Fréttablaðið - 24.12.2011, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 24. desember 2011 31
JÓLAKVEÐJA FRÁ KPMG
Gleðileg jól
og farsælt
komandi ár
Starfsfólk KPMG óskar viðskiptavinum
og landsmönnum öllum gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Um leið þökkum við þeim fjölmörgu
sem sótt hafa Fróðleik á fimmtudegi,
Haustráðstefnu KPMG, námskeið eða
aðra viðburði félagsins samskiptin á
árinu sem er að líða.
kpmg.is
Bobby Gillespie, forsprakki
Primal Scream, segir að skortur
á metnaði og sköpunargáfu ein-
kenni rokkbransann í dag. Primal
Scream hefur á ferli sínum gefið
út plöturnar Screamadelica og
XTRMNTR sem báðar eru í
hávegum hafðar.
„Ég rakst á Paul Weller um
daginn og við fórum að tala um
að ef þú ert alvarlega þenkjandi
ung manneskja og hefur eitthvað
að segja þá ferðu frekar í eitthvað
annað. Í tónlistinni virðist allt
vera á léttu nótunum og ekkert
sérlega listrænt. Allir virðast
sætta sig við núverandi ástand,“
sagði Gillespie við Irish Times.
Rokkið er í
vanda statt
ÓSÁTTUR Bobby Gillespie, forsprakki
Primal Scream, segir að metnað skorti
í rokkið.
„Það kæmi mér ekki á óvart ef
eftirspurnin eftir rafbókum verði
nokkur og þá sérstaklega í kvöld
þegar væntanlega fjölmargir fá í
jólagjöf spjaldtölvur og les vélar,“
segir Egill Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins.
Fyrstu rafbækur Forlagsins
eru nú fáanlegar á vef þess,
forlagid.is, og kennir þar ýmissa
grasa. Þar geta áhugasamir til að
mynda nælt sér í nýjar spennu-
sögur Arnaldar Indriðasonar,
Steinars Braga og Stefáns Mána
auk nýrra skáldsagna Hallgríms
Helgasonar og Ólafs Jóhanns
Ólafssonar svo einhverjir séu
nefndir. Bækurnar kosta flestar í
kringum fjögur þúsund krónur.
Jólabækur fá-
anlegar sem
rafbækur
EGILL ÖRN JÓHANNSSON Nýjustu bækur
Forlagsins nú fáanlegar í rafbókarformi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það var hin 19 ára gamla Melan-
ie Amaro sem vann fyrstu banda-
rísku X-Factor keppnina. Amaro
hlaut fimm milljónir dollara í
sigur laun og auglýsingasamning
við Pepsi.
Sigurganga Amaro er ævintýri
líkust því Simon Cowell, einn af
dómurum keppninnar, sendi hana
heim í einum þættinum en snerist
svo hugur og fékk hana aftur. „Hún
á eftir að verða verðugur fulltrúi
þessa lands, hún er stjarna,“ sagði
Cowell og bætti því við að hann
væri himinlifandi. „Við hefðum
ekki getað fengið betri endi. Marg-
ir héldu að þetta hefði verið fyrir
fram ákveðið þegar ég sótti hana
aftur en það var alvöru. Og hið
kaldhæðnislega er að hún vann.“
Amoro réðst ekki á garðinn þar
sem hann var lægstur í úrslita-
þættinum heldur söng slagara R.
Kelly, I Believe I Can Fly, og svo
Listen með Beyoncé. Hinir tveir
keppendurnir voru þeir Chris
Rene og Josh Krajcik. Allir fengu
að heyra nokkur orð frá fjölskyld-
um sínum og keppendurnir felldu
flestir tár. Meðal þeirra sem tróðu
upp í lokaþættinum voru 50 Cent,
Justin Bieber og Leona Lewis en
það setti óneitanlega ljótan blett
á lokakvöldið að þrír starfsmenn
þáttarins slösuðust alvarlega í
atriði 50 Cent.
Amaro sigraði í X-Factor
SIGUR Simon Cowell virðist orðlaus
þegar hann heyrir kynni X-Factor, Steve
Jones, tilkynna að Melanie Amaro sé
sigurvegari. NORDIC PHOTOS/GETTY
Enska Óskarsverðlaunaleikkonan
Helen Mirren hefur samþykkt að
leika í sjónvarpsþáttaröðinni Glee.
Mirren mun hins vegar ekki birt-
ast á skjánum heldur eingöngu tala
fyrir hugsanir einnar persónu.
Samkvæmt vefsíðunni The Wrap er
ekki vitað hvaða persóna fær rödd
Mirren, sem hlaut Óskarinn fyrir leik
sinn í kvikmyndinni The Queen.
„Helen hefur tekið upp nokkrar alveg brjálæðis-
lega fyndnar línur fyrir þáttinn,“ hefur The Daily
Express eftir heimildarmanni sínum, en Glee er
einn vinsælasti sjónvarpsþátturinn beggja vegna
Atlantshafsins.
Helen Mirren í Glee
TALAR Rödd Helen Mirren mun hljóma í sjón-
varpsþáttaröðinni Glee.