Morgunblaðið - 02.09.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Alls fengu nærri 700 fjölskyldur út-
hlutað matargjöfum hjá Fjölskyldu-
hjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd
í gær. Þá var opnað hjá Mæðra-
styrksnefnd eftir sumarfrí en hjá
Fjölskylduhjálpinni var opnað aftur
hinn 18. ágúst sl.
„Við úthlutuðum til um 360 fjöl-
skyldna og það vekur athygli að þar
voru útlendingar í meirihluta eða
um 60% þeirra. Jafnt konur sem
karlar og bæði barnafólk og einstak-
lingar,“ segir Ásgerður Jóna Flosa-
dóttir, framkvæmdastjóri Fjöl-
skylduhjálparinnar.
„Liðlega 300 manns fengu úthlut-
að matargjöfum sem er ósköp svipað
og á venjulegum miðvikudegi,“ segir
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, for-
maður Mæðrastyrksnefndar. Svo
fari að fjölga þegar taki að líða á
mánuðinn þar sem tekjurnar endist
oft ekki út mánuðinn.
„Kjör útlendinga lakari“
Ásgerður segir að svo virðist sem
kjör útlendinganna séu eitthvað lak-
ari en Íslendinganna sem hafi verið
að fá bæturnar sínar. Það sýni sig að
Íslendingar komi ekki nema þeir
þurfi virkilega á því að halda sem er
þá frekar seinni hluta mánaðarins.
Ragnhildur tekur undir með Ás-
gerði og segir einnig að fleiri útlend-
ingar hafi leitað aðstoðar en oft áð-
ur. Þá hafi stærri og yngri
fjölskyldur bæst í þann hóp sem leiti
aðstoðar.
Báðar búast þær við fleira fólki í
vetur. „Í fyrra voru þeir sem þáðu
aðstoð farnir að nálgast sjötta
hundraðið í lok mánaðar og stundum
jafnvel yfir það,“ segir Ragnhildur.
Þá segist Ásgerður kvíða vetrin-
um vegna bágborins húsnæðis. Það
sé ekki boðlegt að bjóða fólki upp á
að standa tímunum saman úti í vetur
og bíða aðstoðar.
Fleiri útlendingar í neyð
Um 60% úthlutana hjá Fjölskylduhjálp Íslands fóru til bágstaddra útlendinga
Nærri 700 fjölskyldur fengu úthlutað matargjöfum frá hjálparsamtökum í gær
Víða er þörf fyrir aðstoð
» Nokkuð er um að fólk komi
úr nágrannasveitarfélögunum,
s.s. Hafnarfirði og Kópavogi, til
að leita aðstoðar.
» Sumir jafnvel alla leið frá
Selfossi og Reykjanesbæ.
Í gær var byrjað að steypa síðari hluta Hvítár-
brúar. Steyptir verða hundrað og tuttugu lengd-
armetrar en hundrað og fimmtíu metrar voru
steyptir í nóvember á síðasta ári.
Í brúnni verða eitt þúsund og fimm hundruð
rúmmetrar af steypu, en til glöggvunar eru það
rúmlega tuttugu steypubílar. Einn rúmmetri af
steypu vegur 2,6 tonn. Þannig vegur steypan í
brúnni u.þ.b. fjögur þúsund tonn.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundssom
Steypa síðari hluta Hvítárbrúar
Sjálfstæðisflokk-
urinn er stærsti
flokkur landsins
og nýtur stuðn-
ings 35% kjós-
enda. Báðir
stjórnarflokk-
arnir njóta meiri
stuðnings nú en í
fylgiskönnun í
júlí. Þetta eru
niðurstöður
fylgiskönnunar Þjóðarpúls Gallup
sem greint var frá í fréttum RÚV í
gærkvöldi.
Samkvæmt könnuninni fengi
Samfylkingin 25% atkvæða nú en
fékk 24% samkvæmt Þjóðarpúls-
inum í júlí. Vinstri grænir fengju
21% atkvæða í stað 19% síðast.
Framsóknarflokkurinn fengi 12%
atkvæða en 8% segja að þeir myndu
kjósa aðra flokka.
