Morgunblaðið - 17.09.2010, Síða 18

Morgunblaðið - 17.09.2010, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010 Morgunblaðið/Ómar Ráðhústorgið Frá Kaupmanna- höfn. Ráðgjafaútrásin beið skipbrot. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég veit ekki hvernig ég á að svara henni. Menn eiga rétt á því að vera þeirrar skoðunar. Við erum einfald- lega í þeirri stöðu að erlend lán sem voru tekin fyrir nokkrum árum eru okkur ofviða,“ segir Ingvi Þór Ell- iðason, forstjóri Capacent á Íslandi, spurður um þá gagnrýni að fyrir- tækið víki sér undan gjaldþrotameð- ferð með kennitöluflakki. „Það var reynt að fara í gegnum uppgjörið í sátt og samlyndi við bankann og aðra hagsmunaaðila. Við erum að skilja vel við okkur. Það er ekki þannig að við séum með vanskil út um allan bæ og að birgjar og skattayfirvöld séu að verða fyrir stórfelldu tjóni. Við ætlum að standa við allar okkar skuldbindingar nema þetta erlenda lán. Bankinn fær greiðslur upp í lánið. Hann fær við- skiptakröfur og því einhvern pening en engan veginn upp í allt lánið.“ Tap bankans á annan milljarð Íslandsbanki var viðskiptabanki Capacent og áætlar Ingvi Þór að er- lenda lánið, um 700 milljónir króna, hafi tvöfaldast með falli krónunnar. Hann telur ólíklegt að bankinn fái mikið meira en tíunda hluta lánsins, eins og það stendur nú, upp í kröfur en bætir því við að það hafi að lík- indum verið afskrifað er Íslands- banki tók til starfa á rústum Glitnis. Lánið hafi verið tekið til að fjár- magna kaup Capacent á hlut í ráð- gjafarfyrirtækjum á Norðurlöndum, vöxt sem bankinn lánaði fyrir. Markmiðið hafi verið að stofna norrænt ráðgjafarfyrirtæki sem yrði leiðandi á Norðurlöndum. Þær áætlanir runnu út í sandinn og svarar Ingvi Þór því til, aðspurð- ur hvort Íslandsbanki hafi haft í hyggju að selja fyrirtækið að lokinni gjaldþrotameðferð, að verðmætin liggi nær alfarið í starfsfólkinu en ekki í tækjum eða húseignum. Starfsfólki boðið hlutafé Ingvi Þór segir útlitið bjart en nýja fyrirtækið mun bera sama nafn. „Við teljum okkur vera komin yfir það versta. Við stöndum sterk eftir. Við ætlum að reyna að afla hlutafjár hjá starfsfólki þar sem öllum verður boðið að kaupa á sömu kjörum. Okk- ar stefna er sú að fyrirtækið verði al- farið í eigu starfsfólksins. Það kemur ekki til greina að bjóða það til sölu.“ Útrásarævintýri lýkur með nýrri kennitölu  Forstjóri Capacent ver breytingu á kennitölu  Erlendar skuldir upp á hátt í 1.500 milljónir hafi reynst fyrirtækinu ofviða  Íslandsbanki fær lítið upp í kröfur Stuttar fréttir ... ● Starfsstöðvum embættis Tollstjóra að Héðinsgötu og á Skúlagötu hefur verið lokað, en toll- stöðvar eru áfram á hafnarsvæðinu við Klettagarða og á tollpóststofunni auk tollafgreiðslu við Cuxhavengötu í Hafnarfirði og í Tollhúsinu við Tryggvagötu. Á Keflavík- urflugvelli hefur tollafgreiðslu á Blika- völlum verið lokað og er öll starfsemin nú á einum stað í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar. Að auki er embætti Tollstjóra með starfsstöðvar á Akureyri, Eskifirði, Ísafirði, Selfossi, Seyðisfirði og í Vest- mannaeyjum. Með þessum breytingum stefnir Toll- stjóri að aukinni hagræðingu í rekstri með lægri leigukostnaði og minni akstri milli starfsstöðva, að því er segir í frétt frá embættinu. „Hagræðing þessi hefur í för með sér betri nýtingu á starfs- mönnum og embættið verður betur í stakk búið til að sinna lögboðnum skyldum á sama tíma og fjárheimildir lækka.