti sér
ekki af því. Gæta verði jafnræðis
og sanngirnissjónarmiða.
Félagið bauð 1.689 milljónir
króna í Perluna. Eftir að tilboðið
lá fyrir voru gerðir fyrirvara um
breytta nýtingarmöguleika svæðis
ins. Fyrirhugað er að reisa að
minnsta kosti 200 herbergja hótel
á svæðinu og er áætluð heildar
fjárfesting yfir fimm ára tímabil
metin á átta til tíu milljarða króna.
Þá er gert ráð fyrir að koma upp
heilsulind með búningsklefum
fyrir að minnsta kosti 500 gesti.
Samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins gerir félagið ákveðna
fyrir vara um breytingar á skipu
lagi, forkaupsrétt á aðliggjandi
landi, skipulagsstuðul og fleira.
Haraldur Flosi vildi ekki staðfesta
hverjir fyrirvararnir væru.
Lögfræðingur OR metur nú
hvort gera eigi öll tilboð í Perluna
opinber, en ósk kom fram um það á
stjórnarfundi fyrirtækisins.
kolbeinn@frettabladid.is
stjóRnsýsLA Kjararáð hefur ákveðið að draga
til baka lækkun á launum þingmanna, ráð
herra og embættismanna sem heyra undir
ráðið, sem ákveðin var árið 2008 og tók gildi
2009.
Í ákvörðun ráðsins, sem gildir afturvirkt
frá 1. október, segir að með lækkuninni hafi
innra samræmi í launum ríkisstarfsmanna
riðlast. Í rökstuðningi kjararáðs er einnig
vísað til þess að laun flestra viðmiðunarhópa
á almennum vinnumarkaði hafi hækkað.
Stjórnvöld ákváðu í kjölfar hrunsins að
setja lög sem skikkuðu kjararáð til að lækka
laun þingmanna, ráðherra og annarra sem
heyra undir ráðið. Í kjölfarið lækkuðu laun
þingmanna um 7,5 prósent, og laun ráðherra
um 14 til 15 prósent. Þá var kjararáði óheimilt
að hækka laun þessara ríkisstarfsmanna
aftur fyrr en árið 2010. - bj, þeb
Kjararáð dregur til baka launalækkun þingmanna, ráðherra og embættismanna afturvirkt frá 1. október:
Segja samræmi í launum hafa riðlast
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB)
telur að ákvörðun kjararáðs hljóti að gefa for-
dæmi. Fjöldi félagsmanna hafi misst vinnuna og
aðrir þurft að taka á sig tímabundnar launalækk-
anir og skert starfshlutfall. Nú hafi kjararáð leið-
rétt launalækkanir hjá ákveðnum hópi opinberra
starfsmanna „og krefst BSRB þess að leiðrétt-
ingar á kjörum félagsmanna bandalagsins muni
einnig koma til framkvæmda hið fyrsta“. Mun
BSRB fara fram á viðræður við fjármálaráðherra.
BSRB vill leiðréttingar hjá fleirum
Laun hækka Laun ráðherra, þingmanna og annarra
sem heyra undir kjararáð verða hér eftir því sem næst
þau sömu og þau voru fyrir lækkun í ársbyrjun 2009.
FRéttaBLaðið/pjetuR
o.fl. o.fl.
sögur
uppskriftir
leikir
gjafir
Gera fyrirvara um
breytt skipulag Perlu
Félag sem gert hefur kauptilboð í Perluna gerir ráð fyrir vinnu við breytt skipu-
lag svæðisins svo hægt sé að reisa þar hótel. Slík vinna tekur um þrjá mánuði.
Ekki er komin beiðni á borð borgaryfirvalda um breytt skipulag svæðisins.
sýRLAnD, AP Tugir manna fór
ust í tveimur sjálfsvígsárásum í
Damaskus, höfuðborg Sýrlands.
Árásirnar beindust að höfuð
stöðvum lögreglu og leyniþjónustu
í borginni. Yfir hundrað manns
eru særðir.
Stjórnvöld líta á þetta sem stað
fest ingu þess að mót mæli og óeirðir
undan farna mánuði séu runnin
undan rifjum hryðju verka samtaka.
„Við sögðum það frá upphafi, þetta
eru hryðju verk. Þeir eru að drepa
her menn og almenna borgara,“
sagði Faysal Mekdad aðstoðar
utanríkisráðherra.
Daginn áður hafði Arababanda
lagið sent undirbúningsnefnd til
landsins, til undirbúnings fyrir
eftirlit bandalagsins með átökum,
óeirðum og viðbrögðum stjórn
valda, sem kostað hafa þúsundir
manna lífið undanfarna mánuði.
Einhverjir stjórnar andstæðingar
halda því fram að árásirnar hafi
verið sviðsettar af stjórnvöldum til
að hafa áhrif á sendinefnd Araba
bandalagsins.
Stjórnvöld víða um heim hafa for
dæmt viðbrögð sýrlenskra stjórn
valda við mótmælabylgjunni, sem
hófst fyrir níu mánuðum. Samein
uðu þjóðirnar segja að harkaleg við
brögð stjórnvalda hafi kostað meira
en fimm þúsund manns lífið.
- gb
Tvær sjálfsvígsárásir í Damaskus í Sýrlandi kosta tugi manns lífið:
Beinast gegn leyniþjónustunni
Mikið tjón tveir sjálfsvígsárásarmenn óku bifreiðum hlöðnum sprengiefnum að
höfuðstöðvum lögreglu og leyniþjónustu í Damaskus. NoRDicphotoS/aFp
í anda BLáa LónSinS hugmyndir eru uppi um heilsulind í anda Bláa lónsins í
perlunni. aðstaða verði fyrir allt að 500 gesti. Þá er fyrirhugað að reisa allt að 200
fermetra hótel. MyND/thg-aRkitektaR
Samkvæmt upplýsingum frá skipulags- og byggingarsviði borgarinnar má
gera ráð fyrir um þriggja mánaða ferli við skipulagsbreytingar stærri mála.
Þegar uppdrættir eru komnir til skipulagsfulltrúa er erindinu vísað í borgar-
ráð og það síðan auglýst í öllum dagblöðum og Lögbirtingablaðinu.
Þá tekur við sex vikna frestur til athugasemda. yfir þær þarf síðan að fara
og yfirleitt fer málið til umfjöllunar hjá skipulagsstjóra. Síðan er erindið sent
til Skipulagsstofnunar. Þegar málið hefur verið yfirfarið og samþykkt er það
sent til auglýsingar/staðfestingar í B-deild Stjórnartíðinda. Þegar erindið
hefur birst þar er því endanlega lokið.
Þriggja mánaða breytingaferli
1 Hvað er Guðrún Ísleifsdóttir, sem
útskrifaðist á dögunum úr Mennta-
skólanum við Hamrahlíð, gömul?
2 Hvaða hótel í miðborginni hyggst
tvöfalda herbergjafjölda sinn?
3 Við hvaða sænska knattspyrnulið
hefur Guðjón Baldvinsson samið?
SvöR:
1. 81 árs. 2. Hótel Borg. 3. Halmstad.
veiStu SvaRið?