Morgunblaðið - 15.09.2010, Qupperneq 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010
Hlýr, hress og glað-
legur í viðmóti með
góða kímnigáfu og frá-
sagnargleði, góður fé-
lagi og vinur, gestris-
inn, vinsæll og vinmargur. Þessi orð
lýsa mörgum af þeim góðu eingin-
leikum sem einkenndu Sigurð Ólafs-
son, en hann lést 4. september síð-
astliðinn á 67. aldursári.
Sigurður greindist með berkla
þegar hann var um 14 ára gamall.
Var hann þá sendur á Berklahælið á
Vífilsstöðum ásamt móður sinni og
tveimur systkinum, sem einnig höfðu
smitast af berklum. Systkini hans
hresstust fljótlega og fengu að fara
heim, en hann og móðir hans voru
lengur að ná fullum bata og dvöldu
því lengur á Vífilsstöðum. Þetta varð
til þess að leiðir Sigurðar og Ingunn-
ar Elísabetar Viktorsdóttur, frænku
minnar, lágu saman, en Ingunn bjó
þá í foreldrahúsum á Vífilsstöðum.
Ég sá Sigurð fyrst veturinn 1959-
60, þegar ég bjó hjá foreldrum henn-
ar, Guðrúnu Ingvarsdóttur og Vikt-
ori Þorvaldssyni. Þá voru þau Ing-
unn og Sigurður góðir vinir sem
hittust oft á kvöldin eða um helgar.
Sigurði kynntist ég þó fyrst mörgum
árum seinna. Hann og Ingunn voru
þá gift og bjuggu um tíma í sama
húsi og ég í Hafnarfirði. Ég minnist
margra unaðsstunda með þeim, t.d. í
ógleymanlegum veiðiferðum að Hlíð-
arvatni á Snæfellsnesi þar sem við
nutum útiverunnar og náttúrunnar
eða þegar þau buðu mér með sér í
ferðalag vestur að Arnarstapa á
Snæfellsnesi, þar sem veðrið lék við
okkur. Þau hjónin og börn þeirra
komu líka stundum í heimsóknir á
æskuheimili mitt að Desjarmýri á
Borgarfirði eystra. Ég minnist t.d.
ánægjulegra samverustunda þar
sumarið 1972. Þá fórum við Sigurður
meðal annars í veiðiferð inn að
Gæsavötnum á Desjarmýrarrétt og
veiddum þar þá stærstu silunga sem
ég hef séð, en Sigurður var skemmti-
legur og góður veiðifélagi.
Sumarið 2008 komu þau hjónin
austur á ættarmót á Desjarmýri
ásamt börnum sínum og fjölskyldum
þeirra. Þar naut Sigurður sín vel og
söng manna mest við brennuna um
kvöldið. Hann hafði sagt mér að
hann hlakkaði mest til að fara til
Loðmundarfjarðar. Þangað fór hann
líka á síðari degi ættarmótsins ásamt
Ingunni, Guðrúnu tengdamóður
sinni og fleira fólki, en það var há-
punktur ferðalagsins austur að hans
mati.
Síðustu árin sem Sigurður lifði
hrakaði heilsu hans mjög og hann lá
oft á sjúkrahúsum, en alltaf átti hann
vísan stuðning Ingunnar, konu sinn-
ar, sem stóð með honum í blíðu og
stríðu.
Ég sendi að lokum innilegar sam-
úðarkveðjur til minnar kæru
frænku, Ingunnar Elísabetar, til
barna þeirra Sigurðar og fjölskyldna
þeirra og annarra vandamanna.
Guðgeir Ingvarsson.
Sigurður Ólafsson
✝ Sigurður Ólafssonfæddist í Hafn-
arfirði 20. maí 1944.
Hann lést á heimili
sínu 4. september
2010.
Útför Sigurðar var
gerð frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði 14. sept-
ember 2010.
Sigurður Ólafsson
afi okkar er farinn.
Á stund sem þessari
er gott að eiga góðar
minningar og með
bros á vör rifjum við
barnabörnin upp
ógleymanlegar minn-
ingar sem aldrei munu
gleymast.
Það var alltaf jafn
skemmtilegt að fara í
heimsókn til afa og
ömmu, hvort sem það
var heim til þeirra á
Sævanginn eða í
Skipalónið, kíkja á slökkvistöðina
þar sem við fengum heitt kakó og
prófa tækin sem þar voru til staðar.
