Morgunblaðið - 23.08.2010, Qupperneq 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010
Sudoku
Frumstig
5 3
3 1 4
4 9
1 8 6 5 2
2 9 4 5
5 9 8
6 2 5 3
9 2 8 1
6 4
7 1 2
5 3 7 1
1 9 2 5
9 7 6
2 3 4
4 5 7
1
2 3
5
7 5 2 8
2 6 4 1 7
8 4
2 6
4 1 6
1 9 2 5
4 2
7 9 1
2 3 4 1 9 5 6 8 7
1 5 7 8 6 3 9 4 2
6 8 9 4 7 2 1 3 5
5 6 3 9 2 8 7 1 4
4 9 8 7 5 1 3 2 6
7 2 1 6 3 4 8 5 9
3 4 6 2 8 9 5 7 1
8 7 2 5 1 6 4 9 3
9 1 5 3 4 7 2 6 8
5 9 7 8 1 6 4 2 3
4 6 3 5 7 2 1 8 9
8 1 2 3 4 9 5 6 7
7 8 4 6 9 5 3 1 2
9 3 5 1 2 4 6 7 8
1 2 6 7 8 3 9 5 4
2 5 9 4 6 7 8 3 1
6 4 8 2 3 1 7 9 5
3 7 1 9 5 8 2 4 6
3 1 7 6 4 9 2 5 8
2 6 8 7 5 3 1 9 4
5 4 9 2 1 8 3 7 6
6 7 5 9 2 1 8 4 3
1 3 4 8 6 5 9 2 7
8 9 2 3 7 4 5 6 1
7 5 6 1 3 2 4 8 9
9 2 1 4 8 7 6 3 5
4 8 3 5 9 6 7 1 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 23. ágúst,
235. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Og ég veit að boðorð
hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það
tala ég því eins og faðirinn hefur sagt
mér. (Jh. 12, 50.)
Víkverji er löngu hættur að fara íbæinn á Menningarnótt. Reynd-
ar fór hann síðast að skemmta sér að
að kvöldi menningarnætur árið 1997.
Það var verulega eftirminnilegt nótt
og átti ekkert skylt við menningu.
x x x
Eftir að hafa um daginn látið fólkmeð barnakerrur nær fella sig
og ýta niður Skólavöruðstíg og
Laugaveg ákvað Víkverji að slást í för
með vinum sem ætluðu að fá sér öl á
krá einni. En næturlífið er ekki eðli-
legt í kjölfar menningarnætur. Fólk
er æst og pirrað og leiðinlegt. Þetta
var í það minnsta reynsla Víkverja. Á
kránni voru alltof margir. Endalaus
bið var á barnum eftir ölkrús og þeg-
ar Víkverji loks fékk sína í hendur tók
náunginn sem stóð við hliðina á hon-
um við barinn krúsina og grýtti henni
í vegginn. Krúsin brotnaði og bjórinn
lak niður á gólf. Maðurinn var leiddur
út en Víkverji fékk ekki skaðabætur
en var þess í stað ásakaður um að
þekkja krúsarkastarann.
Þá ákvað Víkverji að betra væri að
halda á vinsælan dansstað. Og Vík-
verji og félagarnir stungu sér út til
þess eins að komast að því að farið
var að rigna. Við dansstaðinn hafði
myndast löng biðröð en Víkverji er
þrjóskur og vildi bíða. Er hann stóð í
troðinni röðinni snýr sá sem á undan
fór sér að honum og spyr: „Ertu að
stelast undir regnhlífina mína?“ Vík-
verji hefði ekki komist hjá því að
standa undir hlífinni nema með því að
fara út úr röðinni. „Neiiii,“ sagði Vík-
verji mjóróma. „Komdu þér undan
regnhlífinni minni!“ Víkverji tók
náungann á orðinu og dreif sig út úr
röðinni og ákvað að drífa sig heim.
x x x
En þú drífur þig ekkert heim áMenningarnótt. Engan leigubíl
var að fá og svo fór að Víkverji beið í
yfir klukkutíma eftir leigubíl. Bíl-
stjórinn vildi svo ekki fá niðurrigndan
Víkverja inn í bílinn. Nú er svo langt
um liðið að Víkverji man ekki hvernig
hann komst að lokum heim. Víkverji
man þó að hafa strengt þess heit að
fara aldrei í bæinn að kvöldi Menn-
ingarnætur og hefur staðið við það.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 frostleysa, 4
þrautseigja, 7 flýtinn, 8 dá-
in, 9 máttur, 11 slæmt, 13
eldstæði, 14 kuldaskeið, 15
skarkali, 17 féll, 20 manns-
nafns, 22 setur, 23 álygar, 24
kögurs, 25 verða súr.
