Morgunblaðið - 17.09.2010, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010
Ekki verður af ríkisstjórn ogstjórnarflokkum tekið að þar
eru miklir kærleikar á milli manna.
Einn af þingmönnum Samfylkingar-
innar, Anna Margrét Guðjónsdóttir,
nýtti til að mynda tækifærið í um-
ræðum um skýrslu
þingmannanefndar í
fyrradag að ræða um
mögulega málshöfðun
fyrir landsdómi gegn
Jóni Bjarnasyni, ráð-
herra VG.
Þingmaðurinn taldiráðherrann
mögulega hafa brotið
gegn lögum um ráð-
herraábyrgð vegna
afstöðu ráðuneytis
hans til vinnu vegna
aðildarumsóknar að
Evrópusambandinu.
Ráðherrann hefur unnið sér það til
sakar að telja að Ísland ætti ekki að
vera í því aðlögunarferli að ESB sem
nú stendur yfir.
Nú á líka að nota ráðherra-ábyrgðarsvipu til að beygja
menn til hlýðni vegna aðildar-
umsóknar að ESB.
En kærleikarnir eru ekki aðeins ámilli flokka, heldur einnig inn-
an þeirra. Kristrún Heimisdóttir, að-
stoðarmaður viðskiptaráðherra
Samfylkingarinnar, Árna Páls Árna-
sonar, telur til dæmis tíma kominn á
nýtt kvennaframboð.
Í því sambandi talar hún um að núséu tímar „kvenfórna, undir-
mála, hrossakaupa og mafískra
valdabandalaga“ og er þar að lýsa
ástandinu í eigin flokki.
Ástandið á stjórnarheimilinu gætimeð öðrum orðum ekki verið
betra.
Anna Margrét
Guðjónsdóttir
Kærleikar á
stjórnarheimilinu
STAKSTEINAR
Kristrún
Heimisdóttir
Veður víða um heim 16.9., kl. 18.00
Reykjavík 11 léttskýjað
Bolungarvík 8 skýjað
Akureyri 6 skýjað
Egilsstaðir 5 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 10 léttskýjað
Nuuk 7 súld
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 15 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 skýjað
Stokkhólmur 12 skýjað
Helsinki 15 skýjað
Lúxemborg 13 léttskýjað
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 15 skýjað
Glasgow 13 léttskýjað
London 17 léttskýjað
París 17 skýjað
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 12 léttskýjað
Berlín 17 heiðskírt
Vín 20 léttskýjað
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 26 léttskýjað
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 12 alskýjað
Montreal 12 alskýjað
New York 19 alskýjað
Chicago 18 skýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:57 19:49
ÍSAFJÖRÐUR 6:59 19:56
SIGLUFJÖRÐUR 6:43 19:39
DJÚPIVOGUR 6:26 19:19
Anna Margrét Guðjónsdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, velti því fyrir sér í ræðu á Alþingi í
fyrradag, hvort sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra væri að brjóta gegn lögum um ráðherra-
ábyrgð með því að taka ekki þátt í undirbúningi
fyrir hugsanlega aðild Íslands að Evrópusam-
bandinu.
Anna Margrét sagðist hafa spurst fyrir um það
hvort Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, og
ráðuneyti hans tæki þátt í að búa Ísland undir
hugsanlega þátttöku í Evrópusambandinu. Ráð-
herra hefði hins vegar staðfest í svari, að ráðu-
neytið sem hann fer fyrir hefði ákveðið að taka
ekki þátt í þeim undirbúningi.
Tilefni til að hafa áhyggjur af Jóni?
„Ég velti því fyrir mér að ef til aðildar Íslands
að Evrópusambandinu kemur og ráðherra sjávar-
útvegs- og landbúnaðarmála hefur staðfastlega
ákveðið að taka ekki þátt í undirbúningi, þá blasir
það við að íslenskir bændur og útgerðarmenn og
allir þeir sem vinna við sjávarútvegs- og landbún-
aðarmál standa langt að baki öðrum stéttum í
þessu samfélagi, ég tala ekki um að baki kollega
sinna í Evrópu. Því spyr ég, frú forseti: Er tilefni
til að hafa áhyggjur af því að hæstv. landbúnaðar-
og sjávarútvegsráðherra gangi á svig við 2. og 4.
gr. laga um ráðherraábyrgð eða er ráðherrum í
sjálfsvald sett að ákveða samkvæmt eigin geð-
þótta að málefni henti þeim ekki og því geti þeir
haldið málaflokkum sínum utan við eðlilega þró-
un?“ sagði Anna Margrét.
