Morgunblaðið - 23.08.2010, Qupperneq 40
MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 235. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Handtekin fyrir ósiðlegan dans
2. „Nú þarf Geir Waage að hætta“
3. Grindvíkingar unnu toppliðið
4. „Vissi að það kæmi eitthvað“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fjölmenni var í miðborg Reykjavík-
ur á laugardaginn þar sem boðið var
upp á fjölbreytta skemmtun í sann-
kallaðri menningarveislu eins og sjá
má á myndum ljósmyndara Morg-
unblaðsins. »36
Morgunblaðið/Eggert
Menningarveisla á
Menningarnótt
Hljómsveitin Feldberg mun spila á
tónleikum í Scandinavian House í
New York annan desember næstkom-
andi. Sveitina stofnuðu þau Einar
Tönsberg og Rósa Birgitta Ísfeld
snemma árs
2009 og gaf Cod
Music út plötuna
Don’t be a Stran-
ger sama ár. En
þar má m.a.
finna stór-
smellinn
Dreamin’.
Feldberg í Scand-
inavian House
Tríóið Pokadýr
kemur fram á
Jazzhátíð Reykja-
víkur í kvöld. Um
fjölþjóðlegt tríó er
að ræða, en með-
limir þess eru frá
Íslandi, Noregi og
Svíþjóð. Magnús
Trygvason Elías-
sen trommuleikari
segir að í kvöld verði spilað frum-
samið efni og kannski eitt eða tvö
tökulög. »31
Pokadýr á Jazzhátíð
Reykjavíkur
Á þriðjudag og miðvikudag Norðaustan 3-8 m/s og bjart með köflum, en skúrir NA-til
og einnig syðst á landinu. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast SV-lands.
Á fimmtudag Hæg norðlæg eða breytileg átt og víða bjart veður, en stöku skúrir aust-
ast. Hiti svipaður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-13 og rigning á NA- og A-landi, en léttir til SV-lands.
Hægari vindur og úrkomuminna síðdegis. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast S-til.
VEÐUR
Tveir leikir fóru fram í
Pepsídeild karla í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Topplið
ÍBV tapaði fyrir Grindavík
0:1 í miklum rokleik í Vest-
mannaeyjum. Gott gengi
Grindvíkinga eftir að Ólafur
Örn Bjarnason sneri heim
heldur því áfram. Ríkjandi
meistarar FH unnu Fylki 4:2
eftir að hafa lent 0:2 undir í
Kaplakrika. FH er í toppbar-
áttunni en Fylkir nálgast
botnliðin. »2-3
Eyjamenn töpuðu
á heimavelli
Björn Margeirsson, Íslandsmeist-
arinn í maraþonhlaupi karla, ætlar
ekki að leggja áherslu á greinina fyrr
en eftir nokkur ár og stefnir að frek-
ari árangri í 1.500 m hlaupi fyrst.
Hann varð fyrstur Íslendinga til að
vinna Reykjavíkurmaraþonið frá
árinu 1984. »8
Fer í maraþonið á fullu
eftir nokkur ár
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, lands-
liðsþjálfari kvenna í knattspyrnu,
segist í samtali við Morgunblaðið í
dag hafa áhuga á því að halda áfram
að stýra liðinu. Samningur Sigurðar
rennur út í haust en hann hefur þjálf-
að liðið í fjögur ár með frábærum ár-
angri. Ítarlega er fjallað um lands-
leikinn gegn Frökkum í blaðinu í dag
en Frakkar sigruðu 1:0. »4-5
Sigurður Ragnar segist
tilbúinn að halda áfram
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Í DAG
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Ferðamönnum býðst nú að fara í
ferð á Hvítá á sérbúnum hraðbát,
sk. árþotu (riverjet) sem kemst
upp í 75 kílómetra hraða á klukku-
stund. Tveir Norðmenn komu í
sumar á fót hraðbátafyrirtæki við
ána, hinu fyrsta sinnar tegundar í
Evrópu.
Að sögn Ingrid Tho, markaðs-
stjóra Iceland Riverjet, fengu hún
og sambýlismaður hennar Cato
Bergnord augastað á Hvítá þegar
þau komu hingað sem ferðamenn
og fóru Gullna hringinn svokall-
aða. „Þá sáum við að þetta væri
fullkominn staður til að reka
svona báta,“ segir hún.
Bergnord hefur áður rekið
flúðasiglingafyrirtæki í Noregi en
Tho segir vélknúin farartæki ekki
leyfileg á ám í Noregi og því hafi
þau þurft að leita út fyrir land-
steinana með fyrirtæki sitt.
Farþegar séu
minnst tíu ára
Árþoturnar taka ellefu farþega
en stjórn bátanna er í höndum
starfsmanna fyrirtækisins. Hver
ferð tekur alls um tvo tíma en
þar af eru 50 mínútur á ánni, að
sögn Tho. „Við gerum engar sér-
stakar kröfur til líkamlegs styrks
þeirra sem vilja koma í slíka ferð,
aðrar en að þeir séu orðnir tíu
ára. Við siglum bátnum og far-
þegarnir detta ekki ána eða
henda sér niður af klettum. Þetta
er ekki öfgakennt á nokkurn hátt
og ekki hættulegt. Fólk á bara að
geta sest í bátinn, slappað af og
notið útsýnisins og skemmtunar-
innar.“
Á 75 kílómetra hraða á Hvítá
Kraftur Það er mikið fjör í árþotuferðunum en bátarnir geta tekið allt að ellefu farþega sem þurfa lítið annað að gera en að halda sér fast.
Tveir Norðmenn reka nýja hraðbátaþjónustu sem hóf starfsemi í sumar
Í fyrsta sinn sem boðið er upp á ferðir í sérhönnuðum árþotum í Evrópu
Þótt árþoturnar hafi ekki sést áður í Evrópu
eru þær vel þekktar á Nýja-Sjálandi þar sem
þær eru upprunnar. „Þær eru sérhannaðar til
að sigla á grunnum ám og geta farið upp í 75
kílómetra hraða á klukkustund,“ útskýrir Tho
en bátana drífur 420 hestafla vél. „Þetta eru
eins konar fjórhjólatrukkar bátanna.“
Að hennar sögn þurfa farþegar að vera minnst 130 sentimetrar á hæð
til að ná í handföngin fyrir framan sig svo þeir geti haldið sér fast og því
sé gerð krafa um 10 ára lágmarksaldur þeirra. „En þetta er ekki hættu-
legra en t.a.m. flúðasiglingar.“ Fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins að
Siglingastofnun hafi samþykkt öryggisáætlun þess.
Þau Bergnord og Tho hyggjast halda rekstrinum úti allt árið. „Við ger-
um ráð fyrir færri siglingadögum yfir vetrartímann en vonumst til að
geta haldið þessu úti eins oft og lengi og mögulegt er.“
Eins konar fjórhjólatrukkar
SÉRHANNAÐIR FYRIR GRUNNAR ÁR