Morgunblaðið - 15.09.2010, Page 36
36 MENNINGFréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010
Minningartónleikar um Mar-
tein H. Friðriksson, fyrrver-
andi dómorganista og kór-
stjóra, verða haldnir í
Dómkirkjunni í Reykjavík
næstkomandi sunnudag kl.
20:00. Gunnar Kvaran selló-
leikari er aðalhvatamaður tón-
leikanna og auk hans koma
fram á þeim Haukur Guð-
laugsson orgelleikari og Peter
Maté píanóleikari.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Bach,
Schubert, Saint-Säens, Casals og Rachmaninoff
auk Páls Ísólfssonar. Enginn aðgangseyrir er að
tónleikunum, en tekið við frjálsum framlögum
sem renna til Krabbameinsfélags Íslands.
Tónlist
Minningartónleikar
í Dómkirkjunni
Marteinn H.
Friðriksson
Á morgun kl. 17:15 halda
Steinunn J. Kristjánsdóttir og
Vilborg Auður Ísleifsdóttir
fyrirlestur um evrópska
klausturhefð og Skriðuklaust-
ur á Landnámssýningunni í
Aðalstræti 16. Stiklað verður á
stóru um uppruna klaust-
urhefðar í Evrópu og þróun
hennar, minnst á stöðu kirk-
unnar og mikilvægi í ríki
Karlamagnúsar og horft til
stofnunar erkibiskupsstólsins í Niðarósi og reglu-
verks þess, sem skaut fjárhagslegum stoðum und-
ir kirkjulegar stofnanir. Framvinda og nið-
urstöður fornleifagraftarins á Skriðu verða einnig
rakin í máli og myndum.
Fornfræði
Fyrirlestur um evr-
ópska klausturhefð
Steinunn J.
Kristjánsdóttir
Útgáfurétturinn á bókinni
Eyjafjallajökull – stórbrotin
náttúra hefur verið seldur til
þýska forlagsins Bassermann
sem er hluti af útgáfurisanum
Random House.
Bókin er væntanleg á mark-
að í Þýskalandi nú í nóvember
og verður fyrsta prentun 8.000
eintök.
Bókin, sem er eftir þá Ragn-
ar Th. Sigurðsson ljósmyndara
og Ara Trausta Guðmundsson jarðeðlisfræðing og
rithöfund, hefur verið meðal vinsælustu bóka á Ís-
landi í sumar og hefur m.a. verið 12 vikur í efsta
sæti sölulista bókabúða Eymundsson yfir bækur
fyrir erlenda ferðamenn.
Ljósmyndir
Eyjafjallajökull til
Þýskalands
Kápa þýsku
útgáfunnar
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Á fimmtudaginn, 16. september, verður opnuð í
Listasafni Íslands sýning á sex ljósmyndaröðum
Ólafs Elíassonar, m.a. „Cars in Rivers“ en sú röð er
af bílum föstum í ám á Íslandi. Sýningin ber sama
titil, þ.e. Cars in rivers. Myndaröðina fær listasafn-
ið að gjöf frá Ólafi.
Forsaga „Cars in rivers“ er sú að í fyrra hélt
Ólafur sýningu í galleríinu i8, Limbóland, þar sem
finna mátti myndaröð af bílum föstum í ám. Börkur
Arnarson, eigandi i8, segir svo frá: „Þetta byrjaði
þannig að Ólafur fær þá hugmynd að gera þetta
verk, fyrir allnokkrum árum síðan, og þegar hann
sýnir hjá okkur í fyrra þá sýnir hann upphafið að
þessu verki. Mánuðina þar á undan vorum við búin
að vera í sambandi við jeppa-
fólk, björgunarsveitir, lögreglu
og fjöldann allan af fólki sem við
vorum að safna myndum eftir,
auglýstum á netinu og söfn-
uðum miklum slatta af mynd-
um. Ólafur valdi úr þeim mynd-
um og fólkið fékk að vita strax
hver hugmyndin var, hug-
myndin hjá Ólafi var að búa til
þetta verk sem hann myndi síð-
an gefa listasafninu, í rauninni í
nafni fólksins, Ólafur er milligöngumaður að því að
þetta verk verði afhent listasafninu. Í rauninni frá
fólkinu til fólksins. Svo hengjum við þetta upp
mjög frjálslega á sýningunni, óinnrammað
og komnar upp um 20 myndir.
