Morgunblaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010
Orð eru svo mátt-
lítil á svona stundu.
Minningar eru yndis-
legar en núið nötur-
legt, fullt af sorg og
brostnum hjörtum.
Allar tilfinningar blandast saman
sorg, reiði og góðar stundir. Jó-
hanna elskaði lífið sem hún barðist
svo hetjulega fyrir að mann setur
hljóðan að mannlegur máttur geti
afrekað annað eins.
Það sem einkenndi Jóhönnu var
þetta fallega rauðleita hár og ró-
legt yfirbragð. Hún var hörkudug-
leg hvort sem var í hesthúsinu eða
bauð krafta sina fram í veisluund-
irbúningi sem hún var snillingur í.
Tímaþröng og stress var óþekkt og
virtist hún alltaf hafa tíma aflögu í
kaffibolla og spjall. Hún var mikill
fjörkálfur og naut sín í góðra vina
hópi. Hestaferðir, afmæli og aðrar
samverustundir voru fullar af fjöri
og skemmtilegum uppákomum sem
munu geymast um ókomna tíð.
Kærri vinkonu þökkum við sam-
fylgdina með ljóðabroti Einars H.
Kvarans.
Nú er ei annað eftir
en inna þakkar-mál
og hinstri kveðju kveðja
þig, kæra, hreina sál.
Fjölskyldunni allri sem hefur
þurft að ganga í gegnum erfiða
tíma og áföll vottum við okkar
dýpstu samúð og biðjum Guðs
blessunar.
Gunnar og Bogey.
Hún Jóhanna er dáin eftir langa
en kraftmikla baráttu. Eitt það
fyrsta sem kemur upp í huga minn
þegar ég hugsa til baka til Jóhönnu
er jákvæðni. Hún var uppeldissyst-
ir mín og ég man ekki eftir öðru en
Jóhönnu brosandi og var hún alltaf
til í allt. Hún var mjög hjálpsöm og
margt til lista lagt. Þær eru marg-
ar veislur bæjarins sem höfðu
hennar kökur á borðum og borð-
skreytingar í stíl og húsin sem hafa
gardínur saumaðar eftir hana. Þeg-
ar nálgast tók desember ár hvert
var alltaf spenna í loftinu því Jó-
hanna tók jólaskreytingarnar mjög
alvarlega, spennandi var að vita
hvaða þema var í gangi hvert ár.
Stóra jólatréð hennar var fallega
skreytt og allt varð að vera í stíl og
að koma í heimsókn í desember var
eins og að koma í jólaland … mikill
metnaður lagður í að gera allt sem
huggulegast. Jóhönnu fannst gam-
an að vera innan um fólk og jafnvel
þó að hún væri orðin alvarlega veik
lét hún það ekki aftra sér frá að
sækja mannfagnaði. Hún naut þess
líka að vera með fjölskyldunni,
hvort sem um veislur var að ræða,
Jóhanna Valgeirsdóttir
✝ Jóhanna Valgeirs-dóttir fæddist 20.
mars 1961 í Keflavík.
Hún andaðist sunnu-
daginn 5. september á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja.
Útför Jóhönnu var
gerð frá 10. sept-
ember 2010.
ferðalög eða hist var
yfir kaffibolla á
Reykjanesveginum.
Það hvílir nú mikil
sorg hjá okkur öllum
við missi Jóhönnu,
aðeins rúmum fjórum
mánuðum eftir að
amma Lalla lést, en
huggunin felst í því
að nú eru þær mæðg-
ur saman á betri stað
og öll mein farin.
Megi guð styrkja
okkur öll í sorginni,
mínar innilegustu
samúðarkveðjur Leifur, Gulli, Rak-
el, Freydís, Marel, Aron Logi, Valli
og fjölskylda.
Susan Wilson.
Kveðjustund er erfið, þegar að-
ein 49 ára starfsöm kona er kvödd
hinstu kveðju. Jóhanna hóf störf á
saumastofu Álnabæjar 1983 og
1992 var ráðin verkstjóri. Við nut-
um starfskrafta hennar þar til í maí
2009 en þá voru veikindi hennar
orðin það slæm að hún gat ekki
starfað lengur. Jóhanna var já-
kvæð, ósérhlífin og vinnusöm. Hún
hafði jafnaðargeð og það voru aldr-
ei nein vandræði í kringum hana.
