Morgunblaðið - 23.08.2010, Page 11
Legókennsla Jóhann Breiðfjörð leiðbeinir einum ungum legóáhugamanni.
svo færi hluturinn eins og stytta
upp í hillu og það passaði alveg.
Mér finnst það synd því það er svo
þroskandi fyrir þau að prófa sig
áfram. Þannig að á námskeiðinu ýti
ég undir sköpunina og hef margar
teikningarnar bara hálfkláraðar
svo þau þurfi að bæta við,“ segir
Jóhann sem starfaði í fimm ár hjá
Legó-fyrirtækinu við hönnun.
Hann segir krakkana helst
vilja byggja bíla, þyrlur og vél-
menni og þau séu mjög dugleg við
að koma með hugmyndir.
Námskeiðið sækir aldurshóp-
urinn 6 til 13 ára og aðallega
strákar að sögn Jóhanns. Hann
sjálfur segist alltaf hafa jafngaman
af því að kenna á námskeiðunum.
„Já já, það er voða gaman að geta
verið að leika sér ennþá,“ segir Jó-
hann kátur og fer að sinna kennsl-
unni.
Rótað Þessi ungi maður leitar að réttu kubbunum í kassanum.
Upplýsingar um legó-
námskeiðið og nýsköpunarnám-
skeið sem Jóhann heldur má finna
á vefsíðunni www.nyskopun.com.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010
Þúsundir fermetra
af flísum með
20 -70% afslætti
Eikarparket 14 mm
kr 3.990 m2
Allar baðherbergisvörur
25% afsláttur
ÚTSALA
Daglegt líf 11
Sumar tegundir af extra virgin ólífu-
olíu á markaði eru ekki extra virgin
samkvæmt nýrri bandarískri rann-
sókn. Extra virgin er hæsti gæða-
flokkur ólífuolíu samkvæmt alþjóð-
legum viðmiðum.
Bandaríska rannsóknarstofnunin
Davis Olive Oil Chemistry Labora-
tory tók höndum saman við ástr-
ölsku stofnunina Oils Reserch La-
boratory og athugaði gæðin á
mörgum tegundum af extra virgin-
ólífuolíu sem er seld í Kaliforníu. Ol-
ían var skoðuð út frá viðmiðum sem
Alþjóðaólífuráðið (IOC) og landbún-
aðarráðuneyti Bandaríkjanna
(USDA) settu um hvernig ólífuolía
þyrfti að vera til að geta talist extra
virgin.
Niðurstaða rannsóknarinnar var
að 69% af þeirri extra virgin olíu,
sem er flutt inn til Kaliforníu, stæð-
ust ekki viðmið IOC/USDA og 10%
af olíunni sem er framleidd í Kali-
forníu. 83% af þeirri olíu sem
stóðst ekki prófið í Kaliforníu stóðst
heldur ekki þýsk/ástralska DAGs
viðmiðið.
Af mörgum olíutegundunum var
þráa- og myglubragð og fúkkalykt.
Olían var skemmd vegna hita og ljós
eða hún var orðin of gömul. Ódýrari
gerð af ólífuolíu eða heslihnetuolíu
var blandað út í extra virgin-olíuna
til að þynna hana eða hún var
skemmd vegna þess að í hana voru
notaðar skemmdar og ofþroskaðar
ólífur, vegna framleiðslugalla eða/
og vegna lélegra geymsluskilyrða.
Sumar tegundirnar af extra virgin-
ólífuolíunni sem koma fyrir í rann-
sókninni fást hér á landi.
Neytendur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Olíur Það er um margt að velja þegar í búðina er komið.
Extra virgin-ólífuolía
þynnt með ódýrari olíu