Morgunblaðið - 23.08.2010, Page 31
Menning 31FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2010
Vefsíða vikunnar er
www.goodreads.com.
Þar má m.a. finna umfjallanir
um þúsundir bóka 35
»
Pokadýr er nýtt og spennandi tríó sem kemur fram á
Jazzhátíð Reykjavíkur í kvöld. Tríóið er skipað þeim Magn-
úsi Trygvasyni Elíassen á trommur, Elsu Bergman á bassa
og Önju Lauvdal á píanó, en tríóið varð til í vor við djass-
deild NTNU í Þrándheimi í Noregi, þar sem þau Magnús,
Elsa og Anja stunduðu nám.
Tríóið mun mestmegnis spila frumsamið efni á tónleik-
unum í kvöld en Magnús segir að ef meðlimir þess verði í
stuði gætu eitt til tvö tökulög fengið að fljóta með. Tríóið
leggur áherslu á sterkar melódíur og er undir áhrifum frá
Charles Mingus, Albert Ayler og Paul Bley, sem og þjóð-
lagatónlist frá hinum ýmsu hornum heimsins. Magnús segir
að tríóið vinni nú í því að bóka fleiri tónleika í haust eða
snemma á næsta ári, bæði hér á landi og erlendis. Það sé þó
snúið því bæði Elsa og Anja eru búsettar í Noregi. Upp-
haflega stóð til að tríóið myndi taka upp nokkur lög hér á
landi en því hefur verið slegið á frest. „Vonandi getum við
tekið eitthvað uppseinna í haust,“ segir Magnús.
Tríóið leggur það í vana sinn að nefna lagasmíðar sínar
eftir dýrum í útrýmingarhættu á borð við túnfisk, japanskar
salamöndrur og tígrisdýr. Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 22
í Risinu við Tryggvagötu og er aðgangseyrir 1.000 krónur.
Pokadýr í Risinu í kvöld
Meðlimir tríósins koma frá Íslandi, Noregi og Svíþjóð
Lögin heita eftir dýrum í útrýmingarhættu
Morgunblaðið/Matthías Árni Ingimarsson
Pokadýr Magnús Trygvason Elíassen spilar með nýju tríói í kvöld.
Söngkonan
Kristjana Stef-
ánsdóttir heldur
djasssöngsmiðju
í samstarfi við
Jazzhátíð
Reykjavíkur í
Menningar-
miðstöðinni
Gerðubergi á
miðvikudag kl.
10:00 til 16:00.
Í smiðjunni fer Kristjana yfir
helstu stílbrigði í sungnum djassi,
s.s. „ballad“, „medium swing“ og
„uptempo swing“ og einnig verður
farið í spuna og blús.
Tíu nemendur komast að en nám-
skeiðið er opið til áheyrnar öllum
þeim sem hafa áhuga á djasstónlist.
Meðleikari Kristjönu og með-
kennari er Agnar Már Magnússon,
píanóleikari.
Þau Kristjana og Agnar Már eru
bæði starfandi kennarar við Tón-
listarskóla FÍH. Nemendur þurfa
að hafa stundað tónlistar- og/eða
söngnám. Þá þurfa þeir að und-
irbúa a.m.k. tvö lög í mismunandi
stíl og hafa með sér nótur af þeim í
sinni tóntegund.
Djass-
söng-
smiðja
Kristjana og Agnar
Már kenna djasssöng
Kristjana
Stefánsdóttir
Eva Mjöll Ing-
ólfsdóttir leikur
á næstu Sum-
artónleikum
Listasafns Sig-
urjóns Ólafs-
sonar á Laug-
arnesi, sem
haldnir verða
annað kvöld kl.
20.30. Eva Mjöll
heldur sjaldan
tónleika hér á landi, því hún hefur
lengst af búið og starfað erlendis,
nú í New York. Hún hyggst flytja
tvö fiðlutónverk af ólíkum uppruna;
annars vegar eitt af þekktustu
verkum J.S. Bach sem hann skrifaði
fyrir fiðlu, d-moll-partítuna (nr. II
BWV 1004), og hins vegar tvær
tangóæfingar eftir argentínska
tónskáldið Astor Piazzolla.
Eva Mjöll Ingólfsdóttir hóf fiðlu-
nám sjö ára gömul og hefur stund-
að nám víða um heim. Hún hefur
einnig lært tónsmíðar, hljóm-
sveitar-ritun og stjórn.
Eva Mjöll
á Sumartón-
leikum
Eva Mjöll
Ingólfsdóttir
Sýningin Frumkraftar jarðar –
funandi ljós verður opnuð í dag
kl. 17 í Gøgsigs Pakhus í Sindal
á Jótlandi og þar má sjá lista-
verk fimm íslenskra og
danskra listamanna. Sýningin
verður sett upp í gömlu pakk-
húsi sem gert hefur verið að
menningarhúsi. Til sýnis verða
þæfðar ullarvörur Kömmu
Nielsdóttur Dalsgaard og ker-
amik eftir Ullu Holm Nielsen
og Önnu Jóhannsdóttur. Sú síðarnefnda sýnir
einnig myndir og slíkt hið sama gera Gitte Lis
Thomsen og Rúna Kömmudóttir Tetzschner.
