Morgunblaðið - 15.09.2010, Side 37
MENNING 37Fólk
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Hljómsveitin Defekt er nú á ferð
um Norðurlöndin að kynna nýjan
geisladisk, Pete’s Game Machine, og
leikur á tvennum tónleikum hér á
landi. Fyrri tónleikarnir verða á
Kaffi Rósenberg í kvöld kl. 21:00 og
þeir síðari á Akureyri á morgun, í
Græna hattinum kl. 21.00.
Defekt var stofnuð í Gautaborg
árið 2008 af þeim Pauli Lyytinen
saxófónleikara, Sigurði Rögnvalds-
syni gítarleikara, Joonas Kuusisto
bassaleikara og Øyvind Hegg-
Lunde trommuleikara. Þeir höfðu
allir spilað með ýmsum hljóm-
sveitum, en aldrei allir í sömu
sveit fyrr en Defekt varð til.
Framhald af vináttu
Sigurður segir að þeir félagar
hafi kynnst í tónlistarháskólanum í
Gautaborg. Þeir voru þá að spila
með ýmsum sveitum, eins og getið
er, urðu fljótlega vinir og mjög
sammála um það sem þeir vildu
gera í tónlist. Þar kom svo að þeir
ákváðu að fara að spila saman –
„hljómsveitin var einskonar fram-
hald af vináttunni,“ segir Sig-
urður. „Við búum núma allir
hver í sinni borginni og í mis-
munandi löndum en höfum svo
gaman af að vinna saman að við
tökum frá tíma með góðum fyr-
irvara, hittumst þá og æfum
saman prógramm sem við síðan
ferðumst með.“
Í miðri síðustu ferð á síðasta
ári brugðu þeir sér í hljóðver í
Finnlandi og tóku upp breiðskíf-
una Pete’s Game Machine. Öll
lögin á henni eru eftir þá félaga,
enda segir Sigurður að aðal
sveitarinnar sé einmitt að semja
saman tónlist og flytja hana.
Pælt í tölvuleikjatónlist
„Við leyfum okkur líka að prófa
nýja hluti og erum núna mikið að
pæla í tölvuleikjatónlist, notum
saxófónsyntha og mikið af effektum.
Við sækjum í 8 bita tölvuleikjahljóð
frá áttunda áratugnum, SEGA
leikjahljóð,“ segir Sigurður og að-
spurður hvort þeir séu að rifja upp
æsku sína tekur hann undir það og
skellir uppúr. „Þetta er mjög glað-
vær tónlist og skapar alltaf
skemmtilega stemmningu á tón-
leikum,“ segir hann en lunginn af
tónleikadagskránni er lög af plöt-
unni skreytt með nokkrum nýjum
lögum sem urðu til á æfingum fyrir
tónleikaferðina.
Þeir félagar ljúka tónleikaferðinni
um Norðurlöndin hér á landi og
þegar við ræðum saman segir Sig-
urður að þeir séu einmitt búnir að
leika á ellefu tónleikum á ellefu dög-
um. „Það verður langþráð frí þegar
við komum til Íslands, lambalæri og
afslöppun hjá mömmu,“ segir hann
og hlær við. „Þetta er búið að vera
mikill þvælingur, en tíminn líður
hratt og þetta er skemmtilegt.
Norræni menningarsjóðurinn
styrkir þá félaga til fararinnar.
Defekt Stofnuð í Gautaborg árið 2008 af þeim Pauli Lyytinen saxófónleikara, Sigurði Rögnvaldssyni gítarleikara,
Joonas Kuusisto bassaleikara og Øyvind Hegg-Lunde trommuleikara. Hér sitja þeir í stórum klappstólum.
