Fréttablaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 46
24. desember 2011 LAUGARDAGUR38 sport@frettabladid.is GRÉTAR RAFN STEINSSON er ánægður með að hafa unnið sér aftur sæti í byrjunarliði Bolton eftir að hafa verið í kuldanum síðustu vikur. „Það er erfitt að fá ekki að spila,” sagði Grétar Rafn við Bolton News. „Maður vill leggja sig fram fyrir liðið og fólkið sem er annt um félagið.” Viðtalið má sjá í heild sinni á Vísi, en Bolton mætir Newcastle á mánudaginn. SARA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR (21 ÁRS, KNATTSPYRNA) Félag: Ldb Malmö í Svíþjóð Fjöldi skipta á topp 10: 1 ÞÓRA BJÖRG HELGADÓTTIR (30 ÁRA, KNATTSPYRNA) Félag: Ldb Malmö í Svíþjóð. Fjöldi skipta á topp 10: 3 ÓLAFUR BJÖRN LOFTSSON (24 ÁRA, GOLF) Félag: Nesklúbburinn. Fjöldi skipta á topp 10: 1 KOLBEINN SIGÞÓRSSON (21 ÁRS, KNATTSPYRNA) Félag: AZ Alkmaar/Ajax í Hollandi. Fjöldi skipta á topp 10: 1 KÁRI STEINN KARLSSON (25 ÁRA, FRJÁLSÍÞRÓTTIR) Félag: Breiðablik. Fjöldi skipta á topp 10: 1 ANNA ÚRSÚLA GUÐMUNDSDÓTTIR (26 ÁRA, HANDBOLTI) Félag: Valur. Fjöldi skipta á topp 10: 1 ÁSDÍS HJÁLMSDÓTTIR (26 ÁRA, FRJÁLSÍÞRÓTTIR) Félag: Ármann. Fjöldi skipta á topp 10: 1 ARON PÁLMARSSON (21 ÁRS, HANDBOLTI) Félag: THW Kiel í Þýskalandi. Fjöldi skipta á topp 10: 2 HEIÐAR HELGUSON (34 ÁRA, KNATTSPYRNA) Félag: QPR í Englandi. Fjöldi skipta á topp 10: 1 JAKOB ÖRN SIGURÐARSON (29 ÁRA, KÖRFUBOLTI) Félag: Sundsvall Dragons í Svíþjóð. Fjöldi skipta á topp 10: 1 ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Alveg eins og í fyrra er mikið um ný andlit á meðal tíu efstu í kjörinu á Íþrótta- manni ársins og það er nú þegar orðið ljóst að 37. íþróttamaðurinn í 55 ára sögu kjörsins fær sæmdarheitið Íþróttamaður ársins. Átta nýliðar eru á listanum í ár og eng- inn af íþróttamönnunum tíu hefur hlot- ið titilinn áður. Í fyrra voru sex nýliðar á listanum og náði aðeins einn þeirra, hand- boltamaðurinn Aron Pálmarsson, inn á listann í ár. Aron er reyndar sá eini sem nær því að vera á listanum annað árið í röð og hann á það sameiginlegt með Þóru Björg Helga- dóttur að hafa verið meðal þeirra tíu efstu áður. Þóra er þar í þriðja sinn en hún varð í fimmta sæti í kjörinu 2005 og í þriðja sæti fyrir tveimur árum. Atkvæðagreiðsla félagsmanna í Sam- tökum íþróttafréttamanna er leynileg og fer þannig fram að hver félagsmað- ur SÍ setur saman lista með nöfnum tíu íþróttamanna sem honum þykja hafa skarað fram úr á árinu. Alls eru 22 félagsmenn í Samtökum íþróttafrétta- manna og nýttu allir þeirra atkvæðisrétt sinn í kjörinu að þessu sinni. Í kjörinu fékk 31 íþrótta- maður atkvæði. Helmingur íþróttamannanna á topp tíu list- anum að þessu sinni er 25 ára og yngri og Heiðar Helguson er elstur á listanum og eru hann og Þóra þau einu sem eru komin yfir þrítugt. Heiðar er 34 ára og búinn að vera atvinnumaður í þrettán ár en er samt að ná því í fyrsta sinn á ferlinum að komast í hóp þeirra tíu efstu í kjöri íþróttafréttamanna. Fótboltafólk eru fjölmennast á listanum að þessu sinni en tveir knattspyrnumenn og tvær knattspyrnukonur eru á listanum. Handbolti og frjálsar íþróttir eiga bæði tvo fulltrúa, karl og konu, og við bætast síðan kylfingur