Morgunblaðið - 25.01.2011, Síða 21

Morgunblaðið - 25.01.2011, Síða 21
þetta leyti stofnuðum við gömlu KR-ingarnir, þú varst orðinn einn af okkur, gönguhóp og fórum með mökum okkar í lengri og skemmri gönguferðir og meðal annars fórum við saman í ógleymanlega þriggja daga gönguferð frá Hvítárnesi að Hveravöllum. Og síðan var það golfið og það var ekki tekið neinum vettlingatökum. Ég var svo lánsam- ur að fara með þér nokkrum sinn- um á golfvöllinn, í byrjun til þess að spila með þér en síðar til þess að læra af þér. Alltaf sama keppnis- skapið og harkan við sjálfan sig. Immi minn, þú átt yndislega fjöl- skyldu, Ásthildur hefur reynst ómetanlegur förunautur og stoð þín og stytta í gegnum lífstíðina. Ríki- dæmi ykkar er fjögur yndisleg börn auk barnabarna. Ég kveð þig með miklum sökn- uði, kæri vinur, um leið og ég bið Guð að blessa þig og styðja Ásthildi og börnin og nákomna ættinga á erfiðum tíma. Guð blessi okkur öll og haldi verndarhendi yfir okkur. Kæri vinur, þetta er kveðja til þín og þinna frá undirrituðum og gömlum og góðum KR-vinum. Kolbeinn Pálsson. Ég vil með nokkrum orðum minnast vinar míns Guðmundar Þorsteinssonar sem andaðist þann 16. janúar eftir erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Við Immi kynnt- umst ungir í körfuboltanum þegar aðalkeppnisstaðurinn var Háloga- landið. Hann var í öflugu liði ÍR- inga sem voru ósigrandi um árabil og þar var hann hæstur. Stór og stæðilegur; var okkar fyrsti alvöru miðherji í íþróttinni. Hann var margfaldur Reykjavíkur- og Ís- landsmeistari með félagi sínu en varð að hætta 1962 sökum veikinda. ÍR-liðið varð fyrst íslenskra körfu- knattleiksliða til þátttöku í Evrópu- keppni og skoraði Immi fyrstu stig Íslendinga í þeirri keppni. Og þá má nefna að hann var landsliðs- maður 1961-1962. Immi var mikill áhugamaður um körfubolta og þegar tók fyrir iðkun sneri hann sér að öðrum málefnum á vettvangi íþróttarinnar. Hann var annar tveggja Íslendinga sem fyrst- ir sóttu námskeið milliríkjadómara á vegum FIBA. Immi þýddi útgáfu körfuknattleiksreglna sem komu út árið 1966. Hann var landsliðsþjálf- ari 1968-1969 og aftur 1972. Hann sat í stjórn KKÍ 1968-1969 og 1990- 1994 og starfaði í nokkrum nefnd- um á vegum KKÍ hin síðari ár. Þá þjálfaði Immi meistaraflokka karla hjá okkur KR-ingum sem og hjá Njarðvík, Val og Haukum og sjálf- sagt er ekki allt upptalið. Hann kom víða við á þessum vettvangi. Fyrir rúmum 25 árum byrjuðu þau Ásthildur og Immi að ganga með okkur hjónum um óbyggðir landsins. Saman og oft í stærri hópi góðra vina fórum við lengri og skemmri ferðir. Þær eru ógleyman- legar stundirnar síðla dags í fjalla- skálum, fjallate í krús, sigrar dags- ins að baki og rætt um allt milli himins og jarðar. Um misalvarleg málefni af fullkomnu ábyrgðarleysi og hlegið dátt. Árvissar voru Jóns- messugöngur á fjöll suðvestanlands og sömuleiðis voru Esjuferðir ómissandi þáttur í tilveru okkar. Þótt hann gengi ekki heill til skógar var aldrei nein uppgjöf í Imma og aldrei kom annað til greina en að ná á tindinn og ljúka ferð. Hann fór bara á sínum hraða og lét ekkert trufla sig. Við störfuðum saman í nokkrum nefndum á vegum KKÍ seinni árin og alltaf var hægt að reiða sig á örugga vinnu Imma. Hann var öfl- ugur samstarfsmaður, í senn sam- viskusamur og afkastamikill og fram úr hófi ósérhlífinn. Þetta var eins og í fjallgöngunum, hann lauk þeim verkefnum sem hann tók að sér. Nú þegar leiðir skilur er mér efst í huga þakklæti fyrir stundirnar sem við áttum saman og það er með söknuði sem við Harpa kveðjum ljúfan dreng og góðan vin. Við vott- um Ásthildi, börnum, tengdabörn- um og barnabörnum okkar dýpstu samúð. Gunnar Gunnarsson. