Morgunblaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 38
38 MENNINGFólk MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010  Hljómsveitirnar Amusement Parks on Fire (APoF) og For a Mi- nor Reflection koma fram á tón- leikum á morgun á Sódómu Reykja- vík kl. 21. APoF er bresk, sögð „indie-art-rock-shoegaze“ í tilkynn- ingu. X-ið 977 á veg og vanda að komu APoF í samstarfi við Sódómu. Logandi skemmtigarð- ar á Sódómu Reykjavík Fólk Bíó Paradís – heimili kvikmyndanna, opnar í dag dyr sínar fyrir kvikmyndaþyrstum og verður tónlistarmyndin Backyard fyrsta myndin sem þar verður sýnd, í bíóhúsinu sem áður hét Regn- boginn. Á Fésbókarsíðu Bíó Paradísar má nú finna tvö skemmtileg myndbönd. Á öðru mynd- bandinu koma fram hinir og þessir Íslendingar, flestir hverjir þekktir, og telja upp þær kvik- myndir sem hvað mest áhrif hafa haft á þá í bíó- sal auk þess að lýsa stemningunni sem fylgir því að sjá kvikmynd í bíóhúsi. Fólk gleymi stund og stað, bíósalurinn sé töfrastaður og kvikmyndin tímavél, fái mann til að skilja manneskjuna bet- ur, kvikmyndin sé magnaðasta tækið til vitund- arvakningar og hið fullkomna listform sem fylli vitin af unaði. Yfirskrift myndbandsins er „Farðu aftur í bíó í fyrsta sinn – Bíó Paradís“. „Það er svo mikið af frábærum kvikmyndum, listinn er endalaus,“ segir leikstjórinn Ragnar Bragason og ýmsar merkar kvikmyndir eru nefndar, m.a. American Beauty, La Strada, Cri- mes and Misdemeanors, Hiroshima mon amour og Night on Earth. Í seinna myndbandinu lýsir svo Harpa Arn- ardóttir leikkona fyrstu bíóreynslu sinni, þegar hún fór á Síðasta bæinn í dalnum í bió með mömmu sinni og systur. Eftirminnilegast hafi verið að sjá fljúgandi kistu en þó hafi hún verið óttaslegin eftir bíóferðina. Seinna meir hafi hún haft gaman af því að sjá myndina aftur og þá strengina sem kistan hékk í. Hún hitti stundum þessa litlu stúlku í bíó. helgisnaer@mbl.is Fljúgandi kista spennandi og hlægileg Bíótöfrar Harpa Arnardóttir á myndbandi.  Í dag munu 160 grunnskólanem- ar heimsækja Norræna húsið og fylgjast með tilþrifum eins vinsæl- asta breikdanshóps Norðurlanda, Freestyle Phanatix. Danshópur þessi ætlar að kenna grunn- skólanemum nýja takta og sýna list- ir sínar. Tvö námskeið verða haldin í dag, kl. 10 fyrir þá yngri og kl. 13 fyrir þá eldri. Freestyle Phanatix mun vera stærsti og þekktasti breikdanshópur Norðurlanda og í hópnum eru færustu og þekktustu hipp-hopp-dansarar á Norð- urlöndum, að því er segir í tilkynn- ingu. Hópurinn hefur unnið til fjölda verðlauna. Breikdans stiginn í Norræna húsinu  Miðasala á söngleikinn Buddy Holly hefst á morgun kl. 10 á midi- .is. Söngleikurinn verður frum- sýndur 7. október í Austurbæ, þar sem eitt sinn var Austurbæjarbíó og hefur staðurinn verið end- urbættur. Ingó „Veðurguð“ fer með hlutverk Holly en Gunnar Helgason leikstýrir. Buddy Holly söngleikur frumsýndur 7. október  RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík nálgast nú óðfluga, en hún verður sett á fimmtudaginn í næstu viku, 23. september. Gaman er að segja frá því að á meðal myndanna þar er gríska myndin Attenberg sem vakti stormandi lukku á nýliðinni Feneyjahátíð en aðalleikkonan, Ariane Labed, var valin besta leikkona hátíðarinnar. Feneyjastjarna á bráð- komandi RIFF-hátíð Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Hallur Ingólfsson, hinn fjölhæfi, hratt af stað hljómsveitinni XIII gruggárið mikla 1993. Sveit hans bar þó engan keim af þeim hrær- ingum – eða nokkrum öðrum ef út í það er farið. Einstök nálgun XIII við rokkið skilaði sér síðan í þremur plötum, mannabreytingum og útgáfuveseni eins og gengur. Það var svo í fyrra, föstudaginn 13. mars nánar tiltekið (nema hvað) sem XIII meðlimirnir Hall- ur, Eiríkur Sigurðsson, Jón Ingi Þorvaldsson og Birgir Jónsson hittust og bræddu það með sér hvort það væri ekki ráð að koma sér í gírinn á ný. Í apríl brugðu menn sér