Morgunblaðið - 23.08.2010, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010
10 Daglegt líf
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Gleðin skein úr andlitumbarnanna sem sóttuLegónámskeið í Háteigs-skóla í síðustu viku.
Enda finnst flestum gaman að
byggja úr legókubbum og það veit
Jóhann Breiðfjörð sem hefur hald-
ið legónámskeið á hverju sumri
undanfarin ár.
„Það er alltaf jafnmikill legó-
áhugi og krakkar hafa gaman af að
læra að byggja úr tæknilegói. Ég
hef verið með vikunámskeið, tvo
hópa á dag, á mismunandi stöðum í
sumar og því miður hafa ekki allir
komist að sem vildu,“ segir Jóhann
sem tók sér stutta pásu frá legó-
kennslunni til að ræða við blaða-
mann.
„Á námskeiðinu leika þau sér
og læra í leiðinni. Ég er með
hundrað kíló af tæknilegókubbum
og kenni þeim að nota tannhjól,
mótora, lofttjakka og fleira. Verk-
efnin eru frjáls en ég er með ein-
faldar grunnteikningar sem þau
geta stuðst við. Þeir sem eru
lengra komnir fá að byggja það
sem þá langar og ég hjálpa þeim
að útfæra,“ segir Jóhann um nám-
skeiðið.
Bílar, þyrlur og vélmenni
„Sum börnin hafa ekkert kom-
ið nálægt tæknilegói áður en eru
fljót að ná þessu. Það eru margir
mjög flinkir en þetta snýst líka um
að æfa sig og prófa hitt og þetta.
Þegar ég vann fyrir Legó fór
mig að gruna að krakkar væru
bara að byggja eftir teikningum og
Leikið og lært
með Legó
Það finnst öllum gaman að leika sér og það er ekki verra að læra í leiðinni. Jó-
hann Breiðfjörð hefur haldið mörg námskeið fyrir börn 6 til 13 ára þar sem hann
kennir þeim að byggja úr tæknilegókubbum. Hann segir námskeiðin alltaf jafnvel
sótt og að bílar, þyrlur og vélmenni séu vinsælustu viðfangsefnin.
Morgunblaðið/Ernir
Leikið og lært Það er gaman að leika sér að sköpunarverkinu.
Einbeittur Það þarf að vanda sig við að byggja eftir teikningum.
Síðan er ekki hefðbundin tískublogg-
síða heldur gerir í raun grín að þeim
fjölmörgu bloggsíðum sem haldið er
úti. Bloggarinn segir enda í fyrstu
færslunni: „Á internetið vantar sár-
lega fleiri tískublogg: blogg þar sem
höfundurinn skrifar um tísku/
hönnun/frægt fólk/útsölur/skó sem
hann langar í og hefur ekki efni á og
birtir myndir af fötum sem hann
kaupir og velur saman sjálfur.“
Bloggarinn birtir reglulega myndir
af sjálfri sér og lýsir fötunum, t.d. að
einhverjar flíkurnar hafi verið keyptar
á útsölu, aðrar séu of stórar og hafi
fundist í kommóðuskúffu kærastans
og að sokkarnir séu ósamstæðir.
Á mörgum tískubloggum er að
finna liðinn „daily obsession“ þar
sem einhver vara, sem heillar blogg-
arann þá stundina, fær umfjöllun. Á
þessari síðu er hinsvegar liðurinn
„daily bobsession“ þar sem mynd af
einhverjum Bob er birt, t.d. Bob Sa-
get, Silent Bob, Bob Hope o.fl. Þá
gætir töluverðrar beikonaðdáunar á
blogginu og birtar myndir t.d. af beik-
ontannþræði, beikon martíní og beik-
on sleipiefni. Blogg um tískuna fjallar
t.d. um háa hæla fyrir ungabörn og
nýjustu straumana í kattafatnaði.
Fyrir hugaða er mælt með að prufa
einhverjar af uppskriftunum sem eru
gefnar að líkamsmöskum og djúp-
næringu en í þeim er m.a. að finna
lyftiduft og túnfisk.
Vefsíðan www.tiskublogg.blogspot.com
Þynnkuföt og Bob dagsins
Ef íbúa suðvesturshornsins langar til
að gera eitthvað skemmtilegt með
fjölskyldunni eða fara með ástina á
óvenjulegt stefnumót er tilvalið að
taka ferjuna út í Viðey.
Það er stutt og skemmtileg sigling
út í eyjuna. Viðey er svo hægt að
ganga þvera og endilanga en hún er
1,6 km2 að stærð og skiptist í tvo
hluta, Heimaey og Vesturey. Þrátt
fyrir smæð sína býður eyjan upp á
margt, það er hægt að borða nesti í
grænni lautu, fara í leiki, horfa á sjó-
inn, fuglana og stuðlabergið og bara
njóta lífsins úti í náttúrunni. Skipu-
lagðir viðburðir eiga sér oft stað í
eyjunni og er hægt að miða ferðina
við þá.