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2011 ✝ Kristján Björg-vinsson fæddist 4. mars 1927 á Eski- firði. Hann lést á fjórðungssjúkrahúsi Neskaupsstaðar 18. janúar 2010. Foreldrar hans voru Einar Björgvin Guðmundsson, f. 6.6. 1894, d. 13.10. 1962, og Sigurveig María Kristjáns- dóttir, f. 27.4. 1899, d. 24.11. 1988. Systkini: Hrefna Björgvinsdóttir, f. 23.7. 1918, Kjartan Björgvinsson, f. 21.5. 1921, d. 30.1.1982, Viktoría Björgvinsdóttir, f. 17.4. 1923, El- ínóra Björgvinsdóttir, f. 27.6. 1924, d. 28.12. 1979, uppeld- isbróðir Ingvi Rafn, f. 13.8. 1939, d. 9.11. 1994, sonur Hrefnu syst- ur Kristjáns. Maki: Þuríður Kristín Guð- laugsdóttir, f. 28.8. 1939. Börn, tengdabörn og barnabörn: Hjör- dís Sigurðardóttir, f. 17.11. 1962, gift Sigurði Blöndal, f. 12.11. 1960, þeirra börn eru Sigurður Blöndal Sigurðsson, f. 28.1. 1991, Edda Kristín Blöndal Sig- urðardóttir, f. 30.4. 2002, fyrir átti Hjör- dís soninn Kristján Þór Héðinsson, f. 12.1. 1982, í sambúð með Sif Kröyer Þor- valdsdóttur, f. 25.4. 1982. Þeirra dóttir Móey Kröyer Krist- jánsdóttir, f. 15.8. 2009, Guðlaugur Kristjánsson, f. 19.7. 1965, kvæntur Al- bertina Rosa Brodthagen, f. 7.5. 1956, sonur þeirra er Viktor Andri Guðlaugsson, f. 31.5. 1997. Fyrir átti Rosa soninn Daniel Stefan Brodthagen, f. 9.1. 1994. Björgvin Kristjánsson, f. 13.9. 1969, kvæntur Elfu Kristínu Sig- urðardóttur, f. 19.3. 1963. Dóttir þeirra er Þuríður Nótt Björgvins- dóttir, f. 24.5. 1998, en fyrir átti Elfa dótturina Ólöfu Töru Smára- dóttur, f. 23.10. 1985. Útför fer fram í Reyðarfjarð- arkirkju í dag, 25. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Síðasti þorskurinn hefur verið goggaður af línunni, fluttur í land, verkaður og líklegast færður ætt- ingjum, gestum eða gangandi. Mikilsvirtur tengdafaðir minn hef- ur nú kvatt eftir að hjartans slög tóku enda í sívinnandi líkama þessa harðduglega sómamanns. Okkar kynni tókust fyrir góðum tveimur áratugum, er mér lánaðist innkoma í fjölskylduna. Kristján var þá enn á hinum almenna vinnumarkaði, en átti líka litla skektu, sem í heimabyggðinni er alltaf kölluð Sjettan, en það nafn er norskt og kemur líklega með hvalaföngurum á 19. öld. Bátur- inn, sem líklega er fjóræringur frá fyrri hluta síðustu aldar, var svo gott sem endursmíðaður nokkrum sinnum af Kristjáni og hafði hann líka komið fyrir utanborðsmótor og handfæri, sem auðvitað auð- veldaði sjósókn og tryggði betri gæftir. Kristján var mjög upptek- inn af þessu áhugamáli sínu og maður upplifði raunar varla að hann hefði nokkurn tíma farið á eftirlaun, því eftir að hann hætti launaðri vinnu yfirtók útgerðin megnið af hans daglegu störfum. Það þurfti að setja Sjettuna í stand á hverju vori, kannski skipta um borð í boðungnum, bæta leka, tjarga botninn og að síðustu mála, með grænu og gráu. Einnig þurfti gjarnan að stand- setja mótorinn og þar var Kristján Björgvinsson á heimavelli og var nánast óstöðvandi þar til sá utan- borðshengdi var farinn að mala að nýju. Tíminn frá því snemma vors til seint að hausti var að mestu nýttur til að gá að veðri, ausa Sjettuna og svo auðvitað að sigla út Reyðarfjörð, eftir þorski og ýsu. Kristján var vel þekktur í sinni heimabyggð fyrir athafna- semi sína og það var fleira gert upp en Sjettan. Nýtnin var honum í blóð borin og margir sem stæra sig af umhverfismeðvitund kæm- ust ekki með tærnar þar sem Kristján hafði hælana í þeim efn- um. Nánast öll tæki og tól voru endurnýjuð lífdaga oftar en einu sinni, áður en þau voru sett til hliðar, sem mögulegir varahlutir seinna meir. Var þetta gert í ágætis jafnvægi við náttúruna og án yfirfullra hýbýla. Við Kristján