Morgunblaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 31
31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010
Skotveiði
villibráð sem veiða má á Íslandi,“
segir Úlfar.
„Rosalega verð ég lukkulegur
þegar veiðimenn geta ekki lengur
borið fyrir sig þekkingarleysi.“
Gaman í góðra vina hópi
Úlfar hvetur veiðimenn til að
gera verkun aflans að hluta veiði-
ferðarinnar.
„Þetta er hægt að gera í góðra
vina hópi nokkrum dögum eftir
veiðina þegar fuglinn er búinn að
hanga,“ segir hann.
„Þegar þú vinnur fulginn strax
og bútar hann niður er miklu
minna mál að affrysta þegar gest-
ir koma í mat. Menn sem skella
heilum skrokki í frystikistuna
þurfa að affrysta fuglinn með
nokkurra daga fyrirvara helst.“
birta@mbl.is
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Gæs Hægt er að nýta næstum allan fuglinn til matar, bæði bringur, bein, læri og innyfli.
Gæsina má annaðhvort reyta
og svíða eða hamfletta. Svo
er hægt að úrbeina hana og
pakka niður í frysti bringum
og lærum. Það er eins hægt
að gera paté úr lærunum,
skera niður í gúllas, salta
lærin eða reykja þau. Beinin
eru svo notuð í soð.
Hreindýrakjöt er bæði meyrtog bragðgott auk þess aðvera því sem næst fitulaust
og mjög próteinríkt,“ segir Gunnar
Óli Hákonarson á Húsavík. Þar
starfrækir hann kjötvinnsluna Við-
bót en til hennar kaupir hann hrein-
dýrakjöt frá Grænlandi og Svíþjóð
og vinnur hér heima.
Verslanir og veitingahús
Þingeyingurinn Gunnar Óli hefur
stundað skotveiðar í áratugi. Fyrir
nokkrum árum slóst hann í för með
Stefáni Hrafni Magnússyni hrein-
dýrabónda sem býr á Suður-
Grænlandi og hafa þeir með sér
margvíslegt samstarf. Þannig hefur
Gunnar þegar best lætur undanfarin
ár gjarnan flutt inn á bilinu 17 til 18
tonn af hreindýrakjöti sem bæði er
fengið á Grænlandi og úr Dölunum í
Norður-Svíþjóð.
„Hér á Húsavík höfum við útbúið
jólalærið, hryggi og hreindýraborg-
ara. Þetta er kjöt sem nýtur vaxandi
vinsælda en framleiðsluna seljum
við til veitingahúsa og verslana,“
segir Gunnar.
Villibráð ekki til vinnslu
Sú regla gildir að kjötvinnslur
mega ekki taka til slátrunar kjöt
nema það komi úr viðurkenndum
sláturhúsum, eins og á Grænlandi og
í Dölunum sænsku. Því getur Viðbót
ekki tekið villibráð til vinnslu; kjöt af
hreindýrum sem skotin eru á færi á
fjöllum og heiðum austanlands.
„Þegar danska krónan kostaði 10
kr. var ég gjarnan að taka hingað til
vinnslu kjöt af um 700 dýrum á
ári. Þegar hún svo fór upp í 25 krón-
ur varð eftirspurnin minni og inn-
flutningur sömuleiðis. Núna reikna
ég með að flytja inn um 400 dýr og
taka til vinnslu,“ segir Gunnar um
hreindýrakjötið sem fæst í flestum
betri matvöruverslunum, til dæmis
Melabúðinni í Reykjavík og hrein-
dýraborgararnir á veitingahúsum á
Egilsstaðabænum á Héraði, Ak-
ureyri og í Bláa lóninu.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Brýnt Veiðimaðurinn Gunnar Óli Hákonarson með hnífinn á lofti.
Hryggur og
hreindýraborgarar
Viðbót á Húsavík flytur í ár inn kjöt af um 400 hrein-
dýrum. Kjötið þykir bæði meyrt og bragðgott.