og körfuboltamaður. Fjórar konur eru á listanum þriðja árið í röð sem er metjöfnun en fjórar konur voru einnig á listununum 1998, 2003 og 2006. Hér á síðunni má sjá mynd af þeim tíu sem þóttu skara fram úr á árinu sem er að líða. Kjörinu verður síðan lýst á Grand Hóteli Reykjavík fimmtudaginn 5. janúar klukkan 20.15. ooj@frettabladid.is ÁTTA NÝLIÐAR Á LISTANUM Hinn 5. janúar næstkomandi verður íþróttamaður ársins 2011 útnefndur af Sam- tökum íþróttafréttamanna. Mikil endurnýjun er á lista yfir tíu efstu í ár og átta eru í þessum hópi í fyrsta sinn. Enginn þeirra hefur hlotið sæmdarheitið áður. FÓTBOLTI Íslenska kvennalands- liðið er í 15. sæti á styrkleikalista FIFA sem birtur var í gær. Stelp- urnar halda sæti sínu frá því á síðasta lista en hækkuðu sig um tvö sæti frá lokum síðasta árs. Kvennalandsliðið lék níu landsleiki á árinu, vann sjö þeirra, gerði eitt jafntefli og eini tapleikurinn var á móti Bandaríkjunum í úrslitaleik Algarve-bikarsins. Íslenska liðið hefur verið á uppleið á listanum undanfarin ár en þetta er fjórða árið í röð sem stelpurnar hækka sig milli ára á lokalista ársins. Sigurður Ragnar Eyjólfsson tók við liðinu í ársbyrjun 2007 og á þeim tíma hefur liðið farið úr 21. sætinu upp í það fimmtánda. - óój Uppgangur stelpnanna (Staða í lok hvers árs) 2011 – 15. sæti 2010 – 17. sæti 2009 – 18. sæti 2008 – 19. sæti 2007 – 21. sæti 2006 – 21. sæti Kvennaliðið á FIFA-listanum: Eru á uppleið fjórða árið í röð FÓTBOLTI Sjö leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni á mánu- dag, öðrum degi jóla, en einnig verður spilað í NBA- og NFL- deildunum yfir hátíðarnar, sem og í þýsku úrvalsdeildinni í hand- bolta. Í Englandi verða toppliðin frá Manchester, City og United, bæði í eldlínunni sem og Liverpool og Chelsea. Umferðinni lýkur svo á þriðjudag með þremur leikjum. Það er þó aðeins upphitun fyrir það sem er í vændum um ára- mótin því frá föstudeginum 30. desember til miðvikudagsins 4. janúar fara fram 20 leikir. Svo verður spilað á fullu yfir jólin í NFL-deildinni, bæði á aðfangadagskvöld, jóladag og öðrum degi jóla. Svo fer NBA- deildin aftur af stað á ný með þremur leikjum á jóladag. Stöð 2 Sport verður með beina útsendingu frá leik Füchse Berlin og Melsungen á öðrum degi jóla en fjölmargir leikir fara fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta á mánudag og þriðjudag. - esá Enska úrvalsdeildin um jólin: Nóg af bolta yfir hátíðarnar KRAFTAVERKAMAÐURINN Leik stjórnand- inn trúaði hjá Denver Broncos, Tim Tebow, spilar með liði sínu gegn Buffalo klukkan 18.00 í kvöld. NORDIC PHOTOS/GETTY Íþróttir um jólin Aðfangadagur: 18.00 10 leikir í NFL** 21.15 3 leikir í NFL** Jóladagur: 17.00 NBA: NY Knicks - Boston 19.30 NBA: Dallas - Miami* 22.00 NBA: LA Lakers - Chicago 01.20 NFL: Green Bay - Chicago** 03.30 NBA: GS Warriors - LA Clippers*** Annar dagur jóla: 13.00 Enski: Chelsea - Fulham* 15.00 Enski: Sex leikir* 19.15 Þýski: Füchse Berlin - Melsungen* 19.45 Enski: Stoke - Aston Villa* 01.00 NBA: Oklahoma - Minnesota*** 01.30 NFL: New Orleans - Atlanta** * Stöð 2 Sport eða Stöð 2 Sport 2 ** ESPN America *** NBA TV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.