Morgunblaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010 MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Vönduð vinna og frágangur Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista ✝ Aðalsteinn varfæddur þann 27. desember 1962 á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri og varð bráðkvaddur þann 3. september síð- astliðinn í Hólabæ í Langadal í Húna- vatnssýslu. Fjölskylda hans bjó í Steðja í Hörgárdal er hann fæddist og flutt- ist svo til Akureyrar í desember árið 1967. Foreldrar Aðalsteins voru Ragna Aðalsteinsdóttir f. 29. mars 1926 og Marz Friðjón Rósantsson f. 12. desember 1912, d. 6. júlí 1981. Systkini Aðalsteins: Steinunn f. 1946, maki Jón Ingi Guðjónsson, Marý f. 1948, Helgi f. 1955, maki Hrafnhildur Fríða Gunn- arsdóttir. Guðrún Rósa f. 1957, maki Jóhannes Ágúst Stefánsson. Pétur Viðar f. 1960, Sigríður Dóra f. 1967 maki Sveinn Haraldsson. Aðalsteinn var gift- ur Kolbrúnu Sigurð- ardóttur f. 8. ágúst 1972 og bjuggu þau í Hjallalundi 18 á Ak- ureyri. Aðalsteinn hóf sína skólagöngu í Barna- skóla Akureyrar og fór svo síðar í Verk- menntaskóla Ak- ureyrar. Aðalsteinn stundaði íþróttir í mörg ár og keppti á Ólimpíuleikum ásamt fjölda ann- arra móta, bæði innanlands sem ut- an og vann sér inn fjölda verðlauna á þessum mótum. Aðalsteinn var iðnverkamaður og vann síðast hjá SS Tak á Akureyri. Útför Aðalsteins fer fram í Ak- ureyrarkirkju í dag, 15. september 2010. Elsku Steini bróðir og mágur er farinn. Þú sem varst alltaf svo góður og tilbúinn að aðstoða hvenær sem var ef þú mögulega gast og vildir hjálpa okkur alltaf. Það voru góðar stundir sem við áttum hérna þegar þið Kolla komuð hingað og gistuð hjá okkur elsku bróðir, þá var spilað og við gerðum margt saman. Eftir að þið Kolla fóruð að búa saman minnkaði sambandið á milli okkar en svo kom það aftur sem bet- ur fer. Og slitnaði aldrei eftir það. Þið Gústi minn voruð ofsalega góðir vinir, hann saknar þín mikið eins og við öll, þú stríddir mér oft en bara í góðu, það var allt í lagi. Núna ertu kominn til pabba, Sveinars frænda og ömmu og afa bæði í föðurætt og móðurætt. Guð geymi þig, elsku bróðir og mágur, söknum þín sárt. Þín systir og mágur, Rósa og Ágúst. Það hefur verið sagt að þeir sem guðirnir elska deyi ungir. Elskulegur tengdasonur minn, Aðalsteinn Friðjónsson, tilheyrir án efa þessum hópi ungra manna, en hann lést mjög snögglega langt um aldur fram. Steini minn var einn sá vandaðasti og elskulegasti drengur sem ég hef kynnst á ævinni. Hann kvæntist dóttur minni, Kol- brúnu, 7. ágúst 1999, og hef ég lík- lega aldrei séð jafn hamingjusamt par og þau tvö. Hann elskaði Kollu sína meira en orð fá lýst og hjónaband þeirra var svo innilegt og fölskvalaust að tekið var eftir. Steini var mikill afreksmaður í íþróttum og verðlaunapeningar, bik- arar og viðurkenningar hans skipta tugum. Hann keppti á Ólympíuleikum fatlaðra í Saint Paul 1991 og í Madrid árið 1992 og eðlilega kom Steini minn heim með verðlaun frá báðum stöð- um. Hjálpsemi hans og góðsemi verður seint tíunduð svo vel fari, en hann mátti aldrei vita af nokkrum í vand- ræðum án þess að bjóða fram aðstoð sína og vildi öllum hjálpa af fremsta megni. Steini var mjög mikill dýravinur og elskaði að leika við þau tímunum saman og var tekið eftir hversu auð- velt hann átti að ná nánu sambandi við dýrin. Hann var mjög glaðlyndur og grunnt var á góðlegri stríðni hjá hon- um, en ég held að ég geti fullyrt að skapvonskugenið vantaði algerlega í hann, aldrei sá ég hann öðru vísi en brosandi og í góðu skapi. Steina er sárt saknað og mun minning hans verða hjá okkur öllum um ókomna framtíð. Elsku Kolla mín. Ég veit að Steini okkar mun verða með þér og elska þig að eilífu. Megi Guð og góðu englarnir vaka yfir ykkur báðum um alla tíð. Sigurður Kristinsson. Elsku Steini. Þú hefur verið stór hluti af lífi okk- ar síðan þú kynntist Kollu systur í kringum 1985-90. Þegar þið genguð í það heilaga árið 1999 voruð þið með hamingjusömustu og fallegustu brúðhjónum sem við höfum séð og hafið