Morgunblaðið - 23.08.2010, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Heimsferðir bjóða frábær tilboð á allra síðustu
sætunum í ágúst til Costa del Sol.
Gríptu þetta einstaka tækifæri
til þess að komast í sólina!
Costa del Sol
28. ágúst
frá kr. 64.900 í 10 nátta ferð
Verð kr. 64.900
10 nætur
Netverð á mann m.v.
2 fullorðna og 2 börn,
2-11 ára í herbergi/
stúdíó/íbúð. Verð m.v. 2 í
herbergi/stúdíó kr. 69.900.
Stökktu tilboð 28. ágúst
í 10 nætur.
Verð kr. 82.900
10 nætur með hálfu fæði
Netverð m.v. 2 fullorðna
og 1 barn. Verð m.v. 2 í
herbergi/stúdíó með
hálfu fæði kr. 91.900.
Sértilboð á Hotel
Balmoral ***,
28. ágúst í 10 nætur.
Verð kr. 94.900
10 nætur með “öllu inniföldu”
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára í herbergi/stúdíó/
íbúð með “öllu inniföldu”. Verð
m.v. 2 í herbergi/stúdíó með “öllu
inniföldu” kr. 109.900. Sértilboð á
Hótel Roc Flamingo *** og Hótel
Griego Mar ***, 28. ágúst í 10 nætur.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
„Það er ekki þannig að grænmeti og
ávextir séu einungis tíu prósent af því
sem ratar á disk skólabarna því hrá-
efnisverð er svo ofboðslega mismun-
andi,“ segir Oddný Sturludóttir, for-
maður menntaráðs Reykjavíkur-
borgar. „Kílóverð á kjúklingi og
kílóverð á rófum er mjög ólíkt. En við
munum skoða betur hvað er þarna á
bak við.“
Í Morgunblaðinu á laugardag kom
fram að níu prósent fjármuna, sem
varið var til hráefniskaupa fyrir
mötuneyti leik- og grunnskóla í borg-
inni í fyrra, fóru til kaupa á ferskum
ávöxtum og grænmeti. Þar fyrir utan
er frosið og niðursoðið grænmeti sem
telst til þurrvöru. Samkvæmt viðmið-
um Lýðheilsustöðvar eiga ávextir og
grænmeti hins vegar að vera þriðj-
ungur matarins.
Eftirlitið aukið
Oddný segist binda miklar vonir við
tilraunaverkefni um samræmda hrá-
efnismatseðla, sem hefst í öllum
grunn- og leikskólum í Vesturbænum
í haust. „Sérstakur starfsmaður mun
fara nákvæmlega í saumana á því
hvernig það kemur út og vonandi
liggur fyrir greining á því strax fyrir
áramót. Ég er ekkert endilega ánægð
með stöðuna eins og hún er í dag enda
erum við að reyna að bæta úr henni
með þessu verkefni.“
Jóhanna Eyrún Torfadóttir nær-
ingarfræðingur er formaður starfs-
hópsins sem útbjó umrædda viðmið-
unarmatseðla þar sem gengið er út
frá sameiginlegu útboði hráefnis fyrir
skólana sem eiga í hlut. „Það útboð
nær aðeins yfir kjöt og fisk,“ segir
hún. Ávextir og grænmeti falli því
ekki undir hina samræmdu matseðla
enn sem komið er. Hins vegar muni
eftirlitsmanneskja sem ráðin verði
vegna tilraunaverkefnisins annast
eftirlit með mötuneytunum og fylgja
eftir öllum þáttum þeim viðkomandi,
s.s. gæðum matarins, tímanum sem
börnin fá til að borða o.fl.
Jóhanna segist ekki viss um að
hægt sé að túlka innkaupatölurnar
sem vísbendingu um að ávextir og
grænmeti séu ekki nægilega hátt
hlutfall af mat skólabarna. „Það er
stöðugt verið að auka innkaup á
ávöxtum og grænmeti. Kílóverð á
matvöru er svo mismunandi. Sömu-
leiðis er í þessum tölum kaffi fyrir
kennara og fleira sem ekki kemur
mat barnanna við.“
Hráefnisverðið mismunandi
Telja ávexti og grænmeti stærra hlutfall matar í skólamötuneytum en ætla má
af fjármunum sem fara í það Nýir tilraunamatseðlar taka bara til kjöts og fisks
„Kílóverð á
kjúklingi og
kílóverð á rófum
er mjög ólíkt.“
Oddný Sturludóttir
Þrátt fyrir kuldakast um helgina, sem gestir
Laugardalslaugar fundu fyrir eins og aðrir, er of
snemmt að lýsa yfir endalokum sumarsins, að
sögn Hrafns Guðmundssonar, veðurfræðings á
Veðurstofu Íslands. Búast megi við að hiti hækki
aftur í dag, sérstaklega á suður- og suðvestur-
hluta landsins.
Um helgina snjóaði í fjöll á Norður- og Austur-
landi og hitinn fór lægst í 1,7 gráður á Hellu í
fyrrinótt og í 2,3 gráður í Básum á Goðalandi.
„Þetta er fyrsta norðanskotið í langan tíma svo
það hefur verið haustlegt og kalt,“ segir Hrafn.
„En það á nú að draga úr þessum kulda og hlýna
nokkuð, sérstaklega sunnan- og suðvestanlands.