Hinn 27. ágúst er sýningin opin frá kl. 12 til 21.
Hina dagana er opið frá 12 til 17.
Opnun
Íslensk-dönsk
sýning á Jótlandi
Málverk Önnu
Jóhannsdóttur
Bókaútgáfan Salka endur-
útgefur bókina Borða, biðja,
elska (Eat, Pray, Love) eftir
Elizabeth Gilbert í tilefni þess
að bíómynd með Juliu Roberts
í aðalhlutverki verður frum-
sýnd í október. Bókin hefur
selst í yfir 10 milljón eintökum
um allan heim.
Borða, biðja, elska er saga
um konu sem skilur við mann-
inn sinn og heldur af stað út í
heim til að finna sjálfa sig. Bókin hefur vakið
mikla athygli og situr í fyrsta sæti metsölulista
New York Times eftir fjögur ár eða samtals 183
vikur. Í dag er hún í öðru sæti á lista yfir mest
seldu bækur hér á landi.
Bækur
Tíu milljón eintök
seld í heiminum
Borða, biðja, elska
Sviðsverkið Soft Target eftir
Margréti Söru Guðjónsdóttur
verður frumsýnt á Reykavík
Dance Festival í Reykjavík í
Hafnarhúsinu hinn 1. sept-
ember nk. kl. 20. Verkið verður
einnig sýnt 2. september kl. 18.
Soft Target verður svo sýnt í
Berlín dagana 1.-3. október í
Ballhaus Ost-leikhúsinu.
Í tilkynningu segir að Mar-
grét, dansarinn Johanna
Chemnitz og textasmiðurinn Gordon Spragg tak-
ist á við hugmyndina um „sjálfið“ í verkinu og
brjóti niður það sem skilur viðfangsefnið frá
áhorfandanum. Tónlistin í Soft Target er eftir
Peter Rehberg.
Sviðslist
Soft Target frum-
sýnt í september
Margrét Sara
Guðjónsdóttir
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
„Mér finnst svo skelfilegt að sjá öll þau ljótu hús
sem eru í Reykjavík og til að fá útrás fyrir gremj-
una fór ég að mála myndir af borginni eins og ég vil
hafa hana,“ segir Þrándur Þórarinsson sem sýnir
olíumálverk í fyrrum húsnæði Skífunnar á Lauga-
vegi 26. Þetta er fjórða einkasýning Þrándar og ber
heitið Duttlungar. Hún stendur til 29. ágúst.
Í verkunum varpar Þrándur meðal annars ljósi á
Ingólfsstræti, Lækjargötu, Hljómskálagarðinn,
Hverfisgötu og Pósthússtræti, auk þess sem hann
verkið sýnir Íslendinga gamals tíma á útifundi á
Austurvelli. „Það fór eins mikil vinna í það verk og
öll hin samanlagt,“ segir Þrándur. „Myndin tengist
búsáhaldabyltingunni, en ég vildi ekki gera upp-
stækkaða ljósmynd af þeim atburðum, heldur setti
þá í tímaleysi. Þannig hefur myndin víðari skír-
skotun.“
Þrándur hefur verið að teikna og mála síðan
hann var barn. Hann lærði meðal annars hjá hinum
þekkta listamanni Odd Nerdrum. „Það var himna-
sending fyrir mig að læra hjá honum. Nerdrum er
afar sérstakur maður, á skemmtilegan hátt,“ segir
hann.
hefur málað útifund á Austurvelli og garðinn við
listasafn Einars Jónssonar. Einnig er á sýningunni
portret sería sem Þrándur gerði sem forvinnu að
útifundinum á Austurvelli og einnig hefur Þrándur
málað sjálfan sig í gervi amtmanns.
Segja má að gamall tími og fagurfræði séu í fyr-
irrúmi á myndunum. „Þetta er það sem heillar mig
mest, ég er síður fyrir nútíma arkitektúr,“ segir
Þrándur.„Mér finnst allt í lagi að fólk segi að mál-
verkin séu gamaldags, ég vildi síður að það segði
þau hefðbundin því það er engin hefð fyrir svona
málverkum hér á landi.“
Nokkur málverkanna eru mjög stór, en stærsta
Duttlungar Þrándar
Þrándur Þórarinsson sýnir olíumálverk af Reykjavík eins og hann vill sjá hana
Búsáhaldabyltingin sett í tímaleysi Var nemandi Odd Nerdrum
Morgunblaðið/Ernir
Duttlungafullur Þrándur Þórarinsson fyrir framan stærsta málverkið á sýningunni sem er af útifundi á Austurvelli. „Myndin tengist búsáhaldabyltingunni
en ég vildi ekki gera uppstækkaða ljósmynd af þeim atburðum heldur setti þá í tímaleysi.“