Morgunblaðið - 25.01.2011, Page 2

Morgunblaðið - 25.01.2011, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Kjarasamningar, sjávarútvegs- og orkumál voru í brennidepli á atvinnumálafundi sem Samtök at- vinnulífsins stóðu fyrir í Stapa í Reykjanesbæ í gær. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, og Vilmundur Jósefsson, formaður SA, fóru yfir stöðuna í atvinnulífinu og yfirstandandi kjara- viðræður en Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norð- uráls, og Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, fjölluðu um stöðu verkefna á vegum fyr- irtækjanna. Viðmælendur Morgunblaðsins voru sammála um að það sem einkenndi ástandið á Suðurnesjum væri biðstaða, þrátt fyrir að sóknarfærin væru mörg. At- vinnuleysi á landinu er hvergi meira en á Suður- nesjum eða um 13,1% og að sögn Ríkharðs Ibsen, formanns Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi, eru menn undrandi yfir því að engin hreyfing virðist vera á málum. Mikilvægt að eyða óvissunni „Það var aðallega verið að fara yfir stöðu mála en hér bíða menn bara eftir að eitthvað fari af stað. Menn spyrja sig líka hvort stjórnvöld í landinu séu virkilega hlynnt þessum verkefnum eða hvort þau séu að leggja stein í götuna,“ sagði Ríkharður eftir fundinn og vísar þar til fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Í kynningu Ásgeirs Margeirssonar kom fram að hjá HS Orku væru í gangi tvær framkvæmdaáætl- anir fyrir 2011, sú sem nú er í gildi og gerir aðeins ráð fyrir lágmarksframkvæmdum og önnur sem byggist á þeim forsendum að framkvæmdir við nýjar virkjanir geti hafist. Fyrir þurfi þó að liggja virkj- unarleyfi, orkusölusamningar og fjármagn til fram- kvæmdanna, en ein af forsendum þess að fjármögnun takist sé að óvissu um eignarhald HS Orku verði eytt. Ragnar Guðmundsson fór yfir stöðu fram- kvæmda við álverið og nefndi endurskoðun raf- orkulaga og rammaáætlun um orkumál sem dæmi um önnur mál sem þyrfti að klára. Að hans sögn þyrfti fyrst og fremst að eyða allri óvissu og nefndi hann einnig sjávarútveginn í því sambandi. „Það þarf að skýra leikreglurnar, hvernig á að haga þessu til framtíðar, því til að vinna að framþróun verða forsendurnar að vera þekktar,“ sagði Ragnar eftir fundinn. „Við fengum spurningar um það hve- nær hægt væri að klára það sem út af stendur milli Norðuráls og HS Orku og við erum sammála um að það þarf að fara saman lausnin á því og niðurstaða varðandi eignarhald, virkjanaleyfismál og orku- flutningsverðið. Það er ekki hægt að taka eitthvert eitt atriði út fyrir, menn verða að taka höndum saman og leysa þessi mál,“ sagði Ragnar. Ljósmynd/Víkurfréttir Atvinnumál Fundurinn í Stapa í gær var fjölsóttur en ræðumenn voru Vilhjálmur Egilsson frá SA, Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, og Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku. Öll mál í biðstöðu  Fundað um stöðu atvinnumála á Suðurnesjum í gær  Mörg sóknarfæri en engin hreyfing á málum Össur Skarphéðinsson utanrík- isráðherra kynnti norðurslóða- stefnu íslenskra stjórnvalda á ráð- stefnu um norðurslóðamál í Tromsø í Noregi í gær. Um 700 manns sækja ráðstefnuna sem nú er haldin í fimmta sinn. Össur átti