Morgunblaðið - 17.09.2010, Side 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010
✝ Guðný Jóna Ás-mundsdóttir
fæddist í Silfurtúni í
Garðahreppi (Garða-
bæ) þann 8. október
1950. Hún lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans við
Hringbraut þann 12.
september 2010.
Foreldrar hennar
eru Ásmundur Gunn-
ar Sveinsson f. 15.10.
1927, d. 16.8. 1974 og
Anna Kristjana Þor-
láksdóttir (Stella) f.
3.8. 1929. Bróðir Guðnýjar er Þor-
lákur Ásmundsson f. 5.2. 1957 og
dóttir hans er Anna Kristjana Þor-
láksdóttir f. 8.3. 1996. Þann 30.
13.12. 1975, blikksmiður hjá Blikk-
smiðjunni Vík, búsettur í Kópa-
vogi, sambýliskona Sigrún Jens-
dóttir. 3) Ása Gunnur
Sigurðardóttir f. 2.6. 1981, kennari
í Grunnskóla Snæfellsbæjar, búsett
í Ólafsvík, sambýlismaður Ari Bent
Ómarsson.
Eftir að skyldunámi lauk starf-
aði Guðný við afgreiðslustörf á
Bílastöð Hafnarfjarðar til ársins
1991. Veturinn 1967-1968 stundaði
hún nám við Húsmæðraskólann í
Laugalandi í Eyjafirði. Veturinn
1991-1992 stundaði Guðný nám við
Skrifstofu- og ritaraskólann í
Reykjavík. Hún hóf störf við ræst-
ingar hjá Íslandsbanka haustið
1992 og ræsti útibúin í Garðabæ og
Suðurlandsbraut til ársins 2005.
Eftir það hóf hún störf hjá rekstr-
ardeild Íslandsbanka á Kirkjusandi
þar sem hún starfaði við hin ýmsu
störf og leið henni afar vel þar.
Útför Guðnýjar fer fram frá
Garðakirkju í dag, 17. september
2010, og hefst athöfnin kl. 15.
október 1976 giftist
Guðný eftirlifandi
eiginmanni sínum,
Sigurði Stefánssyni,
f. 6.5. 1949 í Reykja-
vík. Foreldrar hans
voru Stefán Sigurðs-
son f. 20.3. 1908, d.
30.11. 1983 og Guð-
rún Björg Valdimars-
dóttir (Dúna) f. 15.5.
1916, d. 17.7. 1994.
Sigurður á tvær syst-
ur, þær Petru og
Kristínu. Börn Guð-
nýjar og Sigurðar
eru 1) Anna Sigurðardóttir f. 16.4.
1969 flugfreyja hjá Icelandair, bú-
sett í Garðabæ, unnusti Hákon
Svavarsson. 2) Stefán Sigurðsson f.
Elsku mamma mín. Það er erfitt
til þess að hugsa að þú sért farin frá
okkur. Þú háðir harða baráttu og
barðist eins og sannkölluð hetja.
Meinið tók hins vegar yfirhöndina á
líkama þínum en baráttuandinn
leyndi sér aldrei. Ég hugga mig við
það á þessari erfiðu stundu að nú líði
þér betur á góðum stað hjá Guði og
afa.
Ótalmargar minningar koma upp í
hugann þegar hugsað er um liðna tíð.
Þú varst mér ekki bara móðir heldur
líka mín besta vinkona. Þær voru
ófáar stundirnar þar sem við rædd-
um saman um alla mögulega hluti og
það var alltaf gott að koma til þín og
spjalla. Þú áttir yfirleitt alltaf svör
við öllu og vildir allt fyrir mig gera.
Þú varst ákaflega félagslynd og áttir
afar auðvelt með að kynnast fólki.
Það sýndi sig sérstaklega þegar vinir
mínir og kunningjar komu að heim-
sækja mig, þá vildu þeir yfirleitt allt-
af kíkja á ykkur pabba líka. Gjaf-
mildi ykkar pabba hefur alltaf verið
ykkar aðalsmerki og þið hafið alltaf
látið okkur krakkana ganga fyrir.
Það skipti þig engu máli þó þið pabbi
væruð í sömu fötunum oft og mörg-
um sinnum svo lengi sem við krakk-
arnir værum fín og vel til höfð.
Þú hefur einnig alltaf verið ákaf-
lega réttsýn manneskja. Rétt skal
vera rétt, varstu vön að segja, og þú
vildir hafa allt á hreinu, sem þú hafð-
ir alltaf. Það var ekki margt sem fór
fram hjá þér og þú skynjaðir alltaf ef
eitthvað var ekki eins og það átti að
vera. Það er margt sem rifjast upp
fyrir manni á svona stundu og erfitt
að koma því öllu fyrir hér en eitt er
víst að þú varst einstök manneskja
og besta mamma sem hægt er að
hugsa sér.
Ég hef lært svo margt af þér,
mamma mín, og þú hefur verið mér
einstök fyrirmynd. Ég tel mig vera
einstaklega heppna að hafa átt þig
sem móður og vinkonu og ég vil
þakka þér fyrir allar þær stundir
sem við höfum átt saman, þær eru
ómetanlegar.