Svo gengur þessi norðanátt niður í vikunni og þá
hlýnar líka fyrir norðan.“ Hiti eigi að komast yfir
15 gráður á sunnanverðu landinu í dag eða á
morgun og skríða fljótlega yfir tíu gráður fyrir
norðan. „Sumarið er búið að vera svo gott og hlýtt
að það eru viðbrigði að fá þennan kulda en ég á nú
von á því að einhverjir góðir dagar séu eftir.“
Hlýnar aftur í vikunni á landinu
Morgunblaðið/Eggert
Haustið bara í stuttri heimsókn
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Mikil ólga er í grasrót Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs vegna
þess að sífellt verði ljósara að Ísland
sé ekki í einföldum aðildarviðræðum
við Evrópusambandið heldur í aðlög-
unarferli sem miði að því að laga
landið að regluverki og stofnanakerfi
sambandsins.
Farið fram á fund
Þá herma heimildir Morgunblaðs-
ins að einn af ráðherrum vinstri-
grænna hafi óskað eftir sérstökum
þingflokksfundi til þess að ræða þá
stöðu sem komin er upp í málinu.
Ekki liggur þó fyrir hvenær sá fund-
ur verður haldinn en búast má við að
það verði innan skamms.
„Það er mín skoðun að það séu
brostnar forsendur fyrir þessu máli.
Að þetta séu aðlögunarviðræður,“
segir Atli Gíslason, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs. Hann segir liggja fyrir að
Evrópusamband-
ið ætli að koma
með nokkra millj-
arða í það verk-
efni að gera mikl-
ar breytingar á
þjóðfélaginu.
„Það er auðvit-
að óþolandi að
þeir ætli að setja
milljarða í áróð-
ursherferð hérna á meðan þeir sem
standa gegn þessu hafa ekki það
sama. Þannig að leikurinn er mjög
ójafn að þessu leyti,“ segir Atli.
Hann segir að fyrir sér séu for-
sendur algerlega breyttar. „Það er
komin upp algerlega ný staða og ég
held að það þurfi hreinlega atkvæða-
greiðslu um umsóknina áður en við
förum inn í alla þessa aðlögun.“
Ólga í grasrót vinstri-
grænna vegna aðlögunar
Komin upp ný staða í Evrópumálunum, segir þingmaður VG
Atli Gíslason
Aðlögunarviðræður
» Ólga er í grasrót vinstri-
grænna vegna þess að Ísland
sé í raun í aðlögunarferli að
Evrópusambandinu.
» Þingmaður VG segir að for-
sendur í málinu séu brostnar
og atkvæðagreiðslu þurfi áður
en lengra sé haldið.
Karl Sigurbjörnsson biskup vísar
því algjörlega á bug að hann hafi
gengið erinda þeirra sem vildu
þagga niður ásakanir Sigrúnar Pál-
ínu Ingvarsdóttur á hendur Ólafi
Skúlasyni biskupi fyrir fjórtán ár-
um. Í yfirlýsingu frá biskupi segist
hann umbeðinn hafa komið að til-
raunum til sátta milli Ólafs og Sig-
rúnar en þeim tilraunum hafi verið
sjálfhætt þegar Ólafur neitaði að
biðja hana afsökunar.
„Ég vísa því algjörlega á bug að
hafa gengið erinda þeirra sem vildu
þagga niður málið. Hafa ber í huga
að Sigrún Pálína kærði biskup til
saksóknara sem taldi ekki efni til
að birta ákæru í málinu. Einnig má
minna á að málið yfirgnæfði alla
umræðu í kirkjunni og stofnunum
hennar, Kirkjuráði, Prestafélagi Ís-
lands og Prestastefnu. Menn skipt-
ust í flokka og tóku afstöðu með
biskupi eða Sigrúnu Pálínu. Al-
menningsálitið kvað upp sinn dóm
og Ólafur biskup lét af embætti.
Ég hef einsett mér að þjóð-
kirkjan lærði af reynslunni af þessu
sársaukafulla máli og tæki af ein-
urð á málum af þessu tagi fram-
vegis og hef unnið að því á minni
embættistíð,“ segir í yfirlýsingu
biskups.
Biskup tók
ekki þátt í
þöggun
Segist hafa komið að
sáttatilraunum
Samtök verslunar og þjónustu, SVÞ,
hafa sent sjávarútvegs- og landbún-
aðarnefnd Alþingis harðorða um-
sögn um framkomið frumvarp til
breytinga á búvörulögum. Telja
samtökin að verði frumvarpið að
lögum sé um að ræða eitt alvarleg-
asta afturhvarf frá frjálsri sam-
keppni sem sést hefur um langt ára-
bil hér á landi og að með þessum
breytingum sé stefnt að einokun og
atvinnufrelsi heft. Hafa SVÞ kvart-
að til umboðsmanns Alþingis.
Á vef SVÞ segir að samtökin hafni
þessum lagasetningaráformum
algerlega, enda séu þau í hreinni
andstöðu við þá stefnu samtakanna
að frjáls samkeppni ríki á öllum svið-
um atvinnulífsins. Með því móti
verði neytendum í landinu tryggð
vara og þjónusta á sem hagstæð-
ustum kjörum hverju sinni.
Afturhvarf frá
frjálsri samkeppni