Lóðrétt | 1 búlki, 2 bæn, 3
kvenmannsnafn, 4 spýta, 5
skammt, 6 mannsnafn,10
djörf, 12 kvendýr, 13 brodd,
15 helmingur, 16 úldna, 18
hryggð, 19 lítilfjörleg kind,
20 atlaga, 21 hagnaðar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 heyskapur, 8 hugur, 9 detta, 10 ger, 11 reyfi, 13 árnir,
15 fress, 18 skref, 21 kyn, 22 dugga, 23 armur, 24 hirðulaus.
Lóðrétt: 2 Engey, 3 syrgi, 4 andrá, 5 urtan, 8 óhýr, 7 barr, 12
fis, 14 rok, 15 fædd, 18 eigri, 17 skarð, 18 snarl, 19 romsu, 20
forn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 d6 2. d4 c5 3. d5 Rf6 4. Rc3 g6 5.
Be2 Bg7 6. Rf3 O-O 7. O-O Ra6 8. Bd2
Rc7 9. Dc1 He8 10. Bh6 Bh8 11. Bg5 b5
12. e5 b4 13. exf6 exf6 14. Rb5 Hxe2 15.
Rxc7 Dxc7 16. Be3 Ba6 17. Hd1 Dd7
18. a3 b3 19. cxb3 He8 20. b4
Staðan kom upp á kanadíska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í To-
ronto. Kanadíski alþjóðlegi meistarinn
Nikolay Noritsyn (2401) hafði svart
gegn landa sínum Brendan Fan. 20…
H8xe3! 21. fxe3 Dg4 22. Re1 Dh4! 23.
Rd3 Bxd3 24. Hf1 Be4 25. Hf4 Hxg2+
og hvítur gafst upp. Meistaramót Tafl-
félagsins Hellis hefst í kvöld kl. 19.30
en nánari upplýsingar um mótið er að
finna á heimasíðu félagsins, www.hell-
ir.blog.is.
Svartur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Taugatrekkjandi yfirfærslur.
Norður
♠D1098654
♥3
♦972
♣G9
Vestur Austur
♠2 ♠3
♥KD1082 ♥9654
♦Á105 ♦DG8
♣K742 ♣D10853
Suður
♠ÁKG7
♥ÁG7
♦K643
♣Á6
Suður spilar 4♠.
Keppnisspilarar nota margir hverjir
tvöfalt sett af yfirfærslum í hálitina.
Það hefur ýmsa kerfislega kosti, en
tekur á taugarnar. Í spili dagsins opn-
aði suður á 2G og norður stökk í 4♥ –
Texas yfirfærsla í spaða. Suður gretti
sig og leit til lofts. „Hvað var þetta nú
aftur?“ Eftir dúk og disk tókst suðri að
rifja upp að þetta væri einmitt yf-
irfærsla í spaða og sagði brosandi 4♠.
En norðri var ekki skemmt.
Suður spilaði eins og engill. Hann
fékk út ♥K og dúkkaði kónginn! Síðar
meir henti hann laufi í ♥Á, trompaði út
laufið og endaspilaði vestur með því að
spila ♥G og láta tígul í borði.
Glæsilega spilað, en suður ætti samt
ekki að búast við hrósi frá makker sín-
um. Ekki í þetta sinn.
23. ágúst 1946
Gunnar Huseby „vann það ein-
stæða afrek að verða Evr-
ópumeistari í kúluvarpi með
allmiklum yfirburðum,“ eins
og Morgunblaðið orðaði það.
Keppt var í Osló og Gunnar
kastaði 15,56 metra. Hann var
fyrsti Evrópumeistari Íslend-
inga.
23. ágúst 1954
Steinkista Páls biskups Jóns-
sonar, sem lést árið 1211,
fannst við uppgröft í Skálholti.
Þetta var talinn einn merkasti
fornleifafundur hér á landi.
23. ágúst 1959
Stytta af Jóni biskupi Arasyni
var afhjúpuð á Munkaþverá
þar sem hann lærði til prests,
en Jón var fæddur í Eyjafirði
árið 1484 og lést 1550.
23. ágúst 1967
Íslendingar töpuðu fyrir Dön-
um í landsleik í knattspyrnu í
Kaupmannahöfn með fjórtán
mörkum gegn tveimur. Mörk
Íslendinga gerðu Helgi Núma-
son og Hermann Gunnarsson.
„Ég gerði það sem ég gat, en
skot Dananna voru frábær,“
sagði markvörðurinn í samtali
við Morgunblaðið.