verið alla tíð síðan. Þú varst einn af þeim hjálpsöm- ustu sem við höfum kynnst. Það var aldrei neitt vesen hjá þér, ef þú varst beðinn um að gera eitthvað, redda einhverju eða aðstoða varstu alltaf boðinn og búinn að gera hlutina og það á skotstundu. Það er reyndar einkennilegt að þegar maður hugsar um hjálpsemi þína, kemur Kolla allt- af líka upp í hugann eða inn í mynd- ina og er það líklega af því að þið voru alltaf sammála og samtaka um að að- stoða við allt og alla, s.s. þú og Kolla voruð heild og verðið alltaf. Þú varst afar góður íþróttamaður og hafðir mjög gaman af alls kyns íþróttum. Þú var duglegur að stunda þær og átt gífurlegt magn verðlauna- gripa sem sanna góða getu þína, meira segja ólympíusilfur. Einnig hafðir þú virkilega gaman að fylgjast með íþróttum. Þú varst mjög dugleg- ur að mæta á fótboltaleiki hjá frænd- systkinum Kollu, Björgvini, Dögg og Aroni og hafðir virkilega gaman af. Engu máli skipti í hvaða liðum þau voru, þú bara hélst með þeim og þeirra liði. Varstu einna stoltastur þegar þeim gekk vel og tókst mikinn þátt í að fagna með þeim. Mörg lýsingarorð eiga við þig Steini okkar, og dettur mér eitt í hug, óeigingirni. Það var ekki til eigin- girni í þér og tókstu alltaf tillit til annarra í fjölskyldunni. Einnig fannst þér afar gott að gefa af þér. Stundum voruð þið eiginlega of gjaf- mild, því ef eitthvað vantaði s.s. eins og verkfæri eða eldhúsáhald, fóruð þið Kolla og keyptuð það einfaldlega. En þú varst líka mjög fljótur í för- um og stundum eiginlega of fljótur á þér. Stundum þurfti að bremsa þig af þar sem þú flýttir þér of mikið, en kannski má vinnugleði þinni og hjálpsemi „kenna“ þar um! Þegar við bjuggum í Danmörku komuð þið Kolla og mamma og voruð hjá okkur í 2 vikur. Sá tími var ynd- islegur og held ég að þið hafið skemmt ykkur afar vel í hita, sól og vellystingum. Við eigum margar góðar minning- ar af honum Steina. Við í minni fjöl- skyldu munum sakna hans mikið, eða Steinmundar eins og ég kallaði hann oft þegar ég var að stríða honum. Við þökkum þér fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman og einnig fyrir allt sem þú hefur gert fyrir Kollu okkar. Við vitum að það var erfitt fyrir þig að fara frá henni og að hún mun sakna þín mikið, en hafðu ekki áhyggjur af henni því við munum sjá til þess að henni líði vel í framtíðinni. Blessuð sé minning þín og hvíl þú í friði. Rúna mágkona, Haukur, Kristinn Arnar, Stella Rún og Björgvin Páll. í byrjun ágústmánaðar, árlega, er það vaninn að Kolla og Steini hafa samband til að fá staðfestingu á því hvenær heimasmölun verði hjá okk- ur. Þau höfðu sín föstu hlutverk hjá okkur. Kolbrún var ráðskonan sem gladdi svanga smalamenn þegar heim var komið og Steini sá um fyr- irstöðuna og hafði sína ákveðnu staði, fór eftir því hvaða svæði var smalað hverju sinni. Það var engin undantekning þetta árið og mættu þau hjónakorn til okk- ar á fimmtudagseftirmiðdegi. Til- hlökkun og eftirvænting var mikil og áttum við fjölskyldan góða kvöld- stund með þeim. Farið var yfir næsta smaladag, talstöðvar gerðar klárar, raðað niður á göngur og Steina sagt hvar hans fyrirstaða væri næsta dag. Kolla og Steini voru búin að koma sér upp góðum smalabúnaði, með fjórar talstöðvar, vatnsbelti og meira til. Á fimmtudagskvöldinu lánaði Steini Bjarna vatnsbelti, hann var með eitt auka, því Steini mundi svo vel hversu þyrstur Bjarni var er hann kom að í fyrra, og ætlaði ekki að láta það koma fyrir aftur. Föstudagurinn rann upp, yndis- legt veður, allt gekk vonum framar og Steini stóð sína vakt með prýði – réttur maður á réttum stað. En eigi skal dag að kveldi lofa, í lok smala- dags var Steini allur. Svo örstutt er bil milli blíðu og éls, og brugðist getur lánið frá morgni til kvelds. (Matthías Jochumsson.) Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Elsku Kolla, móðir, systkini, tengdaforeldrar og aðrir aðstand- endur, okkar dýpstu samúð sendum við ykkur sem hafið misst mikið. Guðs blessun umvefji ykkur og gefa ykkur kærleik og frið. Minning um góðan dreng lifir. Þorbjörg, Pétur, Rúnar Aðalbjörn, Bjarni Salberg og Hugrún Lilja. Aðalsteinn Tómas Friðjónsson Hulda var deildar- ritari með stórum staf. Hún vann á sömu deildinni á Land- spítalanum í þrjá áratugi. Þó að deildin skipti um nafn, 3-D, 14-G, B-7, og væri flutt á milli húsa var Hulda þar. Þetta var hennar deild og hennar fólk, hvort sem það voru sjúklingar eða starfsfólk. Hún mætti mjög snemma og gerði næturvakt- inni oft bilt við, þegar hún byrjaði að laga til og passa að allt væri á sínum stað. Allt sem þurfti til þess að starf okkar hinna gengi snurðulaust fyrir sig. Hún ól okkur líka öll upp í því að ganga vel um og ég hugsa oft til hennar á morgnana þegar ég ósjálf- rátt laga til á vaktinni því Hulda er Þorbjörg Hulda Þorvaldsdóttir ✝ Þorbjörg HuldaÞorvaldsdóttir fæddist á Gamla- Hrauni II, Eyr- arbakka 21. febrúar 1940. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn 23. ágúst 2010. Útför Þorbjargar Huldu var gerð frá Grafarvogskirkju 3. september 2010. ekki búin að því. Hún stjanaði við læknana og ég hugsa að þeir sakni hennar oft þegar þarf að redda ein- hverju því hún tók að sér ólíklegustu hluti. Miklar breytingar áttu sér stað á þessum þrjátíu árum og enda- lausar nýjungar. Hulda var alltaf fljót að tileinka sér þær, t.d. lærði hún á ný tölvukerfi og leið- beindi öðrum. Hulda var mjög stolt af börnum og barnabörnum, það heyrðum við dag- lega. Við sáum líka umhyggjuna þeg- ar barnabörnin komu með okkur í árlega haustferð deildarinnar. Þá stjanaði Hulda við þau, ekki læknana. Það varð tómarúm á deildinni þeg- ar Hulda hætti allt of snemma vegna veikinda. Við söknuðum hennar þá og nú. Blessuð sé minning hennar. Við sendum börnum hennar og barna- börnum innilegar samúðarkveðjur. Fyrir hönd samstarfsfólks, Þóra Árnadóttir. Jæja, gamla mín, nú hefur þú hafið þína vegferð yfir móðuna miklu. Á tímamótum sem þessum renna í gegnum hugskot Erla Elísabet Gísladóttir ✝ Erla ElísabetGísladóttir fædd- ist í Noregi 16. júní 1933. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 27. ágúst 2010. Útför Erlu El- ísabetar fór fram frá Akraneskirkju 7. september 2010. manns minningabrot um liðna tíma, minn- ingar sem gefa lífinu gildi. Við urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga þig að í lífi okk- ar, þær minningar sem þú skilur eftir í hugskotum okkar munum við geyma sem dýrmætar perl- ur. Elsku gamla tanta okkar, þín verður sárt saknað. Karen, Kristján, Baldvin og Jónbjörg Erla. Í örfáum orðum langar mig að senda þér hinstu kveðju, elsku pabbi minn. Ég sem hélt að við myndum fá lengri tíma, tíma til að spjalla meira saman, hlæja saman og rifja upp gamla tíð – þá tíð er við áttum svo góðar samverustundir. Mig svíður í hjartað og finnst ég hafa verið of upptekin og ekki gefið okkur meiri tíma undir það síðasta. Það er svo margt sem ég vildi að ég hefði gert betur, svo margt sem ég vildi segja þér, spyrja þig um og gera með þér eins og t.d að skreppa á Snæ- fellsnesið því ég vissi að þú þráðir að komast þangað einu sinni enn, á þínar æskuslóðir. Þér þótti verulega vænt um Snæ- fellsnesið og þangað fórum við oft í gegnum árin og alltaf ljómaðir þú á þeim slóðum. Gaman var að fara út í Flatey þar sem þú varst fæddur, en sá staður átti alveg sérstakan sess í Eyjólfur Lárusson ✝ Eyjólfur Lárussonfæddist í Flatey á Breiðafirði 25. sept- ember 1936. Hann andaðist á heimili sínu 5. september 2010. Útför Eyjólfs fór fram frá Bústaða- kirkju 14. september 2010. hjarta þér. Þér fannst verulega gaman að ferðast um landið og alltaf gat maður spurt þig um hina og þessa staði, þú vissir þetta allt. Gaman var oft að heyra þig segja frá einhverju því húmor- inn var ávallt með og glettni í orðum. Þú varst skynsamur mað- ur og ráðlagðir manni oft margt gott. Ég er þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman og minningarnar munu ylja mér um ókomna tíð. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. (Valdimar Briem.) Þín, Margrét.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.