Morgunblaðið - 25.01.2011, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 5. J A N Ú A R 2 0 1 1
Stofnað 1913 20. tölublað 99. árgangur
LAGÐI GRUNNINN
AÐ BESTA HLAUPA-
HÓP ÁRSINS 2010
HEILDARSÝN SKORTIR
Í HEILBRIGÐISKERFINU
ÆFA SAMAN
FRUMSAMIÐ
BALLETTVERK
LÆKNAR GAGNRÝNA AÐFERÐAFRÆÐI 16 ÁDEILA Á HÉGÓMA 30HLAUPAHÓPUR FH 10
Fréttaskýring eftir Baldur Arnarson
Morgunblaðið/Ernir
Eldsneyti Tölurnar á bensínstöðvunum
hafa aldrei verið hærri, eftir að N1 hækkaði.
N1 reið á vaðið í gærkvöldi og
hækkaði verð á bensíni um fimm
krónur og dísilolíu um 4,50 kr. Fór
bensínlítrinn í 217,90 krónur og
sama verð var á dísilolíunni. Þegar
Morgunblaðið fór í prentun höfðu
önnur olíufélög ekki fylgt N1 eftir
en þetta er hæsta eldsneytisverð
sem sést hefur hér á landi.
Að sögn Magnúsar Ásgeirssonar,
innkaupastjóra hjá N1, eru ástæður
hækkunarinnar tvær, annars vegar
hækkun á sköttum á eldsneyti og
kemur þá til framkvæmda síðari
hluti hækkunar á sköttum af elds-
neyti samkvæmt samþykkt Alþingis
í desember sl. Hækkun skatta kem-
ur til framkvæmda þegar nýjar
birgðir af hverri tegund koma í
sölu. Önnur ástæða hækkunarinnar
er þróun á heimsmarkaðsverði og
einkum veiking krónunnar gagn-
vart dollar. bjb@mbl.is
Eldsneytisverðið
aldrei verið hærra
Beðið neysluviðmiða
» ASÍ óskaði eftir því að vel-
ferðarráðuneytið birti tölur um
neysluviðmið fyrir viðræðurnar.
» Guðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra segir að tölurnar
verði birtar 7. febrúar nk. „Ég
harma það að þær skuli ekki
vera til fyrr.“
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Óvissa um endurnýjun kjarasamn-
inga hefur magnast enn eftir að slitn-
aði upp úr viðræðum samninganefnd-
ar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins í
húsakynnum ríkissáttasemjara í gær.
Ræða átti forsendur fyrir gerð kjara-
samninga til allt að þriggja ára. Gera
SA það að skilyrði að lausn fáist í sjáv-
arútvegsmálum áður en gengið verði
frá kjarasamningum. Segist samn-
inganefnd ASÍ ekki reiðubúin að setj-
ast að viðræðum á þessum forsend-
um.
Einn af reyndustu fulltrúum verka-
lýðshreyfingarinnar minntist þess
ekki, í samtali við Morgunblaðið, að
svo flókin staða hefði komið upp í
kjaraviðræðum um áratugaskeið.
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra segist furða sig á að samn-
ingamenn skuli meðal annars fara frá
borðinu út af sjávarútvegsmálum.
„Ég sé ekki tenginguna þar á milli
fyrir alla atvinnurekendur á Íslandi,“
segir Guðbjartur.
Hvert framhald viðræðna verður
ræðst af viðræðum atvinnurekenda
við einstök landssambönd og félög,
sem vilja fæst semja lengur en til
næsta hausts. Boðað hefur verið til
fundar hjá ríkissáttasemjara í dag í
deilu Starfsgreinasambandsins og
SA. Að sögn Björns Snæbjörnssonar,
formanns samninganefndar SGS, er
ekki hægt að ganga að kröfum SA um
að tengja gerð kjarasamninga við
lausn á sjávarútvegsmálum.
MViðræðum siglt í strand »12
Óvissa um samninga eykst
Viðræðuslit um endurnýjun kjarasamninga hjá ASÍ og SA Strandaði á kröfu
SA um lausn í sjávarútvegsmálum Starfsgreinasambandið fundar með SA í dag
Lán Sparisjóðsstjórinn ekki viss um
fordæmisgildi nýgengins dóms.
Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Keflavík-
ur segist efast um að dómur Héraðs-
dóms Reykjavíkur um ólögmæti lána
Íslandsbanka (áður Glitnis) til kaupa
á nýju stofnfé í Byr og Sparisjóði
Norðlendinga muni reynast fordæm-
isgefandi fyrir öll slík lán. Einar
Hannesson sparisjóðsstjóri segir að
lögfræðingar á vegum Sparisjóðs
Keflavíkur hafi skoðað nýgengna
dóma Héraðsdóms Reykjavíkur.
„Þeir telja ekki að lánin sem Spari-
sjóður Keflavíkur veitti eigi að fella í
sama flokk og lánin frá Glitni á sínum
tíma. Þó svo að dómurinn sem féll í
héraði verði staðfestur er ég alls ekki
viss um að hann reynist fordæmis-
gefandi fyrir okkur,“ segir spari-
sjóðsstjórinn við Morgunblaðið.
Einar vill ekki gefa upp um
hversu háar fjárhæðir er að tefla
fyrir Sparisjóð Keflavíkur. Hann
bendir þó á að þegar hafi nokkur af-
skrift farið fram á þessum lánum,
þar sem öllum lántökum hafi verið
boðin endurskipulagning á sínum
lánum. Einar segir samt að ef öll
stofnfjárlánin yrðu afskrifuð í dag
þyrfti sparisjóðurinn aukið framlag
frá ríkissjóði. »14
Efast um fordæmisgildið
Sparisjóður Keflavíkur veitti lán til kaupa á eigin stofnfé
Draumurinn um að Ísland ynni til verðlauna á sínu þriðja stórmóti í hand-
knattleik varð að engu þegar íslenska liðið tapaði fyrir Spánverjum, 24:32,
í Jönköping í gær. Þó liðið geti enn jafnað sinn besta árangur á heims-
meistaramóti frá upphafi voru vonbrigði íslensku leikmannanna mikil og
Guðjón Valur Sigurðsson var miður sín í leikslok eins og myndin ber með
sér. » Íþróttir
Verðlaunadraumur Íslands varð að engu
Morgunblaðið/Golli
MP banki er
búinn að gera
upp við slita-
stjórn Lands-
bankans allar
útistandandi
kröfur á milli
bankanna. Í
hálfsársuppgjöri
MP frá því í fyrra
er að finna 750 milljóna króna
gjaldfærslu sem meðal annars er til
komin vegna þeirra millifærslna af
reikningum Landsbankans í Seðla-
banka Íslands, sem eru til rann-
sóknar hjá embætti sérstaks sak-
sóknara. »14
Uppgjöri MP og
Landsbanka lokið
Ísland er í 15. sæti á lista yf-
ir tíðni krabbameins í ein-
stökum löndum. Sé litið
bæði til karla og kvenna
greinast 282 tilfelli á hverja
100 þúsund íbúa á Íslandi.
Sé hins vegar aðeins litið til
kvenna erum við í 11. sæti
með 266 tilfelli en sé aðeins
litið á tölfræðina hjá körlum
erum við í 24. sæti með 306 tilfelli á
hverja 100 þúsund íbúa.
Á hverju ári greinast 326 Danir á
hverja 100 þúsund íbúa í Danmörku
með krabbamein en sjúkdómurinn
er hvergi algengari en þar í
landi. Ein af ástæðum þess
að tíðnin mælist svo há gæti
verið að læknar í Danmörku
standi sig einfaldlega betur
í því að greina meinið. Lífs-
stíll þjóðarinnar er þó ef-
laust einn áhrifavalda en
hlutfall danskra kvenna
sem reykja er óvenjuhátt.
Velmegunarríkin raða sér í efstu
sæti listans, sem rakið er til þess að
þar eru menn líklegri til að vera of
feitir, drekka of mikið og hreyfa sig
of lítið. »15
Ísland í 15. sæti á lista
yfir tíðni krabbameins