Fer ráðherra á svig við lögin?
Þingmaður Samfylkingar veltir fyrir sér ráðherraábyrgð Jóns Bjarnasonar
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Síminn hefur frá áramótum unnið að
því að gefa þúsundum heimila á höf-
uðborgarsvæðinu
kost á að notfæra
sér nýja þjón-
ustu, Ljósnet sem
á smám saman að
koma í stað
Breiðvarpsins.
Ljósnetið hefur
mun meiri flutn-
ingsgetu og hraða
þótt ekki sé um
raunverulega
ljósleiðarateng-
ingu við íbúðina að ræða. Er notast
við koparvírinn í fastlínum til að
flytja merkið innandyra, bæði vegna
sjónvarps og tölvu.
Fyrirtækið segir að komið hafi
verið að því að uppfæra búnaðinn en
Breiðvarpið fullnægi ekki nútíma-
kröfum um bandbreidd. Gagn-
virknin sé ekki til staðar. Ætlunin er
að árið 2012 geti um 40 þúsund
heimili nýtt sér Ljósnetið.
Ekki fylgir því neinn stofn-
kostnaður fyrir notendur að fá að-
gang að Ljósnetinu þótt gera þurfi
einhverjar breytingar vegna lagna á
heimilinu, að sögn Margétar Stef-
ánsdóttur, upplýsingafulltrúa Sím-
ans. Fyrirtækið kosti þær breyt-
ingar nema um verulega við-
bótarvinnu sé að ræða. En gagnrýnt
er að framvegis geti þeir sem aðeins
vilja notfæra sér sjónvarpsendingar
Ríkisútvarpsins og láta nægja að
borga grunngjald af fastlínusíma
það ekki nema þeir kaupi nýja og
mun dýrari þjónustu. Þeir verði nú
að nota loftnetsgreiðu, sem sums
staðar er enn fyrir hendi á hús-
þökum, ætli þeir sér að horfa áfram
frítt á útsendingar RÚV. En ljóst er
að víða er búið að fjarlægja slík tæki
af þökum.
Herferð gegn greiðum
Fyrir þrem árum stóð Síminn
fyrir auglýsingaherferð þar sem
rekinn var áróður fyrir Sjónvarpi
Símans, svonefndu IPTV. Var fólk
sýnt í óða önn við að saga niður og
fjarlægja loftnet og skjái af þökum
sínum. Var fólk ekki hvatt til að fjar-
lægja loftnetin?
„Við hvöttum aldrei neinn til að
rífa niður loftnet,“ segir Margrét.
„Þessi auglýsing hafði aldrei neitt
með Breiðbandið að gera, þetta átti
aldrei við það heldur vorum við að
auglýsa stafrænt sjónvarp Símans,
IPTV. Þetta var 2007 en Breiðband-
ið byrjaði fyrir 10-15 árum. Þetta
var í gamni gert, auglýsingar fara
oft ýktu leiðina. Fólk fór ekkert í
stórum stíl upp á þak að rífa niður
loftnet! Við höfum bara sagt fólki að
það geti náð þjónustunni án þess að
vera með loftnet. Víða eru engin loft-
net á nýjum húsum, það er vegna
þess að verktakar vita að stafræn
tækni er framtíðin.“
Þakhreinsun Ein af auglýsingum Símans árið 2007 þar sem bent var á að loft-
netsgreiður væru að verða úreltar. Sjónvarp Símans, IPTV, væri framtíðin.
Greiðurnar aftur
upp hjá þeim sem
vilja bara RÚV?
» Síminn segir að Ljósnetið
uppfylli allar kröfur sem staf-
rænt sjónvarp geri um band-
breidd, gagnvirkni, háskerpu
og þrívíddarsjónvarp.
» Í ársbyrjun 2012 á Ljós-
netið að ná til síðustu svæð-
anna á áætlun fyrirtækisins,
þ.á m. Hafnarfjarðar og Garða-
bæjar.
» Talsmaður neytenda, Gísli
Tryggvason, segir að athuga
þurfi m.a. hvort Síminn hafi á
sínum tíma gefið fólki vænt-
ingar um að ávallt yrði hægt að
ná útsendingum RÚV án loft-
netsgreiðu.
Ljósnetið hækkar símagjöldin nema
menn noti gömlu loftnetin
Margrét
Stefánsdóttir