Morgunblaðið - 02.09.2010, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 02.09.2010, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010 10 Daglegt líf Svanhildur Eiríksdóttir svei@simnet.is Ljósahátíð verður sett í 11.sinn í dag, fimmtudaginn2. september, við Myllu-bakkaskóla í Reykja- nesbæ, þar sem litríkum blöðrum verður sleppt til himins að loknum tónlistarflutningi kl. 10.30. Tónlistin mun síðan óma það sem eftir lifir há- tíðar í bland við fjölda annarra dag- skrárliða sem hægt er að nálgast upplýsingar um á vef Ljósanætur. Unga fólkið fær sinn skammt við Frumleikhúsið í kvöld og fjöl- skyldan öll getur átt góðar stundir við aðalsvið Ljósahátíðar á föstu- dags- og laugardagskvöld þar sem margar bestu hljómsveitir landsins munu spila fram yfir hápunkt hátíð- arinnar, flugeldasýningu. Það má svo segja að tónlistarfólk í Reykja- nesbæ slái lokatóninn í Ljósahátíð með hátíðartónleikum Tónlistar- félags Reykjanesbæjar í Stapa á sunnudag, en þar koma fram allir helstu kórar og einsöngvarar bæjar- félagsins. Flutt verða kórverk, ís- lensk sönglög og aríur, auk lokakafl- ans úr Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart og kórs úr Hallgrímspassíu Sigurðar Sævarssonar. Hrókar endurtaka leikinn Hljómsveitin Hrókar úr Kefla- vík spilar annars konar tónlist, sem þó er ekki síður vinsæl; Bítlarnir, Rolling Stones, Kinks og fleiri þekktar seventies-sveitir. Þeir komu saman á ný eftir 40 ára hlé á Ljósa- nótt fyrir ári og uppákoman tókst svo vel að nú verður leikurinn end- urtekinn, að vísu ekki á stóra sviðinu eins og síðast, heldur á bílskúrs- tónleikum í gamla bænum. Að minnsta kosti fjórar aðrar sveitir Tvíefldir Hrókar ætla að spila hátt á Ljósanótt Hrókar úr Keflavík komu saman að nýju þegar sveitin hafði ekki spilað í 40 ár. Tónlistarflutningur sveitarinnar á böllum í Rockville varð að barnaverndarmáli, enda hljómsveitarmeðlimir þá rétt skriðnir yfir fermingaraldurinn. Ljósanóttin í ár verður tekin með stæl, spilamennska þrjá daga í röð; bílskúrs- tónleikar í gamla bænum og dansleikur á Ránni á laugardagskvöldið. Morgunblaðið/Ellert Grétarsso Tvíefldir Hrókar voru á aðalsviðinu í fyrra þegar þessi mynd var tekin. Þeir sem hafa gaman af því að borða mat, elda mat, lesa um mat eða horfa á mat ættu að gerast reglulegir gest- ir á matarbloggsíðunni Lickmyspoon- .com. Síðuhaldarinn er stúlka að nafni Stephanie, hún er mikill matar- unnandi og er orðin svolítil stjarna vegna þessarar síðu. Á síðunni er hún meðal annars með veitingahúsa- gagnrýni, aðallega um staði í New York og San Francisco. Hún er eftir- sóttur veitingahúsarýnir og hefur gagnrýni hennar birst víða. Steph- anie bloggar líka um það sem hún er að gera en hún ferðast mikið á alls konar matarráðstefnur, keppnir, há- tíðir og kynningar. Það er ekki hægt að halda úti matarbloggi án þess að gefa uppskriftir og velta mat fyrir sér og það gerir Stephanie. Uppskriftir hennar eru margskonar og allar girni- legar. Þær eru nákvæmar og mynd- irnar sem hún birtir með eru fallegar. Svo geta lesendur síðunnar sett inn athugasemdir og bætist þá oft ým- iskonar fróðleikur við hverja færslu. Stephanie er mjög öflug að setja inn færslur og nýtt efni kemur inn nánast á hverjum degi eða jafnvel nokkrum sinnum á dag. Lickmyspoon.com er mjög áhuga- vert og fagmannlegt matarblogg. Vefsíðan: www.lickmyspoon.com Morgunblaðið/Valdís Thor Matur Stephanie fjallar um allt sem viðkemur mat á bloggi sínu. Sleiktu skeiðina mína Þeir sem búa á Norður- og Austur- landi eiga von á góðu næstu daga því hitastigið gæti farið í og jafnvel upp fyrir tuttugu stig. Fellibylurinn Daníel koðnaði niður suðaustur af Ný- fundnalandi og gæti komið heitt loft hingað til landsins frá honum. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir á veðurbloggi sínu að fari svo gæti orðið bærilegasti sumarhiti norðan- og norðaustanlands fimmtudag og föstudag. Það er ekki amalegt að fá sannkallaða sumarblíðu í byrjun september. Samkvæmt verðurspánni verður ágætlega hlýtt út um allt land fram yfir helgi þótt vætu verði vart á Suð- urlandi. Endilega … … njótið hita- bylgjunnar Morgunblaðið/Ómar Sólin Það verður blíða á Akureyri. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Það er alltaf gleðifregn þegar fólk tilkynnir að það eigi von á barni. Hér á landi fer fréttin yfirleitt að berast þegar konan er gengin með um þrjá mánuði og það er engin tilkynningahefð eða nokkrar hefðir sem þarf að fara eftir á meðgöng- unni. Síðan fæðist barnið og fær ekkert sérstakt partí fyrr en það fær nafn eða jafnvel ekki fyrr en á eins árs afmælisdaginn. Þangað til koma vinir og ættingjar tilviljunar- kennt í heimsókn til að gleðjast yfir tilvist þess. Við Íslendingar höfum lengi fuss- ast og sveiast út í væmni Banda- ríkjamanna og öllu tilstandinu þar á bæ þegar einhver giftir sig eða á von á barni. Eins og hefur sést í ófáum bandarískum bíómyndum eru svokallaðir óléttufögnuðir (baby showers) haldnir þegar nokkrar vikur eru í að barnið fæð- ist. Getnaðarpartí hafa líka tíðkast en þá heldur parið veislu til að til- kynna að það hyggist nú fara að geta barn. Ekki fylgir sögunni hvort viðstaddir fái að fylgjast með getnaðinum. Nýjasta æðið í Bandaríkjunum í kringum fæðingu eins sakleysingja eru svokölluð „sex-party“ eða kyn- partí. Þá halda foreldrarnir veislu til að tilkynna kyn væntanlegs barns. Oftast er þessi veisla hald- in þegar konan er komin rúmlega tuttugu vikur á leið, en um það leyti er kyn barnsins yfirleitt greint í sónar. Spennandi umslag Breski blaðamaðurinn Leo Hick- man á Guardian skrifar um þessa nýjustu tísku í vikunni. „Pör sem eiga von á barni halda partí fyrir vini og ættinga svo þau geti afhjúpað kynið á væntanlegu barni. Ef þér finnst það ekki nógu sjálfhverft er meira; parið veit kynið yfirleitt ekki sjálft. Hápunktur partísins er þegar umslag er opnað, það inniheldur miða sem ljósmóðirin í sónarnum hefur skrifað kyn barnsins á fyrir foreldrana. Umslagið er opnað með viðhöfn og þegar kynið er ljóst brjótast út mikil fagn- aðarlæti,“ skrifar Hickman. Kaka leynir kyninu Bandaríski blaðamaðurinn Greg Bluestein hjá The Associated Press skrifar um eigin reynslu af Börn Foreldrar halda kyn-partí til að afhjúpa kyn væntanlegs barns Fjarðarkaup Gildir 2.-4. september verð nú verð áður mælie. verð Svínakótilettur úr kjötborði.......... 998 1398 998 kr. kg Svínabógur úr kjötborði .............. 498 698 498 kr. kg Lambalærissneiðar úr kjötborði... 1498 1845 1498 kr. kg Nauta-entrecote úr kjötborði....... 2998 3598 2998 kr. kg Nautahakk I. fl. 2,5 kg í poka...... 2745 3433 1098 kr. kg Fjallalambs lambalærissn. krydd. 2331 3108 2331 kr. kg Fjallalambs verkuð svið .............. 359 449 359 kr. kg Kjarnafæði íslenskt heiðarlamb... 1398 1998 1398 kr. kg SS kryddlegnar lærissneiðar ....... 2262 2828 2262 kr. kg Hagkaup Gildir 2.-5. september verð nú verð áður mælie. verð Holta kjúklingalæri m/sólþ. tóm.. 558 859 558 kr. kg Holta kjúklingabollur .................. 903 1389 903 kr. kg Holta kjúklingavængir í fötu ........ 399 679 399 kr. stk. Íslandsgrís rifjasteik ................... 769 1098 769 kr. kg Íslandsnaut nautahakk 4%......... 1479 1849 1479 kr. kg Hagkaups spelt-pizzadeig ferskt .. 339 431 339 kr. stk. Jóa Fel pizzadeig ferskt............... 299 372 299 kr. stk. Myllu kornbrauð......................... 449 259 449 kr. stk. Myllu gróft baguette................... 259 359 259 kr. stk. Myllu muscovado-vínarbrauð ...... 139 239 139 kr. stk. Kostur Gildir 2.-5. september verð nú verð áður mælie. verð Goði Gourmet dönsk ofnsteik...... 1573 2247 1573 kr. kg Starbucks kaffi malað 907 g....... 2195 0 2195 kr. stk. Baby spínat í boxi 140 g ............ 219 419 219 kr. stk. Epli Pink Lady............................ 159 279 159 kr. kg Lady Cat kattamatur 12,5 kg ...... 2599 4629 2599 kr. stk. Don Simon appelsínusafi 1 lítri ... 199 299 199 kr. stk. Don Simon eplasafi 1 lítri ........... 199 299 199 kr. stk. Don Simon 200 ml 3 í pakka...... 168 199 168 kr. kg Helgartilboðin Brauð Allskonar brauð og vínarbrauð verða á tilboði. Morgunblaðið/Ásdís » Boðið verður upp á kjötsúpu fyrir gesti og gangandi á föstudeginum og árgangagangan á laugardeginum er viðburður sem enginn vill missa af. » Fjöldi myndlistarmanna sýnir verk sín víðs vegar um bæinn auk þess sem gallerí og vinnustofur listamanna verða opnar. » Margir dagskrárliðir eru sniðnir að börnum, s.s. barnadagskrá á stóra sviðinu á laugardeginum auk þess sem boðið verður upp á ratleik í Duushúsum og Tilraunalandið ásamt hoppköstulum og kassaklifri verður í skrúðgarðinum. » Þess má geta að á þriðja hundrað einstaklinga sýnir verk sín á einn eða annan hátt. Einnig verða opnaðar á Listasafni Reykjanesbæjar og í sýningarrýminu Suðsuðvestur áhugaverðar sýningar. Margt í boði um helgina LJÓSANÓTT Flugeldar Verða á boðstólnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.