svo í hljóðver og hjólin snúast nú sem aldrei fyrr … Fólk söng með Þeir Hallur og Birgir útskýra málið fyrir blaðamanni. „Eftir þetta örlagaríka föstu- dagskvöld rákumst við á Adda kenndan við Sólstafi, Jónba úr Brain Police og fleiri meistara. Menn sem eru yngri en við og þeir hvöttu okkur mikið áfram í þessum endurkomuhugleiðingum,“ segir Hallur. „Svo þegar við héld- um loks tónleika á Sódómu Reykjavík hinn 12. september 2009 voru viðtök- urnar með ólíkindum. Fólk kann textana okkar utan að! Þetta hvatti okkur enn frekar til dáða. Við höfðum mjög gaman af þessu og svo var fólk sem var líklega á leikskólaaldri þegar fyrstu plöt- urnar voru að koma út sem var þvílíkt með á nótunum. Þetta kom okkur mjög á óvart.“ Hallur segir að þeir hafi ákveðið að taka þessa endurkomu alla leið og réðust m.a. í að endurhljóm- jafna eldra efni sem nú er hægt að sækja sem niðurhal. „En við vildum ekki staldra við eintóma upprifjun. Okkur langaði líka til að stimpla okkur inn í nú- tímann. Þannig að Black Box sam- einar þetta tvennt.“ Hljómgrunnur XIII komst á sínum tíma í tengsl við erlend útgáfufyrirtæki og var það töluvert maus, svona er líða tók á. Hallur segir að eðlilega hafi þeir verið upp með sér hvað áhugann varðaði og aðstæður voru frumstæðar hér heima. „Við þurftum að taka upp á gamla mastera t.d. af því að við höfðum ekki efni á nýjum! Það var gaman að fara út að spila og lesa jákvæða gagn- rýni en allt var þetta mjög seigt og þungt í vöf- um. Þessi bið eft- ir einhverju sleit bandinu svolítið út en það er auðvitað gaman að fá hljómgrunn annars staðar en hér.“ Geðveikt Nýju lögin voru tekin upp „læf“ en XIII æfir sitt efni í drep eins og Birgir orðar það. „Það er merkilegt að koma að þessu aftur eftir þessi ár, ég var nýskriðinn yfir tvítugt á sínum tíma. Ég gleðst einfaldlega yfir því að vera í þessum hóp, mér finnst t.d. gaman að fara á Eistna- flug og fylgjast með þessum ungu böndum, maður horfir á þau með stolti, engum metingi eða því um líku. Maður er slakari yfir þessu, í gamla daga tók maður þetta alvar- legra og var meira með lífið í lúk- unum.“ Hallur hvetur sem flesta til að koma á föstudaginn á útgáfu- tónleikana en mjög brýnt sé að sjá sveitina á sviði. „Fólk þarf að fá ölduna yfir sig! Stundum var ég heima með gít- arinn og einhver XIII riff komu upp. Þá hugsaði ég: „Af hverju er ég ekki að spila þetta á tón- leikum!? Þetta er geðveikt!“ Og nú er það loks orðið að veruleika. Eitt sinn rokkari, ávallt rokkari  Hljómsveitin XIII gefur út veglega safnplötu og snýr aftur á tónleikasviðið  „Fólk kann textana okkar utan að!“ segir steinhissa Hallur Ingólfsson Í dag XIII stilla sér upp á dularfullum stað, reiðubúnir að breiða út boðskapinn að nýju. Það eru engar ýkjur í útsendri fréttatilkynningu þegar sagt er að „Black Box er einhver vegleg- asta útgáfa sem komið hefur frá íslenzkri rokkhljómsveit.“ Hallur og félagar hafa að sönnu vandað til verka og bara að handleika gripinn skýtur sæluhrolli niður bak gamals plötusafnara. Auk sjö nýrra laga er að finna valin lög af þremur breið- skífum sveit- arinnar, Salt, Ser- pentyne og Magnifico Nova. Sögu sveit- arinnar eru gerð góð skil í máli og myndum í 32 síðna bæklingi og ennfremur gefst eigendum Black Box kostur á niðurhali á öllu út- gefnu efni XIII á endurhljómjöfn- uðu stafrænu sniði af vef Gogo- yoko. Föstudaginn 17. september verður safnið svo kynnt með glæsilegum tónleikum í Sódómu Reykjavík. Þar verður hægt að fá eintak af Black Box á sérstökum hátíð- arkjörum en þeir félagar, Hallur og Birgir, leggja áherslu á að nýja efnið sé í algerum for- grunni. „Þess vegna er safnið opnað með því,“ útskýrir Hallur. „Þetta er ekki safn með gömlu efni og svo nokkur ný lög í bland. Frekar að þetta sér öfugt. Ný lög og svo fylgja þessi eldri með.“ arnart@mbl.is Með glæsilegri útgáfum SVARTI KASSINN GÓÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.