Morgunblaðið - 02.09.2010, Page 40
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 245. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. „Ég biðst innilega afsökunar“
2. Fer í eins árs námsleyfi
3. Fjórir á leiðinni út úr ríkisstjórn
4. Andlát: Kristján J. Gunnarsson
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Martini-fatahönnunarkeppnin fer
fram með pomp og prakt í kvöld kl. 21
á Spot í Kópavogi. Að þessu sinni
mæta til leiks fimm ungir og upp-
rennandi fatahönnuðir.
Martini-keppnin hringir inn tísku-
vikuna Iceland Fashion Week sem
stendur fram á laugardag.
Iceland Fashion
Week hefst í dag
Föngum á Litla-
Hrauni hefur í
nokkurn tíma
staðið til boða að
vinna við fjöl-
breytta iðju með
það í huga að list-
sköpunin geti haft
jákvæð og bæt-
andi áhrif á þá. Til
stuðnings þessu jákvæða uppbygg-
ingarstarfi var ákveðið að sýna og
selja margvíslegar afurðir fanganna á
Ljósanótt í Reykjanesbæ í Gömlu búð
við Duustorg.
Fangar sýna og selja
verk sín á Ljósanótt
Gerður Kristný hlaut í gær Barna-
og unglingabókaverðlaun Vestnor-
ræna ráðsins 2010 fyrir skáldsöguna
Garðinn. Í rökstuðningi dómnefndar
segir að Garðurinn sé
unglingabók, sam-
tímasaga og fortíð-
arsaga, skrifuð af
fagmennsku og
sjaldgæfum glæsi-
brag. Verðlaunin
nema um 1,2
milljónum ísl. kr.
»32
Gerður Kristný verð-
launuð fyrir Garðinn
Á föstudag Suðaustan 10-18. Dálítil rigning suðvestan- og vestanlands, áfram bjart veð-
ur á Norður- og Austurlandi, en annars úrkomulítið. Hiti 12-22 stig, hlýjast norðaustan til.
Á laugardag, sunnudag og mánudag Stíf austanátt sunnanlands, en mun hægari suð-
austlæg átt fyrir norðan. Vætusamt suðaustanlands. Hlýtt í veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Bjart með köflum norðan- og austanlands. Þokuloft við ströndina
sunnan og austan til, þykknar upp suðvestan til og fer að rigna eftir hádegi. Hiti 12-20 stig.
VEÐUR
Arna Stefanía Guðmunds-
dóttir frjálsíþróttakona úr
ÍR varð Norðurlandameist-
ari unglinga í 400 metra
hlaupi á Akureyri um sl.
helgi. Arna kom verulega á
óvart í úrslitahlaupinu, en
hún er 15 ára og sigraði í
flokki 19 ára og yngri. Arna
æfir einnig handbolta með
ÍR-ingum en hún býst við að
draga úr æfingasókn í vetur
og einbeita sér að sjöþraut.
»3
Arna kom á óvart
í úrslitahlaupinu
Sundmaðurinn efnilegi, Sindri Þór
Jakobsson, hefur fengið norskan rík-
isborgararétt og um leið fórnað þeim
íslenska. Ástæðan er fyrst og fremst
sú að í Noregi er stuðningur við
íþróttamenn mun markvissari og
betri en boðið er upp á hér á landi.
Hann stefnir á að keppa í fyrsta sinn
fyrir Noreg á
stórmóti í
sundi á Evr-
ópumeist-
aramótinu í
25 m laug
undir árslok.
»1
Sindri Þór er orðinn
norskur ríkisborgari
„Ég er virkilega spenntur fyrir þessu
verkefni og ég tel að þrjú stig séu
eitthvað sem við eigum að stefna að,“
segir landsliðsmaðurinn Grétar Rafn
Steinsson m.a. um leik Íslands og
Noregs sem fram fer á morgun í und-
ankeppni Evrópumótsins í fótbolta
karla. Leikurinn fer fram á Laugar-
dalsvelli og er hann sá fyrsti í und-
ankeppninni hjá báðum liðum. »2
Grétar vill þrjú stig
gegn Norðmönnum
ÍÞRÓTTIR
Hún var ófögur sjónin sem blasti við fólki
sem var á ferð við Hálslón um síðustu helgi.
Veiðimenn sem þar höfðu verið á ferð
skildu mjög ósmekklega við, hirtu bring-
urnar og skildu gæsahræin eftir. „Slík að-
koma er mjög ljót og ekki til að bæta mynd
almennings af veiðimönnum og veiðum,“
segir á vef Umhverfisstofnunar.
