Morgunblaðið - 15.09.2010, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.09.2010, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 5. S E P T E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  215. tölublað  98. árgangur                               ostur.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 – 2 3 8 6 TOMMY HILFIGER AÐ Í TÍSKUNNI Í ALDARFJÓRÐUNG VEIÐISÖGUR OG VERKUN VILLIBRÁÐAR SULTURNAR GEYMAST VEL Í FRYSTIKISTUNNI SKOTVEIÐI 30-33 SYKURINN VAR LEIÐIN 10AFMÆLISVEISLA 41  Meiri ásókn er í utanlandsferðir en á sama tíma í fyrra. Mikið er bókað í borgar- ferðir, bæði til Evrópu og Bandaríkjanna, og uppselt er í einhverjar ferðir þótt framboð hafi verið aukið frá síðasta ári. Þá eykst það mjög að ferðirnar séu notaðar til að versla. Mikil aukning hefur verið í golf- ferðum undanfarin ár og aukning er í skíðaferðir og Kanaríeyjaferðir, svo dæmi séu tekin. Sömu sögu er að segja af ferðum á tónleika, fótbolta- leiki og ýmsa aðra viðburði. »2 Aukinn áhugi á ferðum til útlanda Stenst skýrleikakröfur Forseti lagadeildar Háskóla Íslands segist telja að hugs- anleg ákæra gegn fyrrverandi ráðherrum standist kröfur um skýrleika refsiheimilda. Sambærilegt fyrirkomulag var notað í Danmörku þegar mál var höfðað gegn dóms- málaráðherranum árið 1993, en hann var sakfelldur. »9 Agnes Bragadóttir Kjartan Kjartansson Umræður um þingsályktunartillög- ur þingmannanefndar um málshöfð- un gegn fyrrverandi ráðherrum hefj- ast líklega á föstudagsmorgun að sögn Ástu R. Jóhannesdóttur, for- seta Alþingis. Hún segir ómögulegt að áætla hvenær umræðum um til- lögurnar ljúki. Þingfundir standa því enn um sinn en fyrirhugað var að þeim lyki í dag. Á morgun mun formaður nefnd- arinnar, Atli Gíslason, mæla fyrir áliti meirihluta hennar um að höfðað skuli sakamál fyrir landsdómi gegn fjórum fyrrverandi ráðherrum, þeim Geir H. Haarde, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Árna M. Mathiesen og Björgvini G. Sigurðssyni. Einnig verður önnur tillaga frá fulltrúum Samfylkingarinnar í nefndinni lögð fyrir en í henni er gert ráð fyrir að Björgvini G. Sigurðssyni, fyrrver- andi ráðherra bankamála, verði hlíft við ákæru. Þingið ákveður nefndir Enn er alls óvíst til hvaða nefndar tillögunum verður vísað að loknum fyrri umræðum. Vilji er innan Sjálf- stæðisflokks og hjá einhverjum þingmönnum Framsóknarflokks og Samfylkingar fyrir því að tillögunum verði vísað til allsherjarnefndar. VG og aðrir þingmenn munu vera því andvígir. Að sögn Ástu R. Jóhannesdóttur er það þingsins að ákveða hvaða nefnd tekur tillögurnar fyrir. „Sam- kvæmt þingskaparlögum fara tillög- ur aftur til sömu nefndar og flytur þær. Þingmenn og viðkomandi nefnd getur einnig óskað eftir að fá álit annarra nefnda,“ segir hún. Óvissa er með framhaldið  Samkvæmt þingskaparlögum fara tillögur aftur til sömu nefndar og flytur þær  Þingmenn úr stjórn og stjórnarandstöðu vilja að málið fari í allsherjarnefnd MÞingmannanefndin » 6 Fyrsta lægð haustsins hafði lítil áhrif á hundinn, sem gekk vasklega meðfram ströndinni í gær. Hann lét hvassviðri og slæma veðurspá lítið á sig fá, enda prýddur dýrindis feldi. Göngufélagarnir þurftu aftur á móti að klæðast þykkum vetrar- úlpum til varnar veðri og vindum. Afar hvasst var víða á landinu klukkan 18 í gær, á Kára- hnjúkum var vindstyrkur 23 m/s, 19 m/s á Höfn í Hornafirði og 8 m/s í Reykjavík. Heldur tók að lægja er líða tók á kvöldið. Ökumenn með aftaní- vagna voru beðnir um að vera ekki á ferð að óþörfu. Lítið tjón hlaust af veðrinu, fyrir utan tvo ljósastaura sem skemmdust í snarpri vind- hviðu á Akureyri, en þar var nokkurt slagviðri. annalilja@mbl.is Hvassviðri hamlaði ekki haustgöngu Morgunblaðið/Kristinn  Unnið er að undirbúningi úr- bóta í öryggis- málum á hvera- svæðinu við Geysi í Hauka- dal. Settar verða nýjar kaðlagirð- ingar við gang- stígana og fleiri viðvörunarskilti. Umgengni hefur stundum ekki verið til sóma á þessum fjölfarna ferðamannastað. Þannig voru sorpílát Umhverfisstofnunar full um helgina og drasl í kringum þau. Enginn virðist bera ábyrgð á svæð- inu. »4 Úrbætur í öryggis- málum við Geysi Þrotabú Glitnis, sem er í eigu er- lendra kröfuhafa bankans, fékk á fyrri helmingi ársins greiðslu frá fyrrverandi dótturfélagi sínu í Nor- egi upp á 71 milljarð króna. Um var að ræða síðustu greiðslu af víkjandi láni, en þrotabú Glitnis seldi dótt- urfélagið skömmu eftir hrun í októ- ber 2008. Búið er að selja um fjórðung eigna Glitnis, en skilanefnd bank- ans færði á fyrri hluta ársins drjúg- an hluta reiðufjáreignar þrotabús- ins frá Íslandi. Bókfært verð dótturfélags bankans í Lúxemborg hækkaði um 29 milljarða króna og segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar, að félagið muni skila 200 milljörðum króna meira í búið en upphaflega hafi verið gert ráð fyrir. »14 Glitnir fær 71 milljarð frá Noregi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.