Fréttablaðið - 24.12.2011, Síða 36
24. desember 2011 LAUGARDAGUR28
Af hverju eru jólin haldin? „Jólin
eru haldin af kristnu fólki til
þess að minnast fæðingar frels-
arans Jesú Krists. Það er þó ekki
eingöngu kristið fólk sem heldur
jól á Íslandi en þau sem ekki trúa
eru kannski að fagna því að það
nú fer aftur að birta og finnst
gott að halda þessa hátíð kær-
leika og friðar.“
Hvar býr Guð? „Guð býr allt um
kring og ekki síst í hjartanu.“
Er Jesús maður? „Já, Jesús var
maður. Kristið fólk trúir því að
guð hafi gerst manneskja til þess
að ná betur til mannfólksins og
til þess að sýna okkur hver guð
er. Jesús gaf okkur eilífa lífið
svo að við gætum lifað áfram
með guði eftir að við deyjum.
Aftur á móti held ég að guð sé
ekki manneskja. Ekki karl eða
kona. Guð er eitthvað allt annað
og meira en við. Það er bara svo
erfitt fyrir okkur að hugsa okkur
eitthvað sem er öðruvísi en við
og þess vegna höfum við mann-
eskjurnar búið til mynd af guði
sem er eins og eldri karl á skýi í
himninum. En það er ekkert sem
bendir til þess að guð sé þannig.“
Var Jesúbarnið alltaf gott barn,
eða kannski stundum óþekkt
líka? „Þótt Jesús hafi verið guð
var hann líka manneskja. Og
manneskjubörn eru öll einhvern
tíma óþekk. Það segir t.d. frá því
í Biblíunni að Jesús hafi eitt sinn
stungið foreldra sína af og farið
í musterið án þess að fá leyfi.
Svo að, já, ég held að hann hafi
stundum verið óþekkur.“
Eru englar menn og geta þeir
flogið? „Ég held að englarnir séu
allt í kringum okkur. Sumir eru
manneskjur og einhverjir geta
örugglega flogið.“
Getur Jesús flogið? „Ég veit það
ekki. En mig langar að komast
að því.“
Sjá Jesús og guð okkur alltaf?
„Já, það held ég. Jesús er eigin-
lega hluti af guði og sér okkur
alltaf eða veit alla vega alltaf af
okkur. Guð verður alltaf að sjá
okkur eða að finna fyrir okkur
því að guð elskar okkur svo
mikið og vill gæta okkar og vita
hvernig okkur líður.“
Af hverju er Jesúbarnið með
geislabaug? „Í myndlist hafa
geislabaugar verið málaðir eða
teiknaðir við fólk eða verur til
þess að sýna að það sé fyrir-
myndir og betra en annað fólk.
Þegar geislabaugurinn er settur
á Jesú er það til þess að minna
okkur á að hann er heilagur, að
hann er hluti af guði þó hann
hafi verið manneskja. Mamma
hans er líka stundum með geisla-
baug enda er ekkert smá heilagt
að vera móðir.“
Hvað get ég gefið Jesúbarninu
í afmælisgjöf? „Það besta sem
Jesúbarnið veit er að við séum
góð við hvert annað. Ef þú ert góð
við allt fólk þá verður Jesúbarnið
mjög ánægt. Ef það misheppnast
stundum hjá þér að vera góður þá
er gott að muna eftir að biðjast
fyrirgefningar og byrja bara upp
á nýtt að vera góður.“
Hvað vildi hann sem strákur í
lifanda lífi og hvað mundi hann
vilja ef hann væri á meðal okkar
í dag? „Jesús vildi að við værum
betri við hvert annað og hann
vill það enn. Hann er nefnilega
enn þá með okkur á einhvern
hátt.“
Elskar Jesús líka vondu karl-
ana? „Já. Ég er viss um að Jesús
elskar allt fólk. Hann veit líka
af hverju fólk er stundum vont.
Hann er líka alltaf tilbúinn til
þess að fyrirgefa og gefa fólki
annan séns þó það hafi gert eitt-
hvað af sér.“
krakkar@frettabladid.is
28
Þótt Jesús hafi
verið Guð var
hann líka manneskja.
Og manneskjubörn
eru öll einhvern tíma
óþekk.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Mamma og pabbi eru oft
upptekin á aðfangadag enda
er margt sem þarf að klára
áður en jólin ganga í garð. Til
að fá tímann til að líða hraðar
gætu krakkarnir reynt eftir-
farandi ráð:
● Notaðu tækifærið til að
flokka allt dótið í dótakass-
ana og búa til pláss fyrir nýtt
dót. Það er aldrei að vita
hvað leynist undir jólatrénu.
● Æfðu þig í að brjóta alls
konar flott servíettubrot og
brjóttu síðan allar servíett-
urnar á jólaborðið, mismun-
andi fyrir hvern og einn.
● Semdu vísur um alla í fjöl-
skyldunni og skrifaðu á
miða. Feldu miðana síðan
undir servíettunum á disk-
unum.
● Smalaðu öllum krökkunum
í götunni saman í útileiki
og rennið ykkur á sleða. Því
meira sem þið leikið ykkur
úti, því meiri matarlyst hafið
þið í kvöld.
● Pússaðu alla spariskóna á
heimilinu. Fáðu samt smá
ráðleggingar um hvaða skóá-
burður fer á hvaða skó áður
en þú byrjar.
● Búðu til músastiga og
skreyttu herbergið þitt frá
lofti niður í gólf.
● Heimsæktu ömmu og afa.
● Horfðu á barnaefnið í sjón-
varpinu.
Notaðu daginn vel
KÆRLEIKUR Í PAKKANN
HANDA JESÚBARNINU
Af hverju er Jesús með geislabaug og getur hann flogið? Séra Guðrún Karlsdóttir,
prestur í Grafarvogskirkju, svarar nokkrum spurningum um ýmislegt sem dagur-
inn í dag snýst um.
WWW.IXL.COM/MATH er vefsíða
með ýmsum stærðfræðiverkefnum
fyrir alla aldurshópa.
Því meira
sem þið leikið
ykkur úti, því
meiri matar-
lyst hafið þið í
kvöld.
Dómarinn: Kallaðir þú þennan
mann þorpara og svindlara?
Sá ákærði: Já, herra.
Dómarin: Og líka hálfvita?
Sá ákærði: Nei, því miður, ég
bara steingleymdi því.
Lítil systkini ræða saman.
„Pési, langar þig í þennan
brjóstsykur?“
„Já,“ sagði Pési og stakk
honum upp í sig.
Ólöf litla horfði á hann og
spurði svo: „Er hann góður?“
„Já.“
„Jæja, þá skil ég ekki af
hverju hundurinn hrækti
honum út úr sér.“
„Læknir, hjálpaðu mér, ég sé
allt tvöfalt.“
„Jæja vinur, fáðu þér sæti
þarna á stólnum.“
„Hvorum?“
Á Vísi er hægt að horfa
á myndskreyttan upp-
lestur úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið
1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið
endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl-
enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum
börnum í tugi ára.