F
egurð morgunsins hér í Flóan-
um þar sem sólin skríður upp á
himinninn við öskugráan Eyja-
fjallajökul er oft á tíðum ævintýraleg.
Að vera úti í kyrrðinni á slíkum stund-
um þar sem maður liggur niðri í
skurði og bíður eftir því að gæsfugl-
arnir taki fyrstu vængjatök finnst
mér oft vera ævintýri líkast,“ segir
Sveinbjörn Másson gæsaskytta á Sel-
fossi.
Gæsaveiðitímabilið hófst þann 20.
ágúst og stendur fram eftir hausti.
Gæsirnar eru víða en á Suðurlandi er
kjörlendi þeirra víða, svo sem í mýr-
unum í lágsveitum og svo við korn-
akra. „Þegar grös sölna og ber ónýt-
ast fer gæsin gjarnan á akrana og
heldur sig þar enda eru akrarnir ekki
þresktir fyrr en talsvert er liðið á
haust,“ segir Sveinbjörn sem fer á
gæsaslóðir í Flóanum, Landeyjum og
víðar. „Sjaldnast fer maður mjög
langt héðan frá Selfossi. Er oft að
fara úr húsi um klukkan hálf fimm og
er kominn í skurðina um það bil hálfri
klukkustund síðar,“ segir Sveinbjörn
sem eftir fyrsta veiðidag haustsins
kom heim með feng sem hann var svo
sannarlega sáttur við. Hann telur
ástand stofnsins vera með besta
móti nú um stundir.
Allur gangur er á því hvernig gæsa-
veiðimenn nýta bráð sína. Sumir láta
nægja að hirða bringu og læri en aðr-
ir heilsteikja fuglinn í ofni, með líku
lagi og amerískan kalkún. „Það má
einu gilda hvert lagið er haft á þessu,
gæsin er alltaf herramannsmatur og
veiðistússið í kringum þetta er afar
skemmtilegt,“ segir Sveinbjörn Más-
son.
Sveinbjörn Finnst veiðistússið afar skemmtilegt.
Vængjatök í morgunflugi
Tachyon XC
Fullkomin myndbandsupptökuvél til að taka
upp myndskeið af áhugamálinu án þess að nota
hendurnar því þú festir vélina á
hjálminn, byssuna, húfuna
stýrið eða köfunargleraugun.
Vélin er vatnsheld að
30 metra dýpi og
ótrúlega sterk.
Fjörið sýnir þú svo
á Facebook eða
YouTube.
Verð frá 33.900
Dakota
Harðgert, lófastórt útivistartæki með
snertiskjá, næmum GPS-móttakara
með HotFix™ gervihnattaútreikningi,
hæðarmæli, rafeindaáttavita, SD-
kortalesara, 3-ása rafeindaáttaavita
og grunnkorti af heiminum.
Dakota 20 staðsetur þig fljótt,
örugglega og nákvæmlega.
Verð frá 49.900
Oregon
GPS staðsetningartæki með einfaldri
og aðgengilegri valmynd, alvöru
þrívíddarkorti, snertiskjá, hágæða
GPS-móttakara, hæðarmæli, 3-ása
rafeindaáttavita, SD-kortalesara,
myndaskoðun o.fl. Oregon 450 veitir
góða tilfinningu fyrir landslaginu og
er fullkominn ferðafélagi hvert sem
förinni er heitið.
Verð frá 74.900
Surefire vasaljós
Surefire vasaljós er ekki það sama og
vasaljós því ljósið er ótrúlega bjart úr
ekki stærra vasaljósi. Surefire notar
nýjustu og bestu tækni sem völ er á
til að þróa enn betri ljós en þekkst
hafa.
Amerísk gæði tryggja styrk og
endingu, hvort sem er í handljósum
eða höfuðljósum.
Verð frá 16.900
LEGGÐU EKKI AF STAÐ ÁN ÞEIRRA
Frábær búnaður í skotveiðina
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
10
20
09
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi | S: 577 6000 | www.garmin.is GARMIN BÚÐIN