Morgunblaðið - 02.09.2010, Síða 32
32 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010
Á morgun kynnir þýski lista-
maðurinn Wolfgang Müller
verk sín í bókabúð Máls og
menningar á Laugavegi. Hann
hyggst lesa upp úr nýjustu bók
sinni um þýsku listakonuna Va-
lesku Gert og kynna önnur
verk sín
Wolfgang Müller hefur með-
al annars skrifað bækur um
álfa á Íslandi (News from the
Elf Front – The Truth about
Iceland) og samið álfalög sem hann syngur á ís-
lensku (With Wittgenstein in Krisuvik – twenty
two Elf Songs for Iceland).
Samkvæmið hefst kl. 20:30 og verða léttar veit-
ingar í boði.
Álfasögur
Wolfgang Müller
kynnir verk sín
Wolfgang
Muller
Næstkomandi sunnudag halda
Björg Þórhallsdóttir sópran-
söngkona og Elísabet Waage
hörpuleikari tónleika í Strand-
arkirkju í Selvogi. Á efnis-
skránni eru íslensk þjóðlög,
þekktar sönglagaperlur og
bænir. Þetta er í þriðja sinn
sem Björg og Elísabet koma
fram á tónleikum í þessari
sögufrægu kirkju.
Á undan tónleikunum er
uppskerumessa og hefst hún kl. 14.30. Tónleik-
arnir hefjast svo kl. 15. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill á meðan húsrúm leyfir.
Kirkjugestir geta fengið sér hressingu að tón-
leikum loknum í T-Bæ í Selvogi.
Tónlist
Þjóðlög og bænir í
Strandarkirkju
Björg
Þórhallsdóttir
Óskar Thorarensen heldur
myndlistarsýningu í Café
Loka, Lokastíg 28, frá 3. til 30.
september næstkomandi.
Þetta er fyrsta sýning Óskars
sem hefur stundað nám hjá
Gunnlaugi Stefáni Gíslasyni
vatnslitamálara undanfarin ár,
auk þess sem hann hefur sótt
námskeið í vatnslitamálun í
Bandaríkjunum. Þess má geta
að dómnefnd valdi eina mynd
Óskars á afmælissýningu félagsins Nordiska Akv-
arellsällskapet opnuð verður í Norræna húsinu í
október.
Opið er í Café Loka virka daga kl. 10:00-18:00,
laugardaga 10:00-18:00 og sunnudaga 12:00-18:00.
Myndlist
Óskar Thorarensen
í Café Loka
Úr einni mynd
Óskars.
Gerður Kristný hlaut í morgun
Barna- og unglingabókaverðlaun
Vestnorræna ráðsins 2010 fyrir
skáldsöguna Garðinn. Ólína Þor-
varðardóttir, formaður ráðsins, og
Dagný Kristjánsdóttir afhentu Gerði
Kristnýju verðlaunin, sem nema um
1,2 milljónum íslenskra króna, við
hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu.
Þetta er í fimmta skipti sem verð-
launin eru veitt en þeim er úthlutað
annað hvert ár. Í rökstuðningi dóm-
nefndar segir meðal annars að
Garðurinn sé „unglingabók, sam-
tímasaga og fortíðarsaga, skrifuð af
fagmennsku og sjaldgæfum glæsi-
brag. Nútíð og fortíð tengjast í
mörgum hliðarsögum og mörkin
milli hins þekkta og óþekkta eru
dregin í efa“.
Eftir Gerði liggur fjöldi bóka;
barnabækur, skáldsögur, ævisögur,
ljóðabækur. Von er á nýrri ljóðabók
hennar í haust.
Árið 2002 hlaut bókin Sagan af
bláa hnettinum eftir Andra Snæ
Magnason verðlaunin, árið 2004
bókin Engill í Vesturbænum eftir
Kristínu Steinsdóttur og Höllu Sól-
veigu Þorgeirsdóttur, árið 2006
hlaut færeyska bókin Hundurinn,
kötturinn og músin eftir Bárð Ósk-
arsson verðlaunin og árið 2008 bók-
in Draugaslóð eftir Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðlaun Gerður Kristný með við-
urkenningu Vestnorræna ráðsins.
Gerður
Kristný
verðlaunuð
Garðurinn fær ung-
lingabókaverðlaun
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Libia Casto og Ólafur Ólafsson
opna sýningu í Nýlistasafninu á
morgun kl. 20. Sýninguna nefna
þau Lobbyists enda freista þau
þess að draga upp mynd af þrýsti-
hópafulltrúum, eða lobbíistum, við
störf í Brussel og Strassborg, þar
sem þeir vaka yfir og reyna að
hafa áhrif á ákvarðanatöku Evr-
ópusambandsins.
Þau Libia og Ólafur búa og
starfa í Rotterdam og Berlín. Þau
kynntust í Hollandi 1997 þar sem
þau voru við framhaldsnám og
hafa starfað saman síðan. Þau hafa
sýnt víða um heim, meðal annars
hér á landi, í Berlin, Malaga og
Amsterdam og tekið þátt í sam-
sýningum í Mílanó, Linz, Trentino,
Eindhoven, Amsterdam, Vilnius og
Havana.
Við undirbúning verksins kynntu
þau sér sögulegar heimildir og
samtímalegar um lobbíista og
ræddu við fjölda fólks sem er
tengt þrýstihópasamtökum, frjáls-
um félagasamtökum og eftirlits-
hópum auk þess að kanna form
heimildarmynda og tónlistarmynd-
banda.