Meðan á sýningunni stóð var fjallað um
þetta í fjölmiðlum og við óskuðum eftir
því sérstaklega, auglýstum og fleira, að
fólk myndi koma, sjá sýninguna og
koma með myndir. Á meðan á sýning-
unni stóð bættust inn 10-15 myndir sem
voru prentaðar út og hengdar upp. Síðan
verður verkið til þegar hann er end-
anlega búinn að velja úr öllu, þessar 35
myndir, og þær eru síðan prentaðar og
rammaðar inn og nú erum við að fara að afhenda
safninu þetta á fimmtudaginn.“
Kreppulíking
Börkur segir part af sýningunni í i8 þátttöku
fólksins, myndir frá þeim sem hafa lent í því að
festa jeppa í ám.
– Þetta er myndlíking fyrir kreppuástandið, ekki
satt?
„Vissulega.“
Spurður að því hvers virði syrpan sé nefnir
Börkur 22 milljónir króna.
Auk myndaraðarinnar „Cars in rivers“ verða
sýndar þrjár nýjar myndaraðir eftir Ólaf; „Six
sticks series“, „Iceland series (small fault)“ og
„The windswept series“. Tvær eldri syrpur verða
einnig sýndar, „Jökla series“ og „Green river ser-
ies“.
Frá fólkinu til fólksins
Sýning á verkum Ólafs Elíassonar, Cars in rivers, verður opnuð í Listasafni Ís-
lands á fimmtudaginn Ólafur gefur safninu ljósmyndaröð af bílum föstum í ám
Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór, Jón
Svavar Jósefsson barítón og Helga
Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari
munu leiða saman hesta sína á tón-
leikum í Hofi næstkomandi laug-
ardag kl. 17:00 Á efnisskránni verða
íslensk sönglög og dúettar í bland
við gullkorn óperubókmenntanna.
Tenórinn Sveinn Dúa Hjörleifsson
hefur komið fram sem einsöngvari
víða um Ísland og erlendis. Hann
leggur nú lokahönd á nám við Tón-
listarháskóla Vínarborgar ásamt því
að sinna einsöngsverkefnum víða um
heim. Í ágúst síðastliðin söng hann
hlutverk Itulbos í óperunni „Il pi-
rata“ eftir V. Bellini í Basel á vegum
Opera Riehen.
Baritónninn Jón Svavar Jósefsson
útskrifaðist frá óperudeild Universi-
tät für Musik und darstellende
Kunst Wien í júní 2007. Hann hefur
sótt fjölda námskeiða í söng og
sviðslistum á Íslandi, Belgíu og
Austurríki. Jón hefur haldið marga
einsöngstónleika og komið víða
fram.
Helga Bryndís Magnúsdóttir hef-
ur haldið fjölda einleikstónleika,
kammertónleika, leikið einleik með
hljómsveitum, með einsöngvurum,
kammersveitum og kórum. Hún hef-
ur leikið inná geisladiska og gert
upptökur fyrir útvarp og sjónvarp.
Hún býr á Dalvík og starfar einnig
sem organisti og kórstjóri
Söngtón-
leikar
í Hofi
Sveinn Dúa og Jón
Svavar halda tónleika
Hofsöngur Sveinn Dúa Hjörleifsson
og Jón Svavar Jósefsson.
Sveit hans bar þó
engan keim af þeim
hræringum - né nokkrum
öðrum ef út í það er farið 38
»
Það er til siðs
vestan hafs að
forsetar skrifi
bækur eða fái í
það minnsta ein-
hverja til að
skrifa þær í sínu
nafni. Barak
Obama hefur ver-
ið venju fremur
duglegur við
skriftir þrátt fyr-
ir miklar annir í embætti og í byrjun
nóvember kemur út þriðja bók hans,
barnabókin Of Thee I Sing: A Letter
to My Daughters.
