Morgunblaðið - 17.09.2010, Side 10

Morgunblaðið - 17.09.2010, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010 Fyrsti kossinn Það getur verið vandasamt að kyssa einhvern í fyrsta skipti en nú má finna leiðbeiningar um það. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Svona á að … er eftir DerekFagerstrom og LaurenSmith og geymir mynd-skreyttar leiðbeiningar um fimmhundruð hluti sem gott er að kunna og átta í viðbót sem engum heilvita manni dytti í hug að prófa. „Við erum afskaplega kát með þessa bók því við teljum að hún muni leysa margvíslegan vanda fólks, bæði er hún gagnleg og svo af- skaplega skemmtileg, fyndin og skýrt fram sett,“ segir Kristrún Heiða Hauksdóttir kynningarstjóri Forlagsins. „Við erum svo kokhraust að við segjum að þessi bók leysi allt nema milliríkjadeilur. Það er fátt sem hún hefur ekki svar við. Ég get t.d. bent skrifstofufólki, sem vill krydda stemninguna á vinnustaðnum, á að þarna eru upplýsingar um hvernig maður getur daðrað í gegnum tölv- una með táknum, það er nefnilega til miklu meira en broskarl og skeifa. Samkvæmt bókinni er alveg hægt að túlka flóknar tilfinningar sínar með svona táknum. Það eru líka gefin upp mjög góð ráð fyrir fólk sem er í tilhugalífinu.“ Skeggtíska og fatasnið Guðni Kolbeinsson þýðir bókina og segir Kristrún hann hafa unnið ákveðna brautryðjendavinnu í þýð- ingunni. „Það voru ekki til íslensk orð yfir margt af því sem þarna kemur fyrir. Það er til dæmis listi yf- ir mismunandi skeggtegundir og fór þýðandinn í mikla reisu á rakara- stofur bæjarins og spurði frótt fólk um skeggtísku, fékk hjá því leiðbein- ingar og svo þurfti hann að geta í eyðurnar sjálfur. Það er líka listi yfir mismunandi fatasnið sem hann þurfti virkilega að leggjast yfir því mörgum heitum hefur ekki verið snúið formlega yfir á íslensku áður. Ég hugsa að orðabókafræðingar framtíðarinnar muni leita í þessa bók,“ segir Kristrún kankvís. Annars segja myndir meira en mörg orð og hér má sjá nokkur vel valin ráð úr bókinni. Leysir allt nema milliríkjadeilur Viltu vita hvernig á að stíga út úr bíl í mínípilsi, vera í faðmlagi án þess að fá náladofa, hvað á að gera við drukkna brúðkaupsgesti, hvernig er best að faðma broddgölt, hvernig á að festa tölu, berjast við krókódíl, opna flösku án tappatogara eða vefja upp búrrító? Svörin við öllu þessu og meira til má finna í handbókinni Svona á að … sem kom nýverið út hjá Forlaginu . Mikilvægt Hver kannast ekki við að hafa gleymt upptakaranum þegar í útileguna er komið? Þá eru þetta góð og gagnleg ráð. Flestir sem fylgjast með tísku heimsækja reglulega bloggsíðuna The Sartorialist, margverðlaunað tískublogg sem hefur verið haldið úti síðan árið 2005. Það er New York-búinn Scott Schuman sem stofnaði síðuna eft- ir að hann yfirgaf starf sitt í tísku- heiminum. Hann hóf að ganga með stafræna myndavél með sér hvert sem hann fór í New York og tók myndir af fólki sem vakti at- hygli hans fyrir klæðaburð. Eftir að hann varð vinsælli fékk hann boð um að heimsækja tískuvikur víða um heim og birtir hann því líka reglulega myndir frá París, London, Flórens og Mílanó, svo eitthvað sé nefnt. Þetta er aðallega myndablogg en stundum skrifar hann eitthvað við myndirnar, annars tala þær bara sínu máli. The Sartorialist fjallar bæði um karl- og kventísk- una og viðfangsefnin geta verið frægir einstaklingar eins og Karl Lagerfeld og síðan óþekkt og venjulegt fólk út á götu. Hann birtir líka myndir frá tískusýn- ingum og er t.d. ein ný færsla frá sýningu vorlínu Marc Jacobs 2011. Vegna bloggsins hafa aðrir miðlar fengið Schuman til að fjalla fyrir sig um tískusýningar. Í fyrra var gefin út bók með uppáhalds- myndum Schuman af The Sartori- alist. Vefsíðan www.thesartorialist.blogspot.com Sartorialist Bloggarinn og ljósmyndar- inn sjálfur gripinn með myndavélina. Athyglisverður klæðaburður Mittið var áberandi á tískuvikunni í New York sem lauk í gær. Flestir hönnuðirnir lögðu áherslu á kven- leikann í vor- og sumarlínum sínum fyrir árið 2011. Mikið var um pils sem náðu upp í mitti og blússur girtar ofan í, belti voru svo sett um mittið til að leggja enn frekari áherslu á það. Það er ekki í tísku lengur að kven- fólk líti út eins og ungir strákar í heróínneyslu. Tískan sækir innblástur sinn í sjötta áratuginn þegar kvenlegur vöxtur var í hávegum hafður. Þeir sem eru óvissir um tísku þess ára- tugar ættu að horfa á sjónvarps- þættina Mad Men, tískan næsta vor er eins og persónurnar í þeim þætti eru klæddar. Það er lítið mál að leggja áherslu á mittið, fáðu þér belti, helst brúnt belti en það virðast vera málið um þessar mundir Endilega … … leggið áherslu á mittið Reuters Michael Kors Brúnt belti við hnésíðan, aðsniðinn kjól á tískuviku í NY. Öflugir TUDOR High Tech rafgeymar fyrir jeppa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.