Allir sem unnu með henni bera
henni gott orð.
Við fórum í ógleymanlega ferð til
Noregs að skoða og kynna okkur
rekstur á saumastofum. Þar kom
best í ljós að hún var rétta mann-
eskjan til að vera verkstjóri. Henni
þótti mjög gaman í samkvæmum
og skemmti sér alltaf vel. Allar
skemmtilegu árshátíðarnir sem við
áttum samleið og samheldnin á öll-
um sem unnu á saumastofunnu var
okkur mikil fyrimynd og gleði. Þær
voru miklar stuðkonur og létu sér
ekki leiðast. Oft var mikið að gera
og aldrei kvartaði Jóhanna undan
álagi, þetta er bara verkefnið og
það var unnið án mikilla orða. Mikil
reglusemi og nákvæmni var henni í
blóð borin og hún var ekki ánægð
nema allt gengi upp eins og við-
skiptavinurinn óskaði eftir.
Við erum hjartanlega þakklát
fyrir öll þau 28 ár sem við höfum
átt samleið og fyrir allt það sem þú
hefur gert fyrir okkur og kennt
okkur. Við og allir starfsmenn
Álnabæjar vottum allri þinni fjöl-
skyldu okkar dýpstu samúð.
Kæri Leifur, Gulli og Freydís,
ykkar missir er mikill, megi ljós
Guðs vera með ykkur.
Kæri Valgeir, þetta hefur verið
erfitt ár hjá þér. Við biðjum Guð
um að vernda þig og leiða um
ókomna framtíð. Guð blessi ykkur
öll.
Guðrún Hrönn og Magni.
Okkur langar til að minnast
elskulegrar samstarfskonu okkar
og þakka henni fyrir allan þann
dýrmæta tíma sem við áttum með
henni. Þessi tápmikla og duglega
kona barðist hetjulegri baráttu við
vágestinn mikla með bjartsýni og
bros að vopni en varð að lokum að
láta undan síga. Dugnaður hennar
og lundarfar var með ólíkindum.
Elsku Jóhanna, þú varst ávallt
jákvæð og uppörvandi; sannkallað-
ur sólargeisli kærleikans.
Ljósið flæðir enn um ásýnd þína:
yfir þínum luktu hvörmum skína
sólir þær er sálu þinni frá
sínum geislum stráðu veginn á.
Myrkur dauðans megnar ekki að
hylja
mannlund þína, tryggð og fórnarvilja
– eftir því sem hryggðin harðar slær
hjarta þitt er brjóstum okkar nær.
Innstu sveiflur óskastunda þinna
ennþá má í húsi þínu finna –
þangað mun hann sækja sálarró
sá er lengst af fegurð þeirra bjó.
Börnin sem þú blessun vafðir þinni
búa þér nú stað í vitund sinni:
alla sína ævi geyma þar
auðlegðina sem þeim gefin var.
Þú ert áfram líf af okkar lífi:
líkt og morgunblær um hugann svífi
ilmi og svölun andar minning hver
– athvarfið var stórt og bjart
hjá þér.
Allir sem þér unnu þakkir gjalda.
Ástúð þinni handan blárra tjalda
opið standi ódauðleikans svið.
Andinn mikli gefi þér sinn frið.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Við sendum ástvinum hennar
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Lára, Ása og Hulda.
Nú kveðjum við elskulegu vin-
konu okkar með sorg og söknuði.
Jóhanna var einstök manneskja,
umhyggjusöm, hörkudugleg, góður
vinur vina sinna og mikil hetja.
Við viljum þakka þér fyrir allar
þær góðu stundir sem við áttum
saman, hvort sem það var við eld-
húsborðið heima eða í ferðalögum.
Þessar góðu minningar munum við
ávallt geyma í hjörtum okkar.
Með þessum fáu orðum viljum
við kveðja þig, Jóhanna mín.
Guð geymi þig.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefjir blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sér horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð
(Þórunn Sigðurðardóttir.)
