Morgunblaðið - 17.09.2010, Síða 27

Morgunblaðið - 17.09.2010, Síða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010 að njóta síðustu daganna með þér var dásamlegt. Ég elska þig alltaf. Þín Bylgja. Það er sérstök tilfinning að verða ekki hissa við að fá tilkynningu um andlát einhvers nákomins eins og Pétur var mér. Hugurinn fer á flakk og ég hugsa til þeirra sumra sem ég var í sveit hjá honum og Helgu, sem féll frá fyrir nokkrum árum. Það fyrsta sem kom upp í hugann var allt það sem hann kenndi mér. Það var hann sem kenndi mér að róa árabáti, það er því honum að þakka að ég er ótrúlega góður að róa, þó ég segi sjálfur frá. Hann kenndi mér að tína ull af girðingu svo að kindurnar mundu ekki muna hvar þær komust inn á túnið. Hann kenndi mér að hnýta hnúta, vegna þess að bagga- band kemur til góðra nota í svo mörgu. En síðast en ekki síst er það vísan sem hann kenndi mér: Trúðu á tvennt í heimi, tign sem æðsta ber: Guð í alheimsgeimi, Guð í sjálfum þér. (Steingr. Thorsteinsson) Reyndar fór ég í mörg ár með aðra ljóðlínu sem „Tvennt sem æðrum ber“ og hélt því fram að svoleiðis hefði ég lært hana hjá Pétri. Fjölda margar aðrar minningar koma upp í hugann, sem margar hafa með vodka og heimabrugg að gera og ég hlæ upphátt. Samt ætla ég að eiga þær minningar einn. Ég finn til svo mikils þakklætis til Péturs sem ég vona að ég hafi á lífs- leiðinni komið til skila til hans. Enda- lausar frábærar stundir sem ég átti með Pétri sem munu ylja mér um alla tíð. Aðstandendum Péturs votta ég mína innilegustu samúð. Hvíl í friði, Pétur. Ómar Stefánsson. bjartsýni og það var alltaf sönn ánægja að vera í kringum þig. Þú hafðir ein- stakan húmor og það var alltaf hægt að hlæja með þér, en einnig hægt að ræða allt milli himins og jarðar við þig. Alltaf varstu tilbúinn að gera hluti fyrir aðra og gleðja fólk í kringum þig. Aldrei man ég eftir þér reiðum eða pirruðum, aldrei. Mynd sem mun að eilifðu lifa í minning- unni er þegar við vorum búnir að klæða okkur í Zorro- og Batman-skykkjur, þú með grímu, og vorum að hoppa niður af stól í stofunni okkar í Danmörku. Við eyddum ófáum klukkutímum í sjón- varpsstofunni þar sem ég klæddi mig í alls konar fótboltabúninga og þú varst áhorfandi á meðan ég hljóp fram og til baka með knöttinn. Á ævi þinni hefur þú kennt mér margt. Ég tek mér þig til fyrirmyndar í rosalega mörgu og þú hefur alltaf verið tilbúinn að hjálpa mér eða leiðbeina þeg- ar ég hef spurt þig ráða. Í íslenskuá- fanga í menntaskólanum átti ég að taka viðtal við eldri borgara um ástandið á Ís- landi í dag, og að sjálfsögðu varðst þú fyrir valinu. Það kom mér því ekki á óvart þegar ég fékk 10 fyrir verkefnið því viðtalið var svo ríkt af visku og fróð- leik. Þú hefur einnig brugðið á leik í Morgunblaðinu þar sem þú fórst í heil- síðu viðtal. Þú varst lögfræðingur að mennt og það er mér mikil hvatning í stefnu minni að lögfræðinámi. Ég veit að þú verður alltaf með mér í anda og hvetur mig áfram í öllu sem ég geri rétt eins og þú gerðir þegar þú varst á lífi. Ég sakna þín, afi, og ég á mjög erfitt með að átta mig á því að þú sért farinn frá okkur. Mig mun ávallt vanta þig í líf mitt. Ég veit samt að þú vilt að