Morgunblaðið - 15.09.2010, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 15.09.2010, Qupperneq 35
DAGBÓK 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞAÐ ER RÉTT! ÉG VIL FLJÓTA Í GEGNUM LÍFIÐ ÞÚ VILT BARA EINHVERJA FORMÚLU SEM KEMUR ÞÉR Í GEGNUM LÍFIÐ ÁN ÞESS AÐ ÞÚ ÞURFIR AÐ GERA NOKKURN SKAPAÐAN HLUT! ÞÚ VILT HAFA ALLT AUÐVELT, ER ÞAÐ EKKI? HVAÐ VARÐ EIGINLEGA UM RÁNDÝRA LÖGFRÆÐINGINN SEM VIÐ LÉTUM FÁ PENING TIL AÐ MÚTA DÓMARANUM? ÞIÐ LÉTUÐ HANN FÁ OF LÍTINN PENING SKIPTIR EKKI MÁLI... HANN ER OF UNGUR TIL AÐ HANNA HEIMASÍÐUR FYRIR FYRIRTÆKI GEFÐU HONUM BARA TÆKIFÆRI PRAKASH, HEFUR ÞÚ ÁÐUR HANNAÐ SVONA VEFSÍÐUR? JÁ, ÉG HEF GERT ÞAÐ ANSI OFT ÞETTA ER TIL DÆMIS MYSPACE- SÍÐA SEM ÉG HANNAÐI FYRIR SYSTUR MÍNA ÞAÐ ER ERFITT AÐ GERA HENNI TIL GEÐS RAJIV, FRÆNDI ÞINN LÍTUR ÚT FYRIR AÐ VERA TÍU ÁRA HANN ER REYNDAR ELLEFU KÓNGULÓAR- MAÐURINN? ÞVÍ MIÐUR ERU SUPERMAN OG BATMAN Í ÖÐRUM VERKEFNUM ÞESSA DAGANA... ÞANNIG AÐ ÉG ÞARF AÐ SJÁ UM YKKUR HVERNIG ER AÐ VERA KÖTTUR? HEF EKKI HUGMYND... ÉG HEF ALDREI VERIÐ VAKANDI NÓGU LENGI TIL AÐ KOMAST AÐ ÞVÍ VIÐ FENGUM EKKI PÖSSUN Hugleiðing Það er svo furðulegt að lesa fréttir vikunnar að mann rekur í roga- stans. Hvernig leyfa menn sér að troða upp með handónýt og göm- ul lög eins og Lands- dómslögin eru og ætla sér að klekkja á hátt- virtum ráðherrum með viðlíka fáránleika eins og stendur til? Ég er alfarið á móti þessu. Við eigum að eyða tíma, þreki og vinnu í að taka í rófu þessara ofur-siðblindingja sem settu þjóðina á hausinn. Ein- staklingar sem eru dómgreindar- lausir, sjálfelskir eiginhagsmuna- seggir og þroskalitlir fáráðlingar. Þessa menn þarf að kalla til ábyrgð- ar og helst að koma fyrir sem fyrst í eins litlum klefum í fangelsum landsins og hægt er. Það sem hvað hæst hefur borið á góma undanfarnar vikur er það öng- þveiti sem skapaðist í kringum Jó- hönnu Sigurðardóttur á ferðalagi hennar um Færeyjar. Hvernig leyfa menn sér að gera lítið úr því hvaða lífsförunaut við veljum sjálfum okk- ur til ánægju og styrktar? Það er al- rangt að halda að slíkt val byggist eingöngu á því sem hefðin segir til um. Við getum valið hvern þann ævifélaga sem við kjósum, viljum og eigum samleið með án tillits til, til dæmis, kyns eða hörundslitar. Jóhanna hefur sýnt það með þrekvirkjum sínum áður en hún varð forsætisráðherra og nú, að hún er fullfær um að velja það sem að fer best að hennar löngun og vilja. Áfram Jóhanna, þinn tími er kominn. Hvað varðar fátækt í landinu er ég eins orð- laus og frekast má vera. Nauðungarsölur alls staðar, matarskortur og margt fleira. Menn eiga ekki að misbjóða hverjum öðr- um. Við eigum ekki að ganga á rétt þeirra sem minna mega sín til að upphefja einhverja aðra. Ég sting upp á því að farið sé í vasa þeirra aðila sem eiga meira en nóg af seðl- um og dreifa þeim til þeirra sem ekkert hafa og finna til vonleysis og depurðar. Í burt með fátæktina og inn með samúðina og samhjálpina. Jöfn kjör allra, þannig vill forsjónin að við lifum. Jóna Rúna Kvaran. Ást er… … að elda handa henni góða súpu ef hún er veik. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnust./postulín kl. 9, útsk./postulínsmálun og Grandabíó kl. 13. Árskógar 4 | Handav./smíði/útskurður kl. 9, heilsugæsla kl. 10, söngstund kl. 11. Bólstaðarhlíð 43 | Spiladagur, glerlist, handavinna, kaffi/dagblöð. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa kl. 9, Bónus kl. 14.40. Dalbraut 27 | Handav. kl. 8, vefn. kl. 9, listamaður mán. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu- Hrólfar frá Ásgarði kl. 10. Haustlitaferð 22. sept. Ekið til Þingvalla um Uxahryggi og Lundarreykjad. yfir Hestháls inn í Skorradal. Kvöldv./skemmtun/dans í Fossatúni, skrán. s. 588-2111. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30 og kl. 10.30, glerlist kl. 9.30 og kl. 13, félagsvist kl. 13, viðtalstími kl. 15, línudans kl. 18, samkvæmisdans kl. 19. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist kl. 9, trésk. 9.30, ganga kl. 10 postulín/ silfursm. kl. 13. Haustfagnaður kl. 14. Nem. í leiksk. Baugi syngja, Kári Frið- riksson tenór. Farið á vængjum hugans í göngur og réttir. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikf. kl. 8.15 og 12, kvennaleikf. kl. 9.15, 10, 10.45, brids og bútas. kl. 13, Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9, tréútsk./handav., leikfimi kl. 10, Spilasalur er opinn. Föstud. 24. sept. á leikritið Harry og Heimir, skrán. á staðn- um og s. 575-7720. Grensáskirkja | Samverstund kl. 14 í safnaðarheimili. Háteigskirkja – starf eldri borgara | Kaffi kl. 10, fyrirbænaguðsþj. kl. 11, súpa og brauð, brids kl. 13. Hraunsel | Bókm.klúbb. 22. sept. kl. 11, boltaleikf. í Haukahúsi Ásv. kl. 12, glerbr./ handav.kl. 13, bingó kl. 13.30, vatnsleikf. í Ásvallalaug kl. 14.40, bingó kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30 og 9.30. Vinnustofa kl. 9. Samverustund kl. 10.30, lestur. Kynning á endurhæfingard. Hrafnistu kl. 14. Hæðargarður 31 | Hringborðið kl. 8.50. Stefánsganga kl. 9. Listasm.9. Framsögn kl. 9. Gáfumannakaffi kl. 15. Tölvukennsla mán. og þri. frítt. Íþróttafélagið Glóð | Versalir: Ganga kl. 16. Korpúlfar Grafarvogi |Gler/tréútsk. kl. 13. Keila í Keiluh. v/Öskjuhlíð á morgun kl. 10. Sjúkraleikf. á morgun kl. 14.30 í Eirborgum v/Fróðengi. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr- unarfr. kl. 10.30, Iðjustofa – glermálun. Norðurbrún 1 | Félagsv. kl. 14. Hjúkr- unarfr. kl. 10. Útsk. kl. 9. Hjördís Geirsdóttir á haustfagn. í Norð- urbrún 17. sept. Skrán. hafin, s. 411 2760. Vesturgata 7 | Sund, spænska kl. 10-12. Myndmennt kl. 13, Bónus kl. 12.10, trésk. kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Tréútsk.og bókband kl. 9, handav. kl. 9.30, morg- unst. kl. 10, verslunarf. kl. 12.20, uppl. kl. 12.30, dans kl. 14, Vitatorgsbandið. Hjálmar Freysteinsson er læknirí hliðarstörfum frá hagmælsk- unni. Hann hefur unnið aðeins á norðausturhorninu undanfarið. Og segir sjálfur að eins og fleiri karlar á sínum aldri leggi hann ekki í mjög flókna matargerð þegar hann sé svona einsamall. Af því tilefni yrkir hann: Af meistarakokkum margar ganga sögur, hve matargerðarlist þeirra er fögur, en best mér reyndist sá sem býr til matinn hjá 1944. Hann lýsir sig reiðubúinn að selja þessa limru til nota í auglýsingu fyrir rétt verð. Magnús Ólafsson á Sveinsstöðum virðist þó ekki hrif- inn af þessari lausn: Eldamennskan ekki fögur okkur finnst að vonum 1944 fæðan bjargar honum. Sigrún Haraldsdóttir orti í gær að gefnu tilefni: Kossar haustsins kæla brá, kveikja hroll á skinni, ískalt haglið hoppar á höfuðkúpu minni. Jón Arnljótsson er einn af fjöl- mörgum aðdáendum danska stór- meistarans Bents Larsens hér á landi. Hann orti við fráfall hans: Hengja núna höfuð má og höku setja að bringu; Bent, er, Larsen fallinn frá, fækkar enn þeim slyngu. Davíð Hjálmar Haraldsson bætir við: Í Uppheimum rofinn er allsherjarfriður, englarnir styggjast við spilin og skraflið er Bent okkar Larsen sest bísperrtur niður og blístrar á Drottin að koma með taflið. Vísnahorn pebl@mbl.is Af Bent Larsen og 1944

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.