Morgunblaðið - 17.09.2010, Síða 19
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010
Danska lögreglan sagði fyrst að
sprengjumaðurinn væri 180 cm hár
og 40 ára gamall.
Seinna var hann
25-35 ára og ell-
efu cm lægri.
Þetta misræmi
og fleira hefur
vakið spurningar
um vinnubrögð
dönsku lögregl-
unnar í máli 24
ára gamals
manns sem var
handtekinn í
Kaupmannahöfn á föstudag vegna
gruns um að hann hefði sprengt
sprengju á hóteli í borginni og ætlað
að fremja hryðjuverk. Margir Danir
furða sig á því hversu langan tíma
það tók að bera kennsl á manninn og
það var reyndar danska dagblaðið
B.T. – en ekki lögreglan – sem komst
að því hver maðurinn er.
Skýrt var frá því í gær að það hefði
tekið nema í blaðamennsku, sem er í
starfsnámi hjá B.T., aðeins 50 mín-
útur að bera kennsl á manninn.
Handtekni maðurinn var með föls-
uð skilríki og neitaði að segja deili á
sér. Lögreglan leitaði til fjölmiðla
um helgina og einnig til evrópsku
lögreglunnar Europol og dreifði
myndum úr eftirlitsmyndavél af
manninum en án árangurs. Þó var
vitað að maðurinn er einfættur og
frönskumælandi. Það var samt ekki
fyrr en á þriðjudag að birtar voru
nýjar myndir af fanganum og þar
sást að hann er með brotið nef en það
benti til þess að hann stundaði
hnefaleika.
Þetta varð til þess að B.T. gat upp-
lýst í fyrradag að maðurinn væri að
öllum líkindum 24 ára gamall Tétsj-
eni, búsettur í Belgíu, og það reynd-
ist rétt.
Þjálfari þekkti manninn
Vefur danska blaðamannafélags-
ins skýrði frá því að Casper Hjorth,
fréttastjóri B.T., hefði beðið blaða-
mennskunemann að hringja nokkur
símtöl vegna þess að hann talar
frönsku. Neminn hringdi í nokkur
hnefaleikafélög og spurði hvort ein-
hver þekkti einfættan hnefaleikara.
Sjöunda símtalið var við hnefaleika-
þjálfara sem kannaðist við manninn
og þar með var gátan leyst.
Danska lögreglan kvaðst í gær
vera afar þakklát B.T. fyrir þá að-
stoð sem blaðið hefði veitt í málinu.
Danir undrast vinnu-
brögð lögreglunnar
Það tók nema í blaðamennsku aðeins 50 mínútur að
komast að því hver sprengjumaðurinn í Kaupmannahöfn er
Fanginn með
hnefaleikanefið.
Útbreiðsla hafíss á norðurskauts-
svæðinu var sú þriðja minnsta í sept-
ember frá því að gervihnattamæl-
ingar hófust, að sögn bandarískra
vísindamanna. Þeir telja líklegt að
hafísinn hverfi að mestu í september
eftir um það bil tuttugu ár.
Hafís Norðurskautsins nær yfir-
leitt lágmarksútbreiðslu um miðjan
september. Hafísinn þakti alls 4,76
milljónir ferkílómetra í vikunni sem
leið þegar útbreiðslan var minnst, að
sögn vísindamanna bandarísku ís-
og snjórannsóknastofnunarinnar
NSIDC í Colorado.
„Minnkar mjög hratt“
Þetta er aðeins í þriðja skipti síð-
an byrjað var að mæla útbreiðslu
hafíssins með gervihnöttum að hún
fer undir fimm milljónir ferkíló-
metra. Aðeins árin 2007 og 2008 var
útbreiðslan minni. Ísþekjan var 4,13
milljónir ferkílómetra árið 2007 þeg-
ar hún var minnst.
Mark Serreze, yfirmaður rann-
sóknastofnunarinnar, segir að ljóst
sé að ísþekjan minnki vegna hlýn-
unar jarðar, meiri ís bráðni á vorin
og sumrin og minni ís myndist á
haustin og veturna. ,„Útbreiðsla haf-
íssins minnkar um 11% eða um það
bil á áratug – með öðrum orðum,
mjög hratt,“ hefur fréttastofan AFP
eftir Serreze. „Við teljum að árið
2030, eða um það bil, verði sennilega
enginn hafís á svæðinu í byrjun sept-
ember.“ bogi@mbl.is
Íslaust haf eftir 20 ár?
Útbreiðsla hafíss norðurskautsins sú þriðja minnsta í
september frá því að gervihnattamælingar hófust árið 1979
Minnst árið 2007
» Ísþekjan var sú næst-
minnsta miðað við ágústmán-
uð síðan gervihnattamælingar
hófust 1979 og 22% minni en
meðalísþekjan 1979-2000.
» Aðeins árið 2007 var ísþekj-
an minni. Reuters
Hlýnun Rússneskt hafrannsókna-
skip á norðurskautssvæðinu.
Elísabet Bretadrottning og Benedikt XVI páfi skiptast
á gjöfum í höll í Edinborg í gær þegar heimsókn páfa
til Bretlands hófst. Þetta er í fyrsta skipti sem páfi
heimsækir Bretland frá því að Hinrik áttundi sleit sam-
bandinu við kaþólsku kirkjuna og stofnaði ensku
biskupakirkjuna árið 1534.
Heimsókn páfa hófst í skugga frétta um barnaníð-
inga úr röðum kaþólskra presta víða um heim. Bene-
dikt páfi sagði við fréttamenn í flugvél sinni á leið til
Bretlands að kaþólska kirkjan hefði ekki verið nægjan-
lega á varðbergi gagnvart prestum sem misnotuðu
börn kynferðislega. Hann viðurkenndi að kirkjan hefði
ekki brugðist nógu „fljótt og ákveðið“ við málum
barnaníðinga í prestastétt.
Reuters
Kirkjan var ekki nógu vel á verði
–– Meira fyrir lesendur
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Hvönn í síma 569-1134
eða sigridurh@mbl.is
Gleði, hátíðir
og flottir fundir
Góður starfsandi leggur grunninn að
góðum rekstri, og stór hluti af starfi
stjórnandans er að halda uppi góðri
stemningu.
– Hver er lykillinn að góðri árshátíð? Er það
salurinn, skrautið, skemmtiatriðin eða
eitthvað allt annað?
– Hvernig er best að brjóta upp daginn?
Hvers kyns skemmtun og hópferðir gefa bestu
raunina?
– Er munur á því hvernig best er að kæta og hrista
saman lítinn vinnustað eða stóran?
– Hvar eru bestu salirnir? Og hvað er í boði til að
létta skipulagið og undirbúninginn þegar halda á
veislu eða veglegan fund?
Þetta og fleira forvitnilegt og skemmtilegt
fimmtudaginn 22. september.
Næsta fimmtudag skoðar
Viðskiptablað Morgunblaðsins
allt sem við kemur gleði
og galsa á vinnustaðnum.