Í bókinni, sem ætluð er börnum
frá þriggja ára aldri, segir Obama
frá ýmsum frumherjum bandarískr-
ar sögu, allt frá George Washington
til listakonunnar Georgia O’Keeffe.
Barak Obama
skrifar bók
fyrir börn
Kápa Of Thee
I Sing.
Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, líkir gjöf Ólafs til íslensku þjóðarinnar,
myndaröðinni „Cars in rivers“, við hringrás. Hann gefi þjóðinni það sem þjóðin hafi gefið honum. Að
baki ljósmyndunum sé ónefndur hópur af jeppamönnum, fólki sem fest hafi bíla í ám. „Hugmyndin
að baki þessu er sú að lyfta þjóðinni, sýna fram á frumkvöðlaeðlið og frumeðlið í þjóðinni,“ segir
Halldór. Ákveðna kreppulíkingu megi finna í verkinu. „Þetta er líka ákveðin lotning fyrir þessu Íslend-
ingseðli, að vera óbanginn, að voga og þora, hafa hugrekki.“
– Menn ná jeppanum yfirleitt upp úr ánni á endanum...
„Ég held það, það er fáheyrt að menn hafi farist, það heyrir til undantekninga, þegar menn hafa
lent í svona, að það hafi orðið slys á mönnum.“
– Þannig að þú sérð þetta sem verk fullt af bjartsýni?
„Já, ég geri það. Alveg hiklaust. Mér finnst Ólafur einmitt vera að gefa því undir fótinn hvað Ís-
lendingar eru sjálfstæðir og hvað það býr mikill þróttur og hugrekki í þeim.“
Hvað aðferðina varðar, að safna ljósmyndum sem aðrir hafa tekið með ákveðið konsept í huga,
vísar Halldór í þau orð listamannsins Marcels Duchamp, að listamaðurinn væri ekki lengur sá
sem gerði hlutina eða framleiddi heldur sá sem veldi þá. „Mér finnst eiginlega Ólafur Elíasson
fara örlítið lengra með þetta, í staðinn fyrir að velja einhverja hluti út úr búð eins og Duchamp
gerði og kallaði „readymade“ er hann farinn að bjóða hinum óþekkta manni inn í geimið. Auðvit-
að verður að líta á það að hver og ein mynd er ekki kannski listaverk í sjálfu sér, það er ekki
fyrr en Ólafur setur þetta saman sem þetta verður að þessu listaverki. Hann á hugmyndina.“
Myndaraðir Ólafs verða sýndar í sal 2 í safninu. Hinar fjórar myndaraðirnar eru allar af há-
lendi Íslands, að sögn Halldórs.
Aðflutt landslag
Auk sýningar Ólafs verður opnuð sýningin Aðflutt landslag, 29 ljósmyndir eftir Pétur Thom-
sen. Myndirnar tók Pétur af umbreytingunni á Kárahnjúkum. „Þannig að þetta verður
áframhaldandi ljósmyndaveisla, þetta er dálítið ár ljósmyndarinnar,“ segir Halldór, en
Listahátíð í Reykjavík var með sérstaka áherslu í ár á ljósmyndun.
Lotning fyrir eðli Íslendingsins
ÍSLANDSMYNDIR Í SAFNINU, ÁFRAMHALDANDI LJÓSMYNDAVEISLA
Fastur Ein af ljósmyndunum 35 í verkinu „Cars in rivers“. Myndirnar sýna allar bíla sem fastir eru í ám og voru myndirnar sendar Ólafi af Íslendingum.
Hann valdi svo 35 sem nú hafa verið prentaðar og rammaðar inn og verða til sýnis í Listasafni Íslands frá og með fimmtudeginum n.k.
Birt með leyfi listamanns og i8 Gallerís, Reykjavík
Börkur Arnarson
Halldór Björn
Runólfsson