einnig fund með Jon- as Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, um norðurslóðamál og sameiginlega hagsmuni ríkjanna þar, að því er fram kemur í til- kynningu frá utanríkisráðuneyt- inu. Össur lagði í ræðu á ráðstefn- unni áherslu á stöðu Íslands sem strandríkis á norðurslóðum og mikilvægi þess að allar ákvarðanir er vörðuðu framtíð svæðisins væru teknar í góðri samvinnu við íbúa þess. Huga yrði að velferð íbú- anna og leggja áherslu á aðgerðir til að draga úr áhrifum loftslags- breytinga, aðgerðir til meng- unarvarna og aðgerðir er styddu sjálfbæra þróun norðurslóða. Þetta ætti ekki síst við um rétt frumbyggja á svæðinu. ESB-umsókn hefur ekki áhrif Þá sagði Össur nauðsynlegt að efla Norðurskautsráðið og að þar yrði ekki aðeins vettvangur til við- ræðna heldur einnig til að taka ákvarðanir um málefni heim- skautsins. Hann sagði að umsókn Íslands um aðild að Evrópusam- bandinu hefði ekki áhrif á stefnu Íslendinga í norðurslóðamálum og Ísland ætlaði sér að hafa áhrif á norðurslóðastefnu sambandsins ef íslenska þjóðin samþykkti aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ráðherrar Össur Skarphéðinsson og Jonas Gahr Støre áttu fund. Norður- slóðaverk- efnið kynnt  Fundað með utan- ríkisráðherra Noregs Um klukkan 23 í gærkvöldi var næturvakt Slökkviliðs höfuðborg- arsvæðisins búin að fara í 15 sjúkraflutninga á þeim þremur tím- um sem liðnir voru af tólf tíma vakt en það þykir nokkuð mikið. Að sögn Sigurjóns Hendriks- sonar innivarðstjóra er orðið al- gengt að farið sé í 18-23 flutninga á næturvaktinni en aðallega sé verið að flytja veikt fólk. „Það er ekki mikið um slys núna en talsvert af veikindum. Ef fólk er með und- irliggjandi kvilla og fær svo slæma flensu getur það orðið mjög veikt á stuttum tíma.“ Níu bílar voru mannaðir í nótt en að öllu jöfnu eru þeir tíu á daginn. Að sögn Sigurjóns er þó hægt að auka fjöldann upp í 13 á mjög stutt- um tíma, þegar mikið liggur við. Næturvakt slökkvi- liðsins í 15 útköll á þremur tímum Fjármálastjóra Orkuveitu Reykja- víkur, Önnu Skúladóttur, var sagt upp störfum í gær og gengið frá starfslokasamningi, sem veitir henni laun í níu mánuði. Í stað hennar tók Ingi Jóhannes Erlingsson tímabund- ið við sem framkvæmdastjóri fjár- mála hjá OR. Ingi var áður for- stöðumaður fjár- og áhættustýringar hjá OR en Anna hafði verið fjár- málastjóri frá 2006. Í tilkynningu frá OR, sem send var fjölmiðlum í gærkvöldi, er haft eftir Helga Þór Ingasyni, forstjóra OR, að hann vilji stilla upp breyttu liði þar sem þau verkefni, sem mest séu að- kallandi hjá fyrirtækinu, tengist fjár- mögnun þess. Á vegum forstjóra er nú starfandi samráðshópur með eig- endum OR um fjármögnun fyrirtæk- isins og verkefna þess og hefur Ingi Jóhannes starfað þétt með þeim hópi. Kynnti Helgi Þór þessa breytingu á stjórnendateyminu á fundi stjórnar Orkuveitunnar í gær. Í tilkynning- unni þakkar Helgi Þór Önnu fyrir störf hennar í þágu Orkuveitunnar. Ingi Jóhannes hefur starfað hjá OR í átta ár, þar af síðustu fimm árin sem yfirmaður fjár- og áhættustýringar. Forstjórastaða að losna Þess má geta að stjórn OR hefur auglýst stöðu forstjóra lausa til um- sóknar. Ráðningartími Helga Þórs