Defekt tölvu-
leikjatónlist
Djasssveitin Defekt lýkur ferðalagi
um Norðurlönd hér á landi Leikur á
tónleikum í Reykjavík í kvöld og á Ak-
ureyri annað kvöld
RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, hefst
23. september næstkomandi. Á hátíðinni verða sextán
nýjar íslenskar stuttmyndir frumsýndar. Af þeim má
nefna nýjustu mynd eftir Ísold Uggadóttur, Clean;
Knowledge eftir Hrefnu Hagalín og Báru Kristínu með
bandaríska leikaranum Leo Fitzpatrick (Kids) í aðal-
hlutverki og Life And Death Of Henry Darger eftir
Bertrand Mandico, fyrstu íslensku stuttmyndina sem
sýnd hefur verið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.
Sjómenn, grínstelpur o.fl.
Fimm íslenskar kvikmyndir verða frumsýndar á há-
tíðinni: Brim, Uppistandsstelpur, Ísland Úganda, Höll-
in og Kraftur – síðasti spretturinn.
Í Brimi segir af áhöfn línubátsins Brim RE 29 sem
orðin er þreytt á því að allir dagar og vikur séu eins.
En nótt eina vakna mennirnir upp við vondan draum
þegar einn tryggasti hásetinn sviptir sig lífi og ung
kona er ráðin í næsta túr. Við komu hennar um borð
myndast spenna sem magnast þegar á líður.
Í Uppistandsstelpum eftir Áslaugu Einarsdóttur
segir af ellefu ungum konum sem ákveða að stofna
uppistandshóp en hafa litla sem enga reynslu af því að
stíga á svið og fara með gamanmál. Eru þær fyndnar?
er spurningin.
Í Íslandi Úganda, eftir Garðar Stefánsson og Rúnar
Inga Einarsson, eru tekin fyrir tvö lönd, Ísland og Úg-
anda, fyrrum nýlenduþjóðir Evrópuríkja sem fengu
sjálfstæði um svipað leyti. „Í byrjun var útlitið bjart
hjá báðum þjóðum en vegna spillingar, óstjórnar og
stríðsreksturs heltist Úganda úr lestinni og er í dag
flokkað með fátækustu löndum heims. Í myndinni er líf
ungs fólks í löndunum borið saman,“ segir um myndina
í tilkynningu.
Höllin eftir Héðin Halldórsson er heimildarmynd,
andrúmsloftið í Sundhöll Reykjavíkur fangað. „Myndin
er heimild um tíma og fólk sem brátt nýtur ekki lengur
við. Hún gefur áhorfandanum líka þá tilfinningu að
tíminn í Höllinni standi kyrr, að þar sé annar heimur“
segir m.a. um hana.
Kraftur – síðasti spretturinn eftir Árna Gunnarsson,
Steingrím Karlsson og Þorvald Björgúlfsson fjallar um
hestinn Kraft og knapann Þórarin Eymundsson sem
gera það gott í keppni. Þeim er boðið að taka þátt í
Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi árið
2007 og þá þarf knapinn að taka erfiða ákvörðun því
Kraftur getur ekki snúið heim, fari hann út til keppni.
Brim frumsýnd á RIFF
Fjöldi íslenskra kvikmynda, heimildarmynda og stutt-
mynda verður sýndur á Riff, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð
í Reykjavík sem hefst í næstu viku
Pus Í Brimi segir af áhöfn línubátsins Brims RE 29.
Morgunblaðið/Ernir
Fyndið? Ungar konur stofna uppistandshóp.