ég taki þessu eins og maður og brosi, haldi áfram og njóti lífsins. Ég er mjög þakk- látur fyrir að hafa fengið að kynnast þér svona vel og að við höfum verið svona nánir. Þegar ég sakna þín mun ég alltaf rifja upp æðislegu minningarnar sem ég á um þig. Guð geymi þig. Ingólfur Örn. Þegar ég var lítil var föstudagurinn langi leiðinlegasti dagur ársins. Föstu- dagurinn langi var nefnilega dagurinn sem afi tók ekki í spil! Alla hina 364 daga ársins gengum við systkinin að honum vísum, afi sagði nefnilega alltaf já. Hann kenndi okkur spil sem hann hafði spilað á sínum yngri árum, spil sem jafnaldrar okkar höfðu aldrei heyrt um einu sinni. Afi átti líka alltaf nammi og ef hann átti það ekki, þá var hann á leið í sjoppuna. Í dag hlær hún dóttir mín að afa-sögum þar sem við systkinin settumst til borðs að kvöldi dags og afi mætti ströngu augnaráði mömmu þegar við vorum með öllu lystarlaus. „Pabbi, varstu að gefa þeim sælgæti?“ Þá svaraði afi: „Það var bara obbolít- ið“ og við hlógum. Afi sagði okkur sögur um allt mögu- legt. Hann hafði sérstaklega gaman af því að segja mér frá atviki sem gerðist þegar ég hef verið svona 4 ára. Þá voru hann og amma að þrasa í eldhús- inu í Hofi. Ég kom þá inn í eldhúsið, stappaði niður fætinum og sagði: „Mæja á afa og afi á Mæju!“ Við afi, eða „vi to gamle“, pössuðum vel upp á hvort annað. Það skipti afa miklu máli að vera í góðu og reglulegu sambandi við fólkið sitt, hvar sem það var niðurkomið í heiminum. Þegar honum fannst líða of langt á milli símtala, þá sagði hann iðulega: „Ber mér að líta svo á að þú sért á lífi?“ Einu sinni bað hann mig fyrir skilaboð til „mannkertisins hans bróður míns“ um að hann mætti hringja í afa sinn! Til eru ótal gullkorn og fleygar setningar sem afi hefur látið flakka í gegn um árin og sem lýsa persónu hans og lífsviðhorfum vel. „Mæja mín, þolinmæði þrautir allar vinnur“ sagði hann rólegur og yfirvegaður á meðan hann baksaði við að leysa hnútinn á skóreiminni minni, sem ég var fyrir löngu búin að úrskurða óleysanlegan. Mér er líka alveg sérstaklega minn- isstætt þegar ég, Einar Þór og mamma komum heim frá Danmörku til að halda upp á 80 ára afmælið hans. Eins og venjan var, þá hringdi ég í afa um leið og flugvélin var lent til að láta vita af okkur. Ég endaði símtalið á að segja að ég hlakkaði til að sjá hann. Þá svaraði afi um hæl: „Það er ekkert að sjá“. Það sannaðist þar með að hóg- værð hans voru engin takmörk sett. Það er erfitt að kveðja afa Einar, yngsta manninn, greifann okkar og höfðingjann. Ótal minningar um ein- stakan mann, sem skipaði stóran sess í lífi mínu, lifa um ókomin ár. Farðu varlega, afi minn. María Huld.  Fleiri minningargreinar um Einar Leif Pétursson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Þeim fer ört fækkandi, börnum Ingibjargar ömmusystur minnar – að- eins nafna mín ein eftir. Ég kynntist honum fyrst af afspurn, þar sem systur hans töluðu svo oft um hann í heimsóknum sínum á bernsku- heimili mitt, og síðar í samtölum sínum við mig. Ég fylgdist því snemma með öllum fréttum í útvarpi og sjónvarpi frá Höfn og nágrenni, sem þessi frændi minn flutti þaðan sem fréttarit- ari Ríkisútvarpsins á staðnum, og