Veiðitímabil á öndum, þ.e. stokkönd, urt-
önd, rauðhöfðaönd, duggönd, skúfönd, há-
vellu og toppönd, hófst í gær. Helsingja er
nú einnig leyfilegt að veiða utan Skafta-
fellssýslna en þar má ekki veiða helsingja
fyrr en 25. september. Veiðar á svartfugli,
þ.e. álku, langvíu, stuttnefju, teistu og
lunda, hófust í gær auk þess sem leyft er að
veiða dílaskarf, toppskarf, fýl, hvítmáf,
hettumáf og rytu.
Af þessu gefna tilefni vill stofnunin
minna veiðimenn á að ganga vel um auð-
lindina og stilla veiðum í hóf. Einnig eru
veiðimenn hvattir til að nýta bráðina sem
best. sisi@mbl.is
Hirtu bara
bringurnar
Skildu fuglshræin
eftir á víðavangi
Vítavert Þannig skildu veiðimenn við
bráðina við Hálslón um helgina.
Á morgun verður opnuð sýning í Nýlista-
safninu sem nefnist Lobbyists en þar
freista þau Libia Castro og Ólafur Ólafs-
son þess að draga upp mynd af þrýstihópa-
fulltrúum, eða lobbíistum, við störf í
Brussel og Strassborg.
Við undirbúning verksins kynntu þau
sér sögulegar og samtímalegar heimildir
um lobbíista og ræddu við fjölda fólks sem
tengist þrýstihópasamtökum. » 32
Þrýstihópafulltrúar
sýndir í Nýlistasafninu
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Þau hafa verið kölluð Nóbels-
verðlaun tónlistarinnar, Polar-
verðlaunin sænsku, og er það ekki
að ósekju. Þessi verðlaun hafa nú
verið veitt síðan 1992, en þá hlotn-
aðist Paul McCartney og Eystra-
saltslöndunum Eistlandi, Lettlandi
og Litháen heiðurinn. Verðlaunin
þykja ein þau virtustu í heiminum
og er mengi þeirra sem koma til
greina sem vinningshafar ansi vítt.
Þeir sem verðlaunin fá eru þó alltaf
þeir sem þykja hafa náð einstökum
árangri innan tónlistarinnar, að
með henni hafi þeir valdið nokkurs
konar tímamótum í tónlistinni og
rutt henni nýjar og stundum oft
framandi brautir. Risar eins og
Karlheinz Stockhausen og Witold
Lutosławski hafa t.d. fengið þessi
verðlaun og Bob Dylan, Ray Char-
les og Led Zeppelin eru þar einnig
á meðal.
Í ár voru verðlaunin veitt
Björk okkar Guðmundsdóttur og
ítalska kvikmyndatónskáldinu En-
nio Morricone, sem er hvað þekkt-
astur fyrir tónlist sína við hina svo-
kölluðu spagettívestra.
Hjartað á réttum stað
Björk fór út til Svíþjóðar og
var viðstödd hina veigamiklu verð-
launahátíð. Karl Svíakonungur af-
henti henni verðlaunin og sinfóníu-
hljómsveit og valdir sænskir
söngvarar fluttu lög Bjarkar.
Morgunblaðið sló á þráðinn til
söngkonunnar og innti hana við-
bragða við þessu öllu saman. Björk
lýsir því m.a. hvernig aðstand-
endur hátíðarinnar eru með hjart-
að á réttum stað þegar kemur að
tónlistinni. Það eykur þá enn á hve
merkilegur þessi viðburður er að
Björk er yngsti tónlistarmaðurinn
sem verðlaunin hefur fengið.
„Já, mér finnst það dálítið sér-
stakt verð ég að viðurkenna.
Morricone er t.a.m. kominn yfir
áttrætt. Mér finnst eins og það sé
verið að verðlauna fólk fyrir ævi-
starfið og ég hef aldrei hugsað um
minn feril sem einhverja heild. Ég
bara geri þetta og þetta, og síðan
geri ég þetta og þetta. Ég get ekki
horft á þetta í einhverju samhengi,
mér líður eins og ég sé rétt að
byrja.“ »34
PolarPress/Karin Törnblom
Við athöfnina Björk ásamt kvikmyndatónskáldinu Ennio Morricone.
„Mér líður eins og
ég sé rétt að byrja“
Björk tjáir
sig um Polar-
verðlaunin
Polar-verðlaunin
» Stofnað var til Polar-
verðlaunanna af Stikkan
Anderson, sem var innsti
koppur í búri Abba-veldisins,
einnar áhrifaríkustu popp-
sveitar allra tíma.
» Björk er yngsti
tónlistarmaðurinn sem hef-
ur fengið þessi verðlaun.