Morgunblaðið - 15.09.2010, Síða 32
Felulitirnir þurfa að víkjafyrir þeim skæru,“ segirÓlafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Selfossi. Þegar
rjúpnaveiðin hefst í nóvember hef-
ur oft hent að
skyttur týnist
þannig að björg-
unarsveitir þurfi
að fara af stað
með víðtækri
leit.
Útköll flestar
helgar
„Flestar helg-
ar á haustin
meðan veiði-
tímabilið stendur yfir hafa lög-
regla og björgunarsveitir þurft að
sinna verkefnum þegar rjúpna-
skyttur heltast úr lestinni, skila
sér ekki til byggða á áætluðum
tíma og svo framvegis,“ segir Ólaf-
ur Helgi sem telur nauðsynlegt að
nú verði málum mætt með nýjum
hætti. Hann hefur því rekið áróður
fyrir því að veiðimenn klæðist
skærgrænum eða appelsínulitum
endurskinsvestum þegar gengið sé
til rjúpna. Slíkt dragi úr líkum á
því að skyttur týnist og það auð-
veldi jafnframt leit björgunarsveit-
armanna ef til þess kemur
„Þetta er ekki bara mál veiði-
mannanna sjálfra. Ef þeir týnast
varðar það fjölskyldur þeirra sem
og hjálparsveitir og sjálfboðaliða
sem þær skipa. Stundum fara þús-
undir vinnustunda í einstök leit-
arverkefni,“ segir Ólafur Helgi.
Hann vísar í þessu sambandi meðal
annars til leitar að rjúpnaskyttu
sem týndist á Skáldabúðaheiði í
uppsveitum Árnessýslu haustið
2008 og fannst ekki fyrr en á vor-
dögum árið eftir.
Breytt viðhorf
Ólafur Helgi telur að hljóm-
grunnur sé fyrir þessari hugmynd.
Hugarfar veiðimanna sé að hans
dómi breytt frá því sem var; magn-
veiðar tíðkist varla lengur og nú
Vill skyttur í
skærum litum
Morgunblaðið/Ernir
Skytta í skógi Vestið gerir gæfumuninn. Villist veiðimaðurinn á regin-
fjöllum að haustnóttum finnst hann væntanlega fyrr klæddur í skæra liti.
Ólafur Helgi
Kjartansson
Æskilegt er að skyttur á fjöllum séu í grænum eða
appelsínugulum vestum, að mati sýslumannsins á Sel-
fossi. Hugarfar veiðimanna hefur tekið breytingum.
gangi menn til rjúpna sér einkum
og helst til skemmtunar og því
ætti þá að fylgja meiri og betri vit-
und um þau atriði sem auki ör-
yggi.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Rjúpur Víða sjást rjúpur, bæði uppi til fjalla og stundum líka í þéttbýlinu, þar sem engum dytti í hug að skjóta á þær.
„Flestar helgar á haustin
meðan veiðitímabilið stend-
ur yfir hafa lögregla og
björgunarsveitir þurft að
sinna verkefnum þegar
rjúpnaskyttur heltast úr
lestinni, skila sér ekki til
byggða á áætluðum tíma og
svo framvegis.“
Hreindýraveiðin í sumarhefur gengið vel, endaþótt austlægar áttir ogþoka sem legið hefur
yfir hér niðri á fjörðum hafi sett
talsvert strik í reikninginn,“ segir
Sævar Guðjónsson, hreindýraleið-
sögumaður á Mjóeyri við Eski-
fjörð. Þau Berglind Steina Ingv-
arsdóttir, eiginkona hans, reka þar
ferðaþjónustu og er þjónusta við
veiðimenn gildur þáttur í starfsemi
þeirra.
Harðsótt á heiðum
„Vegna veðráttu hafa hreindýr á
Fljótsdalsheiði ekki haldið sig á
þeim slóðum þar sem venjan er.
Því hefur veiðin þar verið nokkuð
harðsóttari en gjarnan gerist. Þá
er búið að stöðva veiðar á svæði 9 í
kringum Hornafjörð og suður á
Mýrum þar sem fá dýr hafa sést á
því svæði í haust,“ segir Sævar
sem í haust sem endranær hefur
einkum farið með hópa hreindýra-
veiðimanna um svonefnt svæði 5
sem nær yfir Gerpissvæðið svo-
kallaða; það er Eskifjörð, Vöðlavík,
Hellisfjörð, Viðfjörð, Barðsnes og
fleiri nærliggjandi slóðir. Einnig
hefur hann farið með hópa í
Hjaltastaðaþinghá, suður í Foss-
árdal sem og á Fljótsdalsheiðina.
Kvóti í níu hólfum
Hreindýraveiðitímabilið hófst
hinn 15. júlí. þegar veiði á törfum
hófst og kýrnar máttu menn byrja
að skjóta 1. ágúst. Veiðitímabilinu
lýkur nú í september.
Heildarkvóti þessa árs eru alls
1.272 dýr en veiðisvæðinu sem nær
frá Vopnafirði og í Suðursveit er
skipt upp í níu hólf. Ákveðinn
kvóti gildir um hve mörg dýr má
veiða í hverju hólfi um sig. Hvar
menn bera niður þurfa veiðimenn
að tilgreina í umsókn til Umhverf-
isstofnunar og er tilgreint þegar
og ef þeir fá veiðileyfi úthlutað. Í
fyrsta skipti í ár er bannað að
veiða kálfa með kúnum.
„Veðráttan hefur haft þau áhrif
að Fljótsdalsheiðin hefur að
nokkru leyti brugðist væntingum
manna. Dýrin halda sig ekki þar
sem þeirra hefur helst verið að
vænta; hjarðirnar eru austar og
sunnar svo sem á Múlunum sem
svo eru kallaðir og á Hraunum við
Maður þarf
nánast að
grípa í gikkinn
Veðrátta hefur gert hreindýraveiðina harðsótta.
Dýrin halda sig sunnar en áður en heildarkvóti ársins
eru 1.272 dýr. Annasamt hjá leiðsögumönnum.
Ljósmynd/Sævar Guðjónsson.
Kátir Ánægðir veiðimenn með í fjörunni við Rauðubjörg á Barðsnesi. Tals-
vert er af hreindýrum á Gerpisssvæðinu, en sýnu meira upp á heiðunum.
Leiðsögumaður Sævar Guðjónsson
hefur í áraraðir farið upp um fjöll
og fyrnindi með skyttur.
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010
Skotveiði
Nú í vikunni fer fram í fyrsta skipti
hérlendis kvennakeppni í haglabyssu-
skeet sem heitir Ladies Grand Prix.
Mótið fer fram á völlum Skotfélags
Reykjavíkur á Álfsnesi Keppendur á
mótinu eru sex íslenskar skotkonur
og fjórán erlendar. Keppt er bæði
föstudaginn 17.september, en þá
hefst keppnin kl.10:00 og síðan laug-
ardaginn 18. september kl.11:00.
Skotnir verða 3 hringir, það er 75
leirdúfur, hvorn daginn og síðan er
keppt til úrslita í A og B flokkum á
laugardeginum. Keppendum verður
skipt í fjóra riðla og eru fimm í hverj-
um. Keppt verður á tveimur völlum.
www.sr.is
Kvennamót
í Álfsnesi
Skotveiði Fjöldi vopnaðra skot-
veiðikvenna hittist um helgina.
Morgunblaðið/ÞÖK
Í færi Það skiptir miklu að miða vel.