Upplýsingar um viðburði og sigl-
ingar út í Viðey má finna á www.vi-
dey.com.
Endilega …
… siglið út í
Viðey
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Viðey Góður staður.
Örorkustyrkur er hugsaður fyrir
einstaklinga sem bera veru-
legan aukakostnað vegna ör-
orku sinnar, til dæmis vegna
lyfja, læknishjálpar eða hjálp-
artækja.
Hverjir eiga mögulegan
rétt á örorkustyrk?
Þeir sem eru á aldrinum 18-
67 ára geta átt rétt á ör-
orkustyrk. Skilyrði er að um-
sækjandi hafi verið búsettur á
Íslandi a.m.k. þrjú síðustu árin
áður en umsókn er lögð fram
eða í sex mánuði ef starfsorka
var óskert þegar hann tók hér
búsetu. Einnig þarf að liggja
fyrir mat tryggingalæknis um
að umsækjandi hafi misst
a.m.k. 50% af starfsorku sinni
en nái ekki 75% starfs-
orkumissi.
Hvað er örorkustyrkur?
Örorkustyrkur er tekjutengd-
ur bótaflokkur hjá Trygg-
ingastofnun og getur hæstur
verið u.þ.b. ¾ af fullum örorku-
lífeyri fyrir fólk á aldrinum 62-
67 ára. Greiðslur eru reiknaðar
út frá tekjum í tekjuáætlun sem
þarf að fylgja með umsókn.
Engar viðbótargreiðslur eru
með örorkustyrk nema til þeirra
sem hafa börn innan 18 ára á
framfæri sínu. Viðbótin er 75%
af barnalífeyri fyrir hvert barn
á framfæri umsækjanda.
Fullur örorkustyrkur er
greiddur ef árstekjur ör-
orkustyrkþegans eru undir
2.575.220 kr. og nemur þá ¾
af grunnlífeyri. Greiðslur lækka
með hækkandi tekjum og falla
niður við árstekjur 3.981.332
kr.
Tekjur maka hafa ekki áhrif á
greiðslur, nema fjármagns-
tekjur sem eru reiknaðar sam-
eiginlega hjá sambúðarfólki/
hjónum. Reiknað er með helm-
ingi hjá hvoru um sig við
útreikning bóta.
Hvenær fellur örorku-
styrkur niður?
Ef árstekjur fara yfir
3.981.332 kr.
Þegar endurnýjað mat er
undir 50% eða nær 75% ör-
orkumati.
Þegar einstaklingur verð-
ur 67 ára, því þá öðlast hann
rétt til ellilífeyris og þarf að
sækja sérstaklega um hann.
Ef endurnýjun á ör-
orkumati berst of seint til
Tryggingastofnunar fellur ör-
orkustyrkur niður þar til nýtt
örorkumat hefur verið afgreitt
Ef búsetuskilyrði eru ekki
uppfyllt.
Við andlát.
Þinn réttur
Örorkustyrkur
Morgunblaðið/Golli
Örorka „Þeir sem eru á aldrinum 18-67 ára geta átt
rétt á örorkustyrk.“
Nýlega kom út
bókin Tónlist í
leikskóla en
hún er ætluð
þeim sem
kenna í leik-
skólum, á yngri
stigum grunn-
skóla og öðrum
sem starfa með
ungum börnum.
Bókin er grund-
vallarrit um
flest það er
snýr að tón-
menntanámi
yngstu kynslóð-
arinnar.
Fjallað er um
tónlist sem
þroskaþátt í
leik barna og
skipulögðu
starfi í söngstundum, tónlist-
artímum og þemavinnu. Einn-
ig eru margskonar hug-
myndir að efni sem nota má
jafnt í formlegu starfi sem
óformlegu og er því skipt
niður í hljóðleiki, sönglög og
hlustunarefni.
Þrír geisladiskar fylgja
bókinni, tveir með söng-
lögum þar sem flytjendur eru
Marta Guð-
rún Hall-
dórsdóttir,
Örn Magn-
ússon, Mar-
grét Krist-
jánsdóttir,
Karl Roth
og fleiri.
Þriðji disk-
urinn er
með tónefni
í flutningi
Sinfón-
íuhljóm-
sveitar Ís-
lands.
Sérstakt
vefefni er
fáanlegt
fyrir not-
endur bók-
arinnar á
síðunni: www.tonlist.forlagid.is.
Höfundur bókarinnar, Sigríð-
ur Pálmadóttir, hefur helgað
starf sitt tónlistarnámi barna
um langt árabil og hefur verið
lektor í tónmennt við Kenn-
araháskóla Íslands, nú Mennta-
vísindasvið Háskóla Íslands.
Námskeið um notkun bók-
arinnar verður haldið nú á
haustdögum.
Bækur
Tónmenntanám yngstu
kynslóðarinnar