Morgunblaðið - 23.08.2010, Side 18
18 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010
Umfjöllun um sjáv-
arútvegsmál hefur und-
anfarið einkennst af
hagsmunatengdri um-
ræðu á borð við kvóta-
mál eða mögulega aðild
að ESB. Lítil umræða
hefur verið um þau
tækifæri sem sjávar-
útvegurinn hefur til að
auka umsvif sín og af-
komu. Þó svo að hlutfall
sjávarafurða í vöruútflutningi lands-
manna hafi minnkað verulega er sjáv-
arútvegur enn undirstöðuatvinnu-
grein á Íslandi. Eftir bankarhrunið
hafa væntingar til greinarinnar auk-
ist og því er mikilvægt að greinin
skoði markvisst hvaða tækifæri hún
hefur til vaxtar í framtíðinni.
Í lok síðasta árs kom hópur fólks
saman sem lætur sig varða þróun
sjávarútvegs og umræðu um sjávar-
útvegsmál. Það var samdóma álit
okkar að það vantaði samskiptavett-
vang þar sem við gætum lyft okkur
upp úr dægurþrasinu og horft frekar
til framfaramálefna sem varða sjáv-
arútveginn og þar af leiðandi íslenskt
efnahagslíf. Þessi umræða varð til
þess að við stofnuðum samtök sem
fengu nafnið Sjávarútvegsráðstefnan
sem hefur það að markmiði að halda
árlega ráðstefnu um sjávarútvegs-
mál. Með þessu móti búum við til
samskiptavettvang fyrir alla þá sem
láta sig málefni sjávarútvegsins
varða. Við leggjum mikla áherslu á að
samtökin endurnýist reglulega og því
getur enginn setið lengur en tvö ár í
stjórn þeirra sem jafnframt er ráð-
stefnuráð.
Undanfarinn áratugur hefur verið
viðburðaríkur fyrir íslenskan sjávar-
útveg og þegar horft er til baka eru
það einkum fimm atriði sem mér
finnst standa upp úr:
1. Okkur hefur ekki tekist að
byggja upp þorskstofninn eins og við
vonuðumst til.
2. Mikil verðmætaaukning hefur
orðið með aukinni manneldisvinnslu á
uppsjávarfiski bæði á landi og úti á sjó.
3. Sterkt raungengi krónunnar á
hluta tímabilsins hafði mikil áhrif á
þróun landvinnslu og úrvinnslu úr
sjávarfangi.
4. Grundvallarbreyting hefur orðið
á sölu- og markaðsmálum sjávar-
útvegsins. Gömlu stóru sölusamtök-
unum var breytt í hlutafélög og eru í
meirihlutaeigu fjárfesta en ekki sjáv-
arútvegsins. Samhliða hafa mörg
sjávarútvegsfyrirtæki byggt upp eig-
in sölu- og markaðsdeildir.
5. Þá hefur orðið veruleg hagræð-
ing innan sjávarútvegs-
ins bæði vegna sam-
þjöppunar en einnig
með tilkomu nýrrar
tækni sem greinin hefur
verið fljót að tileinka
sér, á borð við hrað-
fiskibáta.
Í samanburði við
flestar aðrar atvinnu-
greinar hefur íslenskur
sjávarútvegur alla tíð
verið mjög fljótur að að-
laga sig að breyttum að-
stæðum. Gott dæmi um
þennan drifkraft eru makrílveiðar Ís-
lendinga sem fóru að skipta einhverju
máli á síðasta ári. Á því ári sem er lið-
ið er búið að skipuleggja veiðarnar
þannig að stór hluti aflans fer í mann-
eldisvinnslu og búið er að finna afurð-
unum farveg erlendis. Þetta er sann-
kallaður lottóvinningur fyrir íslenskt
samfélag og gæti verið að skila okkur
allt að 15 milljörðum króna í auknum
útflutningsverðmætum.