Fyrir góða vináttu vottum við
Leif eiginmanni Jóhönnu, börnum
þeirra og fjölskyldum þeirra okkar
innilegustu samúðarkveðjur
Hvíl í friði.
Þín vinkona,
Kristín Guidice og fjölsk.
Við LC-6 systur viljum þakka Jó-
hönnu fyrir einstaklega skemmti-
legar samverustundir. Krafturinn
og gleðin sem hún Jóhanna bar
með sér lét engan ósnortinn. Árið
2006-2007 starfaði hún sem for-
maður klúbbsins þrátt fyrir veik-
indin.
Hennar verður minnst sem já-
kvæðrar, sterkrar og lífsglaðrar
hetju.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Við vottum fjölskyldu og vinum
okkar dýpstu samúð. Megi góður
Guð styrkja ykkur í sorginni.
Fyrir hönd LC-6 systra,
Þórey og Svanhildur.
Mamma mín.
Mig langar að
kveðja þig með þessu
litla ljóði, með þakk-
læti fyrir allt.
Ég veit að pabbi
hefur tekið vel á móti
þér.
Kristjana Margrét
Sigurpálsdóttir
✝ Kristjana Mar-grét Sigurpáls-
dóttir fæddist 16. maí
1921. Hún lést 22. júlí
2010.
Útför Kristjönu fór
fram 28. júlí 2010.
Þín er sárt saknað.
Með ástarþökk ertu
kvödd í hinsta sinni hér,
og hlýhug allra vannstu
er fengu að kynnast
þér.
Þín blessuð minning
vakir og býr í vina-
hjörtum
á brautir okkar stráðir
þú yl og geislum
björtum.
(Ingibj. Sig.)
Þín dóttir,
Sigrún.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNLAUGUR SNÆDAL
læknir,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn
20. september kl. 13.00.
Jón Snædal, Guðrún Karlsdóttir,
Kristján Snædal, Sólrún Vilbergsdóttir,
Gunnlaugur G. Snædal, Soffía Káradóttir,
barnabörn og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
FJÓLA ÓSKARSDÓTTIR,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
sem andaðist miðvikudaginn 1. september, verður
jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði fimmtu-
daginn 16. september kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er góðfúslega bent á FAAS og önnur
líknarfélög.
Elías Andri Karlsson, Bára Ólafsdóttir,
Ómar Sævar Karlsson, Fjóla Valdimarsdóttir,
Óskar Gísli Karlsson, Vildís Halldórsdóttir,
Sólbjörg Karlsdóttir,
barnabörn, langömmubörn
og langalangömmubarn.
✝
Okkar kæra,
BENNÝ SIGURÐARDÓTTIR
hússtjórnarkennari,
Skúlagötu 40,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans Landakoti
laugardaginn 4. september, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 17. september
kl. 15.00.
Sigríður Á. Pálmadóttir, Guðmundur I. Sigmundsson,
Björn Orri Guðmundsson, Bergur Már Guðmundsson,
Sigrún Sigurðardóttir, Sigurður Magnússon.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi, lang-
afi og langalangafi,
RÓSMUNDUR SIGURÐSSON,
andaðist á Sólvangi í Hafnarfirði miðvikudaginn
8. september.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn
16. september kl. 11.00.
Rósmundur H. Rósmundsson, Guðbjörg Oddsdóttir,
Richard Henry Eckard, Oddný Guðjónsdóttir,
Elísabet Kolbrún Hansdóttir, Hafsteinn Guðmundsson,
systkini, afabörn, langafabörn
og langalangafabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN FRIÐRIKSSON
húsasmíðameistari,
Torfufelli 48,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 11. september.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 17. september kl. 11.00.
Concordía Konráðsdóttir,
Friðrik Kristjánsson, Dagmar Huld Matthíasdóttir,
Kristján Kristjánsson, Thelma Ásdísardóttir,
Regína Kristjánsdóttir, Stefán Sigurðsson,
Konráð Kristjánsson,
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, Óli Halldór Sigurjónsson,
Einar Þór Kristjánsson, Anna Tivell
og barnabörn.