dáð- ist líka að myndunum, sem hann tók fyrir sjónvarpið þar eystra. Áhugamál hans spönnuðu líka vítt svið, þótt hann væri fyrst og fremst skólamaður. Ég hafði spurnir af ferð- um hans á grasafjall um hálendi Aust- urlands og norðaustanlands, þar sem hann dvaldi langdvölum á sumrin með fjölskyldu sinni við grasatínslu. Þegar ég fór sjálf að nýta mér gróður jarð- arinnar í lækningaskyni fyrir rúmum 20 árum síðan, þá sögðu systur hans við mig, að ég þyrfti ekki að leita langt yfir skammt eftir fjallagrösum, ef ég vildi nýta mér þau, þar sem Heimir Þór hefði þau á lager hjá sér, og hefði verið að selja þau í heilsubúðum í Heimir Þór Gíslason ✝ Heimir Þór Gísla-son fæddist í Sel- nesi á Breiðdalsvík 15. mars 1931. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi hinn 3. september 2010. Útför Heimis Þórs fór fram frá Hall- grímskirkju 10. sept- ember 2010. Heimir Þór verður til moldar borinn á Höfn í dag, 17. september 2010. lengri tíma. Mér væri því nóg að leita til hans beint til að spara mér útgjöldin, ef ég þyrfti á þeim að halda. Það var líka auðsótt mál, þegar eftir því var leitað. Hann gaf mér alltaf eins mikið og ég þurfti og vel það, sem ég þakka nú kærlega fyrir. Ég hug- leiddi það stundum að fá að fara með honum og fjölskyldunni í þess- ar grasaferðir í leit að jurtum, og fræðast þá af honum um flokkun og verkun þeirra, þótt af því yrði aldrei, en ég sótti ein- hverju sinni fyrirlestur, sem hann hélt um þau efni og hálendi Austurlands í einum af fyrirlestrarsölum Háskóla Íslands, sem var mikill fengur að, eins og hans var von og vísa, enda var hann bæði stórfróður og skemmtilegur fyr- irlesari og sagnaþulur, auk þess að vera launfyndinn, ef svo bar undir. Stjórnmálaskoðanir okkar fóru mjög saman, og hann lá ekki á skoð- unum sínum í þjóðmálunum, ef því var að skipta. Hann var sannur jafnaðar- maður í þess orðs fyllstu merkingu. Þegar leiðir hafa nú skilist að sinni, og Heimir Þór er farinn heim til sinna, þá er mér efst í huga ómælt þakklæti fyrir góð og gjöful kynni og frænd- semi, og bið honum allrar blessunar, þar sem hann er nú. Aðstandendum öllum votta ég mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning míns ágæta frænda. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Í dag er kveðjuathöfn í Hafnar- kirkju á Höfn í Hornafirði um Heimi Þór Gíslason. Nú er hann kominn að leiðarlokum í sínum heimabæ og verð- ur jarðsettur hjá eiginkonu sinni Sig- ríði Helgadóttur. Margar minningar fara um huga minn er ég minnist Heimis. Heimir var mikill fræðimaður og víðsýnn, hann var náttúrubarn og unni náttúrunni, hann var kennari, sannur mannvinur og svo margt fleira. Ég kynntist Heimi og fjölskyldu hans þegar ég var 8 ára er ég fór í heimavistarskólann að Staðarborg í Breiðdal. Ég borgarbarnið var skelf- ingu lostin að koma inn í skólann á miðjum vetri og átti erfitt með að fóta mig í þessu umhverfi. Með mér og dóttur Heimis, Helgu Nínu, tókst mik- il vinátta, og hefur hún verið mér sem systir alla tíð síðan. En á þessum erf- iðu tímum var heimili Heimis og Siggu opnað fyrir mér og bjó ég hjá þeim þennan vetur. Alla tíð síðan hefur heimili Heimis og hans fjölskyldu stað- ið mér opið og verið mér sem annað heimili. Heimir var afar ljúfur í lund en ákveðinn, ég man varla eftir að hann hafi skipt skapi. Hann var góður kenn- ari og fjölhæfur, hann lét okkur krakk- ana gera ótal hluti sem ekki voru hefð- bundnir og þótti sumum nóg um. Hann lét okkur krakkana syngja á morgnana fyrir kennslu, fór í ferðalög og náttúrurannsóknir, setti upp leikrit með okkur, fór í leiki á kvöldin eða kenndi okkur dans með Siggu, svo eitt- hvað sé nefnt. Heimir var með vak- andi auga á okkur krökkunum allan sólarhringinn meðan við dvöldum í skólanum. Hann sá alltaf um að gefa okkur kvöldkaffið áður en við fórum í rúmið og er það mér enn í minni hvað kalda mjólkin var góð með matarkex- kökunni. Nú síðari ár hef ég hitt Heimi mest á heimili Helgu Nínu við ýmis tæki- færi en hún hefur haldið fjölskyldunni saman með ýmsum uppákomum. Ein hefðin er að við hittumst alltaf í skötu- veislu á Þorláksmessu en þau systk- inin Helga Nína og Hrafn Margeir hafa átt heiðurinn af því. Heimis mun verða sárt saknað. Heimir og Sigríður voru mjög samrýmd hjón og samstiga í flestu sem þau gerðu. Mér í minni er dvöl ein er ég átti með þeim og Helgu Nínu og öllum barnabörnunum á fjöll- um við fjallagrasatínslu. Þetta var samrýmd stórfjölskylda sem naut þess að vera úti í náttúrunni. Að lokum vil ég senda Helgu Nínu, Hrafni Margeiri, Sigurþóri, Gísla Birni og fjölskyldum þeirra og öðrum vandamönnum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Einnig Magneu Sig- urbergsdóttur sambýliskonu Heimis og hennar fjölskyldu. Kveðja, Bonnie Laufey Dupuis og fjölskylda. ✝ Kristján Frið-riksson fæddist í Reykjavík 29. júlí 1935. Hann lést á Líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 11. september 2010. Foreldrar hans voru Friðrik Ólafur Páls- son, f. 19. júlí 1903, d. 14. febrúar 1990, og Petrína Regína Einarsdóttir Rist, f. 28. nóvember 1901, d. 19. september 1954. Alsystkin hans: Páll, f. 1930, Einar Möller, f. 1933, d. 1934, Einar f. 1937, Ólafur Þór, f. 1940. Samfeðra: Bjarndís, f. 1927, d. 2009, Jón, f. 1948. Kristján giftist 29. apríl 1961 eftirlifandi eiginkonu sinni, Con- cordíu Konráðsdóttur, f. 18. des- ember 1942. Börn þeirra eru: Friðrik, f. 1961, Kristján, f. 1963, Regína, f. 1964, Kon- ráð, f. 1966, Guðrún Jóna, f. 1972 og Ein- ar Þór, f. 1975. Barnabörnin eru 8. Kristján ólst upp í Reykjavík, hann vann verkmanna- vinnu, stundaði sjó- mennsku og nam síðan nám í húsa- smíði og tók meist- arapróf 1975. Hann vann við sitt fag til ársins 1992 en þá fékk hann heilablóðfall. Kristján og Con- cordía bjuggu í Reykjavík alla tíð, nema á árunum 1969 til 1972 en þá bjuggu þau í Svíþjóð. Útför Kristjáns fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 17. september 2010, og hefst at- höfnin kl. 11. Elsku pabbi, það verður skrítið að koma heim í Torfufellið og sjá þig ekki í stólnum í stofunni, bros- andi. Þú varst alltaf glaður og já- kvæður þrátt fyrir erfið veikindi síðustu 18 ár. En þú varst ákveð- inn í því að halda áfram ótrauður og þér tókst með æðruleysi og miklum viljastyrk að ná ótrúlega góðum bata miðað við hversu mik- ið áfallið var í upphafi. Þú kenndir okkur það að með jákvæðu huga- fari þá er hægt að komast langt og sigrast á erfiðleikum. Dagdvölin í Hátúni hjálpaði þér og mömmu mikið og það var þér mikil ánægja að fá rafmagnsskutl- una til að fara um allan bæ. Það veitti þér mikið frelsi og mér er það minnisstætt þegar skutlan bil- aði og löggan skilaði þér skæl- brosandi heim með skutluna aft- aní. Það var gaman að koma í heim- sókn og ræða við þig um enska boltann, brennandi áhugi þinn á honum og getraunum hjálpaði þér í gegnum erfiða tíma. Þú hélst með Man. Utd alla tíð og glottir alltaf þegar ég nefndi Derby á nafn og varst alltaf ánægður með það að við systkinin fylgdumst með boltanum og áttum okkar lið. Þetta sýnir hversu mikilvægt er að hafa áhugamál og halda áfram að stunda þau alla tíð. Meira að segja undir lokin þegar þú varst þrótt- laus á spítalanum þá vildir þú ekki missa úr viku í getraunum, baðst mig að koma með blýanta og stinga ofaní skúffu, Jónu að koma með getraunaseðla og mamma hjálpaði þér síðan með síðustu seðlana. Uppgjöf var ekki til í þinni orðabók. En undir lokin var þetta orðið mjög erfitt og þrátt fyrir mikla baráttu þá var ljóst hvert stefndi og þú ert örugglega hvíldinni feg- inn. Við skynjuðum það og sáum hversu mikil værð og ró færðist yfir þig þegar þú yfirgafst okkur. Við kveðjum þig öll með söknuði en minningin um þig mun alltaf lifa í huga okkar. Ljúfar minn- ingar um eiginmann, föður, tengdaföður og afa sem var hetjan okkar. Megi guð varðveita þig og gefa mömmu styrk til að sigrast á sorginni og missinum. Kom, huggari, mig hugga þú, kom, hönd, og bind um sárin, kom, dögg, og svala sálu nú, kom, sól, og þerra tárin, kom, hjartans heilsulind, kom, heilög fyrirmynd, kom, ljós, og lýstu mér, kom, líf, er ævin þver, kom, eilífð, bak við árin. (Vald. Briem) Friðrik Kristjánsson. Það er skrítið að þurfa ekki að vera í Torfufellinu kl. 8 á morgn- ana eins og ég hef verið síðast- liðna tvo áratugi. Annað hvort hringdi ég eða Concordía til að mæla okkur mót, því að engin var aðstaðan fyrir Kristján að bíða eftir mér niðri. Í öll þessi ár bjuggu þau á 2. hæð og þurfti Kristján að ganga stigana svona á sig kominn. Það er lærdómsríkt að fá að kynnast svona duglegu fólki sem lætur sjúkdóma og önn- ur áföll hvergi á sig fá. Við áfallið sem Kristján fékk lamaðist helm- ingur líkamans og það sem verra var, hann gat ekki talað lengur. En lífsgleðin, góða skapið og hlát- urinn lömuðust ekki og gat hann hlegið dátt af minnsta tilefni. Það sem Kristjáni fannst verst voru frídagarnir. Þá gat hann ekki mætt í „vinnuna“. Honum fannst helgarnar vera langar og ég tala nú ekki um sumarfríið. Á hverjum degi í „vinnunni“ brunaði hann á sinni Skutlu um allt nágrenni Há- túns 12 og þá fannst honum hann vera frjáls maður og brosti út að eyrum og veifaði er ég mætti hon- um. Við, starfsfólk og vistfólk Dag- vistar Sjálfsbjargar þökkum Kristjáni fyrir samfylgdina í öll þessi ár og óskum honum góðrar ferðar á nýju „Skutlunni“ sinni um óravíddir himingeimsins. Að lokum vottum við Concordíu og öllum öðrum ættingjum Krist- jáns, okkar dýpstu samúð. Þinn vinur og bílstjóri, Steindór. Kristján Friðriksson                         

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.