rennur út í lok febrúar nk. en tekið var fram í upphafi að ráðning hans væri tímabundin, eftir að Hjörleifi B. Kvaran var sagt upp störfum. Fjármála- stjóra OR sagt upp störfum Anna Skúladóttir Ingi Jóhannes Erlingsson Dansarinn Steve Lorenz, sem slas- aðist alvarlega á æfingu Íslenska dansflokksins á föstudag þegar band hertist að hálsi hans, er laus úr önd- unarvél og kom- inn til meðvit- undar. Það var Sigrún Lilja Guðbjarts- dóttir, framkvæmdastjóri dans- flokksins, sem staðfesti fréttirnar og sagði Steve vera á batavegi. Laus úr öndunarvél og á batavegi Íslenski dansflokkurinn Guðmundsson seðlabankastjóri sat fundinn ásamt tveimur öðrum starfsmönnum Seðlabankans, en endurritið er í eigu bankans. „Við fengum að líta endurritað samtal seðlabankastjóranna, sem var mjög fróðlegt. Allar upplýsingar um svona hluti eru fróðlegar,“ sagði Kristján Þór Júlíusson, Sjálfstæð- isflokki, eftir fundinn. „Þessi sam- skipti voru ný fyrir mér.“ „Ég legg á það mikla áherslu að samtalið verði birt þannig að Ís- lendingar geti sjálfir metið innihald þess,“ sagði Höskuldur Þórhallsson, Framsóknarflokki, sem vildi að öðru leyti ekki tjá sig um efni fund- arins. Oddný G. Harðardóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar og formaður fjárlaganefndar, sagði að það hefði verið gott að sjá samtalið, en inni- hald þess hefði ekki komið á óvart. Oddný kvaðst ekki leggja áherslu á að samtalið yrði birt opinberlega. „Þeir aðilar sem málið snýst um vilja að trúnaður sé á skjölunum. Ég virði það og á engra annarra kosta völ,“ sagði Oddný. Englands- banki hefur ekki viljað samþykkja það hingað til að samtalið verði birt. „Það kemur væntanlega í ljós í nefndarálitum hvað menn leggja út af því sem kom fram á þessum fundi,“ sagði Þór Saari, Hreyfing- unni. „Auðvitað eru hagsmunir Ís- lendinga að þetta verði birt en bara prinsippsins vegna. Svo er það bundið trúnaði hvort það séu raun- verulegir hagsmunir eða ekki.“ Nefndarmenn greinir á um hve- nær eigi að afgreiða Icesave-málið úr nefndinni. Meirihlutinn leggur áherslu á að það gerist fyrr en síðar, en minnihlutinn vill gefa sér meiri tíma til að fara yfir það. Samtal seðlabankastjóra sýnt  Þingmenn bundnir trúnaði yfir efni fundar fjárlaganefndar  Nefndarmenn vilja að samtalið verði birt  Skiptar skoðanir um hvenær Icesave eigi að fara úr nefnd Höskuldur Þór Þórhallsson Þór Saari Oddný Harðardóttir Kristján Þór Júlíusson BAKSVIÐ Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Alþingismenn í fjárlaganefnd fengu á fundi nefndarinnar í gærkvöldi að sjá endurrit af samtali Davíðs Odds- sonar, þáverandi seðlabankastjóra Íslands, og Mervyns Kings, banka- stjóra Englandsbanka, frá aðdrag- anda bankahrunsins. Nýjasta Ice- save-samkomulagið er þessa dagana til umræðu í fjárlaganefnd og var samtalið birt í tengslum við það. Davíð lét þau ummæli falla nýverið að í samtalinu hefði King sagt að Englandsbanki myndi ekki gera þá kröfu að Íslendingar endurgreiddu innistæður á Icesave-reikningum. Þingmenn vildu ekki tjá sig um innihald samtalsins eftir fundinn og sögðu að þeir væru bundnir trúnaði yfir því sem þar kom fram. Már

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.