Elsku mamma mín, ég á eftir að
sakna þín óendanlega mikið en um
leið veit ég að þér líður betur á þeim
stað sem þú ert núna. Ég veit líka að
þú munt alltaf verða hjá mér í hjarta
mínu og leiða mig á rétta braut.
Þannig mun ég alltaf fara varlega.
Vertu Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson)
Ég hlakka til að sjá þig seinna.
Þín dóttir,
Ása Gunnur.
Elsku besta mamma mín. Nú ertu
farin frá mér allt of fljótt. Þessi síð-
asta vika sem ég fékk með þér var
ómetanleg. Ég var svo heppinn að
geta verið hjá þér á Landspítalanum
öllum stundum.
Það er synd að þú sért farin frá
okkur, þú sem vildir allt fyrir okkur
gera, sama hvað það var.
Ég gleymi því aldrei þegar þú og
pabbi hélduð upp á 20 ára afmælið
mitt. Þá var pæling að bjóða fullt af
fólki í Holtsbúðina en við ákváðum í
sameiningu að bjóða nánustu vinun-
um mínum í mat og drykk, þar sem
þú og pabbi voruð hrókar alls fagn-
aðar þetta kvöld. Ekki nóg með það
heldur voru veitingarnar svo ríflegar
að ég bauð sumum aftur daginn eftir.
Þetta var bara hvernig þú varst í
hnotskurn, elsku mamma mín.
Þín verður sárt saknað af öllum
sem þekktu þig, það er mikið áfall að
missa þig.
Ég elska þig svo heitt, móðir góð,
og ég hefði óskað þess að eiga fleiri
stundir með þér.
Ég veit að afi tekur vel á móti þér
og megi minning þín lifa að eilífu.
Þinn sonur,
Stefán.
Elsku besta mamma mín, stundin
þegar þú kvaddir okkur var svo fal-
leg, þó það hafi verið einhver sú erf-
iðasta sem ég hef upplifað. Þetta átti
ekki að gerast strax, ekki næstum
því strax, þú varst ekki einu sinni
orðin sextug, en þú varst bara orðin
svo þreytt.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þær eru svo margar minningarnar
um þig, elsku mamma, sem ég geymi
í hjarta mér og ætla að eiga fyrir
mig. Ég kveð þig nú í bili, en veit að
þú heldur áfram að fylgjast með okk-
ur öllum og leiðir okkur áfram.
Farðu nú varlega, elsku mamma
mín.
Ég elska þig, þín
Anna.
Elsku Guðný okkar.
Þá er komið að leiðarlokum í þessu
lífi og það allt of snemma
Vinskapur okkar hófst fyrir rúm-
um 30 árum þegar eiginmenn okkar
unnu saman.
Ýmislegt höfum við brallað saman
í gegnum árin, farið til útlanda með
börnin þegar þau voru ung og síðari
ár við fjögur saman. Ógleymanlegar
eru ferðirnar sem við fórum til Prag,
Boston, Kaupmannahafnar eða
Spánar, og voruð þið hjónin einstakir
ferðafélagar.
Og ekki má gleyma þegar jólin
fóru að nálgast, þá sagði sonur okkar
ávallt: Förum við ekki örugglega til
Guðnýjar og Sigga á þorláksmessu
eftir að búið var að vera í bænum,
Guðný alltaf með dekkað borð af
ýmsum krásum, heimabökuðum flat-
kökum og öðru góðgæti. Þau hjónin
voru einstakir gestgjafar heim að
sækja, setið var smástund og spjall-
að saman og síðan haldið heim á leið
og þá sagði drengurinn. Jæja, nú
koma jólin. Þetta eru ógleymanlegar
stundir, svo maður tali nú ekki um öll
matarboðin í gegnum árin. Minning-
ar okkar með ykkur hjónum er ótal-
margar en ekki verða fleiri settar
hér á blað.
Elsku Siggi, Anna, Stefán, Ása
Gunnur og aðrir aðstandendur, við
vottum ykkur okkar dýpstu samúð
við fráfall Guðnýjar Jónu. Hugur
okkur er hjá ykkur á þessum erfiðu
tímum.
Bjarni og Þuríður.
Í öðrum hvorum söng sem nú er sung-
inn er tómt svartsýnisraus.
Og textaskáldin sýnast mörg sorgum
þrungin, já, langt upp fyrir haus.
En ég vil heldur syngja’ um björtu hlið-
arnar á ævinnar braut.
Ég er ánægður ef ég á söng í hjartanu
og saltkorn í minn graut.
Já, syngjum um lífið
og lofum það líka,
þó að peningana skorti getur ham-
ingjan oft gert menn æði ríka.
Það er nógur tími til að hugsa’ um
dauðann eftir dauðann
njóttu lífsins meðan kostur er.
Ég syng bara’ um lífið
og syngdu með mér.
(Þorsteinn Eggertsson.)
