Morgunblaðið - 23.08.2010, Side 14

Morgunblaðið - 23.08.2010, Side 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010 fljótlegt og gott HOLLT OG GOTT GLK þorskbitar, roð- og beinlausir kr. kg998 Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Í niðursveiflu reynir verulega á stjórnendur fyrirtækja, sem þurfa þá að komast í gegnum tímabil minni sölu og tekna, aukins að- fangakostnaðar og mikils fjár- magnskostnaðar. Eitt úrræði við slíkar aðstæður er að hefja hagræðingarverkefni, sem geta skilað hærri framleiðni. Slík verkefni geta til dæmis falið í sér innleiðingu á rafrænum reikn- ingum, en ýmsir möguleikar og lausnir eru fyrir hendi í þessum efnum fyrir íslenskt atvinnulíf, að sögn Styrmis Kristjánssonar, verkefnisstjóra hjá Skýrr. Styrmir segir að rannsóknir sýni að umtalsverður sparnaður fylgi því að taka upp kerfi sem bjóði upp á að senda reikninga með rafrænum hætti. „Í fyrsta lagi losnar þú við þetta pappírsflóð, sem er mjög áberandi í íslensku viðskiptalífi enn þann dag í dag. Það er í raun stórmerkilegt hve mikið af pappír er sent á milli fyr- irtækja og stofnana í hverjum mánuði. Þá dregur mjög úr inn- sláttarvillum og reikningar týnast ekki lengur, eins og þeir vilja stundum gera núna. Sparnaðurinn við bókhald og umhald reikninga getur numið 40-50 prósentum og kostnaður við innkaupaferlið getur dregist saman um 20 prósent.“ Mismunurinn felst, að sögn Styrmis, fyrst og fremst í sjálf- virkni í verkferlum, en þau fyr- irtæki sem standa sig best í þess- um efnum státa af meiri sjálfvirkni en keppinautarnir, ná næstum tvö- földum afköstum á við samanburð- arhóp og sýna allt að 40% færri villur í innheimtu og greiðslum. „Af þessu sést glögglega að það er eftir miklu að slægjast þegar verkferlar fyrirtækja eru skoðaðir með það fyrir augum að útrýma tímafrekum og úreltum vinnu- brögðum og innleiða nýja hugsun með aðstoð nútímatækni.“ Þá bætist það við að þrátt fyrir að flest fyrirtæki séu með rafræn bókhalds- og viðskiptakerfi þá eru reikningar á milli fyrirtækja ennþá afgreidd- ir á pappír að langmestu leyti. „Við sláum á að um 90 prósent af öllum reikningum á milli fyr- irtækja og stofnana séu send á pappír. Þegar reikningurinn er kominn í hús tekur manneskja við honum og slær hann inn í tölvukerfið. Þetta er, eins og gefur að skilja, ekki mjög skilvirkt eða hagkvæmt fyrir- komulag.“ Ákveðin tregða Styrmir segir að sjálfvirkir innkaupaferlar og afgreiðsla reikninga hafi verið innleidd upp að ákveðnu marki hjá nokkrum stórfyrirtækjum hér á landi með ærnum tilkostnaði. „Aftur á móti hefur verið mikil þörf á lausnum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Nú eru hins vegar slíkar lausnir að líta dagsins ljós. Mikil vinna hefur verið lögð í stöðlun við- skiptaskjala á XML-sniði undan- farin ár.“ Þessi stöðlun skilar miklum möguleikum til fyrirtækja á að hagræða í innri ferlum og ná fram þeirri skilvirkni í starfsemi sem krafist er af fyrirtækjum í samkeppnisumhverfi dagsins í dag. „Vandinn hefur verið að fá fyrirtæki og stofnanir til að taka upp þessa nýju tækni. Aðal- ástæðan er sú að kerfið er gagns- lítið nema báðir aðilar nýti sér tæknina og því hefur sú tilhneig- ing verið sterk að bíða þar til við- skiptavinurinn stígur fyrsta skrefið. Nú hafa ríki og borg hins vegar tekið af skarið og munu gera kröfu um að allir þeirra birgjar hafi slík kerfi og þá mun boltinn væntanlega fara að rúlla.“ Rafrænir reikningar spara mikið fé Pappír Umtalsverður kostnaður fylgir pappírsreikningum.  Þrátt fyrir upptöku rafræns bókhalds er gríðarlegt magn af pappír ennþá notað í alls kyns viðskipt- um milli fyrirtækja og stofnana á Íslandi  Umtalsverður sparnaður fylgir rafrænum reikningum Ný þjónusta hjá Skýrr er svo- kölluð skeytamiðlun, sem er miðlæg þjónusta fyrir stofnanir og fyrirtæki sem senda reikn- inga sín á milli. Skeytamiðlunin er þjónusta fyrir rafræn við- skipti í atvinnulífinu, sem er miðlæg og gerir mögulega raf- ræna dreifingu pantana og reikninga milli aðila sem tengj- ast miðluninni. „Eitt helsta verkefnið í svona miðlun er að tryggja það að kröfur um lögformleg frumrit reiknings séu uppfylltar. Við höfum unnið með skatta- yfirvöldum, fjármálaráðuneyti og viðskiptaráðuneyti til að þróa eigin lausn, sem uppfyllir þessar kröfur – Skeytamiðlun Skýrr. Það er þó vert að benda á að stöðv- un pappírsflóðsins er bara lítill hluti þess ávinnings sem innleið- ing rafrænna reikninga leiðir af sér. Enn mik- ilvægari atriði eru sparn- aður í mannauði, umsýslu og stóraukin nákvæmni í af- greiðslu,“ segir Styrmir. Frumritið skiptir máli SKEYTAMIÐLUN SKÝRR Tölva í stað pappírs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.