Ólafur segir að þau hafi leitað til
Hjálma um að semja fyrir sig lag
en þegar á reyndi áttu Hjálmarnir
til grunn að lagi. „Við þurftum þó
talsvert lengra lag þannig að þeir
bjuggu til sitt fyrsta dub-lag og
svo syngja þeir textann og breska
leikkonan Caroline Dalton leikles á
móti þeim,“ segir Ólafur en textinn
er blaðagrein sem bresk blaðakona
skrifaði sérstaklega fyrir verkið.
Fígúra lobbíistans áhugaverð
„Við ætluðum að finna raunveru-
lega blaðagrein en þegar grannt er
skoðað er hver einasta grein sem
fjallar um lobbíisma lobbíismi í
sjálfu sér og við fórum því þá leið
að fá breska blaðakonu til að
skrifa fyrir okkur grein sem væri
eins hlutlæg og unnt er.
Það þýðir þó ekki að við höfum
enga skoðun eða að það komi eng-
in sjónarmið í gegnum verkið, en
við reynum að leiða fólk áfram og
hafa það eins opið og hægt er.“
Að sögn Ólafs fannst þeim Libiu
fígúra lobbíistans áhugaverð, enda
sé hún á gráu svæði þó málum sé
svo háttað að lóbbíistar starfi ekki
aðeins fyrir iðngreinar og aðra
valdamikla hópa í þjóðfélaginu
heldur starfi þeir einnig fyrir ýmsa
sem vinna að almannaheill og berj-
ist fyrir náttúru- og umhverfis-
vernd svo dæmi séu tekin.
Áhugavert Myndskot úr verkinu Lobbyists eftir þau Ólaf Ólafsson og Libiu
Casto. Í verkinu freista þau þess að draga upp mynd af þrýstihópa-
fulltrúum, eða lobbíistum, við störf í Brussel og Strassborg.
Lobbíistar í Nýlistasafninu
Víðförul
» Lobbyists hefur m.a. verið
sýnd á Prix de Rome sýning-
unni í De Appel í Amsterdam
og Witte de Whit í Rotter-
dam 2009, á 5. Norræna Mo-
mentum tvíæringnum í Moss
2009, á ARCO myndlistar-
kaupstefnunni í Madríd 2010
og í Pompidou-safninu í
París 2010.
» Libia og Ólafur höfnuðu í
3. sæti með Lobbyists við
afhendingu myndlistarverð-
launanna Prix de Rome.
» Þau munu sýna fyrir hönd
Íslands á Feyneyjatvíær-
ingnum 2011.
» Lobbyists verður einnig
sýnd á Circuit Off kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum í
september og ARGOS Centre
for Art and Media sýnir
myndina í Brussel í nóv-
ember.
Libia Casto og
Ólafur Ólafsson
opna sýningu
í Nýlistasafninu
Danska þjóðlagatríóið Trio Gáman er
nú í heimsókn hér á landi og heldur
þrenna tónleika. Þeir fyrstu voru í
Norræna húsinu í gærkvöldi, en í
kvöld leikur tríóið í Frystihúsinu á
Egilsstöðum og á laugardag í Hofi á
Akureyri.
Trio Gáman er skipað þeim Bolette
Roed, sem leikur á blokkflautu, Rune
Tonsgaard Sørensen, sem leikur á
fiðlu, og Andreas Borregaard, sem
leikur á harmonikku. Þrátt fyrir ung-
an aldur eru þau öll þekkt í heima-
landi sínu sem einleikarar í sinfón-
ískri tónlist og margverðlaunuð fyrir
færni og framtak, hvort sem er í sí-
gildri tónlist eða þjóðlagamúsík.
Trio Gáman varð til fyrir þremur
árum og hefur leikið á tónleikum víða
á Norðurlöndunum og fór meðal ann-
ars tónleikaferð um Grænland og
Færeyjar fyrir tveimur árum. Tón-
listin sem tríóið leikur er gömul nor-
ræn alþýðutónlist og nýrri tónsmíðar
í bland.
Tónleikarnir á Egilsstöðum í kvöld
hefjast kl. 20:00 og á sama tíma í Hofi
á laugardagskvöld.
Blanda af gamalli og
nýrri alþýðutónlist
Alþýðutónlist Danska þjóðlagatríóið Trio Gáman; Andreas Borregaard,
Rune Tonsgaard Sørensen og Bolette Roed.
Trio Gáman leikur á þrennum tónleikum í Íslandsheimsókn
Jón Laxdal Halldórsson opnar sýn-
ingu í Gerðubergi á laugardag kl.
14:00. Jón nefnir sýninguna Við-
brögð. Á henni er myndröð sem
unnin er úr gömlum eintökum af
vikublaðinu Fálkanum, þar sem
hann raðar saman formum, textum
og myndum í einskonar klippimynd-
ir.
Jón fæddist á Akureyri. Hann
stundaði nám í heimspeki við Há-
skóla Íslands á árunum 1971-1975.
Jón hefur verið virkur í menningar-
starfi á Akureyri, átti hlut að rekstri
Rauða hússins og var bæjar-
listamaður Akureyrar árið 1993.
Hann hefur tekið þátt í fjölda sýn-
inga bæði innanlands og erlendis.
Auk sköpunar eigin verka hefur Jón
stundað ýmis störf og sent frá sér
ljóðabækur auk þess að semja texta-
kver hljómsveitarinnar Norðanpilta.
Viðbrögð í
Gerðubergi
Myndröð unnin úr gömlum Fálkum
Viðbrögð Jón Laxdal Halldórsson.
Það sem rekur hing-
að frá Grænlandi er
alla jafna illa séð 35
»