Það er stutt síðan Guðný upplýsti
okkur um að söngurinn um lífið væri
hennar uppáhaldslag. En okkur
fannst það ekkert skrýtið því hún
var alltaf svo jákvæð og vildi ekkert
tal um sút og seyru.
Guðný Jóna okkar starfaði í bank-
anum í tæp 18 ár, fyrst í útibúinu í
Garðabæ, síðan á Suðurlandsbraut
og síðustu árin í Rekstrardeildinni á
Kirkjusandi. Eitt af störfum hennar
var að dreifa pósti á allar hæðir
Kirkjusands og það er óhætt að
segja að hún var mjög vinsæl. Alltaf
var hún fín til fara, jákvæð og glæsi-
leiki yfir henni. Hún sýndi starfs-
fólkinu áhuga og var góður kunningi
margra. Það var líka stutt í húmor-
inn hjá henni. Eftir að Guðný veikt-
ist og þurfti að vera frá vinnu um
tíma var stöðugt spurt um hana og
við beðin um kveðjur til hennar. Síð-
an kom Guðný aftur og vann vinnu
sína af fullum krafti og gaf aldrei
neitt eftir. Hún var ósérhlífin og hún
vildi enga vorkunn þó ekki væri hún
alltaf full frísk síðustu mánuðina.
Góð kona hún Guðný Jóna, hreint út
sagt yndisleg og skemmtilegur sam-
starfsfélagi.
Þó að jarðskjálftar, eldgos, frost og
fárviðri sé fréttaefni.
Þá er fegurðin og ástin já og sólskinið
hið rétta efni
sem er þess virði að það sé leitað uppi
og notið sé vel.
Því að bjartsýni, bros og gleði’ í sálinni
er best, það ég tel.
(Þorsteinn Eggertsson.)
Við munum sakna Guðnýjar Jónu
bæði sem samstarfsfélaga og vin-
konu.
Innilegar samúðarkveðju til ykkar
Siggi, Anna, Ása Gunnur og Stefán.
Fyrir hönd samstarfsfólks
Rekstrardeildar Íslandsbanka,
Helga og Anna.
Guðný Jóna
Ásmundsdóttir ✝Okkar elskulega sambýliskona, móðir, dóttir og
systir,
GUNNHILDUR JÚLÍUSDÓTTIR,
Gullengi 21,
Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 14. september.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 23. september kl. 13.00.
Karl Lilliendahl Ragnarsson,
Christian Lilliendahl Karlsson,
Jenný Hauksdóttir,
Júlíus Viðarsson, Hulda Þórsdóttir,
Hafþór Júlíusson.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir mín, amma og
langamma,
ÞÓRUNN BJÖRNSDÓTTIR,
Giljum í Mýrdal,
lést föstudaginn 10. september.
Útförin fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn
18. september kl. 14.00.
Ólafur Á. J. Pétursson,
Sigrún B. Ólafsdóttir,
Ólafur Þorsteinn Gunnarsson, Birna Kristín Pétursdóttir,
Þórir Auðunn Gunnarsson,
Sigríður Margrét Gunnarsdóttir, Helgi Júníus Jóhannsson,
Sólrún Erla Gunnarsdóttir, Gylfi Viðar Guðmundsson
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma,
systir og tengdadóttir,
ÞÓRANNA SIGRÍÐUR JÓSAFATSDÓTTIR,
Dalseli 9,
Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hring-
braut þriðjudaginn 14. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Jónsteinn Jónsson,
Elvar Freyr Jónsteinsson, Rebekka Lea Te Maiharoa,
Grétar Jósafat Jónsteinsson,
Jón Ingiberg Jónsteinsson, Viktoría Sigurgeirsdóttir,
barnabörn, systkini og tengdamóðir.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐBJARTUR ÞORVARÐARSON,
Naustabúð 6,
Hellissandi,
sem andaðist á St. Franciskusspítala Stykkishólmi
þriðjudaginn 7. september, verður jarðsunginn frá
Ingjaldshólskirkju laugardaginn 18. september
kl. 14.00.
Þorvarður J. Guðbjartsson, Auður Hilmarsdóttir,
Sölvi Guðbjartsson, Katrín Sigurjónsdóttir,
Guðrún G. Guðbjartsdóttir, Rafnar Birgisson,
Elva B. Guðbjartsdóttir, Þór Reykfjörð,
Lilja B. Guðbjartsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
LÁRA LÁRUSDÓTTIR,
Mýrarvegi 111,
Akureyri,
sem lést á dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn
11. september, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 20. september kl. 13.30.
Adam Ingólfsson,
Sólveig Adamsdóttir, Sævar Örn Sigurðsson,
Ásgeir Adamsson, Maríanna Traustadóttir,
Lára Halldóra Eiríksdóttir, Jón Torfi Halldórsson,
Margrét Eiríksdóttir,
Hildur og Katla Ásgeirsdætur,
Halldór Yngvi, Elvar Örn, Þorgerður Katrín og
Sólveig Alexandra Jónsbörn,
Heimir Már og Davíð Már Ólasynir.