16% myndu skila auðu
Þrátt fyrir að stjórnarflokkarnir
fái samanlagt 45% atkvæða styðja
einungis 40% ríkisstjórnina, sam-
kvæmt Þjóðarpúlsi Gallup.
16% aðspurðra í könnuninni segj-
ast myndu skila auðu ef gengið yrði
til þingkosninga nú.
Könnun Gallup var gerð frá 28.
júlí til 29. ágúst og fram kemur að
rúmlega 6.300 manns voru spurðir í
gegnum netið og í síma. Svarhlut-
fallið var 63,3%.
Stjórnar-
flokkarnir
bæta við sig
40% segjast styðja
ríkisstjórnina
Meiri stuðningur
nú en í júní.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Samfara auknum flutningum Íslend-
inga til útlanda og þá einkum til
Norðurlanda, hefur stefnubirtingum
í viðkomandi löndum fjölgað til muna
á nýliðnum árum.
Utanríkisráðuneytið fer með ís-
lenskar stefnubirtingar erlendis, en
stefnur til birtingar erlendis koma
frá lögmannsstofum. Ráðuneytið
sendir stefnurnar til viðkomandi
sendiráðs og felur því að hlutast til
um að stefnan verði birt.
Pétur Ásgeirsson, sviðsstjóri
rekstrar- og þjónustusviðs utanrík-
isráðuneytisins, segir að töluverð
umsýsla sé í kringum hverja stefnu-
birtingu og þær hafi valdið miklu
álagi í fámennum sendiskrifstofum á
Norðurlöndum. Stefnubirtingarnar
gangi fyrir ansi mörgum öðrum
verkefnum og ekki hafi verið bætt
við fólki heldur þvert á móti hafi
starfsfólki fækkað.
Gjald ríkisins fyrir hverja stefnu-
birtingu er 8.300 kr. en síðan geta
komið til aukagreiðslur í sumum til-
vikum. Pétur segir að ekki fari allar
stefnubirtingar í gegnum ráðuneytið
því í sumum tilfellum nái stefnuvott-
ar að semja um birtingu viðkomandi
stefnu á Íslandi og þá þurfi fólk ekki
að greiða gjald vegna stefnubirting-
ar erlendis.
Stefnubirtingum erlendis hefur
fjölgað til mikilla muna frá 2007
Sjöfalt fleiri í Noregi 2009 miðað við árið fyrir bankahrun og þrefalt fleiri þegar á heildina er litið
Fjöldi stefnubirtinga
eftir sendiráðum á hverju tímabili
1.1. - 30.8.
2007 2008 2009 2010
Kaupmannahöfn 122 219 303 144
Osló 35 53 240 176
Stokkhólmur 40 56 102 50
Önnur sendiráð 51 57 96 81
Heildarfjöldi 248 385 741 451
Stefnubirtingar
» Árið 2007 voru stefnubirt-
ingar á vegum sendiráðsins í
Kaupmannahöfn 122 en 303 í
fyrra og 144 það sem af er líð-
andi ári.
» Í Osló fóru þær úr 35 árið
2007 í 240 í fyrra, en eru 176
til þessa í ár.
» Í Stokkhólmi voru 40
stefnubirtingar 2007, 102 í
fyrra og 50 frá ársbyrjun til
loka ágúst í ár.
Lögreglan stöðvaði þýskan ferða-
mann á 137 km hraða í Víðidal í
Húnsvatnssýslu í gær.
Maðurinn ók Toyota Auris og
voru þrír fullorðnir í bílnum og
mikið af farangri. Þykir því furðu
sæta að manninum hafi tekist að
aka svo hratt á fullhlöðnum smábíl.
Maðurinn baðst afsökunar og
sagðist vera vanur miklum öku-
hraða á þýskum hraðbrautum.
Maðurinn var sektaður á staðn-
um líkt og aðrir erlendir ferða-
menn sem brjóta umferðarlögin.
Ferðakostnaður hans hækkaði því
um 67.500 krónur.
Ofsaakstur
á smábíl