Einnig var farið í marga hafnarrúnta
sem enduðu í ísbúðinni, kíkt á smíða-
verkstæðið og svo var komið við á
Kænunni til að fá sér eitthvað gott í
gogginn.
Hann afi okkar var ekki bara
slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður
og handlaginn smiður heldur starf-
aði hann einnig með björgunarsveit-
inni. Nú á seinni árum tók hann
áfram þátt í flugeldasölunni og
sleppti þar ekki úr einu ári. Hvort
það var ánægjan af því að afla fjár
fyrir björgunarsveitina eða barnið í
honum sem dreif hann áfram þá
hafði hann mikinn áhuga á að taka
þátt í henni. Afi var sprengjuglaður
með meiru og í okkar huga algjör
sprengjusérfræðingur og þar með
urðu áramótin hápunktur okkar allra
með honum.
Sumarbústaðarferðirnar upp í Sel
með afa og ömmu voru ómetanlegar
sem og allar veiðiferðirnar. Hvernig
hann japlaði á rauðum Ópal á leiðinni
og söng hástöfum með gamalli dæg-
urtónlist við mismikla lukku hinna
farþeganna. Þannig munum við ein-
mitt eftir afa: ungur í anda, prakkari,
dellukall, sælkeri og alltaf hægt að fá
hann út í ýmiss konar vitleysu. Hann
hafði alveg einstakt lag á að kæta
ungar sálir með uppátækjum sínum
og húmor. Hann afi kenndi okkur
margt og þá sérstaklega að ekkert
verk væri þess vert að vinna nema
maður ynni það vel og höfum við öll
tileinkað okkur hans einkunnarorð
sem veganesti fyrir lífið.
Afi, þín verður sárt saknað, þú
varst góður maður og hugsaðir vel
um okkur barnabörnin og gafst þér
alltaf tíma fyrir okkur. Við munum
deila minningum okkar um þig með
komandi kynslóðum. Takk fyrir að
vera þú, afi.
Barnabörn,
Lúðvík, Sigurður Grétar, Viktor
Ingi, Ingunn Elísabet, Sæmund-
ur Bjarni, Viktoría Valdís,
Viðar Elí og Veigar Orri.
Fallinn er frá góður félagi.
Sigurður Ólafsson eða Siggi Óla
eins og hann var ávallt kallaður hef-
ur í gegnum tíðina markað djúp spor
í starf okkar björgunarsveitarfólks í
Hafnarfirði. Lítillátur var hann en
gjöfull á tíma sinn og þekkingu.
Framlag hans í þágu sveitarinnar er
dýrmætt þeim sem þar starfa í dag.
Siggi Óla gegndi starfi bílstjóra inn-
an sveitarinnar um árabil, það starf
leysti hann afar vel af hendi. Ásamt
því starfi tók hann alltaf ríkan þátt í
öllu því sem þurfti að sinna á hverj-
um tíma. Nú um síðastliðin áramót
lét Siggi Óla ekki flugeldavinnuna
framhjá sér fara, mættur í hús líkt og
áratugina þar á undan. Tengslin hafa
þannig ávallt verið mikil og ekki síst
vegna þess að fjölskyldan öll hefur
verið mikilvægur partur af starfi
okkar. Börn hans og barnabarn
fylgdu honum í þetta starf og Ingunn
eiginkona hans hefur einnig fylgt
Sigga Óla í starfinu, sér í lagi í kring-
um hans hugarfóstur sem voru flug-
eldarnir. Það kann að hljóma und-
arlega að brunavörðurinn væri
jafnframt verslunarstjóri í einum af
stærstu flugeldasölustöðum lands-
ins, en það sýnir hvað best áræðni
Sigga Óla í því að vera öflugur með-
limur í þeim félagsskap sem hann
tók þátt í að skapa.
Við félagar í Björgunarsveit Hafn-
arfjarðar munum ávallt minnast
Sigga Óla fyrir hans félagsskap og
óeigingjörnu störf.
Viljum við senda Ingunni, Krist-
ínu, Viktori og Guðrúnu Lísu okkar
dýpstu samúðarkveðjur sem og öðr-
um fjölskyldumeðlimum.
Fyrir hönd félaga í Björgunarsveit
Hafnarfjarðar,
Júlíus Þór Gunnarsson.