www.riff.is
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Gauragangur (Stóra svið)
Fös 17/9 kl. 20:00 5.k Lau 2/10 kl. 20:00 8.k Fim 21/10 kl. 20:00 11.k
Lau 18/9 kl. 20:00 6.K Sun 10/10 kl. 20:00 9.k Fös 29/10 kl. 20:00
Sun 26/9 kl. 20:00 7.k Fim 14/10 kl. 20:00 10.k
Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Fim 16/9 kl. 20:00 3.k Fös 24/9 kl. 20:00 5.k Fim 30/9 kl. 20:00 6.k
Sun 19/9 kl. 20:00 4.k Lau 25/9 kl. 20:00 aukas Fös 1/10 kl. 20:00 7.k
Einnig sýnt á Akureyri í nóvember
Enron (Stóra svið)
Mið 22/9 kl. 20:00 Fors Fim 30/9 kl. 20:00 4.k Lau 16/10 kl. 20:00 8.k
Fim 23/9 kl. 20:00 Frums Fös 1/10 kl. 20:00 5.k Fös 22/10 kl. 20:00 9.k
Fös 24/9 kl. 20:00 2.k Lau 9/10 kl. 20:00 6.K
Lau 25/9 kl. 20:00 3.k Fös 15/10 kl. 20:00 7.K
Stórsýning um brjálæðislegt dramb og fall
Fólkið í kjallaranum (Nýja svið)
Fös 8/10 kl. 20:00 Fors Þri 19/10 kl. 20:00 aukas Lau 30/10 kl. 19:00 9.k
Lau 9/10 kl. 20:00 Frums Mið 20/10 kl. 20:00 5.k Lau 30/10 kl. 22:00 aukas
Þri 12/10 kl. 20:00 aukas Lau 23/10 kl. 19:00 6.k Sun 31/10 kl. 20:00 10.k
Fös 15/10 kl. 20:00 2.k Lau 23/10 kl. 22:00 aukas Mið 3/11 kl. 20:00 11.k
Lau 16/10 kl. 19:00 3.k Sun 24/10 kl. 20:00 7.k Lau 6/11 kl. 19:00 12.k
Lau 16/10 kl. 22:00 aukas Þri 26/10 kl. 20:00 aukas Lau 6/11 kl. 22:00 aukas
Sun 17/10 kl. 20:00 4.k Fim 28/10 kl. 20:00 8.k Sun 7/11 kl. 20:00 13.k
Leikgerð verðlaunasögu Auðar Jónsdóttur
Horn á höfði (Litla svið)
Lau 18/9 kl. 14:00 1.k Sun 26/9 kl. 14:00 4.k Lau 9/10 kl. 14:00 aukas
Sun 19/9 kl. 14:00 2.k Lau 2/10 kl. 14:00 aukas Sun 10/10 kl. 14:00 6.k
Lau 25/9 kl. 14:00 3.k Sun 3/10 kl. 14:00 5.k Sun 17/10 kl. 14:00 7.k
Gríman: Barnasýning ársins 2010!
Orð skulu standa (Litla svið)
Þri 21/9 kl. 20:00 Þri 5/10 kl. 20:00
Þri 28/9 kl. 20:00 Þri 12/10 kl. 20:00
Vinsæll útvarpsþáttur - nú á sviði. Sala hafin
Villidýr / Pólitík eftir Ricky Gervais (Litla svið)
Fös 17/9 kl. 20:00 1.k Fim 23/9 kl. 20:00 3.k
Lau 18/9 kl. 20:00 2.k Sun 26/9 kl. 20:00 4.k
Gróft gaman flutt af mikilli snilld, PBB Fbl
Gauragangur - „HHHH Hörkustuð“ IÞ.Mbl
Miðasala í Háskólabíói » Sími 545 2500 » www.sinfonia.is
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Mahler og Strauss Fim. 16.09. kl. 19.30
Hljómsveitarstjóri: Lionel Bringuier
Einsöngvari: Emma Bell
Richard Strauss: Fjórir síðustu söngvar
Gustav Mahler: Sinfónía nr. 1
Faust spilar Stravinskíj Fim. 23.09. kl. 19.30
Hljómsveitarstjóri: Pietari Inkinen
Einleikari: Isabelle Faust
Maurice Ravel: Tombeau de Couperin
Ígor Stravinskíj: Fiðlukonsert
Antonín Dvorák: Sinfónía nr. 7
Ungsveit Sinfóníunnar Lau. 02.10. kl. 17.00
Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba
Modest Músorgskíj: Nótt á nornagnípu
Pjotr Tsjajkovskíj: Sinfónía nr. 4