“ Sameining starfsstöðva hjá Tollstjóranum Tollurinn Enn við Tryggvagötu. ● Bifreiðaumboðið Hekla er til sölu, en fyrirtækið er í eigu Arion banka. Gert er ráð fyrir að selja allt hlutaféð í einu lagi en frestur til að skila inn til- boði er til 29. sept- ember. Velta bíla- sviðs Heklu nam um 5,5 milljörðum króna árið 2009 og er markaðshlutdeild fyrirtækisins um 18,5% af sölu nýrra bíla það sem af er árinu 2010, sem er sambærilegt við markaðshlutdeild síðustu 5 ára að jafn- aði. Í tilkynningu frá Arion segir að sölu- ferlið sé opið öllum fagfjárfestum, sem og einstaklingum og lögaðilum er að mati bankans hafa viðeigandi þekkingu og nægan fjárhagslegan styrk. Arion banki áskilur sér rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, m.a. vegna samkeppnisreglna og ann- arra lagalegra hindrana. Arion býður bifreiða- umboðið Heklu til sölu Hekla Til sölu. fyrrum eigendum og stjórnendum Fons voru þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Meðal stefndu í einu málanna er félag að nafni Wa- verton Group Limited. Fram kemur í skjölum frá fyrirtækjaskrá Lúx- emborgar að Waverton sé skráður forsvarsmaður Talden Holding. Ásamt Waverton eru Birefeld Holdings og Starbrook Internatio- nal skráð sem forsvarsmenn félags- ins. Öll félögin eru skráð á Bresku jómfrúaeyjunum, nánar tiltekið Tortóla. Að sama skapi eru þau öll skráð á sama pósthólfið þar í landi. Keypt af dótturfélagi gegn seljendaláni  Skráðir forsvarsmenn Talden skúffufyrirtæki á Tortóla Morgunblaðið/Ómar Lúxemborg Talden Holding var skráð þar í landi, líkt og mörg eignarhalds- félög íslenskra athafna- og viðskiptamanna hafa verið á síðastliðnum árum. Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Þegar Talden Holding, dótturfélag Fons, seldi Fons allar sínar eignir síðla árs 2007 var síðarnefnda félag- inu veitt svokallað seljendalán fyrir tæplega 217 milljónir punda. Þetta kemur fram í ársreikningi Taldem Holding fyrir árið 2007, sem var skilað inn til fyrirtækjaskrár Lúx- emborgar 14. nóvember 2008. Rúm- lega tveimur vikum síðar, eða 1. desember 2008, berst fyrirtækja- skránni síðan tilkynning þess efnis að slíta eigi félaginu Talden Hold- ing. Það félag var í eigu Melkots ehf., sem var aftur í eigu Fons. Í til- kynningu sem Pálmi Haraldsson, annar aðaleigenda Fons, sendi frá sér í gær, segir að í kjölfar þessara viðskipta hafi Melkot eignast fjár- kröfu á Fons, sem var aftur 100% eigandi Melkots. Í tilkynningu Pálma segir að af- leiðing þessara viðskipta hafi verið að Fons eignaðist erlendar eignir Talden, með því að greiða félagi í sinni eigu 25 milljarða króna á þá- virði. Hagnaður Talden á árinu 2007 var síðan 27,5 milljarðar króna á þáverandi gengi, en ekki liggur fyrir hvert þeir fjármunir runnu. Morgunblaðið reyndi að ná tali af Pálma í gær, án árangurs. Riftunarmál tekin fyrir Fjölmörg riftunarmál á hendur Talden Holding » Skilaði miklum hagnaði árið 2007 eftir að hafa