Nú er tengdafaðir okkar, Siggi
Óla, allur. Hann var góður tengda-
faðir, mikill félagi og vinur.
Það má segja um Sigga Óla að alla
tíð sýndi hann áhuga og vilja til að
fylgjast með börnum sínum tengda-
börnum og barnabörnum. Velferð
niðja hans var honum mikils virði og
stuðlaði hann að því með góðum ráð-
leggingum og handleiðslu ásamt því
að leggja hönd á plóg ef á þurfti að
halda. Hjá Sigga Óla lærðum við
meðal annars að meta gildi fjölskyld-
unnar á lífsins göngu og nú þegar við
kveðjum þennan mikla höfðingja
finnum við hversu gott það er að
tengjast öll, ekki bara fjölskyldu-
böndum heldur einnig vinaböndum.
Hann miðlaði af þekkingu og kunn-
áttu við smíðar, múrverk og ýmis
störf sem féllu til hvort heldur á
heimilum okkar eða í Seli og alltaf
jafnviljugur að taka þátt í þeim. Ekki
má gleyma grill- og matreiðslu-
kennslu því Siggi Óla var kokkur
góður og mikill sælkeri. Frá
viðburðaríkri ævi gat Siggi Óla
löngum stundum sagt okkur sögur
frá æsku sinni, fjölskyldu, veru á Víf-
ilsstöðum, smíðavinnu í Dröfn og
ferðum með Fiskakletti, Litla leyni-
félaginu, einstaka veiðitúrum og
ferðalögum um land allt ásamt fjöl-
skyldu og vinum. Við upplifðum álíka
ferðalög undanfarin 20 ár þar sem
Siggi Óla fór á kostum við staðar- og
mannlýsingar en hann þekkti vel
staðhætti og fólk í flestum sveitum.
Gáski og glaðværð Sigga Óla fylgdu í
ferðalögum okkar sem smituðu allt
samferðafólk.
Það voru allir jafnir fyrir Sigga
Óla og hver einstaklingur hafði eitt-
hvað gott fram að færa, hann taldi
alla bera einhverja kosti og gat oft
bent á þá kosti ásamt því að hvetja
aðra til að meta þá. „Ég á góða vini,“
sagði Siggi Óla fyrir nokkru enda var
hann vinmargur og vinur margra.
Segja má að nánast við fyrstu kynni
hafi hann orðið sá vinur okkar
tengdabarna hans sem við best gát-
um kosið.
Bestu þakkir Siggi Óla fyrir það
hversu vel þú tókst okkur í fjölskyldu
þína, þín verður sárt saknað, en við
munum minnast þín með gleði í
hjarta.
Takk fyrir allt.
Sæmundur, Viðar
og Ásthildur Elín. ✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæru
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SOFFÍU AÐALBJARGAR BJÖRGVINSDÓTTUR,
Obbu,
Skógarbæ,
Árskógum 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ fyrir frábæra umönnun og hlýju í hennar
garð.
María Björg Jensen, Jón Ingi Guðjónsson,
Birgir V. Sigurðsson, Inga Skaftadóttir,
Erlín Linda Sigurðardóttir, Guðjón Sigurbjörnsson,
Gréta Ósk Sigurðardóttir, Guðmundur Ármannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til ykkar allra sem hafið sýnt okkur
samhug, stuðning, hjálpsemi og vináttu eftir fráfall
dóttur okkar, systur, barnabarns og frænku,
ÁSTRÍÐAR TÓMASDÓTTUR
og minnst hennar af hlýju og vinsemd.
Ásta Svavarsdóttir, Tómas R. Einarsson,
Kristín Svava Tómasdóttir,
Ása Bergný Tómasdóttir,
ömmur og afar,
frænkur og frændur.
Nú í byrjun vetr-
arstarfs okkar sökn-
um við félagarnir í Lionsklúbbi
Hafnarfjarðar, góðs vinar og ötuls
liðsmanns. Garðar Halldórsson féll
frá á miðju sumri, þegar veður var
fallegt og sólin hátt á lofti. Það eitt
og sér er táknrænt fyrir Garðar og
verk hans fyrir Lionsklúbbinn okk-
ar.