Eins og kom fram hefur hlutfall
sjávarafurða í vöruútflutningi minnk-
að nokkuð hlutfallslega vegna auk-
innar stóriðju hér á landi. Árið 1999
nam útflutningur sjávarafurða 98
milljörðum króna og var 57% af vöru-
útflutningnum. Tíu árum síðar, 2009,
voru verðmæti útflutningsins 209
milljarðar króna og 30% af vöruút-
flutningnum. Ef við umbreytum verð-
mætinu í evrur m.v. meðalgengi hvors
árs fyrir sig sést að útflutningurinn
nam 1.287 milljónum evra árið 1999 en
hafði dregist saman í 1.208 milljónir
evra 2009. Þetta er umhugsunarefni
og hvatning til að gera enn betur til að
auka verðmæti og nýta betur þau
tækifæri sem við sækjum í greipar
Ægis.
Sjávarútvegsráðstefnan heldur
sína árlegu ráðstefnu dagana 6. og 7.
september næstkomandi á Grand
Hótel. Yfirskrift ráðstefnunnar er
„Hafsjór tækifæra“ þar sem fjöl-
margir aðilar munu greina frá ýms-
um tækifærum á hinum ýmsu sviðum
sjávarútvegsins. Áhugasamir eru
hvattir til að kynna sér betur ráð-
stefnuna á sjavarutvegsradstefnan.is.
Hafsjór tækifæra
Eftir Guðbrand
Sigurðsson
»Mikilvægt er að sjáv-
arútvegurinn horfi
til framtíðar og greini
þau tækifæri sem grein-
in hefur til vaxtar og
sóknar í dag.
Guðbrandur Sigurðsson
Höfundur er matvælafræðingur og
MBA og er einnig formaður stjórnar
Sjávarútvegsráðstefnunnar.
Sendinefnd Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins
(AGS) hefur tilkynnt að
hún mæli með því að
stjórn AGS afgreiði og
samþykki þriðju endur-
skoðun á efnahags-
áætlun fyrir Ísland sem
fara á fram í september
nk. Sendifulltrúi AGS á
Íslandi sagði, þegar
þetta var tilkynnt, að
efnahagsáætlunin fyrir Ísland væri
að skila árangri. Verðbólga hefði
hjaðnað, gengi krónunnar hefði
styrkst, viðskiptahalli minnkað, rík-
isfjármálin hefðu batnað og umgjörð
og eftirlit með fjármálakerfinu verið
bætt. Þetta er góður vitnisburður fyr-
ir ríkisstjórnina og leiðir í ljós að rík-
isstjórnin er á réttri braut í aðgerðum
til þess að endurreisa efnahagslífið.
Erfiðasta verkefni
nokkurrar ríkisstjórnar
Þegar núverandi ríkisstjórn tók við
völdum vorið 2009 tók hún við erf-
iðara verkefni en nokkur ríkisstjórn
hafði áður tekið við á lýðveldistím-
anum. Hér höfðu allir bankarnir
hrunið og farið í þrot.
Samhliða hafði mikið af
atvinnufyrirtækjum
landsins fallið, lífeyr-
issjóðirnir höfðu orðið
fyrir miklu fjárhags-
áfalli og mikill hluti al-
mennings orðið at-
vinnulaus og mátt sæta
stórfelldri lífs-
kjaraskerðingu vegna
atvinnuskorts og geng-
ishruns krónunnar, sem
stórhækkaði allar inn-
fluttar vörur. Stærsta
verkefni ríkisstjórnarinnar var að
endurreisa bankana og fjár-
málakerfið. Það tókst og með minna
fjárframlagi frá ríkinu en reiknað var
með í upphafi. Það hefur einnig tekist
að lækka verðbólguna verulega. Hún
er nú 4,8% en var komin í tæp 20%,
þegar mest var. Vextir hafa einnig
lækkað mikið og eru nú 6,5% en voru
eins og verðbólgan orðnir mjög háir,
komnir í 18%. Því er nú spáð að verð-
bólgan fari niður í 2,5% um áramótin.
Krónan er farin að styrkjast verulega
og mun það lækka verð innfluttra
vara. Því miður hefur styrking krón-
unnar enn ekki skilað sér í nægilegri
lækkun vöruverðs. Kaupmenn og
innflytjendur hafa tekið sér of háa
álagningu. Ef styrking krónunnar
skilar sér ekki í lægra vöruverði verð-
ur samkeppniseftirlitið að taka í
taumana.
Ríkisstjórnin hefur tekið ríkisfjár-
málin föstum tökum. Ríkishallinn
hefur minnkað verulega. Hallinn nam
215 milljörðum kr. árið 2008, skv. rík-
isreikningi, en var kominn í 139 millj-
arða árið 2009. Nýjustu tölur leiða í
ljós,að á yfirstandandi ári batnar
staðan í ríkisfjármálum enn. Fjár-
málaráðherra upplýsti nýlega að
staðan í ríkisfjármálum væri 34 millj-
örðum betri nú en áætlanir hefðu
sagt fyrir um áður. Það eru góðar
fréttir og benda til þess að draga
megi úr niðurskurði og sleppa alveg í
almannatryggingum.
Skattastefna
ríkisstjórnarinnar réttlát
Ríkistjórnin hefur að sjálfsögðu
þurft að hækka skatta. En hún hefur
gert það á þann hátt að skattar hafa
verið hækkaðir mest á þeim sem hafa
mestar tekjur en minna eða ekkert á
þeim sem eru með lágar tekjur. Þetta
er réttlát skattastefna. Auk þess hef-
ur fjármagnstekjuskattur verið
hækkaður. Það er einnig eðlilegt eins
og ástandið er í þjóðfélaginu. Að vísu
er ég andvígur því að hár fjármagns-
tekjuskattur sé lagður á tiltölulega
lítið sparifé fólks í banka. Ég tel að
ekki eigi að skattleggja lágan sparnað
fólks. Ég tel að setja mætti frí-
tekjumark við skattlagningu spari-
fjár, t.d. 10 milljónir, sem fólk gæti
átt skattfrjálst í banka. Hins vegar á
að skattleggja vel háar innistæður
auðmanna. Ég er nokkuð sáttur við
skattastefnu ríkisstjórnarinnar. En
ég er ósáttur við það hvernig nið-
urskurði hinna ýmsu ráðuneyta hefur
verið háttað.
Skorið niður í velferðarkerfinu
Ríkisstjórnin lofaði því þegar hún
tók við völdum að standa vörð um vel-
ferðarkerfið. Við það hefur ekki verið
staðið. Í mörgum ráðuneytum hefur
ekkert verið skorið niður og útgjöld
jafnvel aukin. En í velferðarmálum
hefur verið skorið mikið niður, þ.e. í
almannatryggingum og í heilbrigð-
ismálum. Þetta eru alger svik við fyr-
irheit ríkisstjórnarinnar um að
standa vörð um velferðarkerfið. Fé-
lagsmálaráðherrann virðist ekki gera
sér grein fyrir því að lífeyrir aldraðra
og öryrkja er ígildi launa. Hér er um
að ræða laun lífeyrisþega. Þegar laun
hækka á almennum vinnumarkaði
eins og gerst hefur á þessu ári og því
síðasta verður einnig að hækka lífeyri
lífeyrisþega. Á undanfarandi tæpu
1½ ári hefur kaup launafólks með
laun undir 220 þús. á mánuði hækkað
um 23 þús. kr. á mánuði eða ca 16%.
Sama er að segja um ríkisstarfsmenn
með laun 180-220 þús. á mánuði. En á
sama tíma og þetta hefur gerst hafa
laun (lífeyrir) lífeyrisþega, aldraðra
og öryrkja, ekki hækkað um eina
krónu. Hvernig getur ríkisstjórn sem
vill kenna sig við félagshyggju leyft
slíku misrétti að myndast? Rík-
isstjórnin verður strax að leiðrétta líf-
eyri aldraðra og öryrkja ef hún vill
standa undir nafni. Það verður að
hækka lífeyrinn strax um 23.000 kr. á
mánuði og síðan á hann að fylgja
launum á almennum vinnumarkaði.
Þessi leiðrétting þolir enga bið. Það
verður að leiðrétta lífeyrinn strax.
AGS: Góður árangur ríkisstjórnarinnar
Eftir Björgvin
Guðmundsson »Ég er nokkuð sáttur
við skattastefnu rík-
isstjórnarinnar. En ég
er ósáttur við það
hvernig niðurskurði
hinn ýmsu ráðuneyta
hefur verið háttað.
Björgvin Guðmundsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Evrópusambandið
var stofnað upp úr
seinni heimsstyrjöld til
að minnka líkur á styrj-
aldarátökum og leitast
við að bæta hag íbú-
anna á svæðinu með ná-
inni efnahagssamvinnu.
Það lítur út fyrir að
þetta hafi tekist bæri-
lega. Það virðist alla
vega vera skoðun Evr-
ópubúa því nú standa aðeins fáein ríki
í Evrópu utan bandalagsins og ekkert
sem gengur inn gengur út aftur.
En er gagnsemi ESB jafn mikil
fyrir Íslendinga og Evrópubúa á
meginlandinu? Af hverju gæti verið
að það hentaði ekki Íslendingum?
Ástæður gætu verið að við erum á
eyju í miðju Atlantshafi, ráðum yfir
tiltölulega stórum fiskimiðum og
verulegum orkuauðlindum og af því
að við erum lítil þjóð þá gæti það dug-
að okkur.
Einnig af því að lýðveldið okkar er
ungt og sjálfstæði tiltölulega nýfeng-
ið þá hafa margir sterka þjóðernisvit-
und. Tilhugsunin um yfirþjóðlegt
vald er óþægileg.
En það eru fleiri hliðar á málinu.
Þó að við á Íslandi eigum góðar auð-
lindir og höfum „sjálfstæði“ þá höfum
við það langt í frá jafn gott og við
gætum og ættum að hafa það. Helstu
ástæður eru þessar:
1. Við erum fámenn þjóð í til-
tölulega stóru landi, nokkuð fjarri
meginlandi. Kostnaðurinn við sam-
göngur, sameiginlega þjónustu, að-
föng o.fl. er það hár á einingu að það
étur upp talsvert af annars ágætum
þjóðartekjum á mann. Við þurfum
fleiri vinnustundir á
mann en nágrannarnir
til að ná sömu þjóð-
artekjum á mann.
2. Landbúnaður okk-
ar er óhagkvæmur
vegna hnattstöðu. Þeg-
ar til lengdar er litið þá
væri heppilegt að
hleypa inn ódýrum mat-
vælum og að hluti
þeirra sem hafa atvinnu
af landbúnaði og mat-
vælavinnslu hyrfi til
gagnlegri starfa, m.a.
ferðaþjónustu.
3. Sjávarauðlindin er góð en hún er
nokkurn veginn fullnýtt og getur ekki
vaxið með auknum mannfjölda.
4. Orkuauðlindir okkar eru góðar
en því eru takmörk sett hversu mikið
hægt er að nýta vegna umhverf-
issjónarmiða o.fl.
5. Gjaldmiðillinn okkar, krónan, er
mjög lélegt verkfæri. Óstöðugt verð-
lag og hár fjármagnskostnaður gerir
okkur erfitt fyrir. Við vinnum flest
mörg ár bara fyrir vöxum af lánum,
miklu meira en vera þyrfti með góð-
um gjaldmiðli og traustum bönkum.
En hvað er þá til ráða? Ef við ætlum
að búa okkur jafngóð lífskjör og ná-
grannaþjóðirnar sem eru innan ESB
þurfum við að koma ár okkar betur
fyrir borð. Úrræðin hljóta eðli málsins
samkvæmt að snúast um tvennt:
Að auka tekjur okkar, þannig að
meira verði til skiptanna.
Að lækka tilkostnað, þannig að
meira fáist fyrir sama fé.
Hvernig gætum við gert þetta?