áttum það sameig- inlegt að vera heppnir með kvon- fang, sem endurspeglaðist í góðu heimilishaldi, þar sem börn, barnabörn og raunar allir ættingj- ar, nær og fjær, gengu að gest- risni og góðum anda vísum. Mátti oft gera sér í hugarlund, að græn- lensk speki hefði verið innleidd á Hjallaveginn, þar sem tíminn ekki líður, heldur kemur. Við þessi leiðarlok vil ég þakka fyrir góðar stundir, góð ráð og fórnfúsa aðstoð til handa okkur fjölskyldunni, þar með talið barna- börn, sem mátu afa sinn mikils og bregður við alltof skyndilegt frá- fall. Það opinberast fyrir manni, enn betur, við þessi skrif og hug- leiðingar, hve stórt hlutverk Krist- ján Björgvinsson lék á lífsins sviði. Sigurður Blöndal. Minn kæri tengdafaðir Kristján Björgvinsson er lagður til hinstu hvílu þriðjudaginn 25. janúar. Á hugann leita margar minningar og margt hægt að segja og skrá en ljóð Davíðs er það sem ég kýs að kveðja náttúrubarnið Kristján með. Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær, og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt, og svanur á bláan voginn. Elfa. Lífið geymir leyndarmál, sem lærist engum manni. Fyrr en skilur skel frá sál, sem skín frá himins ranni. Margt er það í heimi hér, sem hugnast okkur eigi. En þannig lífsins leiðin er, líkust sveitavegi. Minningarnar fylgja mér, af manni sem ég unni. Með söknuði, afi, sendi þér, smá úr mínum brunni. (Konráð.) Elsku afi, takk fyrir allt, við söknum þín og munum ætíð geyma þig í okkar hjarta Tara og Þuríður Nótt. Kristján Björgvinsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Elskulegur pabbi, afi og bróðir okkar, MARINÓ KRISTINSSON rafvirki, lést laugardaginn 22. janúar. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á 11G á Landspítalanum við Hringbraut fyrir ómetanlegan stuðning og kærleik. Agnes Marinósdóttir, Hjördís Marinósdóttir, Kristinn Björn Marinósson, Sigurður Hrafn Gíslason, Helga Kristinsdóttir, Aron Þór Arnarsson, Marinó Breki Benjamínsson, Ólafur Árni Arnarsson. ✝ Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, GÍSLI ÓLAFUR ÓLAFSSON, Vættagili 21, Akureyri, sem lést af slysförum fimmtudaginn 20. janúar, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. janúar kl. 10.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á reikning nr. 0162-26-6800, kt. 060668-5319. Halla Jensdóttir, Ingvar Örn Gíslason, Ellen Heiður Hreinsdóttir, Ólafur Sveinn Gíslason, Auður Björk Gísladóttir, Eva Hrund Gísladóttir, foreldrar, tengdaforeldar og aðrir aðstandendur. ✝ Faðir okkar, SIGURÐUR J. KRISTJÁNSSON fyrrv. sjómaður, Tjarnarmýri 41, lést á Landspítala Landakoti föstudaginn 21. janúar. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 31. janúar kl. 15.00. Sigrún Sigurðardóttir, Gylfi Sigurðsson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI JÓNSSON húsasmíðameistari, Aðalgötu 1, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, fimmtudaginn 20. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 31. janúar kl. 13.00. Ásta Árnadóttir, Arnar Bjarnason, Guðrún Eiríksdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Hörður Gíslason, Sigríður Júlía Bjarnadóttir, Björn Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, HJÁLMAR ÞORLEIFSSON, Áshamri 31, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja laugar- daginn 22. janúar. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 29. janúar kl. 11.00. Kristín Björnsdóttir, Inga Hjálmarsdóttir, Júlíus V. Óskarsson, Ólafur Hjálmarsson, Sigríður Anna Einarsdóttir, Þorleifur Hjálmarsson, Sigurdís Harpa Arnarsdóttir, Soffía Birna Hjálmarsdóttir, Þorvaldur Ásgeirsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.