selt eignir til móðurfélagsins Fons. Skilaði inn ársreikningi fyrir árið 2007 um miðjan nóvember 2008 og félaginu slitið skömmu síðar. » Forsvarsmenn Talden Hold- ing voru þrjú skúffufyrirtæki með heimilsfesti á Tortóla. Ívar Páll Jónsson ivarpall@mbl.is Arion banki lagði fjóra milljarða króna inn á varúðarreikning vegna útlána til viðskiptavina á fyrri helmingi ársins, samkvæmt uppgjöri sem birtist í fyrra- dag. Gefur það til kynna að bankinn búist við enn frekari afskriftum á út- lánum til viðskiptavina, sem nema 466 milljörðum króna í bókum bankans. Þar er um að ræða verðmat Arion banka á umræddum útlánum, en nafn- verð þeirra – krafa á viðskiptavini – er mun hærra og nemur 1.237 milljörðum króna. Útlánin voru færð úr gamla Kaupþingi yfir í nýja, nú Arion, með 738 milljarða króna afslætti, á 499 milljarða króna. Síðan það var gert hefur Arion banki svo að auki fært 32,8 milljarða króna á varúðarreikning vegna útlána til við- skiptavina. Sem fyrr segir bættust fjórir milljarðar á þann reikning á fyrri hluta ársins. Arion banki skilaði 7,9 milljarða króna hagnaði eftir skatta á fyrri hluta ársins. Rekstrartekjur voru 27,7 millj- arðar króna á tímabilinu og hreinar vaxtatekjur 10,3 milljörðum króna. Hreinar þóknunartekjur námu 2,9 milljörðum og gengishagnaður var 1,4 milljarðar. Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna og skulda var 2,9%. Meira inn á varúðarreikning  Arion banki hefur lagt 33 milljarða inn á varúðarreikning vegna útlána  Heild- arútlán til viðskiptavina nema 466 ma. í bókum bankans en krafan er yfir 1.200 ma. Útlán Arion banka - ma.kr. Nafnverð Yfirfærsluverð Fært á varúðarreikning Verð í bókum bankans Lán og inneignir hjá lánastofnunum 64,7 43,5 0,7 42,8 Lán og inneignir hjá viðskiptavinum 1.237,3 498,8 32,8 466,0 Staða 30. júní 2010 1.302,0 542,4 33,5 508,8 Frumtak hefur keypt 70% hluta- fjár í Median – rafrænni miðlun hf. Frumtak er samlagssjóður í eigu Nýsköp- unarsjóðs at- vinnulífsins, sex af stærstu lífeyr- issjóðum lands- ins og bankanna þriggja. Seljendur hlutarins eru Drómi hf. og Miðengi ehf., eignarhalds- félag Íslandsbanka, en Fyr- irtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur annast ráðgjöf og söluferli á Medi- an – rafrænni miðlun síðan í maí á þessu ári. 38 milljóna tap 2008 Median – rafræn miðlun hf. var rekið með 37,5 milljóna króna tapi eftir skatta árið 2008 og tók Ís- landsbanki félagið yfir í kjölfarið. Fyrirtækið var stofnað árið 1993. Það er hugbúnaðar- og þjónustu- fyrirtæki sem sérhæfir sig í að skapa fyrirtækjum lausnir á sviði færslumiðlunar og rafrænna við- skipta. Fram kemur í tilkynningu um kaupin að hundruð fyrirtækja noti lausnir Median, bæði innan- lands og erlendis, beint og í gegn- um samstarfsaðila. ivarpall@mbl.is Frumtak eignast í Median Íslandsbanki Sá um söluna.  Kaupir hlut Dróma og Miðengis                                            !"# $% " &'( )* '$* ++,-., +/0-/+ ++1-+ 20-13/ +.-++/ +4-5.+ ++,-34 +-1,24 +34-4, +,+-34 ++4-21 +/+-2, ++1-51 20-51/ +.-+35 +4-,1. ++4-0/ +-1,44 +33-+/ +,2-+/ 20,-5./5 ++4-,+ +/+-4. ++1-34 20-5./ +.-21 +4-,/3 ++4-5 +-1404 +33-3+ +,2-4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.