Hér eru nokkrar leiðir: Við ráðum
ekki við þá óhagkvæmni sem óhjá-
kvæmilega er vegna fámennis, dreif-
býlis og langra flutningsleiða. Við
verðum því að bæta okkur það upp
með öðrum hætti og það er vel hægt
sbr. eftirfarandi.
Lækka verð á matvælum. Opna
verður betur innflutning því fram-
leiðslukostnaður á landbúnaðar-
afurðum hér á landi er oft hærri en á
samsvarandi innflutningi.
Lækka fjármagnskostnað. Til þess
þarf hagkvæmari og traustari gjald-
miðil og góða hagkvæma banka-
starfsemi. Þetta næst frekar ef við
fáum evruna og komum á nægum
stöðugleika til að erlendum bönkum
þyki áhættunnar virði að starfa hér.
Fjölga öflugum iðn- og hátæknifyr-
irtækjum eins og Össuri, CCP, Ac-
tavis, gagnaverum o.fl. Til þess þarf
starfsumhverfi þeirra að vera svo
hagfellt og stöðugt að það vegi upp
ókosti fjarlægðar og fámennisins.
Fjölga ferðamönnum. Til þess þarf
matur, drykkir o.fl. að verða ódýrara
sbr. hér á undan.
Þá þarf fleiri og betri afþrey-
ingatækifæri. Það mun gerst smám
saman eftir því sem fleiri snúa sér að
ferðaþjónustu. Það fer því saman að
þegar dregur úr landbúnaði og störf-
um við matvælavinnslu fækkar þá
munu margir geta snúið sér að ferða-
þjónustu.
Getum við þetta allt án ESB-
aðildar? Nei, það held ég ekki. Það
verður a.m.k. mun viðráðanlegra með
aðild.
En hverju myndum við tapa við að-
ild? Tvennt kemur helst upp, spurn-
ingin um sjálfstæði og fiskimið. Sjálf-
stæði er afstætt hugtak. Algert
sjálfstæði þjóðar er ekki til. Hver
þjóð er annarri háð, ekki síst litlar
þjóðir. Við myndum því alls ekki tapa
sjálfstæði við inngöngu í ESB. Innan
ESB myndum við ráða meiru um
okkar mál en nú í EES. Það þarf
hvort ef er samstarf við aðra og þekk-
ingin kemur mikið til frá stórþjóð-
unum. Ef okkur auðnast að ná góðum
samningum t.d. varðandi sjávarauð-
lindina og göngum svo í ESB þá
fylgir því bættur efnahagur og stöð-
ugleiki fyrir Ísland.
Umsóknin um ESB aðild er því
mjög mikilvæg og við þurfum að
standa vel við bakið á samninga-
nefndinni.
ESB og lífskjör á Íslandi
Eftir Guðjón
Sigurbjartsson » Íslendingar munu
hafa það mun betra
með fullri ESB-aðild.
Það þarf að styðja vel
við bakið á samninga-
nefndinni.
Guðjón Sigurbjartsson
Höfundur er atvinnurekandi, við-
skiptafræðingur og bóndasonur.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið birtir alla út-
gáfudaga aðsendar umræðugrein-
ar frá lesendum. Blaðið áskilur
sér rétt til að hafna greinum,
stytta texta í samráði við höfunda
og ákveða hvort grein birtist í um-
ræðunni, í bréfum til blaðsins eða
á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki
greinar, sem eru skrifaðar fyrst
og fremst til að kynna starfsemi
einstakra stofnana, fyrirtækja
eða samtaka eða til að kynna við-
burði, svo sem fundi og ráð-
stefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Formið er undir liðnum
„Senda inn efni“ ofarlega á for-
síðu mbl.is. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/senda-
grein
Ekki er lengur tekið við grein-
um sem sendar eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er
notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið, en næst þegar
kerfið er notað er nóg að slá inn
netfang og lykilorð og er þá not-
andasvæðið virkt.
Nánari upplýsingar gefur
starfsfólk greinadeildar.