Morgunblaðið - 17.09.2010, Qupperneq 43
MENNING 43Fólk
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2010
*Verð á mann miðað við flug fram og til baka til Reykjavíkur, Egilsstaða, Akureyrar eða Ísafjarðar.
FLUGFELAG.IS
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/F
LU
51
06
3
08
/1
0
SKEMMTUM OKKUR
INNANLANDS
Um landið allt eru framúrskarandi veitingastaðir og hlýleg hótel og ekki
þarf að fljúga langt til að kúpla sig út úr stressinu. Komum sterk inn í nýja
vinnuviku með góðar minningar í farteskinu.
FLUG OG GISTING Í EINA NÓTT
FRÁ AÐEINS 21.030 KR.*
Írski stórleikarinn Liam Neeson ku
vera farinn að líta aftur í kringum
sig en rúmt ár er liðið frá því að eig-
inkona hans, leikkonan Natasha
Richardson, lést eftir að hafa fallið á
skíðum.
Fyrr í þessum mánuði sást til
Neeson með almannatenglinum
Frya St. Johnston og fór að sögn
sjónarvotta vel á með þeim. John-
ston er sjálf fráskilin en fyrrverandi
eiginmaðurinn fer fögrum orðum um
Fryu og segir hana dásamlega
manneskju og frábæra móður.
Að sögn vina vill Neeson þó fara
varlega og segir syni sína tvo vera í
algjörum forgangi hjá honum.
Leikarinn hefur ekki setið auðum
höndum en á þessu ári komu út
myndirnar The A-Team og Clash of
the Titans þar sem hann fer með að-
alhlutverk og síðar á árinu er nýtt
framhald af ævintýrunum í Narníu
væntanlegt en þar ljær hann ljóninu
Aslan rödd sína. Samkvæmt IMD-
b.com er Neeson að vinna að heilum
átta kvikmyndum þar fyrir utan en
hver veit nema hann gefi sér engu að
síður tíma fyrir rómatíkina.
Stefnumót Eftir mikið áfall birtir nú á ný hjá Neeson.
Neeson farinn að
líta í kringum sig
Hið óvænta stórstirni Susan Boyle
fékk ósk sína uppfyllta í gær þegar
hún söng fyrir páfann sjálfan við
messu í Skotlandi. Messan fór fram
utandyra og mættu um það bil 65
þúsund manns í von um að berja
páfann augum.
Söngkonan var klædd í svarta
kápu og svarta skó þegar hún steig
á svið og söng meðal annars „I
Dreamed a Dream“ og sálminn
„How Great Thou Art.“
Að sögn viðstaddra stóð Boyle
sig frábærlega og fékk hárin til að
rísa líkt og hún gerði þegar hún
steig fyrst fram á sjónarsviðið í
þættinum Britain’s Got Talent í
apríl í fyrra.
Í samtali við Sky-fréttastofuna
sagði Boyle eftir sönginn að nú
hefði draumur hennar ræst. „Þetta
er eitthvað sem mig hefur alltaf
dreymt um, alltaf langað til að gera
og loksins er ég hér og hef fengið
þetta tækifæri.“
Reuters
Draumur Susuan Boyle átti sér
draum og hann rættist í gær.
Söng fyrir
páfann
Forseti Bandaríkjanna, Barack
Obamba, hyggst á næstunni gefa út
barnabókina Of Thee I Sing. Bókina
skrifaði hann áður en hann var kjör-
inn forseti en allur ágóði mun renna
til barna látinna og fatlaðra her-
manna.
Þrátt fyrir að tæpir tveir mánuðir
séu í útgáfudaginn hefur bókin þeg-
ar skotist upp sölulista vestanhafs
og situr á topp 25 listum bæði ama-
zon.com og barnesandnoble.com.
Obama Er metsöluhöfundur.
Vinsæl
barnabók