Morgunblaðið - 02.09.2010, Síða 16
16 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010
Umhverfisverndarsamtökin Green-
peace sögðu í gær að fjórir félagar
þeirra hefðu sofið í tveimur tjöldum
undir borpalli olíuleitarfyrirtækis-
ins Cairn Energy undan vestur-
strönd Grænlands. Samtökin sögðu
að fjórmenningarnir myndu halda
mótmælunum áfram, þótt farið
væri að hvessa, og ekkert benti til
þess að þeir þyrftu að fara af bor-
pallinum. Þeir vonuðust til þess að
geta seinkað olíuleit Cairn Energy
þannig að fyrirtækið gæti ekki bor-
að eftir olíu á fleiri stöðum í sumar.
Grænlenska ríkisútvarpið hafði
eftir talsmanni Cairn Energy að
borunin hefði verið stöðvuð í
öryggisskyni en mótmælin hefðu
ekki haft alvarleg áhrif á olíu-
leitina.
Halda
áfram mót-
mælum
Reuters
Olíuleit stöðvuð Grænfriðungar mótmæla undir borpalli olíuleitarfyrirtækis undan strönd Grænlands.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Tony Blair, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Bretlands, dregur upp
fremur nöturlega mynd af eftir-
manni sínum í endurminningum
sem gefnar voru út í gær. Hann
segir þar meðal annars að Gordon
Brown hafi stundum verið „óþol-
andi“, hann sé að mörgu leyti vel
gefinn en hafi ekki snefil af „tilfinn-
ingagreind“.
Í bókinni er fjallað ítarlega um
samband þeirra tveggja á árunum
1997 til 2007 þegar Blair var for-
sætisráðherra og Gordon Brown
fjármálaráðherra. Blair lýsir Brown
sem „afburðasnjöllum“ fjármálaráð-
herra en kveðst hafa vitað að stjórn
Verkamannaflokksins myndi falla ef
langþráður draumur Browns um að
verða forsætisráðherra rættist.
Hann segir að það hafi verið „nán-
ast ómögulegt“ að koma í veg fyrir
að Brown tæki við embættinu
vegna sterkrar stöðu hans í Verka-
mannaflokknum og mikils stuðnings
við hann í fjölmiðlunum.
„Ekki gagnlegt fyrir flokkinn“
Blair segir að Verkamanna-
flokkurinn hafi verið fær um að
sigra í þingkosningunum sem fram
fóru í maí en tapað vegna þess að
Brown hafi fallið frá stefnu „Nýja
Verkamannaflokksins“ í grundvall-
aratriðum og fært flokkinn of langt
til vinstri.
Blair lýsir Brown sem lævísum
stjórnmálaref og grunar hann um
að hafa staðið á bak við rannsókn á
ásökunum um að forystumenn
Verkamannaflokksins hafi selt sæti
í lávarðadeildinni og veitt auðmönn-
um orður í staðinn fyrir fjárfram-
lög.
Leiðtogakjöri Verkamanna-
flokksins lýkur 25. þessa mánaðar
og einn frambjóðendanna, Diane
Abbot, sakaði Blair um „stinga
hnífi“ í Brown. „Ég er hissa á því
Tony Blair skyldi ekki bíða í sóma-
samlegan tíma áður en hann tók að
stinga hnífi í Gordon Brown. Þetta
er ekki gagnlegt fyrir flokkinn á
þessu stigi.“
Lýsir Gordon
Brown sem
óþolandi ref
Tony Blair gagnrýnir eftirmann sinn
og kennir honum um kosningaósigurinn
Reuters
Togstreita Samherjar en ekki vinir.
Þótti sopinn góður
» Blair viðurkennir að hann
hafi verið háður áfengi um
tíma vegna mikils álags, m.a.
vegna uppreisnartilrauna
stuðningsmanna Browns.
» Blair kveðst alltaf hafa talið
sig hafa „stjórn“ á áfengis-
drykkjunni en viðurkennir að
hann hafi verið við „ytri mörk-
in“, drukkið daglega til að geta
slakað á og staðist álagið.
Sænskur sak-
sóknari kvaðst í
gær ætla að hefja
að nýju rannsókn
á því hvort Julian
Assange, stofn-
andi uppljóstr-
unarvefjarins
WikiLeaks, hefði
gerst sekur um
nauðgun. Slík
ákæra var gefin út í Svíþjóð 20.
ágúst en yfirsaksóknarinn Eva
Finne ákvað að afturkalla hana
daginn eftir.
Julian Assange segir nauðg-
unarásökunina lið í ófrægingar-
herferð bandarískra yfirvalda á
hendur sér til að koma óorði á upp-
ljóstrunarvefinn vegna skjala um
stríðið í Afganistan sem birt hafa
verið á vefnum.
Rannsókn á meintri
nauðgun stofnanda
WikiLeaks
Julian Assange
SVÍÞJÓÐ
Sérfræðingar bandarísku geimvís-
indastofnunarinnar NASA fóru í
gær til Chile til að aðstoða björg-
unarmenn við að búa 33 námu-
menn undir allt að fjögurra mán-
aða einangrun til viðbótar í
göngum sem hrundu fyrir fjórum
vikum. Sérfræðingarnir voru
fengnir til aðstoðar vegna reynslu
þeirra af því að búa geimfara und-
ir langvinna einangrun í geimnum.
Sérfræðingarnir hafa meðal
annars ráðlagt embættismönnum
og björgunarmönnum í Chile að
segja námumönnunum
hreinskilnislega frá því hversu
langan tíma það tekur að bjarga
þeim. Þeim hefur þegar verið sagt
að biðin eftir björgun verði löng en
engin dagsetning hefur verið
nefnd þar sem embættismenn hafa
áhyggjur af því að námumennirnir
leggist í þunglyndi.
The Washington Post hefur eftir
bandarískum sérfræðingum að
meðal annars sé mikilvægt að
námumennirnir sofi á nóttunni og
vaki á daginn þrátt fyrir niða-
myrkrið í námugöngunum. Erfitt
geti verið fyrir námumennina að
sofna og það geti leitt til þreytu,
skapstyggðar og slæmra ákvarð-
ana. Við þessar aðstæður sé alltaf
hætta á átökum og ofbeldi.
Leiðindi eru á meðal hættuleg-
ustu óvina þeirra sem eru í slíkri
einangrun og sérfræðingarnir hafa
m.a. mælt með því að frægir Chile-
menn verði fengnir til að hýrga
námumennina. Sjá þurfi til þess að
þeir hafi allir hæfilega mikla vinnu
og finni að strit þeirra hafi tilgang,
en einnig nægan hvíldartíma.
Þurfa að moka grjóti
Líklegt er að námumennirnir
hafi nóg fyrir stafni því þeir þurfa
að fjarlægja grjótmulninginn sem
hrynur niður í námuna þegar
björgunargöngin eru boruð.
Sálfræðingar segja að leiðtogar
hópsins þurfi að sjá til þess að allir
námumennirnir vinni og leiki sér
saman. Hvetja þurfi þá til að bind-
ast sterkum vináttuböndum – en
án þess að hópurinn skiptist í klík-
ur. Þótt þröngt sé í afdrepi þeirra í
göngunum þurfi allir að geta átt
einkalíf – án þess að einangra sig
alveg frá hópnum. bogi@mbl.is
NASA hjálpar í bar-
áttu gegn leiðindum
Reynt að afstýra því að námumenn falli í gryfju þunglyndis
Eigendur gull- og koparnám-
unnar sem hrundi báðust í gær
„afsökunar á sálarkvölinni“ sem
slysið hefur valdið námumönn-
unum. Eigendurnir lögðu þó
áherslu á að göngin hefðu ekki
hrunið vegna vanrækslu af
þeirra hálfu og sögðu að öllum
öryggisreglum hefði verið hlítt í
hvívetna.
Harma kvölina
HRUNIÐ ENGUM AÐ KENNA
Estudio R. Carrera fyrir
1 2 3 4
Heimildir: El Mercurio, La Tercera
Borinn Strata 950 66 cm
Tækið vegur 40 tonn
og nauðsynlegt var að
steypa grunn undir hann
vegna þyngdarinnar.
Var settur saman á mettíma,
það tók fjóra daga að hefja
borunina sem hófst á
mánudagskvöld
Fyrst verður boruð mjó
hola, þráðbeint niður að
afdrepi námumannanna,
um það bil 702 metra
undir yfirborðið.
Áætlað er að hægt verði
að bora átta til fimmtán
metra á dag
Þegar holan hefur verið boruð
verður annar bor notaður til
að breikka hana.
Námumennirnir þurfa að moka
mörgum tonnum af grjótmulningi
sem hrynur niður frá bornum.
Það gæti tekið þrjá til fjóra mánuði
að bora björgunargöngin
Þegar björgunargöngin
hafa verið boruð verður
loksins hægt að hífa
námumennina upp á
yfirborðið í björgunar-
hylki, einn í einu. Það
gæti tekið 3-5 daga að
hífa alla mennina upp
NÁMUMÖNNUM BJARGAÐ
Öflugur bor er byrjaður að bora göng sem nauðsynleg eru til að bjarga 33 námumönnum sem hafa þurft að
hírast í námu á um 700 metra dýpi í fjórar vikur, eða frá því að aðalgöng námunnar hrundu 5. ágúst
38 cm
ATH.: Teikningarnar eru ekki í réttum hlutföllum
Í nýju bókinni, „A Journey“, kveðst Blair ekki iðrast þeirrar ákvörðunar
að Bretar tækju þátt í innrásinni í Írak árið 2003 en hann leggur áherslu
á að hann harmi mjög mannfallið í stríðinu. Hann viðurkennir að tímabil-
ið eftir innrásina hafi verið miklu verra en hann hafi búist við. „Eftir-
köstin voru miklu blóðugri, skelfilegri og hryllilegri en nokkur hefði get-
að ímyndað sér,“ segir hann. „Ég veit það bara að ég gerði það sem ég
taldi rétt,“ segir Blair og hrósar George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkja-
forseta, fyrir „pólitískt hugrekki“.
Harmar mannfallið í Írak
KVEÐST EKKI IÐRAST INNRÁSARINNAR