Hann var stór á öllum sviðum,
bæði á velli og í verkum sínum fyr-
ir klúbbinn. Í yfir fjóra áratugi var
hann einn af okkar helstu og bestu
fánaberum í leik og starfi. Engu
máli skipti hvaða verk honum voru
falin, hann rækti þau alltaf af mik-
illi einurð og samviskusemi, svo
eftir því var tekið. Sífellt hlóðust
því á hann fleiri og ábyrgðarmeiri
störf.
Garðar var kjörinn til helstu
embætta í klúbbnum og var meðal
annars formaður hans. Fyrir þessi
miklu og óeigingjörnu störf sín var
hann gerður að „Melvin Jones“-
félaga, það er æðsta viðurkenning
sem Lionsklúbbur getur veitt fé-
laga sínum. Viðurkenningin var
staðfest með myndarlegu fjárfram-
lagi til Alþjóða hjálparsjóðs Lions
Garðar Halldórsson
✝ Garðar Hall-dórsson fæddist í
Reykjavík þann 4.
nóvember 1928. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í Kópa-
vogi aðfaranótt 15.
júní.
Útför Garðars var
gerð frá Hafnarfjarð-
arkirkju 22. júní
2010.
og er tengd þar heið-
urssjóði í nafni Melv-
in Jones, stofnanda
Lionshreyfingarinn-
ar.
Á gleðistundum í
klúbbnum var Garðar
jafnan hrókur alls
fagnaðar og naut
hann sín vel í góðra
vina hópi. Á konu-
kvöldum, árshátíðum
og vorferðum var
Sigrún kona hans
jafnan með og tók
hún ríkan þátt í starfi
klúbbsins með Garðari, meðan
hennar naut við.
Öllum mönnum er hvatning að
starfa með fólki eins og Garðari
Halldórssyni. Slíkir eldhugar sem
hann var eru alltaf leiðandi og gera
okkur hinum lífið auðveldara.
Garðar var vel máli farinn og rök-
fastur, hann átti því auðvelt með að
lýsa skoðunum sínum og gera grein
fyrir þeim. Ekki er öllum gefin sá
eiginleiki sem Garðar hafði, að fá
menn til að hlusta, allt datt í dúna-
logn á fundum þegar hann kvaddi
sér hljóðs, þá vissu menn að nú
vildi hann segja eitthvað sem máli
skipti og vert væri að taka vel eftir.
Það væri óðs manns æði og í
raun engum manni fært að ætla
sér, að tíunda alla kosti Garðars
Halldórssonar, því verður það ekki
reynt hér. Við félagarnir söknum
Garðars og eigum góðar minningar
um hann.
Við vottum fjölskyldu Garðars
samúð okkar og minnumst góðs
drengs.
F.h. Lionsklúbbs Hafnarfjarðar,
Halldór Svavarsson.
Elsku frænka mín
og ein besta vinkona,
Rúna. Það var eins
og að fá högg í
hjartastað þegar Erla systir þín
hringdi og sagði mér að þú værir
dáin, það var svo óvænt og óvægið.
Mér komu í hug nokkrar ljóð-
línur, sem hljóða svona:
Lífið er fljótt;
líkt er það elding sem glampar um
nótt
ljósi, sem tindrar á tárum,
titrar á bárum.
(Matthías Jochumsson.)
Kristrún
Guðmundsdóttir
✝ Kristrún Guð-mundsdóttir
fæddist í Hafnarfirði
7. október 1945. Hún
lést á heimili sínu 1.
september 2010.
Útför Kristrúnar
fór fram frá Graf-
arvogskirkju 13. sept-
ember 2010.
Við höfum gengið
saman veginn frá því
að við fæddumst og
ég er afar þakklát
fyrir að hafa átt vin-
áttu eins og þína. Þú
varst einstök, heiðar-
leg, dugleg, gáfuð og
ekki síst góð mann-
eskja.
Þó þú sért dáin er
lífi þínu ekki lokið,
því þú lifir áfram í
börnunum þínum,
barnabörnum og
minningunum sem
allir ástvinir þínir eiga eftir um
þig og þá ekki síst í minningum
Geira, mannsins þíns.
Við vottum Geira, börnum og
allri fjölskyldu þinni, okkar dýpstu
samúð.
Ég þakka fyrir allt, elsku hjart-
ans frænka mín og vinkona. Ég
elska þig af öllu hjarta.
Kveðja,
Soffía V. Jónsdóttir (Sossa)
og fjölskylda.
Morgunblaðið birtir minningargrein-
ar endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á
reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is
og viðeigandi efnisliður valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar