Morgunblaðið - 17.09.2010, Síða 36
36 MENNINGFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010
Sýningin Grafík frá Færeyjum
verður opnuð á laugardag kl.
16:00 í sal Íslenskrar grafíkur
Tryggvagötu 17. Sýningar-
stjóri sýningarinnar er mynd-
listarmaðurinn Rikhard Valt-
ingojer. Hann býr og starfar á
Stöðvarfirði og rekur Gallerí
Snærós og hefur góð tengsl við
Færeyjar.
Þessi sýning var fyrst sett
upp fyrir austan í Gallerí Snæ-
rós 3. október sl. Sýnendur eru Bárður Jákups-
son, Jóhan Martin Christiansen, Jóna Rasmus-
sen, Kári Svensson, Oggi Lamhauge, Rannvá
Holm Mortensen, Símun Marius Olsen og Trónd-
ur Patursson. Sýningin stendur til 3. október.
Myndlist
Sýning á grafík frá
Færeyjum
Veggspjald
sýningarinnar.
Nú stendur yfir á Mokka á
Skólavörðustíg sýning ljós-
myndarans Karls R. Lillien-
dahls, en henni lýkur í næstu
viku. Á laugardag kl. 14:00 til
16:00 verður Karl með lista-
mannsspjall um sýninguna og
ræðir um myndirnar og tilurð
þeirra.
Karl nefnir sýninguna Se-
condo, en á henni gefur að líta
mannlífsmyndir frá ítölsku
borgunum Lucca, Bologna og Feneyjum. Þetta er
sjöunda einkasýning Karls sem hélt sína fyrstu
ljósmyndasýningu á Íslandi haustið 2007 og hefur
sýnt víða um heim. Sýningin stendur til 23. sept-
ember og er opin daglega frá klukkan 9 til 18.30.
Ljósmyndun
Listamannsspjall
um Secondo
Karl R.
Lilliendahl
Á sunnudag kl. 15:00 verður
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson
með listamannaspjall á sýning-
unni ÁR: málverkið á tímum
straumvatna í Listasafni Ár-
nesinga í Hveragerði, en þar
má nú sjá málverk eftir Þor-
vald Skúlason og Sigtrygg
Bjarna Baldvinsson í samhengi
í fyrsta sinn. Tvö málverk með
titilinn Ölfusá, sitt eftir hvorn
höfundinn, eru inngangurinn
að sýningunni sem er samvinnuverkefni Lista-
safns Árnesinga og Listasafns Háskóla Íslands.
Auður Ólafsdóttir listfræðingur er sýningarstjóri.
Safnið er opið alla daga kl. 12-18, allir velkomn-
ir og aðgangur er ókeypis.
Myndlist
Málverkið á tímum
straumvatna
Sigtryggur Bjarni
Baldvinsson
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Á laugardag verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur
sýning á klippimyndum Errós, sem hann hefur gef-
ið safninu frá árinu 1989. Á sýningunni verða um
130 myndir, en alls hefur Erró gefið safninu 472
klippimyndir sem spanna langan feril hans. Á sýn-
ingunni eru til sýnis samklipputeikningar og sam-
klippuuppsetningar, en einnig tilklipptar pappírs-
myndir frá námsárunum.
Sýningarstjóri er Danielle Kvaran, sem hefur
ritað bækur um Erró, sýningarskrár og greinar og
sett upp sýningar í Listasafni Reykjavíkur á verk-
um hans. Í texta um klippimyndasýninguna segir
hún m.a. að Erró hafi uppgötvað listformið klippi-
myndir í Myndlistar- og handíðaskóla Íslands árin
1950–1951. Þar hafi hann notað rifinn eða til-
klipptan litaðan pappír til þess að búa til óhlut-
bundin og hlutbundin verk með fyrirmyndum úr
nútímalistasögu og ýmsum alþýðuhefðum.
Fundið prentað efni
„Erró hóf þó ekki meðvitað notkun samklippu
fyrr en í lok sjötta áratugarins og þá í formi mynda
og prentaðra texta. Árið 1958 gerði hann syrpu
samklipputeikninga í Ísrael, Radioactivity, sem vís-
ar í herferð franskra súrrealista gegn kjarnorku.
Þessi verk eru samsett af myndbrotum eða setn-
ingum sem klipptar eru úr blöðum annars vegar og
hins vegar af persónum sem eru teiknaðar fríhend-
is og þrungnar spennu.
Ári síðar, í París, hættir Erró að beita grafík í
klippimyndum sínum. Í stað þess notast hann ein-
göngu við fundið prentað efni (til dæmis vinsæl
tímarit og rit um tæknileg efni). Á árunum 1959–
1960 gerir hann myndasyrpuna Méca-Make-up
sem er samsett úr myndum af vélum, hlutum úr
verksmiðjum og fyrirsætuandlitum. Hann nær há-
marki hinnar frumlegu sköpunar sinnar með því að
útfæra hluta þessara fyrstu mynda í málverkum en
þar með öðlaðist klippimyndin tvöfalt hlutverk:
mynd heilsteypts verks með eigin ásjónu og hlut-
verk skissu að nýjum stíl. Það er þó ekki fyrr en ár-
ið 1964, þegar listamaðurinn kynnist bandarísku
neyslu- og fjölmiðlasamfélagi í New York, að þessi
tvíþætta aðferð verður kerfisbundin og klippi-
myndin verður „ein-
stakur lykill að
sköpunarvirkni og
gerð allra verka
hans“ (Alain Jo-
uffroy, 1981).“
Opnun og sam-
keppni
Klippimyndir
Erró voru yf-
irleitt skap-
aðar í
þematengdum syrpum og gefur það því færi á að
hafa þemaskiptingu á sýningunni þó tímaröð sé
fylgt. Í lokahluta sýningarinnar er síðan veitt inn-
sýn í sköpunarferli listamannsins þar sem ákveðin
málverk eru tengd við klippimyndirnar sem lagðar
eru til grundvallar að þeim.
Þess má geta að skammt er síðan haldin var sér-
stök yfirlitssýning á klippimyndum Errós í Galerie
d’art graphique-salnum í Pompidou-listasafninu í
París. Á þeirri sýningu voru klippimyndir sem
Erró gaf Pompidou-safninu.
Erró kemur til
landsins í tilefni af
opnun sýningar-
innar og verður
viðstaddur þegar borgar-
stjórinn í Reykjavík, Jón
Gnarr, opnar sýninguna.
Við sama tilefni mun Hafþór
Yngvason, safnstjóri Listasafns
Reykjavíkur, kynna klippi-
myndasamkeppni, sem Erró
býður nemendum og almenn-
ingi að taka þátt í og nánar er
greint frá hér til hliðar. Vegleg
verðlaun verða veitt fyrir
bestu myndina sem Erró mun
kynna við opnunina.
Klippimyndir Ein af klippimyndum Errós sem sýnd verður í Listasafni Reykjavíkur.
Erró og klippimyndirnar
Listasafn Reykjavíkur
opnar yfirlitssýningu á
klippimyndum sem Erró
hefur gefið safninu
Bandaríski rithöfundurinn Neale
Donald Walsch, höfundur metsölu-
bókanna „Samræður við Guð“, held-
ur fyrirlestur í Þjóðleikhúsinu næst-
komandi miðvikudag kl. 9:00.
Hann hefur átt ævintýralega ævi,
en vendipunktur í lífi hans var er
hann missti heilsuna, fjölskyldu sína
og veraldlegar eigur, allt á sama
tíma, þá tæplega fimmtugur. Háls-
brotinn bjó Walsch í tjaldi og leitaði
matar í ruslagámum.
Eftir þessa reynslu tók Walsch að
skrifa niður spurningar sem hann
myndi vilja spyrja Guð og fékk skýr
svör að honum fannst. Spurning-
arnar og svörin urðu að bókinni
Samræður við Guð, sem varð met-
sölubók víða um heim og kom meðal
annars út hér á landi. Fleiri bækur
hans um sama efni hafa líka selst
metsölu.
Myndlistakonan Helga Birgis-
dóttir, Gegga, kynntist Neale haust-
ið 2008 á sex daga námskeiði hjá
honum sem haldið var í Bretlandi.
Hún kynntist svo Neale og eigin-
konu hans, ljóðskáldinu Em Claire,
frekar fyrir ári og í haust varð hann
við beiðni hennar um að heimsækja
Ísland og halda fyrirlestur í Þjóð-
leikhúsinu næstkomandi miðviku-
dag. Nánari upplýsingar má sjá á
Facebook viðburðinum „Neale Do-
nald Walsch á Íslandi“.
Neale
Walsch til
Íslands
Heldur fyrirlestur í
Þjóðleikhúsinu
Metsöluhöfundur Bandaríski rit-
höfundurinn Neale Donald Walsch.
Þessar vangaveltur
eru þó óþarfar því
myndin endar með þvílíkri
sprengju.. 37
»
Netverkið Her-
bergi 408 eftir
Hrafnhildi Haga-
lín og Steinunni
Knútsdóttur er
tilnefnt til Evr-
ópuverðlaunanna,
Prix Europa,
2010 í flokki ný-
miðla. Verkið var
frumflutt í net-
leikhúsinu Her-
bergi 408. Nálgast má verkið á
www.herbergi408.is. Leikarar eru
Árni Pétur Guðjónsson, Harpa Arn-
ardóttir og Aðalbjörg Árnadóttir.
Tónlist og hljóðmynd annast Kristín
Björk Kristjánsdóttir. Útvarps-
leikritið Einfarar eftir Hrafnhildi í
leikstjórn hennar var einnig tilnefnt
til Prix Europa verðlauna.
Herbergi 408
tilnefnt til Prix
Europa 2010
Hrafnhildur
Hagalín
Að frumkvæði Errós efnir Listasafn
Reykjavíkur til samkeppni um gerð
klippimynda í tengslum við sýninguna
Erró – Klippimyndir (1950-2010). Mark-
mið samkeppninnar er að auka skilning,
þekkingu og áhuga almennings og nem-
enda á samklippi (collage) sem list-
formi.
Samkeppnin felst í því að búa til
klippimynd úr fundnu prentuðu efni s.s.
dagblöðum, tímaritum, bókum eða öðru
útgefnu og tvívíðu efni.
Þátttakendum er skipt upp í tvo
flokka: nemendur í 7. og 8. bekk grunn-
skóla um land allt og íslenskan almenn-
ing 14 ára og eldri. Skila verður mynd-
um fyrir kl. 17.00 mánudaginn 1.
nóvember nk.
Aukinn skilningur,
þekking og áhugi
SAMKEPPNI UM KLIPPIMYNDIR