23. ágúst 1995
Vatnslistaverkið Fyssa í
Grasagarðinum í Laugardal
var afhent, en það var gjöf frá
Vatnsveitu Reykjavíkur í til-
efni hálfrar aldar afmælis lýð-
veldisins. Verkið er eftir lista-
konuna Rúrí, Þuríði
Árnadóttur Fannberg.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
„Ég mæti bara til minnar vinnu í dag og tek því
svo rólega þegar heim kemur,“ segir Rafn Þór
Rafnsson, laganemi við Háskóla Íslands, sem verð-
ur 25 ára í dag, en hann starfar jafnframt á Herra-
lagernum við Suðurlandsbraut 45. Rafn stendur
ekki í neinum veisluhöldum í kvöld þar sem hann
efndi til fagnaðar heima hjá sér á Menningarnótt á
laugardaginn, fyrir ættingja og vini, og síðan lá
leiðin í bæinn. Þar hélt afmælisgleðin áfram og fór
vel fram innan um þúsundir gesta Menning-
arnætur. Rafn segist ætla að stunda laganámið
meðfram vinnu í herrafataversluninni, þar sem
hann hefur starfað í þrjú ár. Hann hóf nám í lögfræði við Háskólann í
Reykjavík fyrir ári síðan, en ákvað að skipta og fara yfir í HÍ hinum
megin við Vatnsmýrina. Rafn er stúdent frá MH, laus og liðugur og
ekki komið að því enn að stofna fjölskyldu, hvað sem síðar gerist.
Hann segist sökum vinnu og náms lítið hafa getað sinnt helstu áhuga-
málum sínum seinni árin, sem eru boltaíþróttir, golf og fleira. Spurð-
ur hvort hann sé Reykvíkingur í húð og hár segir Rafn svo ekki vera.
Móðir hans er hálfur Rúmeni og hálfur Ungverji og faðirinn er Íslend-
ingur með danskt blóð í æðum. bjb@mbl.is
Rafn Þór Rafnsson laganemi 25 ára
Veislan á Menningarnótt
Nýirborgarar
London Esja El-
ísabet fæddist
27. apríl kl.
0.07. Hún vó
3.560 g og var
56 cm löng. For-
eldrar hennar
eru Gunnhildur
Björk Bárð-
ardóttir og Al-
exander James
Dunn.
Flóðogfjara
23. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.47 3,5 11.54 0,7 18.05 3,8 5.44 21.18
Ísafjörður 1.55 0,4 7.44 1,8 13.54 0,5 20.00 2,1 5.38 21.33
Siglufjörður 4.03 0,3 10.26 1,1 15.59 0,4 22.15 1,3 5.21 21.17
Djúpivogur 2.51 1,8 9.00 0,4 15.23 2,0 21.28 0,6 5.11 20.50
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur unnið vel að undanförnu og
getur því um frjálst höfuð strokið. Komandi
ár færir rómantík, daður, frí og fleiri
skemmtilega hluti til þín frá og með deginum
í dag.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er bráðnauðsynlegt að lesa vel allt
smáa letrið á þeim skjölum sem þú skrifar
undir. Hafðu ekki áhyggjur af hlutunum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ímyndunaraflið er í góðum gír
þessa dagana og þú getur ekki skilið hvernig
einhver getur ekki átt sér draum. Breytingar
á nánum samböndum neyða þig til að aðlag-
ast breyttum aðstæðum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert full/ur orku. Sanngirni er
sanngirni, burtséð frá tilefninu. Haltu þínu
striki í ástamálunum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Fólk hefur gaman af því að annast þig,
hvort sem hjálparleysi þitt er uppgerð eða
veruleiki. Spáðu meira í mataræðið. Freisting
liggur í loftinu.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert það sem þú borðar. Nú eru svo
margir kostir í boði að það er óráð að rasa
um ráð fram.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú þarft að taka á honum stóra þínum í
samskiptum við aðra í dag. Þú rembist við að
líkjast einhverjum sem er gjörólík/ur þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þar sem þú ert alltaf svo nær-
gætin/n, gæti það valdið vissum aðilum sárs-
auka ef þú ætlar að vera hispurslaus. Nýttu
tímann þér til ánægju.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þér eru slegnir svo margir gull-
hamrar að þú finnur þig knúna/inn til að
hrósa þér. Glaðværar og tillitssamar óskir eru
strax uppfylltar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú bæði elskar að taka áskorunum
og að vinna auðveldlega – og ert því í klípu.
Margar hendur vinna létt verk.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Gættu þess að gaumgæfa smáat-
riðin ekki síður en þau stærri. Líttu í spegil og
segðu sjálfum/sjálfri þér að þú sért frábær.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Athyglin sem þú veitir öðrum er gjöf.
Leitaðu ráða þér eldri og reyndari manna og
þá áttu auðveldara með að taka af skarið.
Stjörnuspá
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is